Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 35

Pressan - 05.11.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 19Í 35 Skolakrakka- ’ skemmtun fyrirpról Tveir ungir athafhamenn, þeir Þröstur Karelsson pizzubakari og Haraldur Arnórsson, starfsmaður í prentsmiðju, hafa fengið fjórar hljómsveitir til hðs i við sig til að halda tónleika á ■ Hótel íslandi 30. nóvember. Það eru hljómsveitirnar Sál- in hans Jóns míns, Ný- dönsk, Pís of Keik og Plast. „Við ætlum að hafa átján ára aldurstakmark og stefn- um að því að fá skólakrakk- ! ana alla til að skemmta sér í 1 síðasta sinn áður en prófin skella á, en fyrsti desember er daginn efdr og því ffí í öllum skólum,“ segir Þröst- ur. Bæði Nýdönsk og Sálin eru að gefa út nýja plötu. Plata nýdanskra ber nafhið Himnasending en plata Sál- arinnar heitir Þessi þungu högg. Pís of Keik hefur einnig nýverið sent frá sér nokkur lög sem er að flnna á plötunni Rave í fótinn, en Plast kemur í fýrsta sinn ffam á Hótel íslandi. Tólf- hundruðkall mun kosta inn og vín verður selt á börun- um — þeim sem hafa aldur til. Tvennir tónleikar Ama Egils „Þetta er svakalega fínt verk, klassískt nútíma- verk. Ég samdi það árið 1988 en það verður ffum- flutt fýrst nú með Sinfón- íuhljómsveit íslands,“ sagði Ámi Egilsson, hinn heimskunni íslenski bassaleikari, sem nú er staddur á Islandi í tilefhi frumflutningsins. Vegna hingaðkomu Áma verður einnig efnt til djasstón- leika á ömmu Lú, svona smáútgáfu af Rúrek-há- tíð, með fimm djasssveit- um. Árni strýkur bassann, en með honum leikur kvartett víbrafónleikar- arns Árna Sceving sem í em, auk hans og Árna Eg- ils, Þórarinn Ólafsson pí- anóleikari, Þórður Högnason bassaleikari og Pétur Grétarsson trommuleikari. Hinar djasssveitirnar sem koma fram eru Gammarnir, Kuran Swing, hljómsveit Guð- Árni Egilsson hefur mikið að gera og mundar Stemgrimssonarásamt Lindu Walkerog Jazz- flý utan á sunnudag ti, að sinna kvartett Reykiavíkur. . . Það er mikið að gera hja Arna Egilssym um þessar mundir og því stoppar hann aðeins fram á sunnudag á fslandi. „Það er kvikmyndatónlist sem tekur allan minn tíma nú.“ Verkstjóri Landslagsins Þorvaldur B. Þorvaidsson, ef til vill betur þekktur sem Þoddi í Todmo- bile, hefur heildarumsjón með útsetningum á lögunum tíu sem keppa í Landslagskeppninni í ár. Að hans sögn eru hér á ferð ffumlegri lög en off áður, flytjendurnir nýtt hæfileikafólk, bæði ungt og gamalt. Fæst laganna eru því á hefðbundnu róli og er um að ræða dúndrandi rokk og ról svo og djass, þótt inn á milli leynist eitt og eitt týpískt söngvakeppnilag. Útsetningarstjórinn og samstarfslið hans eru búin að liggja yfir verkefn- inu í þrjár vikur og hefur törnin verið stíf. En verður „Þorvaldskeimurinn" áberandi? „Sum munu bera minn persónulega stíl en ég hef reynt að vinna sem mest með höfundunum þannig að sumir eiga nánast alla útsetninguna sjálfir. Ég hef fengið hljómsveit til liðs við mig og hver og einn meðlimanna hefur komið með sínar útfærslur. í raun hef ég bara verið verkstjórinn." Þorvaldur taldi þrjú laganna líklegust til sigurs en vildi ekki nefna þau á nafn af augljósum ástæðum. „Það eru hins vegar önnur lög betri fyrir minn smekk,“ sagði hann að endingu. Skúli Gautason leikari „Góðan daginn, góðan daginn,] góðan daginn. Þetta er sím- svarinn hans Skúla. Skúli brá sér ffá en hefur það í hyggju að hringja í þig ef þú skilur eftir símanúmer og segir hvað þú heitir." mðnmnum Regnboginn hefur tekið tilsýning- ar Leikmanninn eða The Player eftir leikstjórann Robert Altman sem allir héldu reyndar að væri út- brunninn fyrir löngu. En lengi er von á einum. Myndin þykir frábær- lega skemmtileg satíra og fékkAlt- man fyrir vikið leikstjóraverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes i vor. Það er mikil íþrótt að koma auga á allar stjörnurnar sem birtast í smá- hlutverkum í Leikmanninum. Væntanlegum bíógestum til hægðarauka birtum við listann yf- ir leikarana sem sjást, sumir reynd- ar i mýflugumynd. SteveAllen Richard Anderson René Auberjonois Harry Belafonte Karen Black Gary Busey Robert Carradine Charles Champlin Cher James Coburn Cathy Lee Crosby John Cusack Brad Davis PeterFalk Louise Fletcher Dennis Franz Peter Gallagher Teri Garr Scott Glenn Whoopi Goldberg JeffGoldblum Elliot Gould Anjelica Huston Kathy Ireland Sally Kellerman Sally Kirkland Jack Lemmon Andie MacDowell Malcolm MacDowell Nick Nolte Burt Reynolds Tim Robbins Julia Roberts Mimi Rogers Alan Rudolph JillSt.John Susan Sarandon Greta Scacchi Rod Steiger Lily Tomlin Robert Wagner Fred Ward Bruce Willis Þorvaldur B. Þorvaldsson, Þoddi ITodmobile, hefur haft heildar- umsjón með útsetningum lag- anna fyrir keppnina um Lands- lagið. Lögin tíu verða gefin út á plötu. Ný í bransanum og gengur vel Hlín Mogen- sen er tvítug- urnýgræðing- I ur í fyrirsætu- bransanum. Þrátt fyrir skamman starfsaldur hjá lcelandic Models hefur henni gengið vel og hún er þegar á leið til Ítalíu, sem þykir góður staður til að byrja á. Hlín er mjög spennt fyrir að fara og hlakkar verulega tii að spreyta sig. Einnig hefur hún óstaðfestan grun um að hún endi I London einhvern tímann á næst- unni, en það mun skýrast síðar. Þótt Hlfn sé ung að árum á hún þriggja ára telpu og hefur búið í Danmörku í þrettán ár. Aðspurð sagðist hún heldur vilja vera þar ytra en á íslandi, fólkið væri öðru- vísi og menningin einnig. Því er ef til vill ekki langt í að hún flytji af landi brott. List ofan íslensk menning í London Menningarfulltrúi íslendinga í London, Jakob Frímann Magnús- son, hefur náð töluverðum ár- angri í að koma list landa sinna á framfæri, en frá tíunda þessa mánaðar stendur yfir í London sýning á öllu því helsta sem ís- lenskir listamenn hafa fram að færa. Jakob hefur lagt mikla vinnu í verkefnið og afraksturinn er sá að íslensk menning verður í brennidepli á alls tíu stöðum í borginni; leikhúsum, kvikmynda- húsum og listasöfnum. Meðal tónlistarviðburða má nefna beina útsendingu á söng Bamakórs Kársness, orgeltónleika Marteins H. Friðrikssonar, fiðlu- tónleika Sigrúnar Eðvaldsdóttur, rokktónleika Síðan skein sól og Sigrún Eðvaldsdóttir er einn yngsti og glæsilegasti fulitrúi ís- lenskrar menningar. Hún heldur tvenna tónleika á menningar- hátíð fslendinga í London. Inferno 5, auk söngtónleika, djasstónleika og flaututónleika Áshildar Haraldsdóttur ásamt ýmsum öðrum uppákomum. Töluvert fer fýrir kvikmyndum og er Friörik Þór Friðriksson þar at- kvæðamestur með þrjár myndir. Einnig eru á efnisskránni myndir annarra helstu kvikmyndaleik- stjóra. Auk þessa eru leiksýningar á dagskrá, rithöfundar kynna verk sín, þekktustu myndlistarmenn þjóðarinnar sýna, ljósmyndasýn- ing verður opnuð þann tíunda, atflc þess sem Thor Vilhjálmsson verður viðstaddur sérstaka íslend- ingahátíð. HOCCMYNDIRUM ANDANN OC SALARLÍFIÐ Thor Barðdal sýnir um þessar mundir höggmyndir á Kjarvals- stöðum, en hann hefur á þessu ári unnið að listsköpun sinni suður í Portúgal. Þar hefur hann kosið að eyða tíma sínum vegna þess hversu auðvelt hefur reynst að nálgast það úrval steinteg- unda sem hann þarf að nota; marmara, granít og fleiri efni. Thor er þekktur listamaður hérlendis og í tíu ár hefur hann höggvið verk sín í stein. Það sem færri vita er að þegar sumar gengur í garð snýr hann sér að öðrum viðfangsefhum ásamt konu sinni, Sigrúnu Olsen myndlistarmanni (sem nú sýnir á Á næstu grösum). Hafa þau hjónin staðið fýrir mannstyrkjandi heilsubótardögum í Reykholti, og þangað kemur fólk til að hvú- ast og endurnýja orkuna. „Þetta tvennt fer mjög vel saman, en verkin sem ég vinn eru miög huglæg,1 segir Thor. „I þeim nota ég mikið tákn til að túlka þessi huglægu viðfangs- efhi og sýningin nú §allar einmitt mikið um andann og sálarh'fið." Thor Barðdal með högg- myndir á Kjarvalsstöð- um. Táknræn verk — huglæg túlkun. Systragervi Sister Act ★★ Það er visst áfall þegar kemur í Ijós að syngjandi nunnurnar eru fyndnari en Whoopi Goldberg. Hinir vægðarlausu Unforgiven ★★★★ Clint Eastwood er vernd- ari hins vestræna heims — að minnsta kosti þess villta. Þegar engum dettur lengur í hug að bjóða upp á vestra kemur hann með þetta meistarastykki. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg þrátt fyrir augljósa hnökra. Systragervi Sister Act ★★ Myndin sannar hversu slæm blanda gam ansemi og tilfinningasemi getur orðið í amerískum bíómyndum. Kaliforníumaðurinn Califorma Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að fara út fyrir fylkismörk Kaliforníu. Alien 3 ★★★★ Meistaralegur lokaþáttur þessarar trílógíu, gerir Batman-veröldina að hálfgerðu Lególandi. Seinheppni kylfingurinn ★★ Golfarar ættu að geta öskrað úr hlátri, en varla aðrir. Hvítir geta ekki troðið White Men Can’t Jump ★★★ Allir gera vel, en Rosie Perez stelur senunni. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Minni hasar og minna grín en í fyrri myndum en meira af tilraunum til dramatíkur. Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★ Yfirleitt hugfjúf, en nornin er býsna hræðileg og hefur valdið mörgum börnum andvökunóttum. HASKOLABIO Frambjóðandinn Bob Roberts ★★ Tim Robbins í hlutverki lýð- skrumara, þjóðlagasöngvara og frambjóðanda sem er eins konar sambland af Ross Perot og Jósef Göbbels. Myndinni er ætlað að vera háðsádeila og kannski er hún tímabær þegar eru forsetakosning- ar í Bandaríkjunum; gallinn er sá að satíran er einhæf og einföld og myndin ekki nógu fyndin. Tvídrangar Twin Peaks, Fire Walk With Me ★★ David Lynch hefur verið að missa flugið og er hættur að koma á óvart. Ljóðræni fjar- stæðustíllinn hanserorðinn klisja. Háskaleikir Patriot Games ★★ Stundum æsileg, en oftar stirð- busaleg. Fátt kemur á óvart; smá- smugulegheit eru helsti kostur reyfara eftir Tom Clancy, þegar þau vantar verður söguþráðurinn helsti fátæklegur. Sódóma Reykjavík ★★★ ímynd- aðir undirheimar Reykjavíkur eru uppfullir af skemmtilegum kjánum og aulahúmor. Svo á jörðu sem á himni ★★★ í heildina séð glæsileg kvikmynd og átakanleg. Varla hefur sést betri leikur í íslenskri bíómynd en hjá Álfrúnu litlu Örnólfsdóttur. Steiktir grænir tómatar Fried green tomatoes ★★★ Konumynd; um konur og fyrir konur. Góðir eig- inmenn láta undan og fara með. LAUGARASBIO Eitraða Ivy Poison Ivy ★ Drew Barrymore vinnur sín staerstu afrek í slúðurdálkum tlmaritanna. f bíó þarf hún að leika, en það ferst henni ekki eins vel. Mynd sem byggð er í kringum Drew hlýtur því að mistakast. Lygakvendið Housesitter ★ ★ Góð hugmynd, en Goldie Hawn og Ste- ve Martin eru eins og grínsjálfsalar. Ferðin til Vesturheims Far and Away ★★★ Rómantísk stórmynd, full af fjölskyldugildum, ákaflega gamaldags en oft stórskemmtileg. ■iiimmaaEMa Leikmaðurinn The Player ★★★★ í senn þriller, gamanmynd og eitruð háðsádeila. Furðulega vel heppnuð mynd og ber fagurt vitni léttu og öruggu handbragði meistara Altmans. Algjört möst, líka til að sjá 65 stórar og litlar stjörnur leika sjálfar sig. Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa- legir og hlægilegir smákrimmar í höfuðborginni. Prinsessan og durtarnir ★★★ Myndin er tal- og hljóðsett af mik- illi kostgæfni og ekkert til sparað. ógnareðli Basic Instinct ★★ Markaðsfræðingarnir fá báðar stjörnurnar. Annað við myndina er ómerkilegt. Lostæti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. Henry, nærmynd af Qöldamorð- ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi- legri morðingi en Hannibal Lecter. STJORNUBIO Bitur máni Bitter Moon ★★★ Meinlega erótísk og oft kvikindis- lega fyndin sápuópera. Samt er spurning hversu alvarlega maður á að taka þessa mynd. Það þregöur fyrir meistaratöktum en kannski er Polanski löngu hættur að búast við að fólk taki hann hátíðlega. Ofursveitin Universal Soldier ★★ Mynd um karlmenni, fyrir stráka sem kannski pína kærusturnar með. Börn náttúrunnar ★★★ Rómað- asta íslenska bíómyndin. S O G U B I O Blóðsugubaninn Buffy Buffy the Vampire Slayer ★ Mynd sem er byggð upp á einum brandara og sá er fljótur að ganga sér til húðar. Ekki fyrir aðra en hörðustu aðdá- endur Lukes Perry að þola þetta. Lygakvendið Housesitter ★ ★ Myndin er spunnin út frá bráð- snjallri hugmynd, en það er li'ka allt og sumt.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.