Pressan - 05.11.1992, Page 10

Pressan - 05.11.1992, Page 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 PÉ' Blöndal peningagúrú er sá eini sem hefur einhverjar efnahags- ráðstafanir fram að færa þessa dagana. Fjárfestingarfélagið Skandia var ekki fyrr búið að tilkynna nýtt og lægra gengi en Pétur sagðist tilbúinn að kaupa sklrteini í sjóðum þess á hærra verði. Þannig er Pétur ein- hendis búinn að hækka gengið á bréfúnum og væntanlega færa mörgum sparifjáreigand- anum væna summu sem ann- ars væri töpuð. Þama er Pétur náttúrlega búinn að gefa högg- stað á sér, þ ví það er fullt af fólki í þjóðfélaginu sem er til- búið að taka við peningunum hansSÉtfanis R RAGNAR Grímsson, sem þarf að borga Landsbankanum hundrað milljónir af skuldum gamla Þjóðviljans sem liðið hans Svavars Gestssonar ber auðvit- að ábyrgð á. Það var úthugsað plott af Svavars hálfu, því þegar Alþýðubandalagið erbúið að borga skuldimar má Ólafúr ekki lengur vera formaður og Svavar getur tekið við búinu aftur — og kannski haldið áffarn undir öðru nafni. Það var Eiður Guðnason sem gerði þessi Þjóðviljamál að umræðu- efhi núna og hefúr hann þó ekki séð ástæðu til að lyfta penna um þjóðfélagsmál lengi. Það hefurheldur ekki Jökubson, sem er vanastur sprengjuárásum í Júgóslavíu, en er nú kominn f skotgrafa- hemað í Þjóðviljamálinu á veg- um Alþýðublaðsins. Honum ferst þó eins og vinum hans í Júgóslavíu — sprengjumar lenda flestar í hans eigin garði. Hrafn ólst nefnilega upp á Þjóðviljanum undir vemdar- væng Össurar Skarphéðins- sonar sem vissi manna fyrstur að Þjóðviijinn var dauðvona fyrirtæki, en hélt manna lengst áffam að gefa hann út og beindi honum helst gegn móð- urskipinu, Alþýðubandalag- inu. Það var kannski líka út- hugsað plott af hálfú þeirra fóstbræðra, þvíbáðir flúðu þeir yfir í Alþýðuflokk BALDVINS Hannibalssonar, sem þessa dagana virðist vera eini pólitík- us landsins sem talar af viti um efnahagsmál. f nokkurra mín- útna ræðu hjá LÍÚ sagði hann meira en Davíð Oddssyni tókst íþriggja síðna viðtali í Mogg- anum, sumsé að gjaldþrota fýrirtæki séu gjaldþrota, alveg óháð því hvaða skoðun ríkis- stjómin hefúr á því. Þetta kalla útgerðarmenn „gjaldþrota- stefnu“, en þetta er ekki stefna heldur einfaldlega lýsing á raunveruleikanum. Að kenna ríkisstjóminni um gjaldþrot sjávarútvegsins er eins og að kenna Höskuldi Jónssyni um alkóhólismann í landinu. Og útgerðarmenn hafa lært það af alkóhólistum landsins að finna orsakir vandans um allar triss- ur — nema hjá sjálfum sér. Bíiasalan Bílatorg hf. REISIIPP EFTIR GJALDPROT OG SELDIKAOPLQGDRÍL Bílasalan Bílatorg hf á Funahöfða 1. Seldi bíl sem var á kaupleigusamn- ingi. Bflasalan Bílatorg hf., sem nú er rekin á Funahöfða 1, varð nýiega uppvís að því að selja bfl sem var á kaupleigusamningi. Eigandi bfls- ins vaknaði upp við vondan draum þegar kaupleigufyrirtækið tók bflinn, en hann hafði ekki hugmynd um að kaupleigan væri skráður eigandi. Þegar búlinn, sem er af Subam- gerð, var seldur kom ekki fram á afsalinu að hann væri í eigu kaup- leigufyrirtækisins heldur var skráður eigandi hans bónstöð í tengslum við Bflasöluna Bflatorg. „Þetta voru mistök,“ sagði Ragnar K. Lövdahl, forráðamað- ur bflasölunnar, þegar hann var spurður um þetta tilvik. Ragnar sagði að reynt yrði að bæta kaup- andanum óþægindin og átti hann von á að honum yrði boðinn ann- arbfll. BÍLASALAN OG EIGEND- URNIR GJALDÞROTA Bílasalan Bflatorg hf. var sett á stofn í ágústlok í fyrra en þá lauk skiptameðferð á BÚatorgi hf., sem var bflasala í Nóatúni 2. Þar seldi bflasalan meðal annars búa fyrír kaupleigufyrirtækið Lind. Skipta- meðferð á Bflatorgi hf. lauk 27. nóvember 1991 og voru lýstar kröfur 9,1 milljón króna. Engar eignir fundust íbúinu. Ragnar og kona hans, Kristín Halldórsdóttir, voru skráð for- ráðamenn Bflatorgs hf„ en þau tvö voru úrskurðuð gjaldþrota fýrr á þessu ári — Ragnar 3. júlí síðastliðinn og Kristín 3. febrúar. Engar eignir fundust í búum þeirra. Það blasir því við að þau geta ekki skipað stjórn hinnar nýju bflasölu, sem ber nafn sem er vægast sagt mjög líkt því íýrra. Nýja fyrirtækið er því skráð á nafn tengdamóður Ragnars. Þá hefúr blaðið heimildir fýrir því að Ragnar hafi haldið eftir greiðslu sem hann tók upp í milli- gjöf vegna bfls sem hann hafði í umboðssölu fyrr á árinu. Málið hefur verið í innheimtu hjá iög- mönnum. Ragnar sagðist ekki kannast við málið þegar það var borið undir hann. Bankar og sparisjóðir Eignast á annað hundrað fasteígnir á uppboðum í ár Reikna má með að viðskipta- bankar og sparisjóðir leysi til sín hátt í 200 fasteignir á þessu ári með kaupum á nauðungarupp- boðum. Talsmenn bankanna eru sammála um að kaup þeirra á fasteignum á uppboði hafi farið verulega vaxandi á síðustu tveim- urárum. Segja má að bankarnir séu orðnir með stærri fasteignasölum Þjóðlífsmálinu lokið? Lögmaðurinn sættist við rukkarana Ljóst er að mál Ingibjargar Ein- arsdóttur gegn Innheimtum og ráðgjöf og Steingrími Snorrasyni er búið. ðllum á óvart fékk lög- maður hennar, Guðmundur Pét- ursson hæstaréttarlögmaður, fram sátt f málinu. Þar með er ljóst að máli Ingibjargar er lokið og gjafsókn sú sem hún fékk frá dómsmálaráðherra úr sögunni. Sem kunnugt er varð mikið uppistand vegna innheimtuað- gerða Innheimta og ráðgjafar hf. á kröfum sem fyrirtækið var með í innheimtu fyrir Steingrím Snorrason. Ljóst þótti að Stein- grímur væri aðeins leppur fýrir fyrirtækið en á bak við það stóðu þeir Jóhannes Halldórsson og Úlfar Nathanaelsson. Ingibjörg var skuldlaus við tímaritið Þjóðlíf en eigi að síður var gert fjárnám hjá henni fyrir kröfunni effir að hún komst í hendurnar á Inn- heimtum og ráðgjöf. Á sírlum tíma skrifuðu þús- undir fslendinga undir áskorun um að Ingibjörg fengi gjafsókn vegna fordæmisgildis málsins fyr- ir þá sem vilja verjast ósvífnum rukkurum. Sáttin sem nú hefur náðst kemur því á óvart — sér- staklega vegna þess að enn efu tugir Islendinga í sömu sporum og Ingibjörg. Neytendafélag Akur- eyrar hafði forgöngu um málið á sínum tíma og að sögn Vilhjálms Inga Árnasotmr, formanns félags- m þa ttk isl MLM Bankl indsbankf Islands I 0101 I TókkaraOmlngurnr.. ZV7V bH looo 2Z.!o ÖZ RÁK FYRIfí TOLVULETUR - það er mjðg árlóandi. flá hér tyiir iwdan sjálst hvort.1 skrifr né síímplun. Sáttaávfsunin mikla sem.gerir það að verkum að prófmálið gegn Innheimtum og ráðgjöf hf. og Steingrími Snorrasyni erfyrlr bí. ins, verður reynt að fá nýja gjaf- sókn fyrir einhvern þeirra sem enn búa við fjárnám. Miðað við orð Þorsteins Pálssonar dóms- málaráðherra á sínum tíma taldi Vilhjálmur að það yrði auðsótt mál. á landinu, en þeir eru um leið afar tregir til að gefa upp fjölda fast- eigna sem þeir leysa til sín með þessum hætti. Þór Þorláksson í útlánastýringu Landsbankans viðurkenndi að kaup fasteigna á uppboðum færu vaxandi og nefndi að 1991 og 1992 hefðu nærri 100 fasteignir verið keyptar. „Við erum sífellt að kaupa og selja og stöndum uppi með eignir sem erfiðar eru í sölu.“ Þorgils Óttar Mathiesen, sem sér um þessi mál hjá íslands- banka, var eins og aðrir tregur til að gefa upplýsingar. Það fékkst þó uppgefið hjá honum að það sem af er árinu hefði bankinn leyst til sín 61 fasteign, en á móti selt 55 fasteignir. „Þegar árferðið er eins og það er eignast bankinn mikið af eignum, sem hann reynir að losa sig við svo fljótt sem auðið er. Bankinn er einfaldiega að verja kröfur sínar og það er misiafnt hvemig það gengur,“ sagði Ottar. Hjá Búnaðarbankanum fékkst ekkert uppgefið. Unnar Jónsson sagði þetta viðkvæmt mál, sem menn væru tregir til að tjá sig um. „Það er reynt að selja þessar fast- eignir sem fyrst aftur, en það verður æ erfiðara, því fasteigna- markaðurinn hefur dregist svo mikið saman.“

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.