Pressan - 05.11.1992, Side 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÖVEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
37
undur beitir lesandann en það
varðar lesandann engu því hér er
höfundurinn ekki til í huga les-
andans öðruvísi en sem lítill
drengur sem nefnist Mómó.
Ef skáldverk er verulega gott
finnst lesandanum það varða all-
nokkru að höfundur leiði verkið
til fullkomnunar í lokakafla þess.
Hér tekst það svo vel að lesandinn
þarf að búa yfir einstöku kaldlyndi
til að komast hjá að verða snort-
inn. Ef ég hefði ekki fyrir nokkru
lagt af þann fyrrum sið minn að
geta þess hvort og hvar ég hefði
tárast við lestur skáldverks þá
mundi ég gera allmikið úr tilfinn-
ingaþætti lokakaflans.
Ekkert er ómögulegt og því má
vera að þeir lesendur finnist sem
muni ekki þykja mikið til verksins
koma en til þess þarf þeim að vera
meira en lítið í nöp við unga kot-
roskna drengi.
Þar sem drengur er látinn segja
söguna er hún skrifuð á barnslegu
talmáli þar sem semingar og orða-
forði er hvort tveggja nokkuð
kúnstugt. Um þýðinguna er erfitt
að dæma án þess að bera hana
saman við ffumtextann en í meg-
inatriðum var ég sátt við hana.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Mannkynssaga
fyrir almenning
SAGA MANNKYNS 5
HIRÐINGJAR OG HÁMENNING
1000-1300
RITRÖÐAB
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ1992
★★★★
Þetta fimmta bindi
fimmtán binda ritraðar
um sögu mannkyns fjall-
ar um þann tíma sem venja er að
nefna hámiðaldir. Höfundur er
Knut Helle, prófessor í miðalda-
sögu við háskólann í Björgvin.
Hann hefur kosið að leggja all-
sterka áherslu á sögu Asíu þessa
tíma, en ólíkt því sem sjá má í
svipuðum ritum fær heimsálfan
meiri umfjöllun en Evrópusagan.
Og það má segja að þetta rit sé
ákveðið mótvægi við allan þann
fjölda álíka rita þar sem eingöngu
er blínt í átt að Evrópu um leið og
því er blygðunarlaust haldið að
lesandanum að verið sé að segja
honum heimssögu.
Það er einn af mörgum kostum
þessa rits hversu ffamsetning höf-
undar er skýr og skilmerkileg.
Höfundur er greinilega mikill ná-
kvæmnismaður eins og sagnffæð-
inga er gjarnan siður en nokkuð
alvöruþrunginn. Það er fróðlegt
að vita hvaða þjóðir kúguðu
hverjar hversu lengi, en inn á milli
slíkra upplýsinga hefði verið til-
valið að krydda verkið með mið-
aldaslúðri um svall í Páfagarði eða
léttum sögum um grimma keisara
sem múruðu svikular eiginkonur
inni. Helle gerir hins vegar lítið úr
slíkum sensasjónum og kaflinn
um Gengis Khan er ósköp vesæld-
arlegur. Hann er ágætt dæmi um
það hversu nákvæm söguhyggja
er á kostnað skemmtunar. Þar
hefði Helle með góðri samvisku
getað slúðrað einungis til að draga
svo í land í lokin og geta þess að
líklega væru sögurnar einhvetjum
orðum auknar.
Ef gagnrýna má Helle fýrir að
nálgast efnið af þeim alvöruþunga
og hátíðleik sem gjaman einkenn-
ir samviskusama ffæðimenn þá er
það um leið gagnrýni sem kann
að byggjast of mikið á smekk. Ég
viðurkenni að ég hef ævinlega kol-
failið fyrir fræðimönnum sem
setja efni sitt ffam á skemmtilegan
en um leið fagmannlegan hátt. En
það merkir ekki það að það sé hin
eina aðferð sem blífi. Aðferð Helle
er traust og ömgg og hann á skilið
gnægð af hrósi fyrir mikla heim-
ildasöfttun og skýra ff amsetningu.
Hann hefur unnið af fagmennsku.
Og í lokin nokkur orð um rit-
röðina. Þessi ritröð AB er glæsi-
legasta verk sinnar tegundar sem
útgefið hefur verið hér á landi.
Hún er svo ríkulega myndskreytt
að helst er hægt að jafna því við
vönduðustu listasögubækur. Það
væri verulegur fengur að bók-
menntasögu sem staðið væri að á
svipaðanhátt.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Ýmislegt
góðgæti
SUGAR
COPPER BLUE
★★★★
REM
AUTOMATIC FORTHE PEOPLE
★★★
RAMONES
MONDO BIZZARO
★★★
ANGELO BAGDALAMENTI O.FL.
TWIN PEAKS - FIRE WALK WITH ME
★★
Það er alltaf frábært að
rekast á jafnpottþétta
plötu og fyrstu plötu
bandaríska tríósins Sugar. Sveitin
er leidd af Bob Mould sem áður
leiddi Husker Du, kraftmikla
hljómsveit sem hefur haft mikil
áhrif á bandarískt nýrokk. Þegar
hljómsveitin hætti gerði Bob tvær
rólegar sólóplötur en með Sugar
hefur hann tekið upp kraftmikla
nýrokkþráðinn.
Sugar er þversumma tveggja
ólíkra þátta; hráslagalegs rokks og
grípandi „sixtís“-popps. Undir
drífandi og markvissum gítarleik
Bobs renna þessar andstæður
saman í ómótstæðilega heild. ÖIl
lögin eru verulega grípandi og
textarnir, sem Bob syngur með
sínum skemmtilega stil, rísa langt
yfir meðalmennskunni.
Sugar er dæmi sem rokkáhuga-
menn ættu að kynna sér — ný-
rokk gerist vart betra.
Það hafa margir beðið spenntir
eftir nýrri REM-plötu síðan „Out
of time“ gerði allt vitlaust í fýrra.
Hljómsveitin hefði getað fylgt
troðinni slóð þeirrar plötu en til
að fýrirbyggja stöðnun hafa þeir
skipt algjörlega um gír á nýju plöt-
unni, skipt niður og feta fáfarnar
slóðir. Það er tilraunakenndur
blær á plötunni, jafnvel fum-
kenndur, eins og REM hafi ekki
alveg vitað hvert ferðinni var heit-
ið. Utsetningar laganna eru ný-
stárlegar; þær eru mjög einfaldar
og lögin aldrei ofhlaðin eins og oft
vill verða hjá hljómsveitum af
þessari stærðargráðu.
Nokkur auðmelt lög á plötunni
sýna um hvað vinsældir sveitar-
innar snúast, en flest lögin eru þó
tormelt. Þetta er í heild þyngsta og
rólegasta REM-platan frá upphafi,
en hún venst mjög vel og hentar
vel í skammdeginu.
Hinir bandarísku Ramones
verða að teljast með aulalegri
sveitum rokksögunnar. Söngvar-
inn Joey og gítarleikarinn Johnny
hafa litið eins út síðan hljómsveit-
in tróð fyrst upp í rokkklúbbnum
CBGB’s íNew York. Tónlistin hef-
ur líka lítið breyst síðan þá þótt
liðin séu tæp tuttugu ár.
Ramones byggja á American
Graffity-hefðinni; spila einfalt og
grípandi rokk en með gífurlegri
keyrslu og hráum hljóm. Á nýju
plötunni eru sömu gömlu ffasarn-
ir í fyrirrúmi og þeir virðast aldrei
fá leið á þessu og syngja glaðir um
tónleikaferðalögin, sem flestum
poppurum hundleiðist: Touring
touring, never boring! Það er ekki
annað hægt en hafa gaman af
þessum síðhærðu leðurjakka-
klæddu bjálfum; þeir verða fasta-
gestir í Las Vegas þegar gamlir
pönkarar hafa tekið þar völdin.
Hinn sextugi Angelo Bagdala-
menti átti heiðurinn af hinum frá-
bæru tónum sem Twin Peaks-
þættirnir höfðu að geyma. Þegar
leikstjórinn David Lynch ákvað að
gera bíómynd upp úr þáttunum
var gamli maðurinn auðvitað
fenginn til að semja tónlist við
myndina.
Tónlistin er sama merki
brennd og myndin; hún kemur
ekki lengur á óvart, er ekki lengur
fersk og í sjálfu sér bara endur-
tekning á gömlum affekum. Ang-
elo virðist ekkert hafa átt uppi í
erminni þegar hann réðst í verkið.
Það er að vísu gaman að heyra
hann sjálfan syngja eitt lag (með
röddu sem hljómar eins og Tom
Waits frá Plútó) og Julee Cruise
svíkur ekki með mjúku öndunar-
vélarröddinni sinni, en að megn-
ingu til er platan fuU af gamal-
kunnum Dry Martini-stemmum
með linum snerilburstum, mátt-
lausu píanóglamri og ráðvilltum
blæstri. Lynch og Bagdalamenti
þurfa heldur betur að hugsa sinn
gang eftir þetta flopp.
Gunnar Hjálmarsson
L....-______
„Það er ekki annað hœgt en hafa
gahan afþessum síðhærðu leður-
jakkaklœddu bjálfum; þeir verða
fastagestir í Las Vegas þegar gamlir
y pönkarar hafa tekið þar völdin. “
17.30 Evrópuboltinn. E
18.00 Stundin okkar E
18.30 Babar.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Úr ríki náttúrunnar. Hnotigðan — fimleikameistari
skógarinns. Hnotigðan heitir ekki bara skrýtnu nafni,
heldur hegðar sér líka einkennilega.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður.
20.00 Fréttir
20.35 fþróttasyrpan. Evrópufótbolti, kappflug bréfdúfna
og Birkir Gunnarsson, fatlaður íþróttamaður.
21.15 Spuni. Atriði frá minningartónleikum um Guðmund
Ingólfsson.
21.30 ★★ Eldhuginn
22.20 Úr frændgarði. Sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndum
hefna sín með þvi að senda hver annarri fúlt sjón-
varpsefni.
23.00 Fréttir
23.10 Þingsjá
17.30 Þingsjá E
18.00 Hvarer Valli?
18.30 Barnadeildin
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Magni mús.
19.25 Skemmtiþáttur Eds Sullivan Kannski finna þeir
bráðum upp litasjónvarpið?
20.00 Fréttir
20.35 Kastljós.
21.05 ★★ Sveinn skytta. Gunguhöfðinginn í toppformi.
21.35 ★★ Matlock
22.25 ★★★ Barflugan. Barfly. Amerísk, 1987. Mynd um
tvær fyllibyttur byggð á sögu eftir bandariska rithöf-
undinn, fylliraftinn og dónann Charles Bukowski.
Mickey Rourke er jafnhallærislegur og hann á að sér
og merkilegt nokk hæfir það þessari mynd ágæt-
lega, en Faye Dunaway fer á kostum í hlutverki sínu.
■■■■■■■ —
16.45 Nágrannar.
17.30 Með afa. E
19.1919.19
20.15 Eiríkur.
20.30 ★★ Eliott-systur
21.25 Aðeinsein jörð.
21.35 Laganna verðir.
22.25 ★★ Svikavefur Web ofDeceit. Amerísk, 1990. Sjón-
varpsmynd um kvenlögfræðing sem tekur að sér að
verja ungan mann sem er ákærður fyrir nauðgun og
morð. Ekki er þó allt sem sýnist.
23.55 ★★ Drengirnir The Guys. Amerísk, 1991. Öndveg-
isleikararnir James Woods og John Lithgow leika
æskuvini. Svo veikist annar þeirra. E
16.45 Nágrannar
17.30 Á skotskónum
17.50 Litla hryllingsbúðin.
18.10 Eruð þið myrkfælin?
18.30 NBA-deildin. E
19.19 19.19
20.15 Eirfkur.
20.30 Sá stóri. Breskur myndaflokkur.
21.00 ★ Stökkstræti 21
21.50 ★★ Bálköstur hégómans. The Bonfire of the Van-
ities. Amerísk, 1990. Leikstjórinn Brian de Palma gerir
tilraun til að kvikmynda metsölubók eftir Tom Wolfe
þar sem uppar eru dregnir sundur og saman ( háði.
Bókin var fyndin og snjöll, en kvikmyndin sérdeilis
óeftirminnileg. Aðalleikararnir Tom Hanks, Bruce
Willis og Melanie Griffith bæta ekkl úr skák.
23.45 ★ Úrvalssveitin. Navy Seals. Amerísk, 1990. Charlie
Sheen og félagar í stríðsleik (Beirút. Ósköp barnalegt
og oftastnær leiðinlegt.
01.35 ★ Með dauðann á hælunum. 8 Million Ways to
Die. Amerlsk, 1986. Hal Ashby hefur gert þokkalegar
myndir, Jeff Bridges og Rosanna Arquette eru ágætis
leikarar, en sú er ekki raunin í þessari mynd sem fjall-
ar um drykkfellda löggu og vændiskonu. E
14.25 Kastljós. E
14.55 Enska knattspyrnan. Bein útsending frá leik Aston
Villa og Manchester United í Birmingham.
16.45 fþróttaþátturinn. Evrópufótbolti og úrslit dagsins.
18.00 Ævintýri úr konungsgarði.
18.25 Bangsi bestaskinn
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 ★ Strandverðir
20.00 Fréttir
20.35 Lottó.
20.40 ★★ Leiðin til Avonlea. Lokaþáttur og kannski nóg
komið.
21.30 Manstu gamla daga. Ljóðin við lögin — textahöf-
undar og skáld. Er Þorsteinn Eggertsson textahöf-
undur eða skáld? Kannski fæst svar í þessum þætti,
en auk hans koma fram Númi Þorbergsson, Kristján
frá Djúpalæk, Jónas Friðrik, Eva og Erna, Páll Óskar
Hjálmtýsson og Ólafur Þórarinsson.
22.20 ★★ Perry Mason og líkið í vatninu Perry Mason
and the Case of the Lady in the Lake. Varla muna
nema sumir sjónvarpsáhorfendur eftir Perry Mason,
lögfræðingnum harðskeytta sem Raymond Burr leik-
ur. Ennþá eru þó framleiddar i gríð og erg sjónvarps-
myndir um hann sem þykja þokkalegasta efni.
23.10 ★★ Afmælisferðin Kaj’s fodselsdag. Dönsk, 1990.
Hópur danskra karla á miðjum aldri fer í fyllerísferð til
Póllands þar sem er ódýrt að lifa og kvenfólkið til í
allt. Það finnst ekki öllum danskur húmor skemmti-
legur, en þarna er líka smáalvara.
SUNNUDAGUR
13.00 Hinrik VI — fyrsta leikrit. Eitt af minna þekktum
og leiknum verkum Shakespeares í tíu ára gamalli
sjónvarpsuppfærslu frá BBC.
16.05 Svavar Guðnason Þáttur um afstraktmanninn,
gerður af listfræðingunum Hrafnhildi Schram og
Júlíönu Gottskálksdóttur. E
16.55 Öldin okkar. Franskur myndaflokkur um helstu við-
burði aldarinnar. Engir gera sögulegá fróðleiksþætti
beturen Frakkar.
17.45 Sunnudagshugvekja. Guðlaugur Gunnarsson
kristniboði.
18.00 Stundin okkar
18.30 Karius og Baktus Dönsk brúðumynd. E
18.40 Birtingur E
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Tréhesturinn.
19.30 ★ Auðlegð og ástrfður
20.00 Fréttir
20.35 A slóðum norrænna manna á Grænlandi. Seinni
þáttur. Árni Johnsen fer um eyðifirði sem áður voru
byggðir norrænum mönnum.
21.10 Dagskrá næstu viku
21.20 ★ Vínarblóð Það hlýtur eitthvað að fara að gerast.
Eitthvað mikið.
22.10 ★★ Atómstöðin fslensk bíómynd frá 1984 í leik-
stjórn Þorsteins Jónssonar. Það er mikið lagt í mynd-
ina, en hún er þunglamaleg og stöð. Tinna Gunn-
laugsdóttir er þokkafull í aðalhlutverkinu. E
23.45 Sögumenn. Frá (rlandi, þeirri sögueyju.
17.00 Hverfandi heimur Ný þánaröð um þjóðflokka hér
og þar um heiminn sem öllum stafar ógn af nútím-
anum.
18.00 Borgarastyrjöldin á Spáni. Ný þáttaröð um ógn-
vænlega atburði sem voru eins konar æfing fyrir
heimsstyrjöldina síðari og leiddu til einræðisfor-
myrkvunar á Spáni.
SUNNUDAGUR
17.00 Áttavitar. Ný þáttaröð um fólk sem fer í ferðalög.
18.00 Dýralíf. Fjallað um vaðfugla sem flykkjast til vestur-
hluta Ástralíu á hverju ári.
LAUGARDA G U R
09.00 Með afa
10.30 Lísa í Undralandi
10.50 Súper Maríó-bræður
11.15 Sögur úr Andabæ
11.35 Ráðagóðir krakkar
12.00 Landkönnun National Geographic
12.55 Visasport. E
13.25 ★★★★ Vinstri fóturinn. My LeftFoot. Bresk, 1989.
Daniel Day Lewis fer á kostum í hlutverki Christy
Brown, fatlaðs dreng sem elst upp í fátækt á írlandi
en reynist svo vel gefinn að hann skrifar bók og mál-
ar myndir. Takið líka eftir Ray heitnum McAnally í
hlutverki föður Christys.
15.00 Þrjúbíó. Denni dæmalausi. Teiknimynd um þekktan
grallaraspóa.
16.35 Gerð myndarinnar A League of Her Own Það er
enn ein hafnaboltamyndin, en nú er fjallað um
íþróttakonur sem eru leiknar af Geenu Davis og
Madonnu.
17.00 Hótel Marlin Bay.
18.00 Poppog kók
18.55 Laugardagssyrpan. Teiknimyndir.
19.19 19.19
20.00 ★ Falin myndavél
20.30 Imbakassinn
20.50 ★★ Morðgáta
21.40 ★★ Fram í rauðan dauðann. I Love You to Death.
Amerísk, 1990. Kevin Kline leikur ítala og óþolandi
kvennabósa. Konan hans, sem leikin er af Tracy Ull-
man, er að ganga af göflunum og fær leigumorð-
ingja til að kála honum. Þá birtist William Hurt, en allt
fer í hund og kött. Leikstjóri er Lawrence Kasdan.
Nóg af hæfileikafólki, en samt er þessi gamanmynd
aldrei neitt sérstaklega fyndin.
23.15 ★ Rocky V. Rocky V. Amerísk, 1990. Síðasta Rocky-
myndin og þær verða varla fleiri. Rocky er kominn
með heilaskemmd eftir að hafa barist við vonda
Rússann. Hann er búinn að tapa öllum peningunum
og má ekki berjast framar. Samt stenst hann ekki
mátið.
00.55 ★ Kvöldganga. Night Walk. Amerísk, 1989. Kona
fer í kvöldgöngu og verður vitni að morði. Morðingj-
arnir reyna að gera út af við hana. Sjónvarpsmynd. E
SUNNUDAGUR
09.00 Regnboga-Birta.
09.20 Össi og Ylfa
09.45 Dvergurinn Davíð
10.10 Prins Valíant.
10.35 Maríanna fyrsta
11.00 Brakúla greifi
11.30 Blaðasnáparnir.
12.00 Fjölleikahús.
13.00 NBA-deildin. Leikmennirnir.
13.25 ítalski fótboltinn. Bein útsending.
15.15 Stöðvar 2-deildin. Handbolti, svipmyndir frá ís-
landsmótinu í þeirri íþrótt.
15.45 NBA-körfuboitinn. Sýntfrá leik.
17.00 Listamannaskálinn. Málarinn Roy Lichtenstein,
sem varð frægur fyrir að byggja málverk á teikni-
myndasögum. E
18.00 60 mínútur. Bandarískurfréttaþáttur.
18.50 Aðeins ein jörð E
19.1919.19
20.00 ★ Klassapíur
20.30 Landslagið á Akureyri. Sýnt og spilað lagið Stelpur
sem er hið fyrsta í landslagskeppninni þetta árið.
20.40 ★★ Lagakrókar
21.30 ★★★★ Djöfull í mannsmynd. Framhald mynda-
flokks sem á ensku heitir Prime Suspect. Stórleikkon-
an Helen Mirren fer með hlutverk lögreglukonunnar
Jane Tennison. Þeir sem muna eftir fyrri mynda-
flokknum vita að þetta er öldungis frábært sjón-
varpsefni.
23.00 Gítarsnillingar. Helstu gítarleikarar heims troða
upp í Sevilla.
23.55 ★★ Havana. liavana. Amerísk, 1990. Löng, mikil og
dýr stórmynd. Fyrsti hálftíminn eða svo lofar mjög
góðu, svo fer leikstjórinn Sidney Pollack að teygja
lopann. Það er ekkert hægt að klaga upp á stór-
stjörnuna Robert Redford í aðalhlutverkinu, né held-
ur sænsku þokkadísina Lenu Olin. Vandinn er sá að
myndin er ekki nógu intressant. E
★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt íömurlegt E Endursýnt efni