Pressan - 05.11.1992, Page 29
PRESSAN
Gagnrýnendur
Auglýsinqasími PRESSUNNAR
64 30 80
Gunnar Hjálmarsson, dr. Gunni,
er landsþekktur tónlistarmaður,
en líka afburðagagnrýnandi.
Síðasta misserið hefur umfjöllun
Gunnars um plötur hér í PRESS-
UNNI vakið mikla eftirtekt, enda
er hann skemmtilega og fjörlega
skrifandi og lúrir ekki á skoðun-
um sínum.
Egill Helgason rit-
stjórnarfulitrúi á
PRESSUNNI hefur
umsjón með út-
gáfu bóka- og
plötublaðanna.
Hanner gamal-
reyndur blaða-
maður sem hefur
lengi fjallað um
menningarmál.
Kolbrún Bergþórsdóttir gagn-
rýnandi hefur vakið mikla at-
hygli fyrir hvöss og tæpitungu-
laus skrif um bókmenntir. Þótt
Kolbrún hafi stundað nám í Há-
skólanum er hún ekki bundin í
viðjar neinna fræðikenninga,
heldur er aðalmælikvarði henn-
ar hvort bók er skemmtileg eða
ánægjuleg aflestrar.
Jón Hallur Stef-
ánsson bók-
menntagagnrýn-
andi stundaði
nám á Spáni og
hefur fengist við
þýðingar síðan
hann kom aftur
heim. Jón Hallur
mun einkum skrifa um Ijóða-
bækur og barnabækur.
SÖLUHÆSTU BÆKURNAR
OG PLÖTURNAR
í hverju blaði verður birt-
ur listi yfir söluhæstu
bækurnar og plöturnar.
Þá verður og birtur listi
yfir stjörnugjafir gagn-
rýnenda.
Sex skem
og lífleg bl
um bækur
og plötur
Nú fyrir jólin hyggst PRESSAN fjalla á
veglegri hátt um bóka- og plötuútgáfiina
en almennt hefur tíðkast í fjölmiðlum.
Ráðgerð er útgáfa hvorki meira né minna
en sex aukablaða sem eingöngu fjalla um
bækur og plötur. Megináherslan verður
náttúrlega lögð á nýútkomið efni, sem
hlýtur umfjöllun úrvalsgagnrýnenda sem
PRESSAN hefur í sínum röðum, en að
auki verður fjallað um bóka- og plötuút-
gáfu frá ýmsum hliðum, mörgum allný-
stárlegum.
Til dæmis má nefria skoðanakannanir
sem Skáfs gerir fyrir PRESSUNA, en þar
eru íslendingar spurðir um viðhorf til rit-
höfunda og verka þeirra, skáldsagna og
ljóða, og ennfremur um álit á tónlistar-
mönnum og skemmtikröftum.
f hverju hinna sex blaða verður kast-
ljósi beint að einum þeirra öndvegishöf-
unda sem gefa út bók fyrir þessi jól; fjallað
um höfundarferil hans og mat lagt á verk-
ið sem er að koma út, en líka fyrri verk.
Sömu meðferð fá helstu popparamir sem
senda ffá sér plötu fyrir jólin.
Einnig má nefna greinar um ýmislegt
sem tengist bókaútgáfu; um bókakápur,
bókatitla, þýðingar og þar ffam eftir göt-
unum. Stefnt er að því að birta kafla úr
helstu „blaðamennskubókum“ sem út
koma, en fullyrða má að reynt verður að
gera öllum greinum útgáfunnar skil.
Útgáfiidagar
19. nóvember
26. nóvember
3. desember
10. desember
17. desember
22. desember
Áœtlun um stærð blaðanna erbirt
með fyrirvara.
A svipaðan hátt er ætlunin að fjalla
um ýmislegt sem tengist plötuútgáf-
unni, til dæmis plötuumslög, metsölu-
plötur og plötur sem hafa alls ekki
selst, en þó ekki síst þá tónlistarmenn
sem senda ffá sér plötur fyrir jólin.
Ætlunin er að metsölulistar PRESS-
UNNAR birtist í hverju blaði; bæði
yfir mest seldu bækurnar og eins plöt-
umar. Bókalistarnir verða tveir, ann-
ars vegar listi yfir skáldverk og hins
vegar listi yfir aðrar bækur. Jafnffamt
verður birtur hefðbundinn metsölulisti
sem byggður er á þessum tveimur.
Plötulistarnir verða einnig tveir; inn-
Iendar og erlendar plötur.
Eins og lesendur PRESSUNNAR hafa
sjálfsagt tekið eftir hefur blaðið tekið upp
þá nýbreytni að nota einkunnagjöf þegar
Qallað er um bækur og plötur, líkt og
reyndar þykir sjálfsagt og alvanalegt þeg-
ar fjallað er um kvikmyndir. Gagnrýn-
endur blaðsins gefa verkunum stjörnur
— fjórar fyrir verk sem þykir afburða-
gott, en ef verk þykir ffámunalega slæmt
má allt eins búast við því að það fái
hauskúpu. Þetta fyrirkomulag verður
áfram við lýði og er ráðgert að í
hverju blaði birtist stutt yfirlit yfir
þá dóma sem áður hafa birst —
með þeirri einkunn sem bókin
eða platan hefur fengið.
Markmiðið er semsagt að
gefa út aðgengilegt, líflegt
og skemmtilegt blað sem
fjallar um sem flestar
hliðar útgáfunnar fyri
jólin; blað sem getui
jafht gagnast þeim sem
teljast bóka- og plötu-
vinir og eins þeim sem
láta sig þessi svið til-
verunnar minna
varða.
Fyrsta bóka- og
plötublaðið kemur út
19. nóvember, en síðan
fylgir blaðið PRESS-
UNNI í hverri viku ff anf
aðjólum.