Pressan - 21.05.1992, Page 41
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MAÍ 1992
41
06NIR
EPLISINS
Hinn umdeildi bandaríski
tryllir „Basic Instinct", Ognar-
eðli eins og hann hefur verið
þýddur á nútímaíslensku, verð-
ur írumsýndur í Regnboganum
annað kvöld. Taka skal fram að
um er að ræða óklippt eintak en
kvikmyndaunnendur vestra fá
ekki notið „kræsilegustu" atrið-
anna þar sem hún hefur verið
stytt nokkuð.
Myndin fjallar um lögreglu-
hetjuna Nick Curran (Michael
Douglas) sem rannsakar sóða-
legt morð á rokksöngvara.
Rannsóknin leiðir í ljós þrjár
grunsamlegar kventýpur sem
hver um sig hefði getað haft
ástæðu til að fremja glæpinn.
Curran dregst óhjákvæmilega
að einni þeirra, sem getur reynst
honum lífshættulegt.
Leikstjóri myndarinnar er
hinn þekkti hollenski Paul Ver-
hoeven, sem meðal annars leik-
stýrði RoboCop og Total Rec-
all. Hann segir handritið hafa
heillað sig, en persónumar eru
allar innbyrðis tengdar og er-
ótísk undiralda veruleg. I aðal-
kvenhlutverk átti að fá Untu
Thurman (Dangerous Liaisons)
en hætt við þar sem of dýrt yrði
að fá hana til að fækka fötum
eins og gert er í myndinni. Því
var tekin nokkur áhætta með
mun óþekktari leikkonu, Shar-
on Stone, sem þykir standa sig
með prýði. Ónnur hlutverk
kvenna eru í höndum Jeane
Tripplehom og Leilani Sarelle.
Vestra hafa verið mikil mót-
mæli meðal homma og lesbía
við myndinni, og hafa þau með-
al annars dreift bæklingi sem
segir hver morðinginn er.
ri
Sverró Stormsker
opnar skemmtilega
og hugsanlega
spaugilega myndlist-
arsýningu meö
systkinum sínum,
Stefáni og Guörúnu
Elínu, í Gallerí Borg í
dag.
5VERRO 5TORM5KER I MYNDLI5T
APPEL-
5INUCULA
HEIM5-
VELDIÐ
Hljómsveitin The Orange
Empire heldur tónleika á Hótel
Borg í kvöld. Þeir em sex í
hljómsveitinni — en í raun að-
eins tveir. „Þetta er dúett því við
Svanur semjum allt efni,“ segir
Valgeir Sigurðsson, gítarleikari
og forsprakki. „Við emm hins
vegar með góða hjálparkokka,
tvo fasta og aðra Iausa.“
Tónleikamir em liður í kynn-
ingu á tónlistinni, sem nánast
hvergi hefur heyrst nema í stúd-
íói. „Þetta er innvortis popp með
hæfilegu sým
stigi, blandað þunglyndi og geð-
veiki, en þó með yfirvegaðri
smekkvísi og rósemi," segir Val-
geir. „Þetta er rólegt stemmning-
arpopp og ekki mjög „comm-
ercial" en afskaplega áheyri-
legt.“
Lögin em öll flutt á ensku því
það er hinn engilsaxneski mark-
aður sem heillar drengina og em
þeir á leið utan til að tala við
menn í London og New York.
, J>að er best að ráðast á garðinn
þar sem hann er hæstur.“
Sverrir Ólafsson tónlistar-
maður, sem nú gengur undir
nafninu Sverró Stormsker og
starfsheitinu myndlistarmaður,
opnar sýningu í Gallerí Borg í
dag. Sýningin er „ekki bara
Svertó að kenna“ og með honum
em systkini hans tvö, Guðrún El-
ín og Stefán.
„Reyndar er systir m£n spren-
glærður málari og var hálft ár í
myndlista- og handónýtaskólan-
um—eða vom það tvö ár?“ seg-
ir Sverrir. „Svo er Stefán þama á
bullandi skúlptúr. Hartn er með
glermyndir, kindaketsskúlptura
og handsaumuð jólatré. Þetta
verður skemmtilegt, hugsanlega
verður spaugað og líka farið
nærri djókinu," segir Sverrir.
,£g sýni olíumálverk en ég hef
fengist við olíu allt frá því ég
vann sem bensínafgreiðslumað-
ur hjá Esso.“
Verk Stormskersins em mis-
jöfn að stærð, „en þau em flest
stórmiðað við stærð“. Hann seg-
ist vera ffekar dökkur í litavali,
allt að því kolsvartur, og í raun
sjáist iítið í málverkin. „En þeir
sem em bjartir eða vilja ádeilu
geta samt örugglega fundið eitt-
hvað við sitt hæft.“
Sverrir segir að það
sé systir hans sem er
að reyna að koma
honum á framfæri
því hún hefur tekið
þátt í nokkmm sam-
sýningum í galler-
íinu. „Hún er að
reyna að koma
mér áfram sem
nýjum Erró...
Sverró."
The Orange Empire heldur hæfi-
lega yfirvegaða innvortis popp-
tónleika á Borginni í kvöld.
BÍÓIN
ÓÐUR TIL HAFSINS The Prince of Tides STJÖRNUBÍÓI
Góö saga um alvörufólk. Og Nick Nolte er alvöruleikari. Barbra Streisand viröist hins vegar óöum aö
veröa betri leikstjóri en leikari — án þess aö þaö merki aö hún sé eitthvaö verri leikkona en á árum
áöur. ★★★
GRUNAÐUR UM SEKT Guilty by Suspicion SÖGUBÍÓI
Þótt sorglegt sé er ómögulegt aö horfa á alltof margar myndir um óamerísku nefndina og viökvæmu
listamennina sem uröu fyrir baröinu á henni. Þaö er einn fárra galla viö þessa mynd.
★★★
ardal og rölta um grasagarðinn I ró og
næði. En það er hægt að gera fteira en
aö skemmta sér og slappa af. Laugar-
dag, mánudag og þriðjudag er seinni-
hluti fyrirlestraraðar um unglinga og
vímuefnaneyslu í Geröubergi, sem
hófst nú á mánudag. Og ef maður er
löggiltur endurskoðandi er alveg
ókeypis aö sækja um embætti ríkis-
endurskoðanda, sem veitt veröur til
sex ára. Umsóknarfrestur rennur út
hinn 1. júní.
SJÓNVARP
• Rokk og ringulreið er islenska
nafnið á Great Balls of Fire, sem er
eins konar heimildarmynd um rokkfor-
ingjann og píanóslátrarann Jerry Lee
Lewis. Það er Dennis Quaid, sem fer
með hlutverk Lewis. Það var mikið lát-
iö meö þessa mynd á sínum tima, en
hún gekk ekkert sérstaklega vel. Hins
vegar er vafalaust gaman aö fylgjast
með vægast sagt skrautlegum ferli
Jerry Lee á Stöð tvö klukkan 21.35 á
föstudagskvökf.
• Psycho IV var síöasta myndin í ser-
íunni og var bara prýðilegur tryllir, en
handritiö skrifaði Joseph Stefano, sem
geröi líka handritið að meistarastykki
Hitchcocks. Norman Bates er jafnvel
enn slappari á taugum en nokkru sinni
fyrr, en eins og allir vita er afar óheilsu-
samlegt aö fara í steypibaö, þegar
þannig er ástatt fyrir honum. Anthony
Perkins fer með aðalhlutverkiö sem
fyrr, en myndin er sýnd á Stöð tvö
klukkan 23.30 á laugardagskvöld.
• Hosi eöa Hans Kristján Árnason
heldur áfram að rýna í ísland á kross-
götum á Stöð tvö á sunnudagskvöldiö
klukkan 21.20. Fyrsti hlutinn var sýnd-
ur á mánudagskvöld og var hreint
prýðilegur. í þessum hluta tekur Hosi
fyrir atvinnulíf og hugsanlega nýsköp-
un í því. Sem fyrr mun hann leita álits
fjölda málsmetandi Islendinga og þaö
er hið besta við þáttinn; hann er eins
konar þjóðarsál þar sem nær einvörð-
ungu tekur til máls fólk, sem eitthvað
hefur að segja... þótt vitaskuld sé þaö
mismerkilegt.
LÍKA í BÍÓ
BÍÓBORGIN Höndin sem vöggunni
VIN5ÆLU5TU
MYNDBÖNDIN
1. Terminator 2
2. Backdraft
3. Hard Way
4. Lionheart
5. Shattered
6. Teen Agent
7. Defending Your Life
8. ’Til I Kissed Ya
9. Born to Ride
10. Freddy’s Dead
ruggar'" í klóm arnarins" Leitin
mikla" Svellkalda klíkan* Læknirinn"
BIÓHÖLLIN Hugarbrellur' Skellum
skuldinni á vikapiltinn" Út i bláinn*
Banvæn blekking" Leitin mikla" Faö-
ir brúöarinnar"
HÁSKÓLABlÓ Kona slátrarans" Ref-
skák" Steiktir grænir tómatar'" Litli
snillingurinn'" Frankie & Johnny"
Háir hælar"
LAUGARÁSBlÓ Náttfatapartí' Mitt
eigið Idaho'*" Víghöföi""
REGNBOGINN Lostæti''" Hr. og frú
Bridge'" Freejack' Kolstakkur""
Léttlynda Rósa'" Homo Faber""
STJÖRNUBlÓ Óður til hafsins'" Ho-
ok'* Strákamir í hverfinu" Böm náttúr-
unnar'"
SÖGUBÍÓ Gnjnaöur um sekt'" Víg-
höfði'"'
BÓKIN
D.L. BARLETT &
J.B. STEELE
AMERICA:
WHAT WENT WRONG?
Þótt ekki væri nema
vegna titils þessarar
bókarættiaö vera
óhætt aö mæla meö
henni. Þaö hlýturaö
vera ómetanlegtaö vlta
hvaö fór úrskeiöis hjá
Kananum. í fíjótu
bragöi heföi maöur
giskaö á allt, en máliö
erauövitaö flóknaraen
svo. ígáfulega fíokkn-
um fær hún 8 af 10.
... fær Þorsteinn Gylfa-
son prófessor fyrir að fara
túr um landið með lýð-
ræðið. Landsbyggðin get-
ur því valið um eitthvað
annað en popp í sumar.
Þorsteinn verður í Stykk-
ishólmi um helgina.
VI55IR ÞÚ
... að áætlað er að líftækniiðn-
aðurinn í Bandaríkjunum velti
um 50.000.000.000 dollurum
um næstu aldamót? Það em um
3.000.000.000.000 íslenskra
króna eða um 3.000 milljarðar.
... að meðallengd á áfengis-
og lyfjameðferð í Bandaríkjun-
um er 16,7 dagar? Á íslandi tek-
ur full meðferð um 40 daga.
... að Bandaríkjamenn kaupa
afskorin blóm fyrir um 32 doll-
ara á mann að meðaltali á ári.
Það em um 1.920 krónur á
mann. Ef íslendingar væm jafn-
elskir að blómum færi hálfur
milljarður í blómin hérlendis.
FUÍAR HEHKSEMDtNOAR ALLAN
SÓLARHRMOMN 7 DAGA VKUNNAR
PÓNTUNARSfMfc
679333
PIZZAHÚSIÐ
QrwwéNUNfl 10
t-»i - —- -
• nw pm mmmn Rwmiviym