Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 ÞETTA BLAÐER GRÓFT ... þóekkieinsgróftog meðferð bændanna á þjóðinni. Eins og lesa má á blaðsiðu 12 gætu allir Islendingar haldið hátíð efþeirkæmust upp með að styrkja landbúnaðinn álíka og aðrar þjóðir. Semþó barma sér undan sin- um bændum. ... eins og allt virðist eigaaðveraidag. Heimurinn erkominn með kynlifá heilann. Það vellur útúr auglýs- ingum, erstungið milli morðanna í bíómynd- unum og gerir popp- lagatextana óhæfa fyr- ir börnin. Sjá blað- síðu 22. ... eins og leikurinn sem braskararnir léku við grey Landsbank- ann (sem lesa má um á blaðsiðu 13) og höfðu með þvi afhonum ein- ar20milljónir. ...einsog myndirnar hans Jeffs Koons þar sem hann og eiginkona hansgerahittiýmsum efnum;gleri, olíulitum og guð má vita hverju. Þeirsem hafa áhuga á dónaskapnum geta lesið um hann á blað- síðu 20. ... einsogbrotÞor- bjarnar Jenssonar á grey dómaranum um daginn. Dómarinn barmar sér enn, eins og lesa má um á blað- síðu30. Er ekki eina ráðið að beija á aganefnd HSÍ, Þorbjörn? „Ef það væri lausnin væru margir búnir að gera það á undan mér." Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, er afar ósáttur við þann úrskurð aganefndar Handknattleikssambandsins að setja hann I tlmabundið leikbann vegna framkomu við dómara eftir leikinn gegn FH um slðustu helgi. Dómarinn, Jón Hermannsson, heldur þvl fram að Þor- björn hafi beitt sig ofbeldi. F Y R S T F R E M S T EFRAIM ZUROFF. Farinn með mál Miksons í heimspressuna. MAGDALENA SCHRAM. Tekur afstöðu meö EES og Sólrúnu. ZUROFF SKRIFAR BRÉF f síðustu viku sögðum við frá grein tímaritsins Newsweek um Island sem reyndar birtist á end- anum í styttri útgáfu en við greindum frá þá. En hún vakti at- hygli margra og meðal þeirra for- stjóra Wiesenthal-stofhunarinnar í Jerúsalem, Efraims Zuroff. Hann mun hafa veitt sérstaka at- hygli frásögn af nýyrðasmíð fs- lendinga, enda eiga fsraelsmenn við svipað vandamál að etja varð- andi hebresku og við vegna móð- urmálsins. í kjölfar greinarinnar sendi Zuroff Newsweek bréf þar sem hann gerir að umtalsefni við- brögð íslenskra stjómvalda í máli Evalds Mikson. f bréfinu lýsir hann afgreiðslu málsins hér stutt- lega og vonast til að íslenskum málfræðingum takist betur að þýða ýmis hugtök tengd stríðs- glæpum en ríkisstjóminni tókst til með mál Miksons. Og klykkir út í lokin: „How do you say cover-up in Icelandic?" UNGAR MENNTAKONUR MEÐ EES Þeir sem hafa rýnt í málefni Kvennalistans undanfamar vikur hafa þóst greina ákveðnar línur í því hvemig konumar greinast í af- stöðu sinni til evrópska efnahags- svæðisins. Meginkenningin er sú að á móti séu einkum konur af landsbyggðinni og konur f eldri kantinum Þær sem fylgi Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur að málum séu hins vegar einkum tiltölulega ung- ar menntakonur af höfuðborgar- svæðinu, sem margar hafa stund- að nám í útlöndum. Þar má til dæmis nefna Magdalenu Schram, mágkonu Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra, og Guðrúnu ög- mundsdóttur borgarfulltrúa. Þess má líka geta í þessu sam- bandi að Guðný Guðbjörns- dóttir, háskólakennari og vara- þingmaður Kvennalista, sagði beinum orðum úr ræðustóli á AI- þingi nýskeð að hún ætti f mestu brösum með að gera upp hug sinn gagnvart EES. ÓLÍNA FÆR HÆSTARÉTT í LIÐ MEÐSÉR Ólína Þorvarðardóttir er full af heilagri reiði og svo sármóðguð að annað eins hefur varla þekkst í íslenskri pólitík á síðari tímum. Þetta byrjaði á því að hún bar upp tillögu um að áfengi og tóbak yrði ekki veitt í veislum hjá borginni. Markúsi Emi Antonssyni borg- arstjóra fannst þetta ekki sniðugt og sagði að „skinhelgi" væri „rík- ur þáttur í fari fyrirspyrjanda“, semsé Ólínu. Ólína rauk af fundi þegar Magnús L. Sveinsson, for- seti borgarstjómar, fékkst ekki til að átelja Markús. Nú hefur Ólína komist að því að í Hæstarétti hefur þetta sama orð, „skinhelgi", verið talið sak- næmt. Það notaði nefnilega Hall- ur Magnússon blaðamaður um séra Þóri Stephensen, staðar- haldara í Viðey, og var dæmdur til að greiða 750 þúsund króna miskabætur fýrir vikið. f framhaldi af þessari uppgötv- un hafa borgarfulltrúar Nýs vett- vangs, Ólína og Kristín Ólafs- dóttir, lagt fram fyrirspum þar sem athygli er vakin á þessum dómi Hæstaréttar og forseti borg- arstjórnar spurður hvort ekki sé rétt að hafa til hliðsjónar fordæmi Hæstaréttar og löggjöf um æru- vemd opinberra starísmanna þeg- ar tekin er ákvörðun um hvort víta eigi borgarfulltrúa. MISJAFNT GENGI í LEIK- HÚSUNUM Gengi stóru leikhúsanna f Reykjavík er óneitanlega nokkuð misjafht þessa dagana. Þjóðleik- húsinu, undir stjórn Stefáns Baldurssonar, virðist ganga allt í haginn. Þar kemur á fjalimar hver sýningin á fætur annarri sem nær óvenjumikilli aðsókn. Þannig hef- ur sleitulaust verið uppselt á Haf- ið, Kæm Jelenu, Stræti og Ríta engur menntaveginn. Varla þarf tefán heldur að hafa miklar áhyggjur af því að Dýrin í Hálsa- skógi spjari sig ekki, hvað þá My Fair Lady, sem er jólaleikritið. Annað er upp á teningnum í ríki Sigurðar Hróarssonar í Borgarleikhúsinu. Dunganon hef- ur gengið illa og eru aðeins tvær Kjólarnir hennar Báru koma út úr skápnum Hátt í þrjúhundruð manna einkasamkvæmi verður haldið á Ömmu Lú í kvöld í tilefrii útkomu bókarinnar „Hjá Báru“, sem fjall- ar um h'f hinnar einu sönnu kaup- konu Báru Sigurjónsdóttur í tískuversluninni Hjá Bám. Marg- ar eftirtektarverðar uppákomur verða í tilefni dagins en hápunkt- urinn verður sjálfsagt opnunarat- riðið þegar gamla tískusýningar- landsliðið, samansett af Brynju Nordquist, Svövu Johansen, Helgu Möller og Matthildi Guð- mundsdóttur, stormar inn á svið- ið í kjólum í einkaeign Báru. Kjólaeign Bám er fáheyrð og hún á engan venjulegan fataskáp undir kjólana sína heldur rúmgott fata- herbergi. Heiðar snyrtir verður kynnir og segir frá því hvenær og við hvaða tækifæri Bára bar kjólana sína. Ef að líkum lætur verður sú kynning skemmtiatriði út af fyrir sig, því margt mjög persónulegt mun koma ffam. Konur af yngri tískusýningar- kynslóðinni sýna einnig kjóla úr einkaeign Báru en að auki verða sýnd föt úr verslun hennar. Þá verður sýning á búningum sem Pétur, eiginmaður Bám, safnaði að sér á ferðalögum sínum og slidesmyndasýning verður allt kvöldið þar sem sýndar verða myndir úr lífi Bám. Og margt fleira verður öllum þessum fjölda gesta til skemmtunar. Bókin, sem kemur út í dag, berst í verslanir á morgun. Þau Bára og Ingólfúr Margeirsson, sem skráði söguna, árita hins vegar eintök af bókinni í veislunni fyrir þá sem vilja eignast hana þá þegar. Bára Sigurjónsdóttir heldur stórveislu í til- efni útkomu bókarinnar „Hjá Báru". I veisl- unni verður haldin sýning á kjólum úr einkaeign Báru og mun gamla tiskusýning- arlandsliðið meðal annars bregða sér f kjólana, þar á meðal Brynja Nordquist, sem hérsitur við hlið Báru. sýningar eftir. Aðsókn er líka dræm á Heima hjá ömmu og ekki virðast Platanov og Vanja frændi hafa náð að kveikja í leikhúsgest- um, þrátt fyrir ágæta dóma gagn- rýnenda. PLANT SPURÐI HVORT ÍS- LAND VÆRI KOMMÚN- ISTARÍKJ? Ólafur Ormsson rithöfundur skrifar grein í nýjasta hefti Mann- lífs og rifjar upp hraklega útreið framboðs Sósíalistafélags Reykja- víkur í borgarstjómarkosningun- um 1970. Þetta var sama sumar og hér var haldin Listahátíð í fýrsta sinn, en meðal frægra skemmtikrafta þar var hljómsveitin stórfræga Led Zeppelin. Ólafur segist ekki hafa farið á tónleikana, en þó komst hann nær poppgoðunum en flestir aðrir, því hann átti af tilviljun spjall við Ro- bert Plant söngvara og Jimmy Page gítarleikara í miðbænum. Segir Olafur að Plant hafi spurt sig hvort fsland væri kommúnista- ríki. Það mun söngvarinn hafa talið liggja í augum uppi, enda væri hér enginn bjór, engir næturklúbbar, engin hóruhús og alls staðar höft. ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR. Ætlar ekki að láta Markús komast upp með að vaena sig um „skinhelgi". STEFÁN BALDURSSON. Alltaf uppselt í Þjóðleikhúsinu eða svona hérumbil. SIGURÐUR HRÓARSSON. Daufari aðsókn í Borgarleikhúsið. ROBERT PLANT. Sá að vantaði bjór, næturklúbba og mellur. UMMÆLI VIKUNNAR „Ég er vanurþví að hver einasti hópur, sem á að borga eitthvað, segi ekki ég, ekki ég, ekki ég. Það er hagfrœði Litlu gulu hænunnar og ég er vanur henni, ég er vanur aðfást við svoleiðis fólk. “ mmmmmmtmm^^^ jón baldvin hannibalsson utanrikisraðherra „Maður fær skamm- ir ófan frá, neðan frá, utan úr bæ og loks heima fyrir vegna þess að maður er aldrei heima.“ Björn Halldórsson vinnuflkill A3 gleðjast yfir iitlu „Oft, þegar ég sit í þinginu og heitt er inni, horfi ég glaður í bragði í kringum mig og veit að eng- inn er í eins þægilegum nærbuxum og ég.“ ÖssurSkarphéðinsson þungaviktarmaður Marxfek túlkun? „Útgáfufélag Þjóðviljans fór á hausinn og það er í raun túlkunaratriði hvað verður um þessar 100 milljónir.“ Einar Karl Haraldsson framkvæmdastjóri Alþýðubandalags vjeA*. Launakjör alþingismanna eru með þeim hætti að hæfasta fólkið mun ekki gefa kost á sér til þeirra starfa í framtíðinni. Ef svo heldur fram sem horfir í þessum efnum verða það eingöngu ríkar milli- stéttarkonur og meðaljónar sem sitja á þingi í framtíðinni.“ Guörún Helgadóttir skáldsagnapersóna — Og buxumar voru ekki einu sinni grænar! „Það er auðvitað mikill misskilningur að Hag- kaup sé einhver H rói höttur í þessu máli og berj- ist í þágu neytenda." Carsten Besse svæðisstjóri Levi's Éq sá það í einhverju blaði í vikunni að Erró hefði gefið Reykjavíkurborg tíu málverk tíl viðbótar við ölli hin málverkin, skiesumar, tækin og tólin sem hanrv qafáður. Eeqar borgin fékk fyrri qjöfina reiknuðu menn út að ekki dygði minna en endurgerða Korp- úifsetaði til að koma henni fyrir. Það á að kosta 1,5 milljarða eða um 15 þúsund krónurá hvert borgar- barn. Það eru 60 þúsund á hverja fjögurra manna ijölskyldu í borginni. Dálítið dýrar umbúðir — sér- staklega í Ijósi jyess að það er þiggjandinn sem þarfað borga þær.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.