Pressan - 05.11.1992, Side 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992
Skaðvaldurinn svklalvf
Læknar snú
með skottul
Ótæpileg sýklalyfjagjöf er
talin einn mesti skaövaldur
nútímans.
Margt bendir til þess að svepp-
urinn Candida Albicans sé or-
sakavaldur flestra nútímasjúk-
dóma sem við burðumst með,
eins og mígrenis, ofnæmis og
jafnvel liðagigtar. Tilurð svepps-
ins er talið að megi rekja til sýkla-
lyfjaáts sem á fslandi er með því
ótæpilegasta sem gerist, að
minnsta kosti á Norðurlöndun-
um.
Ung börn og eyrnabólga eru
nokkuð sem fjölmargir íslenskir
foreldrar geta tjáð sig um af mik-
illi innlifun. Hvergi á Norðurlönd-
um er börnum skammtað eins
mikið magn sýklalyfja og hér á
landi, einmitt við kvillum eins og
eyrnabólgu eða vökvasöfnun í
eyrum. Heyrst hafa dæmi um að
þar sem venjuleg sýklalyfjainn-
taka dugir ekki lengur tíl séu
börnin látín mæta á sjúkrahús til
að fá pensilín beint í æð. Slíkt
magn sýklalyfja getur valdið því
að örverukerfi barnanna raskist
og byggist upp á óeðlilegan hátt.
Tölur ffá heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytínu (sjá línurit) sýna
svart á hvítu sýklalyfjanotkun fs-
lendinga. Þótt aðeins sé farið að
draga saman með Finnum og fs-
lendingum innbyrða helmingi
fleiri fslendingar sýklalyf daglega
en til dæmis Danir og Norðmenn.
Og óformleg könnun Péturs Pét-
urssonar, heilsugæslulæknis á Ak-
ureyri, sýnir að sýklalyfjanotkun
íslendinga er í öfugu hlutfalli við
aldur; börn fá miklu fleiri ávísanir
á sýklalyf en fullorðnir.
Sumir, sem ofbýður endalaus
sýklalyfjagjöf til handa börnunum
sínum, hafa gripið til sinna ráða
þegar sýnt þykir að lyfjameðferð
dugir ekki til. Þeir hafa leitað á
náðir svokallaðra skottulækna.
Einn þeirra, Ævar jóhannesson,
starfsmaður raunvísindadeildar
sveppum í meltingarfærunum.
Fyrr eða síðar getur komið að því
að sveppirnir taki völdin. Cand-
ida-sveppurinn, sem örvast við
sýklalyfjainntöku, myndar eitur-
efni sem berst út í blóðið og veld-
ur meðal annars bjögun á ónæm-
iskerfi líkamans með ófýrirsjáan-
legum afleiðingum.“
Þetta eru orð Ævars Jóhannes-
sonar, sem varpaði tímasprengju
á íslensku læknastéttina þegar
hann hélt því blákalt ffam í tíma-
ritsgrein fyrir nokkrum árum að
sýklalyf í miklum mæli, sem ís-
lenskir læknar veigruðu sér síður
en svo við að gefa sjúklingum sín-
um, gætu haft vægast sagt óhugn-
anlegar afleiðingar í för með sér
væri ekkert að gert. Við þessi skrif
Ævars urðu sumir læknar fjand-
samlegir í hans garð og eru enn,
enda Ævar ekki læknismenntað-
ur, en aðrir hlustuðu og veltu fyrir
sér þessum merku skrifum. Nú
hafa æ fleiri læknar snúist á sveif
með Ævari og eru famir að sjá að
líklega eru mikil tengsl milli
sveppsins skæða, Candida Albic-
an, og ýmissa kunnra nútímasjúk-
dóma svosem mígrenis, truflana á
sjón og heyrn, minnisleysis og
einbeitingarskorts, sjálfsmorðstil-
hneigingar, þunglyndis, kvíða og
svefnleysis, asma og exems, ýmiss
ofnæmis, oföndunar, óreglulegra
blæðinga og bólgu í leggöngum,
blöðrubólgu, tá- og munnsveppa,
ristilbólgu, bjúgs og jafnvel geti
sveppurinn ýtt undir áfengisfíkn
og verið meðvirk orsök eyðni, en
umdeildari hafa verið tengsl
sveppsins við liðagigt og heila- og
mænusigg.
ÆVAR GLÖGGUR OG
GREINDUR
Margir íslenskir læknar hafa
velt þessu fyrir sér. Þeir eru í gróf-
Dagskammtar á hverja 1.000 íbúa.
Sjúkdómurinn var
sveppasýking
Kona á fertugsaldri, sem ýms-
ir kvillar hafa hrjáð að undan-
förnu, gekk á miÚi lækna vegna
ýmissa sjúkdóma sem engin
svör voru til við nema ef vera
kynni að þetta væri stress eða of-
þreyta. Að lokum komst hún
sjálf að því hvað amaði að.
„Snemma á þessu ári fékk ég
lungnabólgu. Það var auðvitað
ekkert um annað að ræða en
setja mig á gífurlega sterk fúka-
lyf. Mér sló tvisvar niður, þannig
að skammturinn var aukinn
verulega. Mér var ráðlagt að
hætta að reykja, sem ég gerði, og
batinn kom þá fljótt. Eg skildi
hins vegar ekkert í því hversu
slöpp ég var lengi á eftir, auðvit-
að skrifaði ég það á reikning
veikindanna og taldi að þau
hefðu dregið úr mér alla orku,
sem ég þyrfti að vinna upp.
Með vorinu fór þessi enda-
lausi slappleiki að verða afar
þreytandi, því ég taldi að þá
hefði ég átt að vera búin að ná
upp orkunni. Ég hafði sífellt höf-
uðverk og gat ekkert gert á
kvöldin vegna ofþreytu. Ofönd-
un fór að segja til sín og henni
fylgdi svimi. Það taldi læknirinn
minn vera streitu en loks fór að
bera á kláða í kynfærunum. Ég
leitaði læknis sem gat lítið fyrir
mig gert en ráðlagði mér að fá
stíla gegn kláðanum. Kláðinn
minnkaði á meðan ég var á stíl-
unum en um leið og skammtur-
inn var búinn byrjaði hann aft-
ur. Skömmu síðar fór ég að fá
bjúg, en hann hef ég ekki fengið í
tólf ár, eða síðan ég gekk með
eldra bamið mitt. Ég leitaði aftur
læknis og fékk einhverjar töflur
sem dugðu þó skammt, líkt og
stílarnir. Ég var vægast sagt
óánægð með sjálfa mig; ég var
eins og tungl í fyllingu vegna
bjúgsins. Að auki var ég mjög
óánægð með meðferðina gegn
bjúgnum, því bjúgur á ekki að
vera orsök einhvers heldur af-
leiðing. Á endanum benti kunn-
ingjakona mín mér á vatnslos-
andi te sem gætí hjálpað mér og
það var eins og við manninn
mælt: þegar ég byijaði að drekka
teið sat ég bókstaflega í tvo sólar-
hringa á klósettinu. Ég pissaði á
klukkutíma fresti allan sólar-
hringinn. Á endanum hringdi ég
í lækni og hann sendi mig undir
eins inn á spítala í rannsókn.
Hann hélt að ég væri komin með
eitthvað í nýrun. Það er
skemmst ffá því að segja að ekk-
ert kom út úr þessum rannsókn-
um og bjúgurinn hélt áfram að
koma og fara. Þá fékk ég sem
betur fer enn eina ábendinguna,
og aftur ekki ffá lækni, þar sem
mér var bent á að þetta gæti
hugsanlega verið sveppasýkrng.
Ég las mér til um þennan sjúk-
dóm. Mér fannst ekki saka að
reyna nýjar aðferðir fýrst lækn-
arnir gátu ekkert gert fyrir mig.
f dag er ég hætt að borða syk-
ur og ger og er allt önnur mann-
eskja. Ég er alveg ákveðin í að
drepa þessa sveppi. Ég er miklu
hressari og öll óþægilegu ein-
kennin eru horfin. Það er enginn
vafi á því að þetta hefur verið
sveppasýking.“
PRfSMN/AM
Háskóla íslands, telst þó varla
mikill skottulæknir lengur, því
fjölmargir læknar eru farnir að
horfast í augu við það sem hann
hefur ffam að færa, segja mikið vit
búa að baki orðum hans. Hann
heldur því fram að sýklalyf séu
hinn mesti skaðvaldur og orsaka-
valdur helstu nútímakvillanna.
Einn íslenskur læknir, Helgi
Valdimarsson, sérfræðingur í
ónæmisffæðum, hefur þegar haf-
ið rannsóknir á tengslum sveppa-
sýkinga, sýklalyfjainntöku og syk-
uráts.
VARPAÐISPRENGJU Á
LÆKNASTÉTTINA
„Það er næstum gefið að ef fólk
fer að taka inn sýklalyf að stað-
aldri verða þau að ofvöxnum
um dráttum sammála Ævari og
segja hann afar glöggan og greind-
an mann sem hafi blásið nýju lífi í
íslenska læknastúdíu. Hins vegar
geri hann stundum ekki greinar-
mun á því hvað sé búið að sanna
fræðilega, eins og læknisfræðin
krefst, og því sem enn sé á tilgát-
ustigi. „Læknar verða að vera
íhaldssamir en á sama tíma verða
þeir að viðurkenna að þeir vita
ekki nema takmarkað ennþá um
orskakir ýmissa kvilla, óþæginda
og sjúkdóma,“ sagði virtur læknir
í samtali við PRESSUNA.
En hvaðan hefur þú þína vitn-
eskju, Ævar?
„Ég fór að velta þessu fýrir mér
fyrir nokkrum árum þegar ég
rakst á greinar í kanadísku blaði
um þetta efni, sveppasýkingar og
sýklalyfjaát, eftir virtan lækni
að nafni C. Oriant Truss, sem
orðinn er heimsþekktur fyrir
skrif sín. Hann er að vísu um-
deildur ennþá en æ fleiri
læknar eru farnir að velta
fyrir sér rannsóknum hans.
Hvað varðar til dæmis
eyrnaveiki íslenskra barna
er hún í langflestum tilfellum
tengd óþoli. Það verður að
byrja á að finna hvaða óþol það
er áður en hægt er að lækna börn-
in. Ég er ekki að segja, og hef
aldrei sagt, að ekki megi gefa
sýklalyf; þau eru ómissandi í viss-
um tilfellum en þau eru misnotuð.
Og það er það sem ég er óánægð-
ur með. Næstum allir sem eru
með sveppasýkingu hafa líka
fæðuofhæmi. Allt bendir til þess
að þegar ónæmiskerfið fer að
starfa skakkt myndist ofhæmi fyr-
ir hinum og þessum matvælum,
sem eru alls ekki óholl en fólk get-
ur ekki notað vegna sveppasýk-
ingarinnar."
Ævar Jóhannesson varpaði
sprengju inn I íslensku lækna-
stéttina fyrir fáeinum árum. Nú
eru margir læknar farnir að
horfast í augu við það sem hann
hefur fram að færa og segja
hann afar glöggan og greindan
mann.
TOPPURINN Á ÍSJAKANUM
Helgi Valdimarsson, sérfræð-
ingur í ónæmisfræðum, er að
rannsaka í víðu samhengi hvaða
áhrif fúkalyfja- og sykurneysla
hefur á örveruvistkerfi líkamans.
„Þetta er geysilega stórt viðfangs-
eftii. Það er umhugsunarefni að í
sambýli við líkama okkar eru ekki
bara milljónir, heldur milljónir
milljóna af örverum, þar af mjög
margar í jákvæðu sambýli við
okkur. f hvert sinn sem við tökum
inn sýklalyf erum við að raska
þessu vistkerfi verulega, sömu-
leiðis hefur maturinn sem við
borðum veruleg áhrif á vistkerfið.
Ef taka ættí einhveija eina tegund
út þá hefur sykurinn veruleg áhrif.
Gott dæmi sem allir þekkja er að
sykurát orsakar tannskemmdir.
Við sykurát örvast vöxtur sér-
stakra tegunda baktería í munnin-
um sem framleiða sýru sem leysir
upp glerunginn. Þetta er dæmi
sem allir vita um, því við sjáum
tennumar. Þetta er líka gott dæmi
um hvemig sykur getur raskað ör-
vemvistkerfinu og þar með valdið
sjúkdómi sem kallast tann-
skemmdir.“
Er eitthvað svipað sem gerist
innra með okkur? *
„Það er einmitt það sem ég hef
áhuga á að rannsaka. Hugmyndin
er sú að tannskemmdir séu bara
toppurinn á ísjakanum.
Ofvöxtur á gersveppum í lík-
amanum er bara einn partur af
öllu því sem ég hef áhuga á að
rannsaka, en ég vil ekki tjá mig
meira um rannsókn mína á þessu
stígi máls.“
Hvencer má vœnta niður-
staðna?
„Það gæti jafnvel komið eitt-
hvað út úr þessu eftír tvö til þrjú
ár, en ég lít á þetta sem framtíðar-
verkefni."
FRÁ MÓÐUR TIL BARNS
Vilji maður gera tilraun til að
losna við sveppina verður að
sneiða um tíma hjá sykuráti, því
sykur nærir sveppina. í sumum
tilfellum er einnig talið heppilegt
að borða sem minnst af geri, sér-
staklega pressugeri, sem notað er
við brauðbakstur, og ölgeri, sem
notað er til að gerja vín og bjór.
Örverumar í gerinu em náskyldar
sveppinum Candida Albicans,
sem veldur meðal annars slím-
húðarbólgu í leggöngum kvenna
og þrusku í munni ungbarna.
Þetta eru það líkar örverur að
ónæmiskerfið gerir ekki alltaf
greinarmun þarna á milli. Jafnvel
er talið að sveppasýktar mæður ali
börn með sveppasýkingu sem
veldur ótrúlegustu sjúkdómum.
Þruska í munni er nærtækasta
dæmið, því allt bendir til að þá
hafi barnið fæðast með sveppa-
sýkingu.
Ævar bendir á fleiri leiðir til
lækningar sveppasýkingar. Til eru
nokkur sveppalyf sem fást gegn
lyfseðli í apótekum, en þau em öll
talin gagnast takmarkað við mik-
illi sveppasýkingu. Einnig eru til
nokkur náttúruleg efni sem talið
er að vinni gegn sveppum, til að
mynda jurtaextrakt er nefnist
Spilantes, Ceyenne-pipar er einnig
að því er virðist mjög öflugur sem
og hrár hvítlaukur. Svo em líkur
leiddar að því að seyði af sumum
íslenskum jurtum kunni að vera
gagnlegt sem sveppalyf.
Sjálfur býr Ævar til seyði sem
hann gefur fólki við sveppasýk-
ingu. „Það sem ég gef fólld sem til
mín leitar er lyf — það má víst
ekki kalla það lyf — sem hjálpar
krabbameinssjúklingum að kom-
ast í gegnum lyfjameðferð, það
hefur reynst mjög vel við sveppa-
sýkingu.“
MINNA SYKURÁT SKAÐAR
ENGAN
Dr. Laufey Steingrímsdóttir
næringarfræðingur hefur efa-
semdir um að ger sé skaðlegt en
segir það engan saka að minnka
við sig sykurátið. „Þar er ábyggi-
lega rétt að mikil notkun fúkalyfja
eykur líkur á sveppasýkingu, en ég
sé ekki rökin á bak við það að ekki
megi borða gerbrauð. I fyrsta lagi
verður gerið dautt við bakstur og
að auki er magnið af geri í brauði
alveg ótrúlega lítið. Brauð er það
hollur matur að ég vil fá frekari
staðfestingu á tengslum þess við
sveppasýkingu áður en það er sett
á bannlista, en það sakar engan að
minnka við sig sykurátið. Hins
vegar finnst mér rannsóknir
Helga Valdimarssonar, sérfræð-
ings í ónæmisfJæðum, mjög for-
vitnilegar."
SÝKLARNIR SLYNGARI
MÖNNUNUM
Margt bendir einnig til þess að
fjölmargir íslendingar hafi mynd-
að ónæmi gegn ákveðnum sýkla-
lyfjum, sem gerir að verkum að
þau koma ekki að neinum notum
gegn bakteríusýkingum. „Þótt
ekki hafi enn verið færðar sönnur
á það er margt sem bendir til þess
og eru nokkrir íslenskir læknar að
rannsaka þetta,“ segir Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir í
samtali við PRESSUNA. Sumir
læknar vilja af þessum ástæðum
draga úr sýklalyfjanotkun og gera
fólk meðvitaðra um hvað það hef-
ur í höndunum.
f nýlegri grein sem birtist í
PRESSUNNI um klóka sýkla kom
fram álit bandarísks prófessors
við Colombia-háskólann í New
York. Hann segir að þeir sýklar
séu til í milljarðatali sem kynnu að
breyta erfðaeiginleikum sínum til
að verjast óvininum, lyfjunum,
sem maðurinn hefur búið til í því
skyni að ráða niðurlögum þeirra.
Hann gagnrýnir harðlega mis- og
ofnotkun sýklalyfja. Hann heldur
því fram að þeim hafi verið dælt í
sjúklinga, oft án fullnægjandi
sjúkdómsgreiningar, í slíku magni
og styrk að nægt hefði til að strá-
drepa allar bakteríur margfalt. „f
sumum tilfellum er þetta eins og
að nota fallbyssu til að skjóta
flugu,“ segir prófessorinn.________
Guðrún Kristjánsdóttir