Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 7

Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 7 Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar Óvinsœll óvinur aðalóvina þjóðarinnar Það er ekki einleikið með hann Björn Halldórsson hjá fíkniefna- lögreglunni. Undir venjulegum kringumstæðum ætti hann að vera þjóðhetja. Hann er aðalóvin- ur vinsælustu óvina þjóðarinnar og ætti þar af leiðandi að vera vin- sælasti vinur þjóðarinnar. Hver fslendingur hefur séð um tólf hundruð amerískar bíómyndir þar sem kollegar hans vestra eru hetjumar. Eftir sem áður er hann ekki neinn sérstakur vinur þjóðar- innar né heíur honum tekist að ná hluta af þeim hetjuljóma sem þjóðin hefur verið alin upp við að sjá utan um þá sem berjast gegn fíkniefnasölum. Það er ekki nóg með að Birni hafi ekki tekist að gera þjóðina að vini heldur virðist hann hafa gert kollegana í fíkniefnadeildinni að óvinum sínum. Að minnsta kosti hafa níu fyrrverandi starfsmenn deildarinnar krafist opinberrar rannsóknar á lausmælginni í Bimi. Og hann virðist heldur ekki eiga upp á pallborðið hjá yfir- mönnum sínum því þeir hafa tek- ið undir þessa kröfu. Það má því velta því fyrir sér hvar baklandið hans Björns sé. Einhver kynni að halda að hann væri í svo góðu sambandi við uppljóstrara í undirheimum Reykjavíkur að hann svínaði dálít- ið á kollegunum og yfirmönnum sínum til að halda þessum lekum opnum. En svo er ekki. Jói beita, tálbeitan í kókaínmálinu, notaði tækifærið við yfirheyrslur í hér- aðsdómi Reykjavíkur til að kvarta undan Birni. Jói sagði að Björn hefði gefið sér símanúmer sem hann gæti hringt í dag og nótt því það getur verið hættulegt að villa á sér heimildir niðri í undirheimun- um. Jói reyndi tvisvar að hringja í þetta númer en það var alltaf á tali. Birni virðist því heldur ekki hafa tekist að gera tálbeitur sínar og heimildamenn að vinum. Af öllu þessu má sjá að Bjöm er í vondum málum. Svo vondum að hann lagðist veikur þegar hann átti að mæta í yfirheyrslur hjá hér- Kannski verður Birni hugsað til þess í hremmingum sínum að síðastþegar lögg- an reyndi að nota tálbeitu til að koma lögumyfir meintan sakamann þá slapp glœponinn en löggan missti vinnuna. aðsdómi í gær. Kannski verður Bimi hugsað til þess í hremmingum sínum að síð- ast þegar löggan reyndi að nota tálbeitu til að koma lögum yfir meintan sakamann þá slapp glæponinn en löggan missti vinn- una. Það var þegar Haukur Gunn- arsson lagði gildru fyrir Batta rauða og ætlaði að sanna upp á hann sprúttsölu. Batti slapp þá eins og alltaf en Haukur missti vmnuna. Miðað við hvernig hver hring- urinn á fætur öðrum þrengist um Björn er ekki óeðlilegt að velta því fyrir sér hvort eins sé komið fyrir honum. Kannski bjargar það hon- um að Steinn Ármann er sjálfsagt með minni sambönd en Batti rauði. ÁS Verð á áfengi hefur sveiflast til og frá í gegnum árin, að sjálfsögðu upp á við í krónum talið. Þó er það ekki einhlítt, því þegar tekið er tillit til gengis- og verðlagsþró- unar kemur í ijós að á föstu verð- lagi frá 1971 hefur okkur verið boðið áfengið á mjög mismun- andi verði. Til að mynda var áfengisverð í lágmarki í árslok 1983, þegar Albert Guðmundsson var fjármálaráðherra, en í há- marki 1972 í tíð vinstristjórnar. Skoðum þetta aðeins nánar og búum til innkaupakörfu. f henni er ein flaska af hverri eftirtalinna tegunda: Anháuser Liebfraum- ilch-hvítvín, St. Émilion-rauðvín, Dry Sack-sérrí, íslenskt brennivín, Stolichnaja-vodka, White Horse- viskí og Haig’s Dimple-viskí. Þokkalegur skammtur fyrir ótil- tekin hátíðahöld. Miðað við verðlag um síðustu áramót kostaði slíkur skammtur 15.844 krónur í árslok 1972 þegar Halldór E. Sigurðsson var fjár- málaráðherra. Hann sá enga ástæðu til að hafa búsið ódýrt og það vantaði fullt af krónum í kass- ann. Árið 1977, þegai Matthías Á. Mathiesen var fjármálaráðherra, var skammturinn litlu ódýrari eða 15.407 krónur. Þá tók við vinstri- stjórn, minnihlutastjóm krata og ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen heitins. Á þessu tímbili kostaði pakkinn 12 til 13 þúsund krónur. En þá tók Albert við. Álbert lækkaði verðið á skammtinum okkar á einu ári úr 12.404 í 10.186 krónur eða um 18 prósent að raungildi. Allt lækkaði, brennivínið einna mest Mutfalls- lega eða um fjórðung. White Horse-viskí, sem heildverslun Al- OG TÓ(MSKV| H/lliS wrAF~})lu /V, /, ;/> iwroxjrt Albert Guðmundsson, fyrrver- andi fjármálaráðherra og um- boðsmaður fyrir White Horse- viskí. Innkaupakarfa PRESS- UNNAR kostaði að núvirði 10 þúsund-kall hjá honum 1983. Halldór E. Sigurðsson, fyrrver- andi bindindissinnaður fjár- málaráðherra. Hjá honum kost- aði innkaupakarfa PRESSUNN- AR nær 16 þúsund-kall að nú- virðiárið 1972. berts hafði og hefur umboð fyrir, lækkaði um u.þ.b. 15 prósent; 400-kall. Tveimur árum síðar var skammturinn okkar kominn í 11.975 krónur, en þá var búið að bola Alberti úr ráðuneytinu og Þorsteinn Pálsson sestur í stólinn hans. Um síðustu áramót kostaði síð- an skammturinn okkar 12.690 krónur. Það er 25 prósentum og 2.500 krónum meira en Albert bauð okkur upp á. Það er á hinn bóginn 20 prósentum lægra en Halldór E. bauð upp á. En áður en vínhneigðir lesend- ur fyllast saknaðar og óska sér þess að fá Albert aftur í fjármála- ráðuneytið verður að geta þess að hann lækkaði fleira en áfengið. Hann og samráðherrar hans lækkuðu líka með ýmsum aðgerð- um kaupmátt launafólks verulega. Um leið og hann lækkaði raun- verðið á skammtinum okkar um 18 prósent lækkaði kaupmáttur heildarlauna ASf-fólks um 17,5 prósent. Það var því í raun ekki um mikinn gróða fyrir viðskipta- vini ÁTVR að ræða. Úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum Björn Bjarna- son alþingis- maður .Urslit kosninganna koma mér ekki á óvart. George Bush tókst aldrei að ná sér verulega á strik í kosningabaráttunni. Það sem höfðaði mest til mín hjá Bill Clin- ton var sífelld skírskotun hans til nauðsynjar breytinga, breyting- anna vegna. Þetta var rauður þráður í málflutningi hans og átti vel við, þar sem Bush hefur verið tólf ár við stjómvölinn í Washing- ton, fyrst sem varaforseti og síðan sem forseti. Það verður spenn- andi að fylgjast með því hvernig Clinton tekst að koma fótunum undir nýja stjórn sína. Stefna hans í utanríkismálum mun til dæmis ráðast mjög af því, hverja hann velur sér þar til samstarfs.“ Karl Steinar Guðnason al- þingismaður Ég lýsi ánægju minni með kjör Bills Clinton. Ég tel að þær hugsjónir sem hann stendur fyrir muni koma bandarísku þjóðinni mjög til góða. Clinton er hinsveg- ar lítt reyrídur í utanríkismálum og ekki vitað hvaða stefnu hann tekur hvað varðar samvinnu við Evrópumenn og öryggismál. En ég vona að sú stefna sem fram- fylgt hefur verið á undanförnum árum í þeim efnum verði að mestu óbreytt, því mikil nauðsyn er á að Bandaríkjamenn og Evr- ópumenn starfi saman.“ Anna Ólafs- dóttir Björns- son þingkona „Ég er mjög ánægð með þessi úrslit og mér sýnist að þama hafi besti kosturinn verið valinn. Ég er ánægð með val Clintons á vara- forseta. Ég vona að það sé rétt sem komið hefur ffarn hjá ffétta- skýrendum að Clinton æth sér að innleiða ný vinnubrögð og dreifa valdi; hafa fleiri með í ráðum. Hann er áreiðanlega með margt af ágætu fólki í kringum sig, og í þeim hópi eru bæði konur og karlar, sem hafa að mörgu leytri betri sýn á samfélagið en manni hefur sýnst ríkja undanfarið. Svo virðist sem efnahagsmálin hafi ráðið úrslitum og væntanlega þýðir þetta aðrar áherslur í þeim og þar með aukna áherslu á sam- hjálp. Ég vona að það verði um- talsverð breyting á afstöðu Bandaríkjamanna í umhverfis- málum og ef Al Gore fær ein- hveiju ráðið er slíkra breytinga að vænta.“ Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Al- þýðubanda- lags Finnur Ing- ólfsson alþing- ismaður „Úrslitin eru mjög ánægjuleg. Það er gleðilegt að bandaríska þjóðin skuli hafna hinni hörðu frjálshyggju sem Reagan og Bush hafa fylgt og það er vonandi að ís- lendingar fari ekki að fylgja stefnu sem Bandaríkjamenn hafa hent út úr Hvíta húsinu.“ „Ég fagna úrslitunum. Clinton boðaði breytingar fyrir kosningar og ég hef þá trú að hann muni fylgja þeim eftir. Þær byggjast á því að gera bandarískt samfélag manneskjulegra en það hefur ver- ið. Bandaríska þjóðin hafnar stefnu Reagans, Thatchers og Bush — sem náð hefur tökum á bæði bresku og bandarísku þjóð- félagi — og varpað henni fyrir borð, en stefha þeirra er því mið- ur sú sem verið er að innleiða hér.“ Áfengispólitík er vissulega pólitík

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.