Pressan - 03.06.1993, Page 22

Pressan - 03.06.1993, Page 22
B U S B L A N D 22 PRESSAN Fimmtudagurínn 3. júní 1993 j£orgar sig að sparka í dekkin og líta undir vélarhlífina Bílasalan: Þig vantar bíl. Þú ferö á bílasölu. Rekur augun í einn svakalega huggulegan. Lögunin er full- komin. Krafturinn magnaður. Hljóöiö eins og sunnangola. Hann er eins og hugur manns. Eftir fimm mínútna akstur veröur þú ástfangin og ákveöur aö kaupa bílinn. Eftir mánuö er bíllinn meira á bílasölunni en á götunni. Af oröspori er hann ekkert nema yfirboröiö. En sölu- 'mennirnir voru ágætir. Hvaö varstu eiginlega aö hugsa? Nær heföi veriö að sparka svolítiö í hjólbarðana og líta undir vélarhlífína. Galeiöan: Þér finnst kom- inn tími til aö fara á séns. Þú sérö einn æöislega huggu- legan. Hann stingur þig. Þú getur ekki litiö af honum. Lín- urnar eru fullkomnar. Hann er gjafmildur. Góöur. Röddin er meira aö segja kynþokka- full. Að auki lítur hann út fyr- ir aö vera skemmtilegur. Hann er eins og hugur manns. Þú hrífst af honum og hann af þér. Þú slærö til. Sex mánuöum síöar er draumaprinsinn ekki lengur neinn draumaprins. Þig lang- ar helst til aö stinga hausn- um í sandinn. Gufa upp. Spóla til baka. Þaö er margt líkt meö bíl- um og karlmönnum. Það borgar sig aö horfa á þá hlut- laust í fyrstu. í þaö minnsta sparka fyrst í dekkin og líta undir vélarhlífina. Er ekki nokkuö til í því aö bílar séu framlenging á miöfæti karl- manna? Þetta eru í þaö minnsta náskyld fyrirbæri. Eða eru þeir þaö bara í aug- um kvenfólks? „Hárnákvœmur og kaldhamraður léttleiki byggður áfín- stillingu efnis ogforms ífullkomnu tímaleysi." Þessi lýsing á við hvort tveggja, skákstíl Bobby Fischers og myndlist Hreins Friðfmnssonar. Enda eru þeir eins í útliti og myndast báðir í sömu grámóskunni. Eini munurinn er að Fischer er búinn að vera, en Hreinn á líklega eitthvað eftir enn. Þættir úr sögu vínmenningar Áfengissaga íslend- inga rúmast aö mestu í einni setn- haft tækifæri til að ingu: Aiiir, sem meö einhverjum hætti hafa einhvern tíma fara í kringum lög og reglur um meö- ferö éfengis, hafa notaö tækifæriö. Þó aö íslendingar séu aö öllu jöfnu þokka- lega löghlýöin þjóö eru þeir þaö ekki þegar áfengismál eru annars vegar. Hafa menn löngum veriö í mestri upp- reisn gegn verölagi á áfengi sem sýnir sig í því hve auövelt hefur veriö aö losna viö ólöglegan smygl- og bruggvarning í gegnum tíöina. CflFÉ PflRÍS OQ AUSTURVÖLLUR Þessar tvær myndir voru teknar á sama augnablikinu á sólríkum degi fyrir skömmu. Myndirnar tvær eru líklega dæmigeröar fyrir tvískinnung íslendinga í áfengismálum. Á meöan enn hefur ekki fengist leyfi til aö drekka bjór utandyra á Café París sátu nokkrir á Austurvelll, nokkrum metrum fjær, og sötruöu eigin bjór. Af fréttum undanfar- inna vikna að dæma hafa bruggarar nú meira íyrir stafni en smyglarar. Önnur uppreisn í áfengismálum um þessar mundir felst í drykkju utanhúss. Þótt þegar sé búið að samþykkja að veitingahús megi veita vín utandyra á enn eftir að veita þeim veitinga- húsum sem þess óska tilskilin leyfi. Búist er þó við að hvert veitingahúsið á fætur öðru fái leyfi áður en langt um líður. Það er þó ekki þar með sagt að íslendingar hafi ekki hing- að til dreypt á áfengi úti undir Meðvituð fram- lenging á hádeginu Hér áöur fyrr var þaö nær eingöngu ógæfufólk og þeir alhörðustu sem lögðu í hádegisbarinn. Fariö var á Borgina, Sögu eða Naustið til aö svala þorstanum. Ef einhver sást á hádegisbarnum var það öruggt merki þess að ekki væri allt í lagi á þeim bænum. Þetta var á þeim tíma er ekkert áfengi var afgreítt á miðvikudög- um. Síðan bættust þeir við. En enn var það ekki góðs viti aö sjást á hádegisbamum. Svo kom bjórinn. Það var í lagi að sjást á hádegisbam- um með Irtinn bjór, sérstaklega ef það var mánudagur. Menn vom bara vinnufærari á eftir. Skjálftinn aö minnsta kosti horfinn. Eftir því sem nýjabrumið hvarf komst heimsborgarabragur á bjórinn. Það var orðið menningariegt að geta sest niður á barinn í hádeginu og fengið sér einn léttan og rætt létt viöskipti. En ekki eftir klukkan hálfþrjú. Loksins kom það sem eina vitiö var í: að tengja hádeg- ið við afganginn af deginum. í dag þarf enginn að hafa sektarkennd yfir aö setjast á hádegisbarinn, því i raun og vem er hann ekki lengur til. Nú er opið frá hádegi fram á nótt án nokkurs hlés. Það er ekki lengur hægt að benda á þá sem fá sér öl fyrir klukkan tvö og stað- hæfa að þeir eigi erfitt heimili. Hádegisbarinn er horf- inn og öllum sem vilja drekka er gert jafrihátt undir höfði, hvort sem dmkkið er að degi eða nóttu. Þannig hvarf hádegið úr íslensku þjóö( barjlífi. berum himni. Viðkvæm réttlætis- taug Lögreglan telur að fjórar bruggverk- smiðjur séu jafhan starfandi hérlendis; þegar ein er upprætt hefúr önnur starfsemi sína. Samtals framleiði verksmiðj- urnar um eitt þúsund lítra af eimuðum landa á viku. Árlega fara því hvorki meira né minna en fimmtíu þúsund lítrar af brugguðu áfengi ffamhjá kerfinu. Það er engin smáviðbót við opinberar drykkjutölur Hagstofu Is- lands. Að meðaltali drekkur hvur íslendingur, sem náð hefúr fimmtán ára aldri, tæp- lega fimm lítra af hreinum vínanda árlega samkvæmt út- reikningum Hagstofunnar. Fimmtíu þúsund landalítrar verða rúmlega helmingi færri þegar þeir eru reiknaðir í hreinum vinanda, en við bæt- ist ýmis smyglvarningur sem rennur árlega í nokkuð stríð- um straumum ofan í vín- þyrsta íslendinga. Ef eitthvað snertir hina viðkvæmu ís- lensku réttlætistaug í áfengismálum er allra löglegra og ólöglegra leiða leitað svo hafa megi uppi á ódýrara áfengi. Guðinn Bakkus er dýrkaður og allt sem honum viðkemur. Það sannast meðal annars á hinum mikla ævintýraljóma sem löngum hefur fylgt flug- fólki og sjómönnum, sem um langt skeið höfðu einkaleyfi á bjór á íslandi. Þessar stéttir hafa einnig útvegað landan- um annað vín og vindlinga á þolanlegu verði. Svo góð var markaðssetningin á ólögleg- um bjór að loks þegar hann hélt löglega innreið sína í landið árið 1989 var varla til sá íslendingur sem ekki hafði einhvern tíma neytt bjórs. Auðvitað er það einnig að þakka æ tíðari ferðum lands- manna ffá skerinu. Svo afturhaldssamur ■ hefúr löggjafinn verið í áfengismálum að aðeins áðurnefndar útvaldar stéttir máttu kaupa sterkt öl í fríhöfhum allt til ársins 1980. En það var árið sem Davíð Scheving Thorsteinsson hinn hugprúði lét til sín taka. Hann gerðist svo djarfur að kaupa öl í frí- höfninni. Bjórinn var um- svifalaust tekinn af Davíð. En Davíð mótmælti og krafðist þess að sér yrði afhent ölið. Sagði hann óeðlilegt að mönnum væri mismunað um slík kaup eftir því hjá hvaða fyrirtæki þeir störfuðu. 1 framhaldi af umræðunum sem þetta mál kom af stað ákvað þáverandi dómsmála- ráðherra, Sighvatur Björgvins- son, að rétt væri að gera breyt- ingar á reglugerðinni. Þetta ár var þegar búið að flytja bjór- málið alls níu sinnum í sölum Alþingis. Óþekkt íslendinga Hegðan Islendingsins í áfengismálum minnir um margt á hegðun óþekks bams sem hefur fengið bæði strangt og rangt uppeldi. Flestir sem fengið hafa að njóta þess að vera börn kann- ast við tilfinninguna um að það, sem ekki má, sé mest var- ið í. Og fullorðið fólk er ekkert annað en börn sem eiga pen- mga. Ólafur Walther Stef- i ánsson, sem hefur starfað við dóms- málaráðuneytið í mörg ár og spáð mik- ið í þróun áfengismála á Is- landi, er á þeirri skoðun að hæg ffjálslyndisþróun Islend- inga hafi öðru fremur ein- kennst af framboði og eftir- spurn. Um leið og komnir hefðu verið kúnnar sem vildu breytingar hefði næsta breyt- ingaskref verið stigið. Og svo koll af kolli. Af þeim orðum má gróflega ætla að bruggun verði leyfð á Islandi áður en langt um líður. Að stjómvöld gefist upp fyrir einkaaðilun- um. Öllu líklegra er þó að áfengi hreinlega lækki í verði ef fram heldur sem horfir. Lækkun áfengis sé og verði næsta baráttumál „homo vin- us“ á Islandi á næstu misser- um. Það er að segja þegar veit- ingahúsaeigendur hafa náð að kýla drykkju utandyra endan- lega í gegn og eftirlitið fer að hegða sér skynsamlega. Forstjóri ATVR er ■ Höskuldur Jónsson. Hann hefur ákveðna skoðun á því hvaða afleiðingar hátt verð- lag á áfengi hefur. Og sú skoð- un hans er ekki ný undir sól- inni: „Ef áfengisverð verður of hátt em líkur á því að fólk leiti annarra ráða, sem em yfirleitt annaðhvort að smygla eða brugga,“ segir Höskuldur. Hann lítur svo á að þrengri efhahagur fólks kalli á brugg- un. Svo em aðrir sem telja að hátt verðlag á áfengi dragi úr neyslu þess. Á þá kenningu ætti nú þegar að vera búið að reyna.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.