Pressan - 03.06.1993, Blaðsíða 6

Pressan - 03.06.1993, Blaðsíða 6
PRESSAN F R E TT I R Fimmtudagurinn 3. júní 1993 Forstöðumaður Bankaeftirlits Seðlabanka í viðkvæmri stöðu gagnvart tveimur viðskiptabönkum BANKINN KRAFDIST UPPBOBS Á HÚSIFORSTÖDUMANNSINS Búnaðarbanki Islands krafðist þess í ársbyrjun að fram færi nauðungaruppboð á húseign forstöðumanns Bankaeftirlits Seðlabankans, Þórðar Ólafssonar, vegna láns sem þá var í vanskilum, en gekk reyndar síðar í gegn- um skuldbreytingu. Krafan var upp á rúma milljón króna. Um svipað leyti var forstöðu- maðurinn að semja um skuld- breytingu á alls yfir 5 milljóna króna lánum hjá Islands- banka. Jóhannes Nordal, for- maður bankastjórnar Seðla- banka, sagði í samtali við PRESSUNA að stjórnin hefði fengið upplýsingar um málið og farið yfir það og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til aðgerða. Búnaðarbankinn: Skuldbreyting á millj- ón króna láni Heimildamenn PRESS- UNNAR innan bankakerfisins voru einhuga um að slík staða væri afar viðkvæm fyrir emb- ættismann sem er yfirmaður stofhunar sem fylgist með að bankar og aðrar lánastofnanir fari að lögum og reglum og uppfylli ströngustu kröfur. I samtali við blaðið viður- kenndi forstöðumaðurinn að slík staða væri óæskileg og hættan á hagsmunaárekstrum kynni að vera fyrir hendi en þyrfti ekki að vera það. Það skal undirstrikað, að enginn viðmælenda blaðsins taldi að umrædd lánamál Þórðar hefðu haft áhrif á störf hans og afgreiðslur sem forstöðumanns Bankaeftir- litsins. Lánið hjá Búnaðarbankan- um hvílir á 9. veðrétti fast- eignar Þórðar og er frá því í árslok 1989, en skilmálum þess láns var reyndar fyrst breytt árið 1990. Höfuðstóll lánsins var í upphafi 685 þús- und krónur, sem er að núvirði um 825 þúsund krónur. Búnaðarbankinn sendi beiðni um nauðungaruppboð á fasteign Þórðar við Sævang í Hafnarfirði til sýslumanns- embættisins í janúar síðast- liðnum, undirritaða af Ársæli Hafsteinssyni lögfræðingi. Kröfuupphæðin var þá komin upp í tæplega 1,1 milljón króna. Þar lá beiðnin um hríð, en Þórður sarndi við Búnað- arbankann um skilmálabreyt- ingar 19. apríl síðastliðinn. Engu að síður var uppboðs- beiðnin af einhverjum ástæð- um ekki afturkölluð þannig að sýslumaður sendi upp- boðsauglýsingu til Lögbirt- ingablaðsins 21. maí. Gömlu Verslunar- bankaláni tvisvar skuldbreytt Ársæll Hafsteinsson, lög- fræðingur í Búnaðarbankan- um, vildi ekki tjá sig um ástæður þess að beiðnin var ekki afturkölluð. „Ég get ekki upplýst ykkur um hvernig þarna var háttað eða almennt um viðskipti einstakra við- skiptamanna. Það geta verið fjölmargar ástæður fyrir því að beiðni er afturkölluð eða ekki afturkölluð,“ sagði Ár- sæll. En Búnaðarbankinn er ekki eini viðskiptabankinn sem Þórður hefur átt í samninga- viðræðum við vegna skuld- breytinga. Þórður var með gamalt lán í gangi sem hann tók 1985 hjá þáverandi Versl- unarbanka. í júlí 1991 var skilmálum þessa láns breytt, forstööumadur Bankaeftirlits Seölabankans. Ég tel að hœtta á hagsmunaárekstrum í slíkum tilvikum kunni að vera til staðar, en þurfi ekki að vera það, þótt sjálf- sagt megi um það deila útfrá mismunandi forsendum. “ þannig að nú hvíla tvö lán Is- landsbanka á fasteign Þórðar, á 10. og 11. (og síðasta) veð- rétti, annars vegar 3,2 milljón- ir og hins vegar tæplega 2 milljónir. Uppreiknaður sam- svarar höfuðstóU þessara lána aUs 5,4 miUjónum, en skilmál- um var enn breytt með samn- ingum í febrúar síðastliðnum. Þar fyrir utan hvíla á fast- eign Þórðar veð vegna Bygg- ingarsjóðs ríkisins, Eftirlauna- sjóðs Landsbanka og Seðla- banka, Samvinnubanka ís- lands, Landsbanka Islands og Þórður Ólafsson, forstöðumaður Bankaeftírlitsins Slík staða er óæsklleg - Einn viðskiptabankanna sá ástæðu til að senda beiðni um uppboð á fasteign for- stöðumanns Bankaeftirlitsins. Getur slík staða þess embætt- ismanns ekki sett honum ein- hverjar skorður í starfi — veikist ekki eftirlitsstaða hans? „Slík staða er auðvitað óæskileg. I mínum huga er aðalatriðið að blanda ekki saman persónulegum hags- munum og embættislegum. Sjálfsagt er einstaklingsbundið hvort slíkt á sér stað.“ - Ertu ekki á pví að í slikutn tilfellum sé hcetta á hagsmuna- árekstrum? „Ég tel að hætta á hags- munaárekstrum í slíkum til- vikum kunni að vera til stað- ar, en þurfi ekki að vera það, þótt sjálfsagt megi um það deila út ffá mismunandi for- sendum.“ - Nú þarf forstöðumaður Bankaeftirlitsins að vera í bankaviðskiptum, eins og ann- aðfólk. En setja núgildandi lög og reglur — eða óskráðar hefðir — slíkum viðskiptum ekki ein- hverjar skorður? „Á þessu sviði gilda engar skráðar reglur enn sem komið er. Hins vegar er gert ráð fyrir setningu slíkra almennra reglna á grundvelli væntan- legra laga um Seðlabanka Is- lands, ef frumvarp það sem lagt var fyrir Alþingi á vordög- um verður að lögum. Slíkar almennar reglur munu þá einnig, væntanlega, taka til viðskipta með verðbréf í eigin þágu, meðferðar trúnaðar- upplýsinga og svo framvegis.“ Lífeyrissjóðs starfsmanna rík- isins. Þórður hefur því fengið lánafyrirgreiðslu hjá öllum viðskiptabönkunum. Upp- reiknaður er höfuðstóll allra lánanna 16,7 milljónir að nú- virði, en brunabótamat eign- arinnar er 23,8 milljónir. Jóhannes: Höfum fengið upplýsingar um málið Jóhannes Nordal, formaður bankastjórnar Seðlabankans, sagði í samtali við PRESSUNA að hann teldi hættuna á hags- munaárekstum ekki fyrir hendi. - En ef um er að rceða skuld- breytingar vegna vanskila? Á ekki embœttismaður sem stýrir eftirliti með lánastofnunum að eiga shurðulaus viðskipti við þessarsömu stofnanir? „Við höfum fengið upplýs- ingar um fjármál hans og höf- um komist að þeirri niður- stöðu að það sé ekki um að ræða þá stöðu að það skaði hann í starfi.“ - Nú var uppboðskrafa Bún- aðarbanka setid út í janúar til sýslumanns í Hafnarfirði og sýslumaður bað um auglýsingu í maílok, þótt í millitíðinni hafi verið gerð skuldbreyting. Er þetta ekki nokkuð alvarleg staða? „Ég held að fjármál hans séu þannig, að okkar mati, að þau hafi ekki skaðað hann í JÓHANNES NORDAL formaöur bankastjórnar Seðla- bankans. „Ég get ekki sagt annaö en þaö, aö okkur er kunnugt um þetta. Viö höfum fariö yfir máiiö og höfum met- iö þaö svo, aö þaö sé ekkert í því sem aö okkar dóml rýrir traust hans í því starfi. Þaö er okkar niöurstaöa þessu. Hins vegar er það rétt að hann hefur, eins og fleiri ungir menn, haft dálitla skuldabyrði vegna húss sem hann á og byggði og ég held að það sé ekkert annað en það. Ég held að það séu ekki annars konar erfiðleikar en eru mjög algengir í þjóðfélagi okkar. Við höfum fylgst með því.“ - En þetta snýst ekkert um persónu hans, heldur erutn við að velta fyrir okkur hvort hann sem embœttismaður eigi ekki á Geir Gunnarsson bankaráösmaöur í Seöla- banka. „Hann hefur í þessu til- tekna embætti meö alla banka og lánastofnanir aö gera og því auövitaö erfitt fyrir hann aö finna einhvern aöila til aö eiga viöskipti viö, sem hann hefur ekki meö aö gera. “ hættu að hagsmunaárekstra... „Ég get ekki sagt annað en það, að okkur er kunnugt um þetta. Við höfum farið yfir málið og höfum metið það svo, að það sé ekkert í því sem að okkar dómi rýrir traust hans í því starfi. Það er okkar niðurstaða.“ Formaður bankaráðs- ins vill ekkert segja um málið Geir Gunnarsson banka- ráðsmaður kvaðst ekkert þekkja til málsins, en tók ffam að hann hefði ekki verið á síð- asta bankaráðsfundi. „Auðvit- að hljóta þessir menn að hafa einhver bankaviðskipti eins og aðrir. Hann hefur í þessu til- tekna embætti með alla banka og lánastofnanir að gera og því auðvitað erfitt fyrir hann að finna einhvern aðila til að eiga viðskipti við, sem hann hefur ekki með að gera. Og því erfitt um vik að vera yfir- maður bankaeftirlitsins. Ef farið er að gæta einhverra vanskila og vandamála er allt- af miklu erfiðara að eiga við hlutina,“ sagði Geir. Ágúst Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, vildi ekkert segja um málið. Afar fáar skrifaðar reglur eru til um hvaða tengsl eftir- litsmenn banka mega hafa við þá. Samkvæmt bankalögum mega endurskoðendur banka þó ekki eiga í neinum við- skiptum við þá. Ljóst er að forstöðumaður bankaeftirlits verður einhvers staðar að eiga bankaviðskipti, en spurning- armerki hefur verið sett við að hann virðist hafa notið fyrir- greiðslu í öllum bönkum landsins, hugsanlega umfram það sem eðlilegt getur talist. Friörik Þór Guömundsson og Gunnar Haraldsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.