Pressan - 05.11.1992, Side 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992
E R L E N T
Umdeildur eiginmaður
klámdrotlningar
Bandaríski listamaðurinn Jeff Koons hefur vakið feiknaathygli, ekki síst fyrir djörf ljós-
myndaverk af sér og konu sinni, Cicciolinu.
Flestir vita hver hún er, hvít-
hærða klámdrottningin Cicciol-
ina, sem gjarnan berar á sér
brjóstin og tókst með djarfri fram-
komu sinni að setja allt á annan
endann á ítalska þinginu. Færri
vita að eiginmaður hennar er eng-
inn annar en Bandaríkjamaður-
inn Jeff Koons, einn þekktasti
listamaður okkar tíma. Það er ef
til vill til marks um stöðu mynd-
listarmanna nútímans, að þegar
fréttir bárust af því síðasta sumar
að Cicciolina væri búin að festa
ráð sitt skýrðu fjölmiðlar í skeyt-
ingarleysi frá því að hún hefði gifst
„einhverjum myndhöggvara“.
Staðreyndin er sú að Koons er
tvímælalaust einn ef hinum
„stóru“ núlifandi listamönnum og
án efa einn sá umdeildasti. Koons
hefur verið líkt við Andy Warhol
hvað varðar afstöðu hans til
myndlistar, en verk þeirra eru
gjörólík. Kalla má Koons fjöl-
tæknimann en hann hann gerir
jafnt risastóra blómaskúlptúra,
glerverk, höggmyndir og ljós-
myndaverk. Rauði þráðurinn í
verkum hans er „kitsch“, þ.e. list-
líki, sem er að sjálfsögðu meðvitað
og einkennist af bleikum litum og
tilgerðarlegum uppstillingum.
Meðal nýrra verka hans sem vakið
hafa mikla athygli eru ljósmyndir
af honum og konu hans Cicciol-
inu, þar sem þau eru fáklædd og í
afar djörfum stellingum, um-
kringd bleikum fiðrildum og
blómum.
CICCIOLINA HAFIN UPP
TILSKÝJANNA
Koons hefúr takmarkalaust dá-
læti á konu sinni Cicciolinu og
hefur hana til skýjanna, bæði í
máli sínu og myndum. Hefur
hann afdráttarlausar skoðanir á
hlutverki þeirra á þessari jörð og
lítur á þau hjónin sem Adam og
Evu. Hann hefur meira að segja
látið þau orð falla að þau séu guðir
í mannslíki. Koons hefur oftsinnis
lýst því yfir að Cicciolona sé í sín-
um huga óflekkuð. Hún gengur
nú með barn þeirra en samkvæmt
túlkun Koons á skírlífi konu sinn-
ar verður væntanlega um mey-
fæðingu að ræða þegar barnið
kemur í heiminn.
Þau hjónin eru nú búsett í Mú-
nchen, en Cicciolina var talin
óæskileg af bandaríska útlend-
ingaeftirlitinu. Þýskaland hefur
greinilega haft ágæt áhrif á þau
hjón, því Koons sagði í nýlegu við-
tali að frjósamasta tákn sem hann
gæti hugsað sér væri Cicciolina
standandi við hliðina á bæverskri
kú! Koons hefur lýst því yfir að
Cicciolina sé að sínu mati einn
mesti listamaður okkar tíma. Hún
tjái sig með kynfærum sínum og
hafi alls enga sektarkennd. Koons
hefur sætt sig við grugguga fortíð
konu sinnar, sem lék í ýmsum
klámmyndum áður en hún komst
á þing á Ítalíu, en krefst af henni
fyllsta skírlífis í hjónabandi þeirra.
Reyndar hefur gengið á ýmsu í
sambandi þeirra og eru þau ýmist
svarnir óvinir eða ástfangin upp
fyrir haus.
LISTAVERK EÐA ARGASTA
KLÁM?
Listaverk Koons eru feikilega
dýr og eru meðal annars fræg fyrir
það hve hrikalegu miklu er kostað
til við gerð þeirra. Þegar Koons
var að hasla sér völl sem listamað-
ur gerðist hann verðbréfasali í
Wall Street til að geta fjármagnað
list sína, og hafði því öllu íhalds-
samari starfa en nú. Varði hann
öllum peningum sínum til list-
sköpunar þótt hann gerði ekki
annað en tapa á verkum sínum,
en þau kölluðu á dýran efnivið og
kostuðu ómælda vinnu.
Jeff Koons hefúr nú uppskorið
Börn Sovétleiðtoga velja vestrið
Sergei, sonur Níkíta Krútsjov, sem var leiðtogi Sovétríkj-
anna frá dauða Jósefs Stalín J953 til 7 964, hefur sótt um að
mega dvelja til frambúðar í Bandaríkjunum. Krútsjov hefur
dvalið þar vestra undanfarið, en hann er verkfræðingur að
mennt og höfundur bókar um föður sinn. íBretlandi dvelur
Svetlana
Stalín, svo greinilegt er að börn Sovétleiðtoga virðast frekar
kjósa vestrið.
laun erfiðis síns og valuð geysilega
athygli um allan heim. Margir
halda vart vatni af hrifninu yfir
verkum Koons og líkja honum við
Salvador Dalí.
Aðrir eru minna spenntir og
segjast ekkert annað sjá út úr
djöríúm ljósmyndum hans en ar-
gasta Idám. Víst er að seint verða
allir á einu máli um ágæti Jeffs Ko-
ons. En hvað svo sem mönnum
kann að finnast um verk hans er
hann tvímælalaust viðurkenndur
sem áhrifamikill listamaður. Deil-
urnar standa hins vegar um það
hvort áhrifin eru góð eða slæm.
Ljósmyndaverk
Jejfs Koons — lista-
maðurinn og eigin-
kona hans, Cicciol-
ina, í djörfum stell-
ingum.
Lemmon líkleg-
ur Óskarshafi
Gagnrýnendur í Bandaríkjun-
um keppast nú við að hlaða lofi á
Glengarry Glen Ross, nýja kvik-
mynd eftir leikstjórann og leik-
skáldið David Matnet. Myndin
fjallar um fasteignasölu og starfs-
menn hennar, það mun vera
heldur sóðalegur staður og fullur
af svindlurum. Með aðalhlutverk
fer Al Paríno og þykir standa sig
afburðavel, en stjarna myndar-
innar er þó gamla brýnið Jack
Lemmon. Hafa gagnrýnendur
sagt að það sé hrein opinberun að
fylgjast með leik hans. Lemmon
þykir Iíklegur til að vinna Óskars-
verðlaun fyrir vikið og ekki í fyrsta
skipti.
Madonna slær
hershöfðingjan-
um við
Endurminningabók Normans
'Schwarzkopf bandaríska hers-
höfðingjans sem varð heimsfræg-
ur í Persaflóastríðinu, hefúr trón-
að á toppi bandaríska metsölulist-
ans síðan hún kom út fyrir stuttu.
Kaupendur láta það ekki affra sér
þótt bókin þyki full af karla-
grobbi. En nú hefur söngkonan
Madonna slegið hershöfðingjan-
um við og er klámbókin hennar
Sex komin í efsta sætið á sölulist-
Stórefnilegasta
leikkonan
Winona Ryder er ung
leikkona, aðeins 21 eins
árs, en er strax talin i hópi
þeirra stórefnilegustu i Banda-
ríkjunum. Ýmsir muna eftir því
þegar Ryder stal senunni frá
Cher i kvikmyndinni Mermaids
og gestir á kvikmyndahátíð i Há-
skólabíói um síðustu helgi sáu
hana fara á kostum í hlutverki
óvenjulegs leigubilstjóra í mynd
eftir Jim Jarmusch sem heitir Night
on Earth. Nú hefur hún nýlega
lokið við að leika i kvikmynd
sem sjálfur Francis Ford Coppola
hefur gert eftir sögunni um Dra-
kúla. Menn virðast ekki setja fyrir
sig að Ryder er smávaxin, horuð
og ekkiýkja brjóstastór; semsagt
ekki hin dæmigerða Hollywood-
leikkona, enda bætirhún það
allt upp með því að vera alveg
furðanlega lífleg stúlka. Það er
svo hægt að upplýsa þá sem
hafa áhuga um að hún hefur
sést í bíltúrum i sérútbúinni
Trabant-bifreið rokkstjörn-
unnarBono úrU2.
Polanski fullur
eftirsjár
Bitur máni, nýj-
asta mynd pólska
leikstjórans Romans
Polanski, hefur gengið
prýðilega í Frakklandi
og Bretlandi og nú er
hún sýnd í Stjörnubíói
við ágætar undirtektir. Er
mál manna að þetta sé jafn-
vel besta mynd Polanskis
síðan hann gerði Chinatown
1974. En Polanski á erfitt með
að finna hamingjuna. I viðtali
í nýjasta hefti kvikmynda-
blaðsins Empire segist hann vera fúllur af eftirsjá, líf hans sé í rauninni
stór og mikiT eftirsjá. Og satt er það, úr fortíð Polanskis koma margir
draugar. Móðir hans beið bana í Auschwitz, en sjálfúr slapp hann naum-
lega, kona hans Sharon Tate var myrt á hroðalegan hátt og 1977 þurfti
hann að flýja Bandaríkin eftir að hafa verið ákærður fyrir að sofa hjá 13
ára stúlku. I þeim heimshluta fer af honum vont orð, hann á ekki aftur-
kvæmt til Bandaríkjanna og þar taka menn myndum hans ekki með
neinum fögnuði. En Polanski hefúr Iíka ýmislegt til að gleðjast yfir. Hann
og kona hans, ffanska þokkadísin Emmanuelle Seigner, eiga von á bami
og sjálfur þykir hann líta út eins og fertugur maður þótt í raun standi
hann á sextugu. Blaðamaður Empire gengur Svo langt að líkja honum við
Dorian Grey úr sögu Oscars Wilde.
Aminu gengur allt í haginn
Söngkonan Amina er fædd í Túnis, þar sem í fornöld var
borgin Karþagó, en hefur búið iFrakklandi síðan 1975. Hún
söng í Eurovision-söngvakeppninni í fyrra og margir muna
eftir þvíþegar hún hélt prýðilega tónleika á Hótel Islandi. Nú
keppast frönsk blöð við að spá Aminu enn frekari frama og
segir til dæmis tímaritið Le Nouvel Observateur að árið 7 993
verði árið hennar. Amina ernýbúin að gefa út nýjan hljóm-
disk sem heitir Wa di yé, sem hefur fengið feiknagóðar við-
tökur gagnrýnenda. En starfleikkonunnar virðist ekki liggja
síður vel fyrir Aminu. Hún hefur þegar leikið smáhlutverk í
mynd eftir sjálfan Bernardo Bertolucci ognúer von á tveimur
kvikmyndum sem hún leikur í; Heilagri nótt eftir Frakkann
Nicolas Klotz og Stund svínsins eftir Bretann Leslie Megahey.
Gert er ráð fyrir að báðar myndirnar verði sýndar á kvik-
myndahátiðinni i Cannes næsta vor.