Pressan - 03.06.1993, Page 28

Pressan - 03.06.1993, Page 28
BÍÓ & SJÓNVARP 28 PRESSAN Fimmtudagurinn 3. júní 1993 SJÓNVARP ★★★★ Sjáið • Hvítklædda konan Lady in White ★★★ á Stöð 2 á föstu- dagskvöld. Spennandi hryllingsmynd af gömlu, góðu sortinni. Lukas Haas (Amish-drengurinn í Witness) skilar sínu með venjulegri prýði. • Spíran ★★★ í Sjónvarpinu á laugardag. Það kann enginn að matreiða músík betur en Skúli Helga. • Elskhugar Júlíu Julia Has Two Lovers ★★1/2 í Sjónvarpinu á laugardag. Hugmyndin að sögunni er nógu góð til að bæta upp slappan leik. Sumsé þolanleg, ef Páll Heiðar þýðir rétt. • NBA-boltinn ★★★ á Stöð 2 á sunnudag. Það lítur enginn körfubolta sömu augum eftir að hafa séð besta körfubolta í heimi. JSb Varist • Ringulreið Crazy Horse © á Stöð 2 á föstudagskvöld. Illa skrifuð og aulaleg, algjör tímasóun. • Fyndnar fjölskyldumyndir Atnerica’s Funniest Home Videos © á Stöð 2 á laugardagskvöld. Einstaka hálffyndið atriði nær ekki að draga á flot eitthvert hallærislegasta efni sem Kaninn hefur framleitt og þá er langt til jafnað. • Hvers vegna er barist á Balkanskaga? © í Sjónvarpinu á sunnudag. Óli Sig. fór til Júgóslavíu án þess að finna svarið, en gerði samt þennan einskisverða þátt. • Húsið í Kristjánshöfn Huset pá Christianshavn © í Sjón- varpinu á sunnudagskvöld. Hræðilegt, hræðilegt, hræðilegt. Færið saumaklúbbinn og skákkvöldið yfir á sunnudaga. Það eru enn sjö þættir eftir af þessum hryllingi. KVIKMYNDIR Algjört möst Sommersby ★★★ Vel gerð, vel leikin og oft unaðslega falleg mynd um kunnuglega sögu. Bíóborginni. /öagurinn langi Groundhog Day ★★★ Brilljant handrit og Bill Murray hárréttur maður í réttri mynd. Sætur boðskapur slepp- ur undan að verða væminn. Stjörnubíói. Mýs og menn OfMice and Men ★★★ Sæt útgáfa af Steinbeck- sögunni, mestmegnis laus við væmni. John Malkovich góður að vanda. Háskólabíói. Siðleysi Damage ★★★ Jeremy Irons leikur af feiknakrafti þing- mann sem ríður sig út af þingi. Helst til langar kynlífssenur nema fyrir þá sem hafa byggt upp þol. Regnboganum. Stuttur Frakki ★★★ Þriggja stjörnu fyrir hlé, rennur svo að mestu út í sandinn. Frakkinn stutti bjargar því sem bjargað verður. Sögubíói. Á leiðindum Löggan, stúlkan og bófinn Mad Dog and Glory ★★ Ágæt saga í slappri mynd. Bill Murray og Robert De Niro eins og þeir eiga að sér. Segir fátt af afrekum Umu Thurman. Háskólabíói. Lifandi Alive ★★ Átakanleg saga, en persónusköpun er engin og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói. Loftskeytamaðurinn Telegrafisten ★★ Skandinavísk þvæla, en þó má bafa gaman af góðum leik og fallegum kónum. Regnbog- anum. Bömmer Malcolm X ★ Vond mynd sem gerir Malcolm að meiri bjána en hann var nolckurn tíma. Fær eina stjörnu fyrir Jeik Denzels Washingtons og fýrir að halda áhorfandanum vakandi á fjórðu klukkustund. Bíóhöllinni. Ólíkir heimar Close to Eden © I öllum aðalatriðum léleg stæling á Vitninu og ekki einu sinni nothæf sem áróðursmynd fyrir gyð- inga. Melanie Griffith versnar með hverri mynd. Regnboganum. Leyniskyttan Sniper S Tilgangslaus mynd um menn sem skríða um í frumskóginum og skjóta aðra menn af óskiljanlegum ástæðum. Bíóborginni. Banvænt bit Innocent Blood © Misheppnuð tilraun til að gera hryllingsmynd og grínmynd í einu. Þessi er hvorugt. Ekki einu sinni nógu lítið fyndin til að vera hlægileg. Bíóhöllinni. KVIKMYNDIR Sveifla á Á HÆTTUTÍMUM SWING KIDS SÖGUBÍÓ ★ ★★ Ungt fólk kemur saman á Café Bismarck í Hamborg og hlustar á sveiflu og dansar viðeigandi dansa skömmu fýrir seinna stríð. Á þessum tíma er bannað að leika og hlusta á gyðingatónlist og negratónlist sem og aðra tón- list sem runnin er undan rifj- um óæðri kynstofna. Þetta var menningarleg hlið „hreinsunarinnar" á hinum aríska kynstofni. Swing Kids fjallar um viðbrögð þessa unga fólks við harðnandi kló alræðisvaldsins. Nú er búið að framleiða reiðinnar býsn af kvikmynd- um þar sem Bandaríkjamenn mola alla vonda kalla mélinu smærra, alltaf, í einni eða annarri mynd. Maður er bú- inn að horfa á þessa barna- legu sjálfumgleði þeirra frá blautu barnsbeini og fýrir lif- andi löngu búinn að fá nóg. Þess vegna mætti ætla að í þessari mynd væri djassinn „frelsistákn" gagnvart tónlist sem alræðisvaldinu væri þóknanleg, að hér væri á ferðinni enn ein „sigurganga" bandarískrar menningar sem hefði lítið annað upp á sig en að örva uppgang nýnasista. Sem betur fer fellur leik- stjórinn ekki í þessa gryfju. Djassinn í myndinni er sú umgjörð sem myndin byggist Górillur á Aðalstöðinni Ular tungur og fíflagangur Meðan hlustendur Aðalstöðvaritm- ar nudda stírurnar úr augunum og geispa í byrjun vinnudags taka skepnur tvær sér bólfestu í hljóð- stofu. Þessi kvikindi vekja fólk til lífsins með gríni, illu umtali og öðru því sem jaðrar við að vera of gróft til að fara í loftið. „Það er rétt, Górillan er mjög óforskammaður útvarpsþáttur/ segir Jakob Bjarnar Grétarsson, sem stjórnar þættinum ásamt Davíð Þór Jónssyni. „Við félagar göngum verulega ffam af hvor öðrum; tölum illa um fólk, gerum gys að mönnum og erum virkilega brútal. Allt þetta er þó í bland við annað og meira því hér er á ferðinni magasínþáttur sem veltir upp hinum ýmsu málum. Við reynum hins vegar að skoða þau ffá nýju sjónarhorni hverju sinni og svo sannarlega vonum við að Gór- illan sé ekki tannlaus." Auk gaman- mála, alvörumála og skepnuskapar eru fastir liðir og tónlist ekki langt undan, en vinsældir þáttarins munu þó öðru fremur stafa af þeim illu tunguum sem fá að leika laus- um hala í hljóðstofu. „Við rógber- um ekki hvern sem er og þeir mega vera ánægðir sem verða fýrir barð- inu á okkur,“ segir Jakob. „Það má líta á sem teikn um að þeir hinir sömu hafi náð ákveðnum status í lífinu.“ Leiðir Davíðs Þórs og Jakobs hafa lengi legið saman, en báðir voru þeir í hljómsveitinni Kátutn piltum, sem ættuð er úr Hafnarfirði. Þeir hófu reyndar útvarpsferil sinn þar í bæ en fluttu í höfuðstaðinn til að fá meiri útrás. Jakob segir þá félaga þurfa að hafa sig alla við þessa dag- ana, en telur það'jafnffamt skemmtilega áskorun. hœttutímum GUÐMUNDUR ÓLAFSSON á og tengir þetta unga fólk saman. Orlög þess eru mis- munandi. Einn grípur til ör- þrifaráða, annar gengur heimskunni á vald en aðal- persóna myndarinnar á í harðri innri baráttu. Leikur í myndinni er góður og allt handbragð til fýrirmyndar eins og yfirleitt er nú orðið í stórmyndum ffá Hollywood. Það dugar hins vegar ekki til að mynd verði góð. Það sem ríður trúlega baggamuninn hér er ffábær leikstjórn. Hér tekst leikstjóranum að skapa góða mynd úr frekar þröng- um efnivið. Sennilega er nú farið ffjáls- lega með ýmsar staðreyndir í myndinni og auðvitað saknar maður þess að heyra ekki þýsku. Engu að síður er hér rétt lýst andrúmslofti í alræð- isríki. Við aðstæður sem þess- ar getur nánast hvað sem er orðið að „frelsistákni“. Til dæmis bannaði Stalín starf- semi ffímerkjasafhara í Sovét- ríkjunum 1936, en óþjóðholl- ir menn og stéttarandstæð- ingar voru grunaðir um að dyljast sem frímerkjasafnarar, þegar þeir hefðu samband við óvini ríkisins erlendis. Sjálf- sagt er hægt að líta á frí- merkjasöfhun sem merki um hugdirfð og ffelsisást, en seint verður gerð góð kvikmynd umþað. I Swing Kids eru skemmti- legir undirtónar sem vísa til afstöðu ráðandi stétta í Bandaríkjunum gagnvart djassinum á sínum tíma, sem var allt annað en hlýleg í fýrstu, þó svo sauðarlegir for- setar geri út á hann í dag. Og ekki má gleyma rokkinu, sem var eins konar ósýnilegur ein- kennisbúningur þeirra sem áttu drýgstan þátt í endalok- um Víetnam-stríðsins, ungs fólks á vesturlöndum. Þó svo sveiflutónlistin í þessari mynd sé ekki tákn fýr- ir frelsi eða neitt annað en sjálfa sig, þá er hún samt hryggjarstykkið í myndinni, það sem allt stendur og fellur með. Hálft í hvoru hefði maður viljað að Þjóðverjar gerðu sjálfir þessa mynd um sitt fólk. En þá hefði sveiflan líklega ekki orðið jafntil- komumikil. Það er svona á mörkunum að maður trúi því að þýskir hafi á sínum tíma dansað eins og gert er í myndinni. En tónlistin í henni er unaðsleg, — eins langt frá frímerkjasöfnun og hugsast getur. „Það sem ríður trúlega bagga- rnuninn hér erfrá- bœr leikstjórn. Hér tekst leikstjóran- um að skapa góða mynd úrfrekar þröngum efnivið.“ TV Bogomil Hæfileika- keppni frá Alþingi á miðnætti H 08:00 Fréttir og fréttaauki 09:00 Veöur 09:05 Hlé 11:30 íslenskt bamaefni meöan undirbúningur hádegisveröar stendur yfir 12:00 Hlé 18:00 Bamaefni; Lína lang- sokkur og Dýrin í Hálsaskógi 19:00 Dinnerhié 20:00 Fréttir 20:30 Teiknimynd meö Ren & Stimpy 21:00 Nýjasta tækni og vís- indi helgaður tónlist 21:30 Taggart 22:30 Julia og andamir eftir Federico Fellini 23:00 Spaugstofan 23:30 Hæfileikakeppni frá Al- þingi. Meöal annars endursýndur Áma þátt- ur Johnsens frá eld- húsdagsumræöum 00:00 Úrdrættir úr Cirkus du Soleille 01:00 Dónalegar dýralífs- myndir; eölun skordýra ásamt mörkum úr suö- ur-amerísku knattspym- unni, meö þariendum undirleik. Léttsúrrealísk hræra framundir morg- un 04:00 Góöur djassþáttur; Mi- les Davis Autobio- graphy

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.