Pressan - 21.05.1992, Side 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21.MAÍ 1992
15
er hýlega bu-
ið að senda tvo dóma til
baka til embættisins
Strandgötu í Hafnar-
firði þarsmn talið
r að málin
hafi fallið
tíma.
„Það er augljóst að það er hag-
ur aðila dómsmála að þau gangi
greiðlega fyrir sig,“ sagði Ragn-
ar Aðalsteinsson, formaður Lög-
mannafélags Islands. „Það hefur
oft verið sagt að dómur sem
kemurallt of seint sé ekkert rétt-
læti. Ég býst við að félagar í
Lögmannafélaginu séu almennt
þessarar skoðunar.
Það hafa gengið dómar um
seinlæti héraðsdómara í Hæsta-
rétti, það hafa komið fram at-
hugasemdir, þannig að afstaða
dómstólanna til þessara hluta
liggur alveg fyrir. Breyting verð-
ur á dómstólaskipuninni með
nýju lögunum og þá búast menn
auðvitað við betri tíð,“ sagði
Ragnar.
FINNBOGIVÍTTUR FYRIR
VINNUBRÖGÐ
PRESSAN hefur áður bent á
óvenjulega starfshætti embættis-
ins í Hafnarfirði og greindi ný-
lega frá þvt' er Hæstíréttur víttí
Finnboga Alexandersson dóm-
ara fyrir þunglamaleg vinnu-
brögð.
I grein sem birtíst 2. apríl segir
orðrétt: „I báðum tilfellum var
Finnboga gert að taka málin upp
að nýju þar sem hann hafði dreg-
ið lengur að ljúka þeim en nokk-
ur Iög heimila honum að gera.
Hæstiréttur ómerkti þá dóma
sem Finnbogi hafði kveðið upp
„Við erum að bíða eftir
skýrslu embættisins og dóm-
arans (í Hafnarfirði), sem er á
leiðinni að mér skilst," sagði
Þorsteinn Geirsson, ráðu-
neytisstjóri í dómsmáiaráðu-
neyti.
og vísaði málunum aftur til með-
ferðar hjá Finnboga."
I dómi Hæstaréttar sem kveð-
inn varupp ló.janúaráþessu ári
segir að „vfta ber héraðsdómara
fyrir þá stórvægilegu galla á
málsmeðferð".
Sem dæmi um seinagang í
Hafnaríirði er hægt að taka opin-
bera kæm sem Ríkissaksóknara-
embættíð gaf út á hendur Ólafi
Hrólfssyni, fyrrum stjómar-
manni í Lögvemd, ásamt tveim-
ur öðmm einstaklingum fyrir
meinta fölsun erfðaskrár Magn-
úsar Ólafssonar, móðurbróður
Ólafs. Einnig var Valgeir Krist-
insson, lögmaður og fasteigna-
sali í Hafharfirði, ákærður fyrir
hlutdeild í málinu.
RÚMLEGA FJÖGURRA
ÁRA TÖF
Ákært var 18. apríl 1986 en
málið ekki flutt fyrr en um fjór-
um og hálfú ári seinna, eða í nóv-
ember 1990. Það sama ár höfðu
bréfaskriftir átt sér stað milli
Ríkissaksóknara og Hafnarfjarð-
ar vegna ítrekunar. Guðmundur
L. Jóhannesson héraðsdómari
hafði málið með höndum og
vegna persónulegra tengsla Val-
geirs við embættíð sóttíst Guð-
mundur eftir því að annar dóm-
„Það er augljóst að það er
hagur aðila dómsmála að
þau gangi greiðlega fyrir sig.
Það hefur oft verið sagt að
dómur sem kemur allt of
seint sé ekkert réttlæti. Ég
býst við að félagar í Lög-
mannafélaginu séu almennt
þessarar skoðunar. Breyting
verður á dómstólaskipuninni
með nýju lögunum og þá bú-
ast menn auðvitað við betri
tíð,“ sagði Ragnar Aðal-
steinsson, formaður Lög-
mannafélags íslands.
ari tæki málið að sér. Valgeir er
meðal annars fýrrverandi bæjar-
lögmaður.
Guðmundurúrskurðaði sig frá
málinu, en þær úrskurðarástæður
voru ekki teknar gildar. Hann sat
þvf uppi með málið endanlega
og dæmdi í því.
Þetta getur verið ein af ástæð-
unum fyrir því að rúm fjögur ár
liðu frá því ákært var þar til dóm-
ur féll í málinu. „Meðferð máls-
ins síðan þá er helst til óvenjuleg,
svo ekki sé meira sagt,“ sagði
Jónatan Sveinsson sem var sækj-
andi í málinu, en óskað hafði
verið eftír því að Bjöm Helgason
hjá Ríkissaksóknaraembættinu
tæki að sér það hlutverk en hann
baðst undan því. „Afgreiðsla
dómsgerða hefur dregist úr hófi
frarn og meðferðin eftir dóms-
uppkvaðningu. Mér sýnist sem
dómurinn hafi ekki legið fyrir
nema að litlu leyti, þá væntan-
lega forsendur og dómsorð en
ekki heildin. Ég held að það séu
mörg mál af þessu tagi,“ sagði
Jónatan.
IIKH) TIL í HAFNAR-
FIRÐI
Jónatan fékk dómsgerðir og
ljósrit af dómi í pósti í þessari
viku, um einu og hálfú ári eftir
„Það er hagsmunamál allra
þeirra sem starfa að dóms-
málum að farið sé eftir rétt-
um lagareglum um meðferð
mála. Auðvitað er það hags-
munamál allra sem að máli
koma og í raun grundvailar-
atriði," sagði Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttar-
lögmaður.
að dómur var kveðinn upp.
„Dómurinn sjálfur var birtur
fljótlega eftir að hann féll, en það
hefur dregist að afgreiða dóms-
gerðir. Það er eitthvað verið að
taka tíl þama í Hafnarfirðinum,"
sagði Jónatan.
Guðmundur sýknaði Valgeir
af ákæmnni en Olafur fékk níu
mánaða fangelsi og af því vom
sex mánuðir skilorðsbundnir.
Vottamir tveir vom báðir sak-
felldir og fengu hvor um sig
fjögurra mánaða fangelsi. Þeir
sem PRESSAN ræddi við töldu
að málið væri að ýmsu leyti
mjög merkilegt, og var þá meðal
annars bent á að óvenjulegt væri
að vitni væm dæmd á þennan
hátt.
I öðm tílfelli liðu tæp fjögur ár
ffá því ákæra var gefin út þar tíl
dæmt var. Það var þann 28. ágúst
1972 sem ákæra var gefin út á
tvo menn og þeir sakaðir um
kynferðisbrot gegn stúlkubami.
Dómur var felldur 3. mars 1976
af Guðmundi þar sem mennimir
vom sakfelldir. Málinu var áfrýj-
að og Hæstiréttur sýknaði menn-
ina 11. maí 1978.
Anna H. Hamar
Mðguleiki að
málsmeðferðín
séónýt
Eins og fram hefur komið
sagði Þorsteinn Geirsson, ráðu-
neytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, að sér væri ekki kunn-
ugt um að kvartað hefði verið
undan dómsmeðferð Guð-
mundar L. Jóhannessonar í
nauðgunarmáli því sem
PRESSAN (jallaði um í síðustu
viku. Atli Gíslason lögmaður
var lögfræðingur ákærða í
þessu ákveðna máli. Atli
reyndi ítrekað að fá dóminn
sendan og sneri sér á endanum
til dómsmálaráðuneytis. Því
má gera ráð fyrir að ráðuneyt-
inu hafi verið kunnugt um
málavöxtu.
„Ég hafði samband við dóm-
arann nokkrum sinnum munn-
lega árið 1988 og tvívegis
skriflega í ársbyrjun 1989 þar
sem ég spurðist fyrir um þenn-
an dóm án þess að vera virtur
svars,“ sagði Atli Gíslason. „Þá
skrifaði ég dómsmálaráðuneyt-
inu í framhaldi af því í tvígang
og bað um dóminn, sem ég
ekki fékk, heldur orðsendingu
um tíldæmd málsvamarlaun.
Atli Gíslason lögmaður
Mér finnst ýmislegt benda tíl
að dómsforsendur séu samdar
eftír að þessi bréfaskrif áttu sér
stað. Dóma skal kveða upp svo
fljótt sem við verður komið,
samkvæmt lögum um meðferð
einkamála í héraði, sem hér
eiga við. Sé það ekki gert er
málsmeðferðin ónýt, enda
kemur þá munnlegur flutning-
ur ekki að því gagni sem ætlast
ertíl.“
MAGNÚS
Guðmundsson varð fyrstur
Islendinga tíl að verða
dæmdur fyrir alþjóðleg
hryðjuverk og það í Noregi.
Hryðjuverkin fólust í því að
taka málstað eskimóanna og
meiða um leið æru Grænffið-
unga í bíó. Magnús tekur
hins vegar engum sönsum og
ætlar að áfrýja. Þar að auki er
Magnús að verða einn alls-
herjar þrætupúki því nú er
hann lentur í málaferlum við
leikstjóra myndaiinnar. Sú
þræta snýst reyndar um pen-
inga en ekki hver beri ábyrgð
á ærumeiðingunum.
Nú er komin skýring á
góðmennsku Alfreðs Þor-
steinssonar súpumanns —
hann sá tvo eiturlyfjasjúk-
linga í jakkafötum biðja af-
greiðslustúlku í matvömbúð
um mat. Spumingin er hins
vegar: Gat Alfreð ekki gefið
þeim vamarliðsjeppa svo við
hin þyrftum ekki að borga
fyrir góðmennsku hans?
En nú loksins em karl-
menn að fá sína vandamála-
umljöllun. Sérstök ráðstefna
hefur verið boðuð í lok mán-
aðarins og þar mæta helstu
sérfræðingar í vandamálum
karlmanna eins og Sigurður
SiUEvarr,Ari Skúlason,
Margrét S. Bjömsdóttir,
JÓHANNA
Sigurðardóttir (sem ekkert
aumt má sjá), Elsa Þorkels-
dóttir (væntanlega fyrir hönd
þeirra sem alltaf em að beija
á karlmönnum), Þorvaldur
Karl Helgason og Guðmund-
ur Andri Thorsson fyrir hönd
mjúka mannsins. Spakmæli
vikunnar kom frá Áma
Ragnari Ámasyni, sem varp-
aði þessari spumingu fram:
EES — landráð eða þjóðráð?
En brottfall vikunnarer án
efa það þegar
ÁGÚST
Einctrsson hætti sem
samningamaður ríkisins.
Væntanlega hefur hann verið
látinn víkja eftir þau hörmu-
legu mistök að semja upp á
1,7% kauphækkun. Slíkt er
ekki liðið hjá ríkinu og Ágúst
því látinn hætta eða þannig.
Gullmoli vikunnarer hins
vegar
EYJÓLFUR
Sverrisson, sem fékk 3,2
milljónir í aukabónus fyrir að
vinna einhvem skjöld úti í
Þýskalandi — spumingin er
hvað hefði Eyjólfúr fengið ef
hann hefði unnið almennileg-
an titíl? Eyjólfúr hefur hins
vegar mikla sérstöðu meðal
íslenskra atvinnumanna er-
lendis vegna þess að hann fær
að leika með Uði sínu!