Pressan - 05.11.1992, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992
9
Fyrrum aðstandendur Hótels Leifs Eiríkssonar
Sigurður Óli Sigurðsson lagði fram
kærur vegna undirskrifta sem hann
kannast ekki við að hafa sett á blað.
Samkvæmt upplýsingum PRESSUNN-
AR er sú efsta af þessum þremur ör-
ugglega rétt.
Ferðamálasjóður fslands veitti
Hótel Leifi Eiríkssyni lán að and-
virði hálfrar milljónar bandaríkja-
dala að uppfylltum skilyrðum um
hlutafjáraukningu hjá fyrirtækinu.
Sú hlutafjáraukning var afturköll-
uð skömmu eftir að lánið var af-
greitt án þess að sjóðurinn fengi
vitneskju um það. Eftir langvar-
andi rekstrarerfiðleika hafa fyrri
eigendur nú hætt afskiptum af
hótelinu og hefúr Jósteinn Krist-
jánsson, eigandi veitingastaðarins
LA Café, tekið reksturinn á leigu.
Ætlunin er að koma rekstrinum í
rétt horf eftir slæman viðskilnað
þeirra sem áður höfðu umsjón
með hótelinu. Hluti þeirra við-
skipta hefur verið kærður til
Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna meints skjalafals og útlit er
fyrir að einhverjir tapi verulegum
fjárhæðum vegna þeirra.
49 MILLJÓNIR HURFU Á
FIMM VIKUM
Eigendur Hótels Leifs Eiríks-
sonar eru skráðir Ásgeir S. Ás-
geirsson og Sigurður Oli Sigurðs-
son. Hlutafélag þeirra hét í fyrstu
Leifur Eiríksson hf., en því var
breytt í Selavík hf. í maí á þessu
ári. Rekstur hótelsins var þó eink-
um í höndum Sigurðar Eiríksson-
ar, sem annaðist fjármál og rekst-
ur ffá degi til dags.
Uppbygging hótelsins hófst
haustið 1990 með stofnun Leifs
Eiríkssonar hf. í október og hefur
kostað á annað hundrað milljónir.
Upphaflega var hlutafé ein millj-
ón, en var fljótiega aukið í þrjátíu
milljónir. Aðstandendur hótelsins
sóttu um fyrirgreiðslu hjá Ferða-
málasjóði, en var synjað lengi
framan af. Ferðamálasjóður gerir
yfirleitt kröfu um að eigendur
leggi fram „hátt í helming" þess
kostnaðar sem þarf til uppbygg-
ingar, að sögn Snorra Tómasson-
ar, framkvæmdastjóra Ferða-
málasjóðs. Leifur Eíríksson hf.
uppfyllti ekki þau skilyrði, en síð-
asta haust bar þó til tíðinda þegar
hlutafé var aftur aukið, nú úr 30
milljónum í 50.
I tilkynningu til hlutafélaga-
skrár dagsettri 4. september 1991
segir að af þessari 20 milljóna
króna aukningu hafi 5 þegar verið
greiddar og „áskrift fékkst fyrir
allri aukningunni“. Einni viku síð-
ar, 11. september, fékkst fyrir-
greiðsla úr Ferðamálasjóði og var
þinglýst láni að upphæð tæplega
hálf milljón bandaríkjadala, eða
tæpar þrjátíu milljónir íslenskar
að núvirði. Fimm vikum síðar,
þann 1. nóvember 1991, var hins
vegar haldinn stjórnarfundur í
Leifi Eiríkssyni hf., þar sem
ákveðið var að afturkalla báðar
fyrri tilkynningar um aukningu
^ hlutafjár, það er að lækka hlutaféð
úr áður tilkynntum fimmtíu millj-
ónum niður í eina milijón, sem
var upphaflega upphæðin. f til-
kynningunni segir að forsendur
hafi brugðist fyrir aukningunni,
meðal annars vegna þess að „til-
skildum reglum var ekki fullnægt
við aukningu hlutafjár og áskrift
hlutafjár hefur aldrei átt sér stað
með formlegum hætti“. Tilkynn-
ingin er dagsett 1. nóvember, en
hún barst hlutafélagskrá ekki fyrr
en í maí á þessu ári.
Með þessu virðast hafa brostið
forsendurnar fyrir lánveitingum
Ferðamálasjóðs, en þá var búið að
veita lánið og væntanlega nota
það til uppbyggingar. Að sögn Ás-
geirs Ásgeirssonar vildi Ferða-
málasjóður að fyrir lægju áskriftir
að hlutafé og fyrir hafi legið vilji
ákveðinna aðila um að ganga inn í
fyrirtækið. Það hafi síðan brugðist
þegar á reyndi.
„Þú segir mér tíðindi," voru
viðbrögð Snorra Tómassonar hjá
Ferðamálasjóði við upplýsingum
um breytingar á hlutafé í fyrirtæk-
inu. Aðspurður hvort Ferðamála-
sjóður fylgdist með slíkum hlut-
um sagði Snorri að þegar effir því
væri leitað gengi sjóðurinn úr
skugga um að slík tilkynning hefði
borist hlutafélagaskrá, en að öðru
leyti væri ekki fylgst með hvort
hlutafé væri aukið í raun og veru.
Hann sagðist þó ekki óttast um
hag sjóðsins vegna þessa, enda
væri lánið vel tryggt á fyrsta veð-
rétti í húsinu. Öðru máli gæti hins
vegar gegnt um aðra kröfuhafa
sem verr væru tryggðir.
FLEIRIKÆRUR VEGNA
MEINTS SKJALAFALS
Eins og áður sagði var daglegur
rekstur hótelsins að mestu í hönd-
um Sigurðar Eiríkssonar. Fyrir
öllum meiriháttar skuldbinding-
um þurfti þó samþykki beggja
stjórnarmanna, þeirra Ásgeirs og
Sigurðar Óla. PRESSAN greindi
ffá því í vor að Sigurður Óli lagði
fram kærur til RLR vegna meintra
falsana undirskrifta sinna á
skuldabréfum og víxlum á vegum
hótelsins og taldi að þar hefði Sig-
urður Eiríksson verið á ferð. Það
gerðist eftir að Sigurði Óla bárust
innheimtutilkynningar vegna
pappíra sem hann kannaðist ekki
við að hafa skrifað upp á. Við-
komandi voru kallaðir til yfir-
heyrslu hjá RLR, en lengra virðist
málið ekki hafa farið. I kjölfarið
hafa lánastofnanir afskrifað hluta
þessara skulda.
PRESSAN hefur öruggar heim-
ildir fyrir því að fleiri hugi nú að
kærum til RLR vegna meints
skjalafals. Þar er um að ræða þá
sem seldu hótelinu ýmiss konar
þjónustu og er um að tefla á ann-
an tug milljóna. Viðkomandi
seldu skuldaviðurkenningar hót-
elsins áfram til bankastofnana, en
eiga nú á hættu að tapa stórfé,
jafnvel aleigunni, vegna galla á
bréfunum.
PRESSAN greindi frá því í vor
að Sigurður Eiríksson hefði staðið
í ýmsum stórviðskiptum á vegum
hótelsins sem eigendur vildu ekki
kannast við að kæmi hótelinu við.
Auk þess var undirskrift Sigurðar
Óla að finna á skuldaviðurkenn-
ingum víðar en hann kannaðist
við að hafa sett hana.
JÓSTEINN MOKAR FLÓR-
INN
Rekstur Hótels Leifs Eiríksson-
ar hefur gengið mjög illa undan-
farin misseri og ekki er langt síðan
seljendur ýmissa húsgagna
ákváðu að sækja vörur sínar affur.
Þá hafa verið miklir tilflutningar á
starfsfólki, sem flest hefur hætt
vegna vangolfiinna launa og kær-
ur hafa borist til Félags starfsfólks
í veitinga- og gistihúsum.
Þessum og öðrum erfiðleikum
hefur Jósteinn Kristjánsson nú
tekið við og segist hann vonast til
að koma rekstrinum í rétt horf í
samvinnu við starfsfólk. „Ég er að
reyna að moka flórinn,“ sagði Jó-
steinn í samtali við blaðið. Hann
segir þegar nokkuð hafa áunnist í
að bæta viðskiptavild fýrirtækis-
ins og unnt hafi verið að leysa
nokkuð af þeim vandamálum
sem við blöstu. Hann hyggst
reka staðinn í samvinnu
við LA Café og standa nú
yfir samningar vegna
næstu sumarvertíðar.
Jósteinn segist vilja
láta á það reyna
hvort hægt sé að
reka hótel á
þessum stað
á eðlileg-
um for-
send-
Hlutafé í Leifi Eiríkssyni hf.
lækkaði úr fimmtíu milljónum
í eina skömmu eftir lánafyrir-
greiðslu hjá Ferðamálasjóði.
Kærur hafa verið lagðar fram
vegna meints skjalafals
fyrrum aðstandenda og
fleiri eru væntanlegar.
Nýr rekstraraðili hefur
tekið að sér að „moka
flórinn“ eftir langvarandi
rekstrarerfiðleika.