Pressan - 03.06.1993, Blaðsíða 29

Pressan - 03.06.1993, Blaðsíða 29
Fimmtudagurinn 3. júní 1993 ÍÞRÓTTI R PRESSAN 29 Seglbrettasiglingar SKEMMTILEGAST AÐ SIGLA Í TÍU VIIMDSTIGUM „Ef ég sé trén hreyfast eða hvítna í báru þá fæ ég fiðring í magann og titring í tæmar og verð ómögu- legur ef ég kemst ekki að sigla,“ segir Hrafnkell Sig- tryggsson, einn af reyndari seglbrettasiglurum lands- ins. Hrafnkell hóf iðkun íþróttarinnar fyrir tíu ámm, er hann slysaðist á seglbrettanámskeið í Nauthólsvík, og síðan hefur hann siglt þá daga sem veður leyfir. Seglbrettasiglingar er aðeins hægt að stunda hér á landi á sumrin, utan örfárra hlýrra vetrardaga, en Hrafhkell er þó ekki í nokkmm vafa um að ísland sé með skemmti- legri löndum til að iðka þetta sport, enda sé hér offast „þægilega mikið rok“. „Eftir því sem maður verður betri því meira rok vifl maður fá svo maður komist hraðar. Við för- um út í allt að níu til tíu vindstigum, en þá verð ég að viður- kenna að betta getur orðið nokkuð viUt;“ segir Hraíhkei!; Um tuttugu til þrjátíu manns stunda seglbrettasiglingar hér á landi að staðaldri, en þó má gera ráð fyrir að á milli fimm- og sex- hundruð seglbretti séu tO í landinu. Stofnkostnaðurinn er talsverð ur, um níutíu þúsund krónur ef menn vilja allt nýtt, en eftir það em lítil fjárútlát. „Okkur er aldrei kalt, þurrbúningarnir sem við emm í eru orðnir svo góðir. Þetta er eins og einangrun utan á okkur — eins og selspik— og því er kuldinn ekkert vandamál,“ segir Þorkell og bætir því við að það eina sem menn þurfi að hafa til bmnns að bera til að iðka þetta sport sé að vera sæmilega á sig komnir. Þurrgalli 25.000 kr. Björgunarvesti 5.000 kr. Hrafnkell Sigtryggsson Með reyndustu seglbrettasiglur- um landsins. Skór 5000 kr. Bretti 50.000 kr. GUMUMENN GLIMA UMSOGUNA... , Sú undarlega staða er nú komin upp hjá glímuáhugamönnum á landinu að tveir menn sitja þessa dagana við skrif á sögu íþróttarinnar, hvor í sínu lagi. Eftir að Kjartan Bergmann Guðjónsson, fyrrum formaður Glímusambands íslands, hafði setið í sögunefnd þess í 24 ár baðst hann lausnar og skömmu síðar settist hann niður við að skrifa sögu glímunnar. Þá hafði annar maður, Þorsteinn Einars- son, fýrrverandi íþróttafulltrúi, unmð að ntun sömu sögu um nokkurt skeið. Innan glímu- sambandsins eru menn ekkert sérlega hrifnir af framferði Kjartans, þar sem hann lét eng- an í sambandinu vita af iðju sinni, heldur fféttu þeir það úti í bæ. Ekkert er í sjálfii sér við því að segja að tveir aðilar skrifi sömu söguna, en hins vegar er ljóst að hluti af þeim heimildum sem Kjartan hefur undir hönd- um hefúr hinn ekki og öfugt. Ef til vill þarf svo þriðji maðurinn að semja nýja bók þar sem fróð- leikurinn úr hinum báðum er settur saman í eina! Þess má geta að Kjartan er búinn að út- vega sér styrki vegna söguritun- arinnar frá Alþingi og ung- mennafélögunum. Lukkupotturinn í NBA-valinu og nýjustu tíðindi Eins og töfrar hjá Orlando LAUGAR DAG U R 5. JÚNÍ UM HELGINA FOSTUDAGUR 4. JÚNf KNA TTSPYRNA 2. DEILD KARLA Stjarnan - Grindavík kl. 20.00 BÍ - KA kl. 20.00 Tindastóll - Leiftur kl. 20.00 ÍR - Þróttur N. kl. 20.00««O TORFÆRA Þriöja torfærukeppni sum- arsins fer fram á Hellu. Mörg góö torfærukeppnin hefur fariö þar fram og full- víst má telja að áhorfendur fái aö sjá aö minnsta kosti eina góöa veltu í keppninni, ef ekki fleiri. Keppnin hefst kl. 14.00. KNA TTSPYRNA 1. DEILD KARLA Þór Ak. - ÍA kl. 16.00. Þórsarar leika nú þriöja erT*> iöa leikinn í röð, nú gegn Is- landsmeisturum ÍA. Þeir voru óheppnir gegn KR en unnu Frammara á sannfær- andi hátt og því getur allt gerst á heimavelli þeirra fyr- ir norðan. KNA TTSPYRNA 1. DEILD KVENNA KR - Þróttur N. kl. 14.00. Stjarnan - Valur kl. 14.00. Vestmannaeyjar - Breiöa- blik kl. 14.00. fBA - ÍA kl. 14.00. KNATTSPYRNA 2. DEILD KARLA . . Breiöablik - Þróttur R. kl. ' - 14.00. Blikar veröa að sigra Þróttara á heimavelli sínum ætli þeir sér aö komast upp í fýrstu deild á nýjan leik. SUNNUDAGUR 4. APRÍL KNA TTSPYRNA 1. DEILD KARLA KR - Víkingur R. Vængbrot- iö liö Vfkinga veröur KR-ing- um varla mikil mótstaöa. KR er meö sterkt liö þessa dag- ana þó svo aö þeir hafi tap- aö fýrir ÍA á dögunum. Vík--^< ingar hafa ekki leikið sér- lega vel fýrstu tvo leikina en eru þó komnir meö eitt stig. RALLÍ Stillingar-rallíiO fer fram þennan dag. Það var engin smáheppni sem fylgdi Orlando Magic í háskólaforvalinu þetta árið. Orlando fékk fyrsta valrétt þrátt fyrir að líkurnar á því Chrís Mullin Tekut 600 skot á dag við æfingar. væm einn á móti 66. Valið fer ffam með þeim hætti að þau 11 lið sem ekki komast í úr- slitakeppnina fá kúlur merkt- ar sér. Það lið sem nær versta skorinu fær 11 kúlur en það lið sem hefúr besta skorið af þeim sem komast ekki í úrslit (Orlando Magic!) fær eina kúlu. Síðan er dregið og ótrúlegt en satt; Orlando kom upp. Valið verður 30. júní og gert er ráð fyrir að Or- lando velji Chris Webber frá Michigan-háskólan- um. Hann kemst þá í lið manninum sem valinn var fyrstur í fyrra, Shaquille O’Neal. Eina vandamálið sem þarf að leysa er launaþakið. Sem kunnugt er lækk- uðu leikmenn Or- laun- til að hleypa O’Neal að, en spurningin er hvort þeir gera það annað árið í röð. Philadelphia 76ers fékk annan valrétt og er talið líklegt að þeir taki miðherjann stóra Shawn Bradl- ey, sem leikið hefur með Brigham Yo- Charles Barkley Sá dýrmætasti. ung-háskólanum. Hann er 228 sm (7 fet og 6 tommur). Golden State fékk þriðja val- rétt en gert er ráð fyrir að þeir skipti á honum og stórum miðherja. Óheppni Dallas Mavericks sýnir hins vegar að það þýðir.ekki að sitja með hendur í skauti og bíða eftir Barkley hirti titilinn Það fór eins og marga gmn- aði að Charles Barldey hirti MVP-titilinn (dýrmætasti leikmaðurinn) í NBA-deild- inni þetta árið. Hakeem Olajuwon varð annar og Mi- chael Jordan þriðji eftir að hafa haldið titlinum tvö und- anfarin ár. Barkley kom í deildina árið 1984 og stendur á þrítugu. Hann er frægur baráttuhund- ur en hefur auk þess margt annað til bmnns að bera. Þessi tveggja metra framherji varð í fimmta sæti í stigaskomn með 25,6 stig að meðaltali. Hann varð í sjötta sæti í fráköstum með 12,2 stig að meðaltali og var með 5,1 stoðsendingu að meðaltali. Þá blokkeraði hann 74 skot í vetur. Þetta dugði. Kukoc í Bandaríkjunum að semja? Bandaríska pressan hefur fylgst vel með eltingaleik Chicago Bulls við króatíska undramanninn Toni Kukoc. Þrátt fyrir að forráðamenn Bulls hafi þrætt fyrir áhuga Toni Kukoc Enn eftirsóttur af Chicago. SHAQUILLE O'NEAL Fyrsti valréttur tvö ár í röð. sinn mætti Toni til Minneap- olis til skrafs og ráðagerða. Er jafnvel gert ráð fyrir að hann leiki í NBA næsta vetur. Chicago valdi hann í há- skólavalinu árið 1990 en Kukoc ákvað frekar að gera sex ára samning við ítalska liðið Benetton Treviso sem færði honum um einn millj- arð króna (15,3 milljónir doll- ara). Hann setti þó ákvæði um það í samninginn að hann gæti losað sig ef honum byðist tækifæri í NBA. Það flækir hins vegar málin að sam- kvæmt reglum NBA mega forráðamenn Chicago Bulls ekki hefja samningaviðræður við hann á meðan núverandi samningur er í gildi. Hvernig Mullin varð svona góð skytta Sagan segir að þegar Chris Mullin undirbýr sig fyrir keppnistímabili í NBA-deild- inni taki hann um 600 skot á dag. 400 þeirra eru stökkskot en hin 200 eru vítaskot. Eru meðal annars til sögur af því að fyrir tímabilið 1988 hafi hann ekki snert bolta í mánuð þegar hann kom í æfingabúð- ir. Fyrsta daginn hans þar hitti hann úr 91 vítaskoti í röð! Svona verða menn meist- araskyttur. Nýlega fór fram atkvæða- greiðsla 22 manna sem ann- aðhvort hafa verið þjálfarar, leikmenn eða fféttaritarar og völdu þeir bestu skyttur dags- ins í dag og allra tíma. Bestu skytturnar í dag eru: 1. Chris Mullin 2. Drazen Petrovic 3. ReggieMiIler 4. Rolando Blackman 5. MarkPrice — Og bestu skyttur allra tíma: 1. LarryBird 2. JerryWest 3. Oscar Robertson 4. Bill Sharman 5. Bob Pettit TIL MIKJLS AP VINNAIFRJALS- UM... Alþjóða ffjálsíþrótta- sambandið hefúr gert samning við þýsl^. bifreiðaframleiðandann Da- imler-Benz þess efnis að allir sigurvegarar í heimsmeistara- mótinu í frjálsum íþróttum í Stuttgart í ágúst næstkomandi Allir sigurvegaramir fá splunku- nýjan Mercedes-Benz að launum. og Gautaborg 1995 fái að launum forláta Benz-biffeið. Þetta er alger nýlunda þar sem peningaverðlaun hafa áður ráðið ríkjum á mótum sem þessum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Frjálsíþróttasam- bandi íslands munu fjórir til átta íslendingar taka þátt í næstu heimsmeistarakeppni og þannig eiga möguleika á að hreppa Benz. I ljósi fyrri reynslu em möguleikar okkar manna hins vegar ekki miklir, raunar næstum því engir.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.