Pressan - 03.06.1993, Page 12

Pressan - 03.06.1993, Page 12
S KOÐA N I R 12 PRESSAN PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulitrúi Sigurður Már Jónsson Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 - 16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjóm 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86. tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO en 750 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu Segðu af þér, Þórður Forstöðumaður bankaeftirlitsins á Islandi hefur und- anfarna mánuði og misseri þurft að ganga á milli bankastjóra að minnsta kosti tveggja stórra banka til að fá samþykki þeirra fyrir endurskipulagningu einkafjár- mála sinna. Hann hefur í gegnum tíðina notið fyrir- greiðslu í öllum bönkum landsins, nýjum sem göml- um: Búnaðarbanka, Landsbanka, íslandsbanka, Verzl- unarbanka og Samvinnubanka. Það eru fáar fjölskyldur og fyrirtæki á íslandi sem ekki skulda bönkum mikla peninga og enginn ætlast til þess að annað gildi um Þórð Ólafsson. Þetta mál snýst hins vegar ekki um persónu hans, heldur um embætti yfirmanns bankaeftirlitsins. Forstöðumanni bankaeftir- litsins ber að láta af því embætti, eða taka það ekki að sér, ef einkahagir hans eru þannig að veki spurningar um hagsmunaárekstra. Það bendir ekkert til annars en Þórður Ólafsson sé grandvar og heiðarlegur embættismaður. Enginn hefur sýnt fram á að hann hafi slegið slöku við í embættis- verkum sínum vegna hagsmuna sem hann á að gæta persónulega gagnvart bönkunum. En það er heldur ekki kjarni málsins og enginn þarf að sanna eitt eða annað í því. Kjarninn er að sú staða má ekki koma upp að viðskiptavinir bankanna og skattgreiðendur, hverra hagsmuna bankaeftirlitið á að gæta, hafi ástæðu til að efast um að einhver pottur geti verið brotinn í starfi þess. Slíkur trúnaðarbrestur er óþolandi þegar um er að ræða embætti sem gegnir svo mikilvægu eftirlitshlut- verki. Um það snýst þetta mál. Það er lítil hefð fyrir því á íslandi að embættis- eða stjórnmálamenn láti af störfum vegna hagsmuna- árekstra. Þekktasta nýlega dæmið er eflaust af Albert Guðmundssyni, sem var samtímis bankaráðsformaður Útvegsbanka og stjórnarformaður stórs viðskiptavinar hans, Hafskips. Albert var svo siðblindur að honum þótti þetta fyrirkomulag af hinu góða, enda sæi hann til þess að hagsmuna beggja væri vandlega gætt. Það þarf færri, ekki fleiri, Alberta í íslenzk stjórnmál og stjórnsýslu. Það þýðir að einstaklingar verða að bera raunverulega ábyrgð, ekki aðeins segjast bera ábyrgð og gera svo ekkert í því. Það þýðir að einhverjir verða að skipta um vinnu þegar almennar siðareglur krefjast þess. Það er sárt fyrir viðkomandi, en nauðsynlegt. Þess vegna ætti Þórður Ólafsson að segja af sér emb- ætti forstöðumanns bankaeftirlitsins, sjálfs sín vegna og stjórnsýslunnar vegna. Jafhhæfur maður verður varla í vandræðum með að finna sér aðra vinnu, en með því myndi hann setja merkilegt fordæmi og verða stærri eftir en ella. BLAÐAMENN Bergljót Friðriksdóttir, Friörik Þór Guömundsson, Guörún Kristjánsdóttir, Gunnar Haraldsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijós- myndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur, Sigriður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Karl Haraldsson, Guömundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hrafn Jökulsson, Hreinn Loftsson, Möröur Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Guðmundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, mynd- list, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bók- menntir, Martin Regal Ieiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerö og prentun: ODDI Fimmtudagurinn 3. júní 1993 STJÓRNMÁL Lax, lax, lax og lýðskrum Landsbanki Islands hefur verið óvenjumikið í sviðsljós- inu undanfarnar vikur og mánuði. Bankinn stóð svo illa að ríkisstjórnin varð að veita stórar fjárhæðir til bankans. Síðan hafa stjórnendur hans leitað ýmissa íeiða til að draga saman í rekstrinum og spara, nú síðast með uppsögnum á áttunda tug starfsmanna. Uppsagnir starfsfólks eru ekkert gamanmál. Það hafa fjölmargir atvinnurekendur fengið að reyna nú á síðustu árum. Það er ný reynsla fyrir atvinnurekendur að þurfa að segja upp góðu starfsfólki og það gera vonandi engir með bros á vör. Bankamenn hafa eðlilega mótmælt þessum uppsögnum, en hlutirnir eru nú einfaldlega þannig að erfitt er að sjá að síður eigi að segja upp bankamönnum en öðr- um, þegar kreppir að. Rekstr- arkostnaður bankanna hér er of hár, eins og margoft hefur komið fram, og kemur í veg fyrir eðlilega vexti. Allir pólit- íkusar eru líka sammála um að fordæma of mikla yfir- byggingu bankanna, þegar of háir vextir eru til umræðu. Það er einmitt í pólitíkinni í bankaráði Landsbankans, sem athyglisverðustu atburðirnir í þessari Landsbankasögu hafa átt sér stað undanfarið. Einn- fulltrúi í bankaráðinu, fulltrúi Kvennalistans, lagði fram til- lögu í bankaráðinu nýlega urn að bankinn hætti að bjóða í lax. Hin opinbera skýring á þessum laxveiðiferðum hefur verið að þær væru til að þjón- usta erlenda viðskiptamenn bankans. Það er að sjálfsögðu góðra gjalda vert, en sjaldnast kemur nokkur skýring fram á því af hverju yfirstjórn og ÁRNI PÁLL ÁRNASON bankaráðsmenn bankans eru líka í laxi. Þarf sérstaklega að mýkja bankaráðsmennina á sama hátt og hina erlendu viðskiptamenn? Enginn þarf að efast um að laxveiðitúrar íslenskra fyrirtækja með er- lendum viðskiptamönnum hafa oft reynst þeim vel en hér er um að ræða nokkuð sér- stakar aðstæður. Bankinn þarf að spara og meðal annars segja upp fólki. Laxinn kostar sem svarar árslaunum eins til tveggja starfsmanna. Það lýsir ákveðinni pólitískri og mann- legri skynsemi að láta laxinn synda á samdráttartímum sem þessum og slík aðgerð, jafnvel þótt hún skipti engum sköpurn um afkomu bankans til eða frá, er einföld kurteisi gagnvart því fólki sem er að missa vinnuna. Þegar fulltrúi Kvennalistans lagði til að laxveiðarnar yrðu lagðar á hilluna brá svo við að fulltrúar annarra stjórnarand- stöðuflokka í bankaráðinu ráku upp ramakvein og hófú langar tölur um hvað laxveiði- túrarnir hefðu skilað bankan- um miklu. Bættu svo um bet- ur með alls konar útúrsnún- ingum og hundalógík um að þá væri mildu nær að bankinn hætti að bjóða upp á vínar- brauð með kaffinu á banka- ráðsfundum. Eins og venju- lega var pólitíkusunum fyrir- munað að sjá lengra nefi sínu. Svo komu uppsagnirnar. Þá skorti ekki heilaga vandlæt- ingu sönru stjórnarandstöðu- fulltrúa, fulltrúa flokkanna sem alltaf krefjast lægri vaxta með öllum mögulegum og ómögulegum ráðum, aðallega ómögulegum. Annar þessara fulltrúa lagði fram tillögu um að fallið yrði ffá uppsögnun- um. Þá sýndi fulltrúi Kvenna- listans í annað sinn hvað í henni bjó og greiddi atkvæði gegn tillögunni. Fulhrúi Kvennalistans í bankaráði Landsbankans á heiður skilinn. Hún skildi að ef bankinn gæfi laxveiðarnar upp á bátinn, þá fælist í því ákveðið merki um að sam- drátturinn næði til allra þátta í rekstri bankans, líka upp á toppinn. Það hefði þýtt að al- menningur hefði fengið ríkari ástæðu til að treysta sínum banka, sem hefur nýlega feng- ið ríkulegt framlag af al- mannafé. Það hefði líka verið táknræn aðgerð gagnvart því starfsfólki sem er að missa vinnuna. Það hlýtur að vera eðlilegt að fara ffam á það af vinnuveitanda að hann sletti ekki blautri tusku í andlit starfsmanna um leið og þeim er sagt upp. Það er ekkert að laxveiðum út af fyrir sig, en Landsbankalaxinn, í miðjum samdrætti og sparnaði, er ein- faldlega óásættanlegur. Hitt er ekki minna urn vert að fulltrúi Kvennalistans í bankaráðinu hélt líka haus þegar lýðskrumið hélt innreið sína í bankaráðið, með til- löguflutningi gegn uppsögn- unum. Það er ekki auðvelt að vera stjórnarandstöðufulltrúi við slíkar aðstæður. Allir hags- munahópar ætlast til þess að þú styðjir þeirra kröfur og „Afstaða fulltrúa Kvennalistans í bankaráðinu olli því hins vegar að maður getur enn- þá trúað því að hugurfylgi máli þegar Kvennalist- inn krefst lœgri vaxta. Hinir dœmdu sig bara pent úr leik. “ horfir aldrei á heildarmyndina eða á afleiðingarnar til lengri tíma litið. Fulltrúar hinna stjórnarandstöðuflokkanna gerðu líka allt eins og eftir kennslubók í íslenskum stjórnarandstöðufræðum, — þeir fóru á atkvæðaveiðar meðal bankamanna. Enda- lausar ræður þeirra um lægri vexti og minni rekstrarkostn- að bankanna á síðustu árum- héldu ekki fyrir þeim vöku og . afspyrnuslappir fjölmiðlar minntu þá náttúrulega aldrei á samhengi orða og gerða. Af- staða fulltrúa Kvennalistans í bankaráðinu olli því hins veg- ar að maður getur ennþá trú- að því að hugur fýlgi máli þeg- ar Kvennalistinn krefst lægri vaxta. Hinir dæmdu sig bara . pent úr leik,_______________ Höfundur er lögfræðingur. KRISTJÁNSSON ÁLIT HALLDOR ÁSGRÍMSSON ASGEIR GUÐBJARTSSON VILHJALMUR EGILSSON ci® Cf4 Hafrannsóknastofnun hefur lagt tll að þorskkvótlnn veröl lækkaöur niöur í 150 þúsund tonn. Slíkur niöurskuröur hefur mlklar aflelöingar fyrir allt þjóöarbúlö. Á aö fara eft- Ir þessum tillögum stofnun- arinnar eöa hætta á að veiöa meira? ÞORSTEINN MAR BALDVINSSON Á aðfara eftir tillögum Hafró? Halldór Ásgrímsson þing- maður „Ég er þeirrar skoðun- ar að það sé ekkert annað að gera. Stofninn virðist vera í slæmu ásigkomulagi og veru- leg hætta á því að hrun verði í þorskstofhinum. Slíka áhættu getum við ekki tekið og ég tel að það verði að fara mjög var- lega í þessum efnum. Það kemur mjög hart niður á öllu þjóðfélaginu en hitt myndi koma miklu harðar við þjóð- félagið í ffamtíðinni.“ Jón Kristjánsson fiski- fræðingur: „Nei. En málið snýst ekki bara um hvort eigi að veiða tonninu meira eða minna. Það verður að breyta sóknarmynstrinu. Eftir að trollmöskvinn var stækkaður 1976 og farið að vernda smá- fisk sérstaklega hefur allt verið á niðurleið. En tillögur Haffó um mikinn niðurskurð 1975 og 1983 voru hunsaðar af þá- verandi sjávarútvegsráðherr- um og þá gengu svipaðar hag- spár og nú alls ekki eftir. Síð- ustu ár hafa stjórnvöld hins vegar farið eftir hræðslustefn- unni og meðal annars vegna þess að stofnstærðarmatið er tengt afla reiknast stofúinn sí- fellt minni, nokkuð sem kallar á enn meiri friðun. Það, að stundum hefur gengið illa að ná úthlutuðum afla, bendir til þess að stofninn hafi verið á niðurleið undanfarin ár. Ekki vegna þess að veitt hafi verið of mikið úr honum, heldur vegna þess að veitt hefur verið skakkt. Of mikil áhersla hefúr verið lögð á aflasamdrátt og friðun smáfisks. Nú verðum við að gjöra svo vel að fara að veiða okkur út úr vandanum: minnka möskvann og gefa sóknina frjálsa eins og við gerðum áratugum saman. Ef stofúinn þolir það ekki, þá er- um við hvort senr er búin að vera sem fiskveiðiþjóð. Fisk- friðun er alls ekki ráðið í stöð- unni eins og hún er.“ Vilhjálmur Egilsson þing- maðun „Já, ég tel að það eigi að hafa þessar tillögur fýrst og ffemst til hliðsjónar. Að sjálf- sögðu óttast ég afleiðingarnar en ég óttast afleiðingarnar ennþá frekar ef ekki er farið eftir tillögunum. Það yrðu ennþá verri afleiðingar. Þetta er ekki spurning um hvort hagkerfið þolir þetta eða þolir þetta ekki, heldur er þetta spurning um hvort það þolir það betur núna eða seinna. Ég held að skellurinn sem við tökum núna sé minni en skellurinn sem við myndum taka seinna ef ekki yrði farið eftir þessum tillögum. Þjóð sem lifir á þorski hlýtur að finna fyrir því þegar þorsk- stofninn hrynur.“ Ásgeir Guðbjartsson skip- stjóri: „Nei, ég get nú ekki samþykkt að það eigi að fara eftir tillögum Hafrannsókna- stofnunar. Náttúran spilar það stórt hlutverk í þessu dæmi. Þetta væri ósköp ein- falt mál ef það þyrfti bara að ffiða fiskinn og ekkert annað. Þeir mega ekki halda að þeir geti ræktað upp þorsk þó að þeir minnki þorskveiðarnar um 30-40 þúsund tonn. Það er alltaf verið að minnka þetta ár frá ári og afraksturinn versnar og versnar. Það er engin árangur af ffiðuninni því að náttúruleg skilyrði í sjónum eru slæm og stofninn hefúr ekkert náð sér upp. Það hefur verið kvóti í tíu ár og aflinn minnkar alltaf og minnkar. En þetta getur auð- vitað komið fljótt, það er ekki það.“ Þorsteinn Már Baldvins- son, ffamkvæmdastjóri Sam- herja: „Já. Ég held að það sé ekki neinn sem veit neitt bet- ur en þeir á Hafrannsókna- stofnun. Við höfum séð hvað hefúr gerst í nágrannalöndun- um í kringum okkur og mér finnst ekki réttlætanlegt að taka þá áhættu, fyrir okkur Is- lendinga, að fara ekki eftir þessum ráðum. ísland án þorsks myndi þýða dapurt líf. Spurningin er ekki hvort við ráðum við svona rnikinn afla- samdrátt heldur hvort við ráðum við Island án þorsks. Mitt fýrirtæki byggir afkontu sína fyrst og ffemst á þessum þorski og að sjálfsögðu væri æskilegt að fá að veiða miklu meira. En við höfúm ekki leyfi til að taka þá áhættu.“

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.