Pressan - 05.11.1992, Qupperneq 40
HLUSTUM ALLAN SÖLARHRINGINN SIMi 643090
p
jL yrr á árinu sögðum við frá eignar-
hlut Reykjavíkurborgar í glæsilegu herra-
setri, Hasselby, skammt fyrir utan Stokk-
hólm í Svíþjóð. Reykja-
vík á þar hluta ásamt
öðrum höfuðborgum
Norðurlanda og greiddi
um eina milljón króna
þangað í fyrra. Nýlega
var skipt um fulltrúa
Reykjavíkurborgar í
stjórn Hasselby. Embættið virðist ganga á
milli kvennalistakvenna því Guðrún Og-
mundsdóttir tekur sæti Elinar G. Ól-
afsdóttur í stjórninni...
i slenskur tónlistardagur var haldinn
með pomp og prakt á laugardaginn. Af
því tilefni var mikil útsending á báðum
rásum Ríkisútvarpsins.
Nokkra athygli vakti
hversu hlutfallslega var
þar lítið af músík, en
þeim mun meira af
ræðuhöldum manna á
borð við Guðmund
Emilsson tónlistar-
stjóra, Heimi Steinsson útvarpsstjóra og
Ólaf G. Einarsson menntamálaráðherra,
sem notuðu þetta tækifæri til að hrósa
hver öðrum en þó ekki síst sjálfum sér...
(jrein PRESSUNNAR í síðustu viku
um kynferðislegt ofbeldi tveggja lögreglu-
þjóna hefur vakið talsverða athygli. Við
höfum heyrt af þriðja tilfellinu um lög-
regluþjón, sem fyrir tveimur árum var
rekinn eftir að hafa ítrekað orðið uppvís
að afbrigðilegum tilhneigingum í garð
ungra drengja og fyrir að „flassa" í öskju-
hlíðinni...
s
V_ytöðug launabarátta er í gangi innan
fyrirtækisins Flugafgreiðslunnar hf. á
Keflavíkurflugvelli. Fyrirtæki þetta fékk
eftir útboð fyrir þremur árum það verk-
efni að sjá um hleðslu og ræstingar á flug-
vélum Flugleiða. Vakti þá athygli að
lægsta tilboði var ekki tekið og var samið
við félagið affur í ár, án útboðs. Við heyr-
um að skýringin á velvild Flugleiða í garð
þessa fýrirtækis sé einföld. Annar eigenda
Flugafgreiðslunnar er Sigurbjörn
Björnsson sem til skamms tíma var
framkvæmdastjóri Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og auðvitað gott
að hafa mann með slík tengsl sér við hlið.
En nú situr Sigurbjörn sem sé hinum
megin við borðið og á í launastríði við
starfsmenn sína...
XT að er annars um málefni Flugaf-
greiðslunnar að segja að nálega helming-
ur rúmlega þrjátíu starfsmanna fyrirtæk-
isins er á einn eða annan hátt í fjölskyldu-
tengslum við Sigurbjörn Björnsson.
Hann er sjálfur annar ffamkvæmdastjóra
félagsins. Þá starfa hjá honum fjórir bræð-
ur hans, systir, fjórir bræðrasynir, tveir
tengdasynir, sonur og loks má nefna að
eiginkona Sigurbjöms er stjómarformað-
ur Flugafgreiðslunnar og dóttir hans vara-
stjórnarmaður. Þetta kallar maður að sjá
umsína...
Lokar þú augunum fyrir
jólafríi í útlöndum?
0 f
******
Ef svo er getur þú opnaö þau fyrir ódýru jólafargjöidunum hjá SAS, þau eru ótrúleg en sönn
og spennandi áfangastaðir bíða þín um alla Evrópu.
.90°
Kaupmannahöfn
Gautaborg
Malmö
Osló
Stavanger
Bergen
Kristiansand
7»
.90°’'
Stokkhólmur
Norrköping
Jönköping
Kalmar
Vesterás
Váxjö
Kynnið ykkur SAS hótelbæklinginn sem
liggur frammi á öllum ferðaskrifstofum.
Boðið er upp á hótelgistingu á mjög góðu
verði í fjölmörgum löndum.
Lágmarksdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 33%. Flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu veröi:
1250 kr. á íslandi, auk 630 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar.
Sölutímabil er 1. til 30. nóvember. Brottför frá íslandi þarf aö eiga sér staö í desember.
* Háö samþykki stjómvalda.
Brottfarardagar: Mánudagar, miðvikudagar og laugardagar.
Komudagar: Þriðjudags-, föstudags- og sunnudagskvöld.
Hafðu samband við SAS
eða ferðaskrifstofuna þína.
ffl/SAS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 - Sími 62 22 11