Pressan - 22.12.1992, Síða 4

Pressan - 22.12.1992, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR PRESSAN 22. DESEMBER 1992 BÆTIFLÁKAR SKELFILEGIR JÓLASVEINAR „Enti nálgastjólin ogenn mœt- ir tœtingsliðið í lörfunum í Þjóð- minjasafnið til að gleðja blessuð börnin sem safnað er saman af barna- og dagheimilum borgar- innar. Eg hef fyrir satt að sum börnin verði dauðskelkuð þegar þeim er sagt að þetta séu tslenskir jólasveinar. Sem vonlegter." Margrét Kristjánsdóttir í DV L i 1 j a Árnadóttir, safnvörður Þjóðminja- safns ís- lands: „Jóia- sveinarnir eru klæddir eins og heimildir segja til um að fólk hafi verið til fara hér fyrr á öldum, þ.e. í d ö k k u m vaðmálsföt- um. Mér finnst þessir alíslensku jólasveinar ekki á nokkurn hátt síðri en þeir sem klæðast rauð- um og hvítum búningi. Það er orðum aukið að halda því fram að börnum sé smalað á Þjóð- minjasafnið; unga fólkið kemur ekki síst um helgar í íylgd með foreldrum sínum. Og það er al- deilis ekki rétt að yngstu safn- gestirnir séu hræddir við ís- lensku jólasveinana. Öðru nær.“ ÚTLENDINGUM HAMPAÐ „ Víkverji erað velta þvífyrirsér hvernig íþróttafélögin hafi efni á þvt að ráða til sín svo tttarga er- lenda íþróttamenn sem raun ber vitni. Hann hélt einfaldlega að fjárhagur þeirra stœði ekki svo traustum fótum að þau gœtu eytt miklum fúlgum til slíkra hluta. Tökum til dœmis körfuknattleik- inn. Engu erlíkara en þaðsésálu- hjálparatriði að erlendir, helst bandariskir, leikmennséu íhverju liði. Ef einn sltkur forfallast er allt sett í gang til þess aðfá attnan í staðinn, og ekkert virðist sparað í fé né jyrirhöfn. Vafalaust geta ís- lenskir leikmenn margt lœrt af þeittt erlendu, en takmörk hljóta að vera fyrir því hvað langt er hœgtaðganga íþessum efnum. “ Víkverji Morgunblaðsins Kolbeinn Pálsson, formað- ur Körfuknatdeikssambands íslands: „Ég get fullyrt að fjár- hagsstaða körfuknattleikslið- anna í Japisdeild er með ágæt- um, enda eru liðin vel rekin. Ástæða þess að fyrir um fimm árum var ákveðið að heimila ráðningu eins erlends leikmanns í hvert lið er sáraeinföld. Áhugi fyrir körfubolta hafði greinilega farið minnkandi og ljóst að það bráðvantaði meiri breidd í bolt- ann. Það hefúr enda sýnt sig að eftir að erlendir leikmenn gengu til liðs við þá íslensku og ofan á bættust sjónvarpsútsendingar frá NBA-keppninni í Bandaríkj- unum hefúr orðið stórbreyting á í körfuboltanum. Það er ekki að- eins að aðsókn á leiki hafi stór- aukist heldur er almennur áhugi barna og unglinga fyrir körfu- bolta nú meiri en nokkru sinni fyrr. Það segir sig því sjálft, að innan Körfuknattleikssam- bandsins sjá liðin sér aðeins hag í því að fá hingað erlenda körfu- knattleiksmenn." VÆLUKJOARNIR „1 kvöldsögutn hjá Bjama Degi á dögunum rakti hver karlinti af öðntm raunirsínar vegtta hárra ttieðlagsgreiðslna. Kona nokkur lét cinnig í sér heyra en það var til að segja hve henni þœtti ömurlegt að hlusta á fullorðna karlttienn vœla ígegnum heilati þátt. Stjórti- andi þáttarins leyndi því ekki að honum þótti athugasemd kon- unnar óþötf og þegar tiœsti karl komst að til að væla hafði stjóm- Salómé Þorkelsdóttir B E S T Salóme er lýst sem fal- legri, glæsilegri, jákvæðri og elskulegri konu, sem bæði sé tónelsk og trúuð. Einkum erþað klæðaburð- urinn sem haldið hefur nafni hennar á loft, sem og hárgreiðslan. Hún telst manneskja sátta og sam- lyndis og þokkalega farsæl sem forseti þingsins á heildina litið. Skærasta minnismerki hennar sem þingmanns er að hafa komið á Ijósaskyldu í um- ferðinni allan sólarhring- inn og barist fyrir belta- notkun í bilum og öðrum umferðarbótum. Salóme er ekki talin nógu hörð „mamma" við óþekku drengina áAI- þingi. Hún er of lipur þegar hún þarfað vera hörð, vantar skörungsskap; er ekki nógu afdráttarlaus og ákveðin og mætti vera skapmeiri. Fátt liggur eftir hana sem þingmann, að minnsta kosti fátt minnis- stætt, utan í umferðarmál- um og að þykja best klæddi þingmaðurinn. Of gamaldags og hefðbundin til að geta talist dæmi um aukinn frama kvenna i valdablokkum þjóðfélags- ins og hefur aldrei komið raunverulega til greina sem ráðherraefni. Hefði átt að éta hattinn sinn um árið. andinn á orði að greinilegt konan vœri tilfmningaians og hugsaði ekki um annað en pen- inga. Er þetta hlutverk stjórn- anda?“ Ingibjörg Bára Sveinsdóttir í Sandkornum DV Bjami Dagur Jónsson, um- sjónarmaður Kvöldsagna á Bylgjunni: „Konan sem hringdi í Kvöldsögur og kallaði áhyggjur meðlagsgreiðenda „væl“ var með krepptan hnefa, ósann- gjörn, heiftúðug, neikvæð og skilningssljó. Hún sá bara krónutölu meðlagsins en gleymdi því mikilvægasta; að það er konan sem lögum sam- kvæmt hefur forræði yfir börn- unum. Ég er sannfærður um að blaðakonan á DV veit ekkert um meðlög, einstæðar mæður, for- sjárlausa foreldra og samskipti feðra og skilnaðarbarna. Þess ber Sandkornið hennar vitni. Við hliðina á samskiptavanda- málinu er meðlagið smámál. Gaman væri ef blaðakonan kæmist á fund forsjárlausra for- eldra milli jóla og nýárs og heyrði hvernig það er að eiga böm sem vilja umgangast föður sinn en fá það ekki. Að kalla við- brögð hlustenda Bylgjunnar væl ber vott um virðingarleysi og hroka.“ F Y R S T F R E M S T SNÆR GÍSLASON er fimm ára snáði; skemmtilegur og slcýr. Hann hlakkar ná- kvæmlega jafnmikið til jólanna og þúsundir annarra íslenskra barna. Þegar PRESS- AN heimsótti Snæ á heimili hans í Kópa- voginum bauð hann okkur upp á smákök- ur. „Ég gerði þessar smákökur... en ekki eiiinn, ég hjálpaði mömmu að búa smá- kökurnar til,“ sagði hann íbygginn á svip. Snæ finnst reyndar enn svolítið langt til jóla, en þó var það bót í máli að þennan dag var hann á leið í af- mæli til Kristjáns vin- ar síns. _ _ m m W m m m Snærsegistætla Heyrir jolasvemmn ■== ^ ^ pabba a stundum læðast Hefur jólasveinninn alltaf gef- ið þér eitthvað í skóinn? „Já, ég fékk bók í skóinn í morgun, ég er búinn að fá tvær bækur í skóinn en aldrei nammi.“ Hefurðu séð jólasveininn setja ískóinnþinn? „Nei, ég loka alltaf augunum fast, en ég heyri stundum í honum þegar hann læðist til að setja í skó- inn.“ Hvar býr jólasveinninn? „f fjöllunum.“ íhvaðafiöllum? „Nú þarna!“ sagði hann og benti út um gluggann í átt til Garðabæjar. Veistu hvað jólasveinninn borðar? „Nú, jólamat," sagði hann hneykslaður á heimsku spyrjand- ans. En sefur jólasveinninn íjóla- sveinabúningnum? „Nei, hann fer í nærbuxur... og svona bol.“ Hvað œtlar þú að gera ájólun- um? „Ég ætla að vera heima og spjalla við mömmu og pabba.“ Veistu hvað þúfœrð að borða ájólunum? „Nei, en mig langar í ís... en svo finnst mér brauðsúpa best.“ Fœrðu ekki kjöt á jólunum? „Nei, mig langar ekki í kjöt... ég borða ekki kjöt.“ Hvað langarþig rnest af öllu i í jólagjöf „Ur.“ Viltu stóra eða litla pakka? „Ég vil bara stóra pakka... sjáðu eins og þennan,“ sagði hann og benti á stóran pakka sem lá á gólfinu. Ef þú rnœttir aðeins velja þér einn hlut til að hafa hjá þér á jól- unum, hvaða hluturyrðiþað? „Kranabíll... svona með tveim- ur krönum," sagði hann og baðaði út höndunum. Veistu afhverjujólin eru hald- in hátíðleg? „Nei... en ég held að það sé af því Kristján á afmæli.“ Á RÖNGUNNI TVÍFARAR grænlr imilr — E-l. r: -j Hinn forboðni ávöxtur Tvífarar vikunnar koma hvor úr sínum heiminum: Valli víðförli úr fantasíufullum bókmenntaheimi og Þórarinn V. Þórarinsson úr ekki síður fantasíufullum heimi íslensks vinnumarkaðar. Að útliti eru þeir félagar með ólíkindum svipaðir. Settlegt nefið gægist undan gleraugunum, eyrun eru ámóta útstæð, hreinn og drengjalegur svipurinn er prýddur sakleysislegu brosi þess, sem veit að hann er í góðum málum, en veit ekki alveg hvers vegna. Höfuðið krýnir síðan rauðbrúnt hárið, sem ekki lætur fyllilega að stjórn greiðunnar. Helsti leyndardómur Þórarins fimmta hefur falist í því fyrir hvað „vaffið" stendur, en nú þurfa menn ekki lengur að velkjast í vafa því það stendur vita- skuld fyrir Valli. Um það skal ekki fullyrt hér að Þórarinn Valli Þórarinsson sé jafnvíðförull og nafni hans og tvífari, en hitt er víst, að þeir eru báðir jafngjörsamlega „lost".

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.