Pressan - 05.11.1992, Síða 24

Pressan - 05.11.1992, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 PRESSAN Útgefandi Ritstjóri Ritstjórnarfulltrúar Auglýsingastjóri Dreifingarstjóri Blað hf. Gunnar Smári Egllsson Egill Helgason Sigurður Már Jónsson Sigríður Sigurðardóttir Haukur Magnússon Verkalýðshreyfing- in vex verkalýðnum yfir höfuð í PRESSUNNI í dag er dreginn saman kostnaður við ýmiss konar hagsmunasamtök, verkalýðsfélög og samtök atvinnurek- enda. Áædað er að árlegur kostnaður við að reka þessi samtök sé um þrír milljarðar króna. Á tiltölulega fáum árum hafa samtökin þanist út og nú er svo komið að fyrir hverja 350 íslendinga á vinnumarkaði er einn starfsmaður í hagsmunagæslu. Fyrir nokkrum árum var nóg að hafa einn hagsmunagæslumann á bak við hverja 2.000 á vinnu- markaðinum. Þrátt fýrir að verkalýðshreyfingin og samtök atvinnurekenda hafi þanist út eru flestir sammála um að þessi samtök séu ekki að sama skapi vel rekin. Æðstu stjómendur verkalýðshreyfingarinnar eru þeirrar skoð- unar að verkalýðsfélögin séu of mörg og smá og þau geti ekki veitt félögum sínum þá þjónustu sem til er ætlast. Með öðrum orðum þá em of fáir félagsmenn sem greiða til hvers félags íyrir sig; svo fáir að þeir standa einungis undir að greiða einum smá- kóngi í verkalýðshreyfmgunni laun og skaffa honum skrifstofú- aðstöðu. Þeir hafa hins vegar ekki bolmagn til að standa undir raunverulegri starfsemi sem þessi smákóngur ætti að stjóma. Þrátt fyrir að forsvarsmenn samtaka launamanna séu ekki stoltir af þeirri þjónustu sem þeir geta veitt íyrir félagsgjöldin hafa þessi gjöld hækkað umtalsvert á liðnum ámm. Miðað við ástand hreyfingarinnar hefúr sú hækkun farið í smákóngana en ekki til að bæta þjónustuna. Það hlýtur að vera brýnt í dag, þegar rætt er um að létta byrð- um af fýrirtækjum, að samtök atvinnurekenda leiti hagræðingar hjá sér; skeri niður óþarfa kostnað og taki þátt í yfirstandandi erf- iðleikum með umbjóðendum sínum. En það hlýtur að vera enn brýnna þegar rætt er um að auka skattbyrðar launamanna að verkalýðshreyfingin taki til-hjá sér. Á komandi misserum má ekki búast við miklum launahækk- unum. Það getur því skipt launamenn máli ef þeir gætu fengið að halda eftir hluta af þeim félagsgjöldum sem þeir greiða til verka- lýðsfélaganna án þess að fá raunvirði þeirra til baka í formi þjón- ustu. Slík lækkun félagsgjalda gæti jafnvel helmingað áhrif hækk- unar útsvars á útborguð laun. Það ber að fagna því að umræðan um skipulag — eða skipu- lagsleysi — verkalýðshreyfingarinnar hefur nú náð inn í raðir stjómenda hennar. Á næstu árum má búast við að verkalýðsfé- lögum verði fækkað. f sjálfu sér er það jákvætt. Það væri hins vegar vonandi að stjórnendur verkalýðshreyfmgarinnar drægju þann lærdóm af útþenslu hennar á undanfömum árum og auknum kostnaði án betri þjónustu, að í hreyfingunni sé rnnra mein sem beri að taka á. Forystumenn verkalýðsfélaganna hafa skipulega útrýmt lýð- ræðislegum vinnubrögðum úr hreyfingunni á liðnum áratugum. í sjálfú sér er ekki hægt að ætlast til þess að þeir reyni á næstu ár- um að virkja alla félagsmenn sína til skipulagðrar verkalýðsbar- áttu. Þeir gætu hins vegar lært af þróun svipaðra fyrirbrigða f þjóðfélaginu; til dæmis heilbrigðiskerfisins, og reynt að skipu- leggja verkalýðshreyfinguna út frá neytendasjónarmiðum í stað þess að láta hana vaxa í takt við væntingar og drauma starfs- manna hennar. Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar Nýbýlavegi 14-16, slmi 64 30 80 Faxnúmer Ritstjóm 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjóm 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87. Askriftargjald 700 kr. á mánuöi ef greitt er með VISA/EURO/SAMKORT en 750 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 230 krónur (lausasölu BLAÐAMENN: Andrés Magnússon, Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guömundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Haraldur Jónsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson. PENNAR: Stjómmál og viðskipti; Birgir Ámason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Valgerður Bjamadóttir, Össur Skarphéðinsson. Ustir; Gunnar Árnason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórs- dóttir bókmenntir, Lárus Ýmir óskarsson leiklist. Teikningar; Andrés Magnússon, Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Ámason. Setning og umbrot PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI V I K A N AMERÍKANAR FÁTÆKARI ENÍSLENDINGAR Eitt af því serh demókratar drógu upp fyrir forsetakosning- arnar í Bandaríkjunum var að aldrei fyrr hefðu jafnmargir Am- eríkanar þegið matarmiða af hinu opinbera, eða um 26 milljónir manna. Þetta er fólk sem ekki get- ur séð sér farborða án þessara Styrkja. 26 milljónir Bandaríkja- manna eru um 10 prósent þjóðar- innar. Það jafngildir því að um 26 þúsund fslendinga fengju slfka matarmiða. Þótt ástandið sé slæmt hérlendis þá er það ekki svo slæmt. Það munu ekki vera nema rétt rúmlega 20 þúsund manns sem þiggja matarmiða af ríki og sveitarfélögum sem veitir þeim aðgang að niðurgreiddu mötu- neyti. Islendingar geta því huggað sig við að á meðan opinberum starfsmönnum fjölgar ekki verð- um við ekki eins fátækir og Amer- íkanar. FÆREYINGAR KOMNIR í SAMA VANDA OG VIÐ Ástandið í Færeyjum virðist verra en menn héldu. Fyrir nokkru töldu menn að efnahags- lífið hér væri álíka aumt og það var fyrir fimm árum í Færeyjum og ef við gættum ekki að okkur gætum við lent í sömu hremm- ingum og þeir eftir fimm ár. Þessu virðist hins vegar akkúrat öfugt farið. Fyrir fimm árum var Birgir Árnason hagfræðingur aðstoðar- maður Jóns Sigurðssonar og gaf honum ráð til lausnar aðsteðjandi d efnahagsvanda. Síðan hætti Birgir hjá Jóni og fór til EFTA, sem stuttu síðar var næstum lagt nið- ur og gert að nokkurs konarQ^ undirde-jld í EB. Og nú er Birgir kominn til Færeyja að gefa Fær- eyingum ráð til lausnar efna- hagsvanda sínum. Það er því ljóst að við erum ekki um það bil að detta í sama farið og Færeying- ar, Þeir eru lentir í sama drullu- pollinum og við vorum í fyrir fimm árum. KVENNALISTAKONUR AUSA HVER AÐRA VATNI Kvennalistinn virðist vera alveg að spila út. Grasrótin er orðin langþreytt á yfirgangi klíku sem öllu vill ráða hafi samþykkt að það skipti ak- kúrat engu máli hvaða skoðanir þingkonumar hafa á EES eða öðr- um miklvægum málum — aðal- atriðið sé að það sé þeirra eigin skoðun en ekki annarra. Eft- * % ir þessar hremmingar virðist flokkurinn vera að breytast í ein- hvers konar sértrúarsöfnuð. Þannig mátti sjá myndir af Guð- rúnu Agnarsdóttur, fyrrverandi þingkonu flokksins, ganga á milli fulltrúa á landsfundi flokksins með skál með rósavatni. Hún bað konumar að sletta smávatni hver á aðra — helst á enni og brjóst — og fara með einhver hlý orð. Um þetta gátu konurnar verið sam- mála þótt þær gætu ekki komist neinni niðurstöðu um hin pól- HVERS VEGNA Verðskulda nauðgarar ekki þyngri refsingu en almennt tíðkast? SVALA THORLACIUS HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR Þegar rætt er um nauðgun er almennt átt við það þegar karl- maður þröngvar konu með of- beldi eða hótun um ofbeldi til kynferðismaka. Refsirammi við þessu broti er ákaflega vlður eða frá 1 ári og upp í 16 ár. Er þá lagt í vald dómara að ákveða með hlið- sjón af málsatvikum hverju sinni hver refsing skuli vera. Ástæða þess að refsirammi er hafður svo óvenjulega víður er vit- anlega sú að eðli þessara brota getur verið ákaflega ólíkt. Tökum nokkur dæmi: Kona fer á dansleik, gefur manni ákaft undir fótinn, fer með honum heim í íbúð hans, sest með honum að drykkju og daðrar þar við hann, svo að maðurinn telur sig fá þannig skilaboð að konan sé til í tuskið. Þegar á reynir er konan hins vegar alls ekki tilleiðanleg og maðurinn nauðgar henni. Annað dæmi: Kona er gang- andi á leið heim til sín, er dregin inn í húsasund, misþyrmt hrotta- lega þannig að húri verður af var- anlegur öryrki, og nauðgað. Þriðja dæmi: Maður brýst inn til sofandi konu, hótar að mis- þyrma bömum hennar ef hún láti ekki að vilja hans, sem hún gerir. Fjórða dæmi: Margir piltar standa að því að nauðga barn- ungri stúlku, halda henni og nauðgá til skiptis. Flestir munu væntanlega vera því sammála að maðurinn í fyrsta dæminu ætti að fá langvægasta dóminn. Hann hefur ákveðin at- riði sér til málsbóta, ef málsbætur skyldi kalla. Hin brotin era ákaf- lega alvarleg og kalla á margra ára fangelsi að mínu mati. Þótt ég hafi ekki gert neina vísindalega úttekt á nauðgunardómum hér á landi blasir það þó við að íslenskir dómstólar virðast yfirleitt taka vægt á þessum afbrotum. Mig grunar að ef til vill hafi almennt vantað inn í gagnasöfnun þessara mála læknisvottorð eða greinar- gerðir geðlækna eða sálfræðinga, þar sem lýst er áhrifum þessara brota á sálarlíf þeirra kvenna sem fyrir þeim verða. Það er staðreynd að margar þessar konur bíða þess ekki bætur allt sitt líf að hafa orðið fórnar- lömb nauðgara, einkum ef um al- varlegar líkamsárásir er að ræða. Þessar konur fá ýmis sjúkleg ein- kenni; taugaveiklun, ofsóknarótta, þora ekki að fara út á götu eða vera meðal fólks, líða af svefntrafl- unum og martröðum, og svo mætti lengi telja. Þar við bætist að margar þeirra geta ekki lifað kyn- lífi eftir nauðgunina. Nauðgarar hafa leikið lausum hala hér á landi, margir nauðgað fjölda kvenna og líta nánast varla á það sem afbrot þótt þeir hafi orðið að „halda stelpunni“. Þeir hafa skákað í því skjóli hve sjald- gæfar nauðgunarkærar era í raun, miðað við fjölda nauðgana. Það skal tekið fram að í fæstum tilfellum fá konurnar nokkrar skaðabætur þar sem nauðgaramir era oftast eignalausir og ekkert af þeim að hafa. Oftlega draga konur einnig nauðgunarkærur til baka, bæði vegna hótana frá ofbeldis- mönnum og vegna hræðslu við að málið komist í hámæli og þær verði fyrir allskonar söguburði. Þessi afstaða speglast, að því er ég hygg, í þeim dómum sem kveðnir era upp í nauðgunarmál- um. Dómar virðast þyngjast í þeim málum þar sem brotið snýst um peninga, en árás á líkama fólks og sálarlíf vegur létt á ís- landi. Dómar virðast þyngjast íþeim málum þarsem brotið snýst um peninga, en árás á líkamafólks og sálarlíf vegur létt á íslandi. FJÖLMIÐLAR Útlendar auglýsingar og syfja sjónvarpsmanna Aðeins nokkur atriði varðandi bandarískt kosningasjónvarp Rikissjónvarpsins. Því ber að fagna að fréttaút- sending CBS var send út nánast óspjölluð. Þeir sem fýlgdust með breska kosningasjónvarpinu síð- astliðið vor vita hversu vonlaust verk það er að reyna að uppfylla þýðingaskyldu í beinum útsend- ingurii. Þá vill hvort tveggja fára forgörðum; það sem þýða á og ems þýðingin sjálf. Næsta skref væri að horfa í gegnum fingur sér við auglýsing- ar í þessum útsendingum. Inn í sendingu CBS komu bæði stutt hlé vegna auglýsinga og löng hlé til að gefa fréttastofu staðbund- inna stöðva færi á að komast að. Þáttur Rflússjónvarpsins hefði verið mun liðugri ef starfsmenn þess hefðu einbeitt sér að því að bjóða upp á gott spjall á útsend- ingartíma lókalstöðvanna en látið hina stuttu auglýsingatíma fara í loftið. Það er hæpið að fáeinar amerískar auglýsingar hefðu gengið af (slensku þjóðinni dauðri. í stað þess að horfa á endaslepp samtöl íslensku frétta- mannanna við álitsgjafa sína hefðu áhorfendur getað fylgst með framgerðum íslenskra aug- lýsinga í amerísku sjónvarpi. Þegar starfsmenn Ríkissjón- varpsins eru búnir að yfirvinna þennan ótta við auglýsingarnar geta þeir síðan leyft útlendum út- sendingum að rúlla þótt þeir séu farnir heim í bólið. Þeir sem vildu hefðu þá getað fylgst með kosn- ingasjónvarpinu fram á morgun. Þá kem ég að því sem undrar mig alltaf mest þegar Ríkissjón- varpið stendur fyrir útsending- um frameffir nóttu. Um tvöleytið fara fréttamennirnir yfirleitt að afsaka sig fýrir að vera á skjánum og benda á að þeir vilji ekki halda vöku fyrir neinum. Um hálftíma síðar eru þeir byrjaðir að kvarta yfir eigin þreytu og syfju. Uppúr þrjú fara þeir síðan að kvarta yfir því að útsendingin ætli að drag- ast á langinn og að í raun sé ekk- ert að gerast og ekkert að ffétta. Það er eins og þeir séu að reyna að fæla fólk frá tækjunum. Þetta er náttúralega ókurteisi. Þegar fólk þjónustar aðra á það að láta sem sú þjónusta sé ein- hvers virði. Kokkur sem býður gesti sínum upp á mat á ekki að sitja við borðið og tuða um að í raun sé þessi matur bölvað bras. Ekki bara vegna þess að þú tapar bissness á því heldur vegna þess að það rænir gestinn lystinni. Og lífið er nógu leiðinlegt þótt við séum ekki sífellt nöldrandi. Cunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.