Pressan - 03.06.1993, Blaðsíða 25
ENN EINN VINURINN
Fimmtudagurínn 3. júní 1993
PRESSAN 25
Milan Kundera
Af hverj u Island?
Tékkneski rithöf-
undurinn Milan
Kundera dvelst
reglulega á Islandi,
en Letur aldrei neitt
á sér bera. Hann
skrifaði þó stœrstan
hluta Ódauðleikans
hérlendis og hefur
kynnst mörgum í
menningarlifi
landsins.
I byrjun þessarar viku héldu
Milan Kundera og eiginkona
hans, Vera, af landi brott eítir
tíu daga dvöl í Reykjavík.
Kundera var hér einnig á síð-
asta ári í stuttri heimsókn.
Fyrir utan þessar tvær opin-
beru heimsóknir mun Kund-
era hafa komið hér þrisvar á
síðustu árum til að njóta næð-
is og vinna við ritstörf. Örugg-
ar heimildir eru fyrir því að
Kundera hafi skrifað stærstan
hluta skáldsögunnar Ódauð-
leikans hér á landi. Sú bók
kom út í Frakklandi og á Is-
landi 1990. Kona Kundera
mun hafa fylgt honum í flest-
um þessara ferða og í einni
þeirra uppgötvaði hún lækn-
ingamátt Bláa lónsins. Þeir ís-
lendingar sem kunnugir eru
hjónunum segja þau hafa tek-
ið miklu ástfóstri við land og
þjóð.
En hvers vegna þessi ís-
landsáhugi? Hann er ekki ný-
tilkominn. Vinátta Kundera
og Friðriks Raffissonar, hins
íslenska þýðanda hans, hefúr
vitanlega eflt áhuga Kundera
en áhuginn virðist þó hafa
verið fyrir hendi löngu fýrir
kynni þeirra. Kundera nefnir
Island í skáldsögu sinni
Kveðjuvalsinum frá árinu 1973
og einnig í Bók hláturs og
óminnis sem kom út í Frakk-
landi árið 1979 og kemur út
hjá Máli og menningu í haust
í þýðingu Friðriks Rafnssonar.
Friðrik Rafnsson hefur
skýringu á íslandsáhuga
Kundera og segir: „Það er ein
grundvallarhugmynd sem
hefur einkennt verk Kundera
ffá upphafi. Það er spumingin
um einstaklinginn gagnvart
andlitslausu valdi; og þar
skiptir ekki máli hvort valdið
er alræði kommúnismans eða
neysluþjóðfélagið. Hvernig
getur maðurinn verið einstak-
lingur og haldið sérkennum
sínum í þjóðfélagi sem leitast
við að steypa alla í sama mót?
íslandsáhuginn og smáþjóða-
áhuginn er í beinu framhaldi
af þessum vangaveltum um
stöðu einstaklingsins. Á sama
hátt og Kundera spyr: „Hvað
er einstaklingur, hvemig getur
hann varðveitt sérkenni sín?“
spyr hann: „Hvað er smáþjóð?
Hvernig geta smáþjóðir hald-
ið áffam að varðveita sérkenni
sín nú þegar allur þessi sam-
runi á sér stað? Bregðast þær
við með því að loka sig af, fara
í stríð eða kjósa þær einfald-
lega samruna?" Þetta er
spurning um sjálfsvitund
þjóða og sjálfsvitund byggist
vitaskuld á menningu. Kund-
KOLBRÚN
era er að velta því fyrir sér
hvernig íslenskri menningu
reiðir af í þeim sviptivindum
sem skekja heiminn.“
Rithöfundurínn
Það er ekki ofsagt að Milan
Kundera sé einn af þekktustu
og virtustu núlifandi rithöf-
undum heims. Hann þykir af
mörgum líklegur Nóbelsverð-
launahafi (við bókmennta-
spekúlantar PRESSUNNAR
spáum honum verðlaunun-
um innan fimm ára). Kund-
era er hálfsjötugur, fæddur í
Prag. Hann kenndi í nokkur
ár kvikmyndahandritagerð
við listaháskólann í Prag. Eftir
innrás Rússa í Tékkóslóvakíu
1968 vom bækur hans bann-
aðar þar í landi. Kundera
hrökklaðist úr landi 1975 og
hefur síðan verið búsettur í
París.
Eftir útkomu Óbœrilegs létt-
leika tilverunnar árið 1984
varð ágangur og athygli frétta-
manna slíkur að skáldinu
þótti nóg um, dró sig nær full-
komlega í hlé og hefur ein-
ungis veitt örfá viðtöl síðan.
Friðrik Rafnsson hefur tekið
tvö. Annað birtist í Tímariti
Máls og menningar 1985 og
hitt í Mantilífi 1986. Ólíklegt
er að nokkrum öðrum manni
hafi tekist að taka tvö löng
viðtöl við Kundera.
Mikil og góð vinátta er milli
Kundera og Friðriks. Friðrik
segir samskipti þeirra hafa
hafist á námsárum sínum
með formlegri kurteisisheim-
sókn þýðanda til höfundar ár-
ið 1984 þegar hann þýddi
leikrit Kundera, Jakob og
meistarinn. Samskiptin hafi
síðan þróast í kynni og vin-
áttu. Þegar Friðrik var spurð-
ur hvort þeir skiptust á jóla-
kortum hló hann og sagði að
vissulega færu á milli þeirra
kort og skilaboð á flestum
tímum árs en jólakortamenn
væm þeir ekki.
Maöurínn bak viö
verkin
„Kundera er maður sem vill
fá að vera í friði og kýs að
hverfa á bak við verk sín,
hann hefur þá skoðun að verk
listamanna eigi að vera í for-
grunni, ekki persónan sjálf,“
segir Friðrik.
En hvernig er maðurinn
bak við verkin?
PÉTUR GUNNARSSON
Hjónin eru greiniiega ekkert
„jet set“.
Kundera er hávaxinn mað-
ur, sterklega byggður en örlít-
ið lotinn. Andlitið er greind-
arlegt, augun haukfrán. Hann
gæti seint dulist í margmenni,
hefur svipmikið yfirbragð og
virðist búa yfir sterku einstak-
lingseðli. Hann sýnist hinn
þekkilegasti maður, tilgerðar-
laus og rólegur.
Ungur íslenskur myndlist-
armaður sem fylgdist af at-
hygli með skáldinu á Kjarvals-
stöðum lýsti honum sem
greindarlegum og rembings-
lausum og bætti við: „Hann
hefur vökul augu og ekkert
virðist fara ffamhjá honum.“
Sigurður Pálsson skáld seg-
ir: „Hann virðist líkur hug-
myndum manns um hann;
bráðskarpur með kímnigáf-
una í lagi.“
Pétur Gunnarsson segir:
„Maður er vitanlega fúllur að-
dáunar á því sem maður les
eftir hann. Kundera virðist
vera látlaus maður, alúðlegur
og áhugasamur. Hjónin eru
greinilega ekkert „jet set“.“
1 heimsóknum sínum hing-
að til lands hafa Kundera og
kona hans heimsótt Guðrúnu
Kristjánsdóttur myndlistar-
konu og Ævar Kjartansson,
eiginmann hennar. Að sögn
SlGURÐUR PÁLSSON
Bráðskarpur með kímnigáfuna
í lagi.
kunnugra hreifst Kundera
mjög af myndum Guðrúnar;
stórum stílfærðum landslags-
myndum, sem unnar eru af
nostri og yfirlegu.
Hvernig kom Kundera
Guðrúnu fýrir sjónir?
„Manni líður vel í návist
hans og það er gaman að ræða
við hann. Hann er forvitinn,
spurull á skemmtilegan hátt,“
segir hún. „Það er ekki alltaf
sem maður fær á vinnustofu
sína fólk sem vill skoða allt og
sjá allt. En þannig er hann.
Hann hefúr greinilega áhuga
og vit á myndlist, eins og
reyndar tónlist og öðrum list-
greinum. Hann er algjörlega
laus við tilgerð, kom sér ætíð
beint að efninu. Hann er
maður sem er ólátur við að
hugsa og spyrja grundvallar-
spurninga eins og: „Hvað
meinarðu með þessu?“ Hann
talar ekki ensku og franskan
mín er ekki sérlega góð, en
þrátt fyrir þann annmarka var
þetta með uppbyggilegri sam-
ræðum sem ég hef átt um
myndlist. Konan hans sagði
mér að hann teiknaði sjálfur,
en hann vildi ekkert úr því
gera. Ég held að hann sé feim-
inn, það kæmi mér ekki á
óvart.“
Guðrún Kristjánsdóttir
Hann er forvitinn, spurull á
skemmtilegan hátt.
Friðrik Rafnsson lýsir vini
sínum svo:
„Kundera er fyrst og ffernst
mjög mikill húmoristi,
skemmtilegur og hlýr maður.
Hann er afar elskulegur og
tekur sjálfan sig ekki of hátíð-
lega. Óg eins og ráða má af
verkum hans er hann skarp-
skyggn og athugull. Þegar
hann er innan um ókunnuga
er hann mjög hlédrægur, þá er
eins og hann dragi sig inn í
skel.“
íslandsdvölin
Kundera-hjónin dvöldu hér
í tíu dága, „í hvíld og náms-
ferð,“ eins og Friðrik Rafnsson
orðaði það. Hann sagði að
þeim hjónum liði mjög vel
hér á landi og spyrðu margs.
„Þau hafa einlægan áhuga á
landi, þjóð og menningu,“
sagði Friðrik.
Halldór Guðmundsson,
útgáfustjóri Máls og menn-
ingar, er einnig vel kunnugur
þeim hjónum. Hann segir
Kundera hafa mikinn áhuga á
listum á jaðarsvæðum Evrópu
og leggja sig fram við að
kynna sér þær. Fyrstu kynni
Kundera af íslenskri myndlist
segir hann hafa verið á sýn-
ingu í París fyrir nokkrum ár-
um þar sem sýnd voru nor-
ræn aldamótaverk. Kundera
hreifst þá mjög af Þingvalla-
mynd effir Þórarin B. Þorláks-
son.
Kundera-hjónin skoðuðu
nokkur listasöfn hér á landi og
fóru héðan hlaðin listaverka-
bókum.
Þau hjón brugðu sér á
ljóðasýningu Sindra Freys-
sonar á Kjarvalsstöðum ásamt
Friðriki Rafnssyni og eigin-
konu hans. Koma Kundera
þangað vakti óskipta athygli
þeirra sem töldu sig þekkja
skáldjöfurinn. Einhverjir áttu
þó erfitt með að trúa því að
þarna væri skáldið á ferð og
einn sýningargesta vék sér að
Friðriki Rafnssyni og spurði:
„Hver er þessi hávaxni maður
sem minnir mig svo á Milan
Kundera?“ Kundera skiptist á
nokkrum orðum við ung-
skáldið, gekk síðan um sýn-
ingarsvæðið og lét eins lítið
fyrir sér fara og unnt var.
Kundera mun lítt gefinn
fýrir veisluglaum. Honum var
þó haldið hóf í veislusal Bláa
lónsins og er ekki vitað annað
en hann hafi skemmt sér hið
besta. Þar voru um tuttugu
manns, meðal þeirra voru
vitaskuld Friðrik Rafnsson og
Halldór Guðmundsson. Einn-
ig Ámi Einarsson, fjármála-
stjóri Máls og menningar,
örnólfur Thorsson, Pétur
Gunnarsson, Sigurður Páls-
son, Steinunn Sigurðardóttir
og Guðrún Kristjánsdóttir
myndlistarkona.
Nokkrum dögum síðar sást
til Kundera þar sem hann
spásseraði um Austurvöll
ásamt Halldóri Guðmunds-
syni. Eiginkona Kundera,
Vera, var með í för, en þau
hjón eru sérlega samrýnd.
Hún er umboðsmaður eigin-
manns síns, nokkru yngri en
hann, lagleg og vingjarnleg
kona.
Hjónin létu mjög vel af dvöl
sinni hér. Eins og áður kom
fram höfðu þau með sér fjölda
listaverkabóka en einnig ís-
lensk skáldverk í franskri þýð-
ingu. Kundera hefur lesið
nokkrar íslendingasögur og
verk Laxness. Næsta verkefni
skáldsins er að lesa Svartfugl
Gunnars Gunnarssonar.
Áhugi Kundera er þó ekki
einungis bundinn við eldri
höfunda. Halldór Guð-
mundsson segir Kundera hafa
mikinn áhuga á að vinna að
því að efla samband milli
ffanskra og íslenskra nútíma-
höfúnda.
íslensk menning virðist því
eiga hauk í horni þar sem
Kundera er.
Myndlist
• Mary Ellen Mark, einn
þekktasti fréttaljósmyndari
heims, sýnir Ijósmyndir S
Kjarvalsstööum. Opiö 10-18
daglega. Sýningunni lýkur
11. júlí.
• Ásmundur Sveinsson. Yfir-
litssýning í tilefni aldarminn-
ingu hans. Verkin spanna all-
an feril hans, þau elstu fréyJ.
1913 og þaö yngsta frá
1975. Opiö alla daga frá
10-16.
• Ragna Ingimundardóttir
sýnir keramíkverk í miörými
Kjarvalsstaöa. Sýningunni
lýkur 13. júní.
•Tarnús sýnir málverk og
skúlptúr í Portinu. Sýningin
er opin frá 14-18 alla daga.
• Inga Elín, Óli Már og Þóra
Sigþórsdóttir sýna verk unn-
in meö mismunandi tækni í
Listhúsinu í Laugardal. Sýn-
ingin er opin alla daga frá
10-18 nema sunnudaga
14-18. Henni lýkur 6. júnt.
• Sally Mann, einn þekkt-
asti og umdeildasti Ijós-
myndari Bandaríkjanna í dag,
sýnir myndir S Mokka. Sýn-
ingunni lýkur 20. júní.
• Hjördís Frímann sýnir mál-
verk t Galleríi Sævars Karls,
Bankastræti 9. Opiö virka
daga kl. 10-18 og laugar-
daga 10-14. Sýningunni lýk-
ur9. júní.
• Sýningin „Arktika“, sam-
sýning tveggja kvenna,
Kjuregej og Katrtnar Þor-
valdsdóttur, stendur yfir í
MÍR-salnum, Vatnsstíg 10.
Opið til 6. júnt, á virkum dög-
um 17-18:30, um helgar
14-18.
• Arnold Postl sýnir málverk
í Geröubergi. L- -
• Leikskólabörn, ásamt
starfsfólki sex leikskóla í
Reykjavík, eiga heiöurinn af
myndum sem hengdar hafa
veriö upp í Geysishúsinu, 2.
hæö. Opiö virka daga kl.
10- 17 og um helgar kl.
11- 16.
• Róska sýnir málverk sín í
Sólon islandus.
• Hannes Lárusson sýnir ný
verkí Gallerí Gangi.
• Ásgrímur Jónsson. Skóla-
sýning stendur yfir t Ásgríms-
safni þar sem sýndar eru
myndir eftir Ásgrím Jónsson
úr tslenskum þjóösögum.
Opið um helgar kl.
13.30-16.
• Orka & víddir — Borealis
6. Samsýning íslenskra og
erlendra listamanna í Lista-
safni íslands. Sýningunni
lýkur 20. júnt.
• Myndir í Ijalli í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar. Tildrög
aö gerö listaverks Sigurjóns
viö Búrfellsvirkjun; sýndar
Ijósmyndir, myndband, verk-
færi og frumdrög aö lista-
verkinu. Opiö mánudaga til
fimmtudaga frá 20-22, laug-
ardaga og sunnudaga kl.
14-18. Tónleikar á þriöju-
dagskvöldum kl. 20.30.
• Manuel Mendlve, Alberto
Gutierrez, Mario Reis og
Ragna Róbertsdóttlr sýna
verk sín t Hafnarborg á Lista-
hátíö Hafnarfjaröar. Kúbu-
maöurinn Mendive er af
mörgum talinn einn athyglis-
veröasti myndlistarmaöur
Suður-Ameríku og Mextkó-
maöurinn Gutierrez er einn
af þekktari listamönnum
þjóöar sinnar. M. Reis er
meðal þekktustu framúr-
stefnulistamanna Þjóðverja
og Ragna hefur unniö verk
sérstaklega fyrir þaö rými
sem hún fær til umráöa í
safninu. Opiö kl. 12-18, lok-
aö á þriöjudögum. Sýningu
lýkur 30. júní.
• Mariana Yampolsky og
Jorge Huft sýna verk stn t
listamiöstöðinni Straumi á
Listahátíð Hafnarfjaröar. M.
Yampolsky er af mextkósk-
um ættum og sýnir Ijósmynd-
ir af byggingarlist t Mextkó og
heldur ennfremur fyrirlestra
um listræna Ijósmyndun.
Arkitektinn J. Huft sýnir bygg-
ingarlistfrá Suöur-Ameríku.
Sýningu lýkur 30. júnt.