Pressan - 21.05.1992, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MAI 1992
39
Haraldur Jónsson
myndhöggvari
Hvað ætlarðu að
gera um helgina
Halli?
✓
„Eg verð að
minnsta kosti innan
stór-Reykjavíkur-
svœðisins“
uraivjdma
Hákon Oddsson
dagskrárgeröarmaöur,
Helga Stefánsdóttir
leikmynda- og búningahönnuöur
og sonurinn
Arnór:
,Simsvarí svarar. Taliö inn á aö tón
loknum. Helga, Manni og Arnór
munu tafarlaust hafa samband."
iö). Mick og Danny komu fyrst fram á
sjónarsviöið hér á árum áöur þegar
þeir skipuöu gítardúett Utangarös-
manna Bubba Morthens og voru í
framvarðasveit nýbylgjunnar, en síö-
ustu ár hefur lítið boriö á þeim.
• Bazaar, heimsmúsíksveitin danska,
veröur á Púlsinum á fimmtudags-,
föstudags- og laugardagskvöld. Jó-
hann G. segir erfitt aö staösetja Baza-
ar nákvæmlega, því í tónlist þeirra sé
aö finna áhrif hvaðanæva úr heims-
byggðinni og tónlistarheiminum:
djassi, fönki, þjóölegri tónlist frá Afríku,
Asíu og rómönsku Ameríku. Bazaar er
hingaö komin fyrir tilstilli danska sendi-
ráðsins, Aldísar Sigurðardóttur, kenn-
Vinir Vigdísar Finnbogadóttur segja að hún hafi ekkert
breyst eftir tólf ára dvöl á Bessastöðum. Ja, héma. Við hin
sjáum samt dálítinn mun á leikhússtjóranum í doppóttu
draktinni og hinum virðulega forseta. En kannski eru vin-
imir ekki að tala um útlitið eða fatasmekkinn.
BARIR
• Tveir vinir er staður, sem afar erfitt
er aö staðsetja í flórunni. Kannski af
því aö liöið, sem helst viröist sækja
hann, er engan veginn hægt aö flokka
svona einn, tveir og þrir. Sem kannski
er bara betra. Staðurinn er talsvert
stærri en maöur imyndar sér — svona
utanfrá — og þar er bæöi hægt aö
stunda heföbundið barfyllerí og þrusu-
rokkstemmningu. Vilji maöur hiö fyrr-
nefnda skreiðist maöur bara rétt inn
fyrir dymar, en sé hiö síðara á óskalist-
anum skríður maður alla leiö inn. Þaö
er talsverð klúbbstemmning á Tveimur
vinum, kannski vegna þess aö það er
tiltölulega lágt til lofts, en frekar held ég
samt vegna þess aö loftræstingin er
lítil sem engin. Þaö þarf ekki aö óttast
eldsvoða þegar líður á kvöldið, til þess
er súrefnismagniö allt of lítiö. Og hafi
verið heitt í salnum geta menn ímynd-
aö sér hvemig bandinu leiö, sem var
baðaö í sterkum Ijósum. En þaö þýöir
ekki að fást um slíkt endalaust, maöur
fer á bari til þess aö drekka en ekki til
þess að anda. Og slíkt er enginn vandi
áTveimurvinum.
POPPIÐ
• Vinir Dóra veröa í Duus-húsi í kvöld
og þar troöa þeir upp meö bræörunum
Mick og Danny Pollock („Never Mind
the Pollocks" eins og sagt var um ár-
Það þykir hafa orðið áberandi
aukning á símtölum hjá Pósti og
síma í svokallaðar kynlífslínur.
Kynlífslínur þessar em að sjálf-
sögðu bannaðar hér en gefa þeim
sem slíka starfsemi stunda er-
Iendis stórfé í aðra hönd og
markaðurinn í Evrópu er víst af-
ar heitur. Viðskiptin fara fram á
þann hátt að hringt er í ákveðið
númer og viðkomandi fær að
heyra virkilega dónalega sögu,
stunur, soghljóð og fleira (marg-
breytOeg þjónusta), og getur við-
skiptavinurinn svo unnið úr
þeim upplýsingum sem hann fær
eins og hann kýs helst.
En þar sem ekkert slíkt er til
hérlendis verða menn að eyða
töluverðum fjárhæðum í að
hringja til annarra landa, Norð-
urlanda tíl dæmis eða Englands,
þar sem þetta er vinsæll bissniss.
Tungumálið ætti ekki að vera
vandamál, en mínútan kostar
rúmar níutíu krónur auk lang-
línuálags úr landi og gemr fjörið
því orðið ansi kostnaðarsamt.
Skriðjöklarnir eru komnir af stað á ný eftir tveggja ára hlé.
Danskættuð stripldrottning verður með þeim á hljómleika-
ferðum í sumar — en þó ekki fyrr en í sumar.
SKRIÐUR KOMINN
Á JÖKLANA
Skriðjöklamir eru komnir á
kreik á ný og verða á Tveimur
vinum á föstudagskvöld. Ætlun-
in er síðan að skn'ða austur fyrir
fjall og verður spilað á Hvoli sól-
arhring síðar. „Við erurn komnir
aftur eftir ágætt hlé og ætlum að
gefa út nokkur lög,“ segir Ragn-
ar Gunnarsson söngvari. „Þetta
er að megninu til sami mann-
skapur nema hvað Kristján Edel-
stein gítaristi og Geir Rafns
trommari eru gengnir til liðs við
okkur.“
Það fréttist að hljómsveitinni
hefði tekist að narra hálft Borg-
ames til að mæta á tónleika um
síðustu helgi og var stemmning-
in góð að sögn Ragga. „Við flytj-
um nokkur lög eftir okkur sjálfa,
en þau em allt öðmvísi en það
sem við gerðum áður. Við reyn-
um þó að halda húmor og út-
koman er, held ég, nokkuð góð.“
Skriðjöklamir ætla að gera út
á tónlist sína í sumar, en geta má
þess sérstaklega að með þeim í
för verður danskættuð stripl-
drottning. „Hún verðurfyrst með
okkur seinnipartinn í júní og af
myndum að dæma er hún ansi
hreint liðtæk,“ segir Ragnar.
hárrétt aöferö til að ná réttri athygli.
Þaö eru þeir Skúli Hansen og Torfi Ax-
elsson, sem leika listir sínar í eldhús-
inu, og þeir leggja sérstaka áherslu á
fiskrétti ýmiss konar meö frönsku ívafi.
Það er skemmst frá því aö segja, aö
sama virðist hvaö pantað er; allt
bráönar þaö uppi í manni og þótt verð-
iö sé i efri kantinum framkallar þaö
engin yfirlið. Vínúrvaliö er ekki tiltakan-
lega mikið, en kjallarinn er mjög vel
valinn, í ýmsum verðflokkum og hvaö-
anæva. Yfir staönum er borgaralegt
yfirbragð, svona eins og geröist áöur
en heimurinn breyttist upp úr afstæöis-
kenningu: hvítir dúkar á boröum, bjart-
ir litir á veggjum, rósettur í lofti og svo
framvegis. Þjónustan er prýöileg —
stimamjúk fremur en persónuleg eins
og vera ber á betri stööum — undir
borðum er leikin mjög lágvær klassísk
tónlist og þrátt fyrir aö gestir séu engan
veginn hver ofan í öörum, hafa menn
tilhneigingu til að tala lágt. Hiö eina,
sem í raun er ástæöa til aö kvarta und-
an, er vínstofan á efri hæö. Hún væri
aö öllu leyti ágæt, ef ekki kæmi til furu-
klætt rjáfrið, sem fær mann til aö finn-
ast maöur vera staddur í stærsta sum-
arbústað á Islandi, sem er öldungis
glögglega úr stíl viö staðinn að ööru
leyti.
KAFFIHÚS
• Mokka er þrátf fyrir allt og allt enn
konungur kaffihúsa bæjarins. Innrétt-
ingin er söm og áður og myndlistar-
sýningin á veggjunum truflar ekki til-
takanlega. Staöurinn er fullur af fa-
stakúnnum meö alls konar sérviskur;
þeir panta ekki kaffi heldur koma
ábúðarfullir eöa annars hugar að
skenkinum og rétta fram aurana án
þess að mæla orö frá vörum. Þaö er til
ÞELDÖKKUR DJAS5
Um helgina verður hér jseldökk djasssöngkona á ferð og kemu
nokkrum sinnum ffam í Reykjavík. Deborah Davis heitir konan o;
þykir upprennandi í djasslífi New York-borgar. Sem bam og ungling
ur söng hún í kirkjukórum, gospel-sveitum og með hljómsveitum, et
röddina þjálfaði hún einnig í sex ára klassísku söngnámi.
Davis hefur starfað með þekktum hljómsveitum á borð við stór-
sveit Lionels Hampton og Clarks Terry. Einnig hefur hún komið fram
með trompetleikaranum Freddie
Hubbard svo og með hljóm-
sveit Arts Blakey.
Davis syngur á
skemmtistaðnum
Ömmu Lú á föstu-
dags- og laugar-
dagskvöþd, á
Jazz í Ármúla
síðla laugar-
dagskvölds og
loks kemur hún
ffam á Púlsinum
á sunnudags-
kvöld. Með söng-
konunni leika Sig-
urður Flosason á sax-
ófón, Þórir Baldursson á
píanó, Tómas R. Einars-
son á kontrabassa og Pét-
ur Grétarsson á trommur.
Deborah Davis syngur
djass á skemmtistöðum
borgarinnar um helgina.
ara viö HÍ, SAS, Eimskipafélagsins og
íslandsbanka, en jafnframt verður
dönsk veisla í Púlsinum á meöan á
þessu stendur. Fyrir 1.500 krónur er
hægt að fá kjarnabrauö meö dönsku
áleggi, spægipylsu, saltkjöt, steikta
rauösprettu, síld, osta, fríkadellur og
hvaðeina, sem öllu er skolað niöur
meö Álaborgara. Fyrir síöustu kon-
ungssinnana hérlendis er þetta prýöis-
upphitun fyrir Grundlovsdagen 5. júní.
• The Orange Empire heldur jóm-
frúrkonsert sinn á Hótel Borg í kvöld.
Bandið hefur reyndar veriö starfandi á
þriöja ár, en haldiö sig í hljóðnámum
fremur en á sviöi. Glöggir sjónvarps-
áhorfendur hafa hins vegar getaö
kynnt sér sveitina aö undanfömu, því
hún sendi frá sér myndband fyrir
skemmstu. Aö sögn kunnugra er tón-
listin vandaö popp á borð við það, sem
Talk Talk hefur stundaö. Heym er hins
vegar vafalaust lesmáli ríkari, en þess
má geta aö þeir Óraníumenn eru
sagöir ætla í víking meö sumrinu og
setja stefnuna bæöi til Lundúna og
vestur um haf.
• Deborah Davis er spaöadrottning
frá Texas, sem syngur meö hljómsveit
Sigurðar Flosasonar í Púlsinum
næsta sunnudagskvöld. Hún hefur
sungiö djass í New York undanfarin
fimm ár og komiö fram með ekki minni
spámönnum en Lionel Hampton,
Clark Terry, Walter Bishop jr. og Art
Blakey. Sérstakir gestir kvöldsins
veröa meölimir dönsku hljómsveitar-
innar Bazaar.
VEITINGAHÚS
Ekki alls fyrir löngu var opnaöur veit-
ingastaöur í gamla húsinu hans Krist-
jáns Sveinssonar, augnlæknis og
heiöursborgara Reykjavíkur, viö
Skólabrú. Staöurinn heitir líka Skóla-
brú og þar á bæ hafa menn kosið aö
auglýsa staðinn ekki, heldur reiöa sig
á orösporið. Og þaö er að líkindum
KLÆDT PÁ TIL SEX
RING NU!!
90 - 23 33 5€
Future
Phone ísa
Kynlífslínur njóta vaxandi vinsælda hérlendis. Viðskiptin fara
þannig fram að hringt er í ákveðið númer og viðskiptavinur-
inn hlustar á eitthvað krassandi. Eftirleikurinn er síðan í hans
höndum — svo og svimandi símreikningur.
Iðja þessi er semsagt ekki
ókeypis, en til að spara aurinn
notfæra sér eflaust einhverjir það
að hringja í vinnutímanum þói
flestir kjósi sjálfsagt að stund
það í kyrrjrey heimavið. Sú kyn
æsandi, sem inn á símsvarani
les, þiggur ákveðið prósentuhlut-
fall í laun, símfélagið í viðkom-
andi landi fær sinn skerf en Póst-
ur og sími uppsker þó einungis
langlínuálag úr landi.
Þessi vinsælu númer er að
finna víða í erlendum blöðum en
Extrabladet er liðtækt og látum
við fáein flakka íyrir áhugasama;
90236061 (við emm við símann
núna...), 90233355 (villtir
draumórar...), 90233354
(draumakynh'0. Þetta er aðeins
brotabrot af því sem býðst.
I framhaldi af þessu verður
fróðlegt að skoða símreikning-
ana þegar sundurliðun þeirra
verður komin til framkvæmda.
VIÐ
MÆLUM
MED
Að fólk fari út og bóni bílinn
Það veitirekki af hressilegri gróðr-
arskúr fyrir sumarið.
Vopnasölu
Það er vafalaust arðvænlegasta
nýsköpun í íslensku atvinnulífi um
langa hríð.
Síðum hárkollum
Það er of seint að safna fyrir tón-
leikana með Iron Maiden og Black
Sabbath.
Frjálsum innflutningi
Bragðlaukarnir eru farnir að
öskra á betra kjöt en fæst af þessum
mjólkurkúastofni, sem hér bítur
gras.
Lestur erlendra blaða og tímarita.
Það er ár og dagur síðan Morgun-
blaðiö hætti að sinna dagblaðshlut-
verkinu og fór að reyna að skúbba
Öldina okkar, svo núna röltir maður
bara inn í Eymundsson og velur úr
heimspressunni. The Herald Tríbune
kemur einatt hingað samdægurs og
það em nýrri og markverðari frettir í
dagsgömlu lndependent, PoUtiken,
Corriera della sera eða Le Monde en
finnast í glóðvolgum Mogga eða DV.
Blöðin em náttúmlega misgóð. Út af
fyrir sig er svo The Financial Times
afar gott blað, en það hefur einhvem
veginn ekki borið sitt barr eftir að við-
skiptaséníið Svavar Egilsson lét það
spyijast út að hann læsi það á hveijum
morgni. Independent er afar gott blað
og Daily Telegraph sömuleiðis. The
New York Times er afar yftrgripsmik-
ið og The Wall Street Journal er
miklu betra almennt fréttablað en
nafnið gefur til kynna. Af dönsku
blöðunum er Berlingske Tidende
sennilega best. Hrökkvi þetta ekki til
er hægt að gn'pa til tímaritanna. Það
lesa allir Newsweek og Time, svo
maður sleppir þeim. U.S. News &
World Report er strax skárra, en alfín-
ast er náttúmlega að lesa The Econ-
omist. Svo er auðvitað aragrúi af sér-
hæfðari blöðum, alls kyns blöð eins
og grínblaðið Spy, hönnunarblaðið
Inlernational Design, New York-
tímaritin, menningarblaðið WigWag
og teiknimyndablaðið Heavy Metal
fyrir fólk með fjölbreyttan smekk. En
að blaðinu keyptu er leikurinn aðeins
hálfnaður, því þá er eftir að finna sér
rétt kaífihús til að sjást lesa blöðin á.
Sjónvarpsgláp. Það er sama hvaða
málfarsráðunauta skoðanakönnuðir
draga fram til að réttlæta orðið ,Jtorf ‘
eða „sjónvarpsáhorf", hið eina sanna
orð er „gláp“ og gláp er úti. Sjón-
varpsgláparar skiptast í tvennt; þá
sem láta sér nægja það ok, sem Ríkis-
útvarpið lætur alla landsmenn ganga
undir, og þá sem borga Stöð tvö íyrir
að hafa mgludall tengdan við heimil-
isaltarið. Á þriðjudag bauð ríkið
manni til dæmis að horfa á þáttinn
Hvutta, sem er um tvo vini en annar
þeirra á það til að breytast í hund þeg-
ar minnst varir. Eftir spennuþáttinn
táknmálsfréttir hófst 48. þátturinn (af
80) af Fjölskyldum ffá Ástralíu. Frétl-
ir og veður er elsti þátturinn í sjón-
varpinu, en hann verður æ leiðinlegri
með ámnum, þrátt fyrir að efniviður-
inn taki ömm breytingum. Þar á eftir
var Augnablik í almenningsgarði,
sem Guð má vita um hvað var. Og þar
á eftir kom aðalþáttur kvöldsins, sem
hét Neytandinn, og fjallaði um um-
búðir utan um daglegar neysluvömr!
Og ástandið var litlu betra á Stöð tvö.
Sjónvarpsdagskráin báðum megin er
svo forheimskandi og leiðinleg að
það liggur við að auglýsingamar hafi
verið skásta efnið. Að minnsta kosti
langbesta innlenda efnið. Sumir
kvarta undan því að hér vanti kapal-
kerfi á borð við þau, sem til eru í
Bandaríkjunum, þar sem unnt er að
velja á milli óteljandi sérhæfðra rása:
Sportrásarinnar, Innkauparásarinnar,
Hryllingsrásarinnar, Menningarrásar-
innar, Fréttarásarinnar og jafnvel
Grínrásarinnar, en allar jtessar stöðv-
ar senda út 24 tíma á sólarhring. Ég
veit ekki — og joó — við emm komin
langleiðina með Grínrásina, að
minnsta kosti meðan þingfundir
standa yftr, og Sýn er í loftinu.