Pressan - 03.06.1993, Side 31

Pressan - 03.06.1993, Side 31
'^mT Fimmtudagurinn 3. júní 1993 21. tbl. 4. árg. GULA PRESSAN HAFA SKAL Þ A Ð SEM BETUR HLJOMAR Sveinn Hákonarson og Björn Baldvinsson eru orðnir milljónamæringar eftir að hafa leikið á Búnaðarbankann. Gjaldeyrisbraskið í Búnaðarbankanum Seldu bank- anum Mata- dor-peninga Guðni Ágústsson handtekinn í Tókýó eftir að hann fékk seðlana sem dag- peninga frá bankanum. Reykjavík, 3. júní. „Þetta er umfangsmesta gjald- eyrissvindl sem vitað er um í ís- lenska bankakerfinu," sagði Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftírlitsins, í viðtali við GP í gær. Þá kom í ljós að tveir drengir höfðu leikið á gjaldeyrisdeild Búnaðarbankans í nokkra mán- uði og grætt hundruð milljóna á tiltækinu. „Kristján Gunnarsson er alger áhugamaðiu samanborið við þessa drengi,“ sagði Þórður. Málavextir eru þeir að Sveinn Hákonarson, níu ára, og Björn Baldvinsson, tíu ára, urðu sér úti um japanskt Matador-spil, tóku úr því peningana og fóru með í Búnaðarbankann. Bankinn keypti þá á gengi japanska yensins, en þeir Sveinn og Björn notuðu hluta ágóðans til að panta sér fleiri spil ffá Japan og selja bankanum þannig enn fleiri seðla. Upp komst um athæfið þegar Guðni Ágústs- son bankaráðsformaður fór á ráð- steíhu japanskra búnaðarbanka og fékk Matador-dagpeninga frá Búnaðarbankanum í staðinn fyrir yen. Hann var gripinn í fyrradag í japanskri verslun og handtekinn fyrir fjársvik. GP náði tali af Guðna í fangels- inu í Tókýó: „Það er fráleitt að ég hafi verið í vitorði með þessum drengstaulum," sagði hann og hvessti brúnir í gegnum símann. „Það þýðir ekkert fýrir fjölmiðla að reyna að rýra traust á Búnaðar- bankanum með óábyrgum frétta- flutningi. Það er líka alrangt sem haldið var fram í Ríkisútvarpinu að ég hafi verið staddur í undir- fataverslun. Ég var að kaupa mér hvalkjöt." GP hafði uppi á Sveini og Bimi þar sem þeir vom að gefa þrjátíu bestu vinum sínum ís í miðbæn- um. „Þessi Búnaðarbanld er algjör djókur,“ sögðu þeir á mifli hláturs- kastanna. „Við fengum hugmynd- ina úr gömlu brandarablaði. Við vorum rosa hissa þegar sveita- mennirnir í bankanum föttuðu ekki að þetta voru bara platpen- ingar.“ Þeir skelltu aftur upp úr þegar GP sagði þeim af afdrifum Guðna Ágústssonar. „Getur hann ekki skotið sér leið út úr steininum með öllum skriðdrekunum sín- um?“ sagði Bjöm og skellihló. Harðar deilur innan ríkisstjórnarinnar um orsakir hruns þorsksins „Rás 2 eyðilagði þorsk- stofninn“ - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra Reykjovík, 3. |úni. ________________ A fundi með ungum sjálfstæðis- mönnum í gærkvöldi sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra að aðal- ástæða slæmrar stöðu þorsk- stofnsins væri ekki ofveiði undan- farinna ára heldur efiiið sem út- varpað væri á Rás 2. „Það er í gangi skipulögð herferð innan Ríkisútvarpsins og sérstak- lega á Rás 2 til að eyðileggja helstu undirstöður þjóðfélagsins. Þeim tókst að grafa undan fylgi Sjálfstæð- isflokksins með því að segja ffá því sem er að gerast í þjóðfélaginu og nú er þorskstofninn svo gott sem hmninn. Hvert verður næsta fórn- arlamb þessarar herferðar? Kannski þjóðkirkjan eða Morgunblaðið? Þessum mönnum er ekkert heil- agt,“ sagði Davíð. Aðspurður hvernig Rás 2 hefði farið að þessu sagði Davíð: „Ég er nú enginn fiskifræðingur, en senni- legast er að stór hluti stofnsins hafi hrein- lega drepist úr leið- indum yfir morg- unútvarpi Kristjáns Þorvaldssonar og Kristínar Ólafsdótt- ur. Ég hef líka ástæðu til að ætla að þeir fáu sem eftir lifðu hafi flúið á Grænlandsmið til að losna undan smámælinu í Sigurði G. Tómassyni.“ „Rás 2 drap þorsk- inn úr leiðindum," sagði Davíö á fundi með ungum sjálf- stæðismönnum. „Þorskur- inn þolir ekki Þor- stein“ - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Reykjovik, 2. júní. „Auðvitað eru þetta furðulea^ niðurstöður en við viljum ekjlu hafna þeim að öllu leyti,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, en sam- kvæmt heimildum GULU PRESS- UNNAR eru sérfræðingar stofn- unarinnar að fara yfir nýlega skýrslu sem leitt hefur í ljós áður óþekkt gen í þorskstofninum. „Ég kann nú varla að útskýra þetta svo að skiljist en svo virðist vera sem þorskurinn sé með alvar- leg höfnunareinkenni gagnvart nú- verandi sjávarútvegsráðherra, Þor- steini Pálssyni. Þetta virðist geta skýrt hvarf þorskstofnsins,“ sagjjt>. Jakob. „Við sem þekkjum Þorsteinn er- um ekki hissa og ég held að þetta sýni að brýnt sé að losna við hann áður en fleiri fiskstofnar fá þetta,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríldsráðherra. „Ég held að Jón Baldvin hafi horft á of margar science-fiction- myndir,“ var það eina sem Þor- steinn vildi láta eftir sér hafa. „Jón Baldvin hefur horft á of margar science-fiction-myndir,“ segir Þon-. <%. steinn. Sérstætt vandamál kom upp á vordögunum í Hafnarfirði Náðu Ladda ekki úr gervi Gaflarans Hgfnarfifði, 2. júni. „Við vissum aB maðurinn sökkvir sér niður í karakterana sem hann er að leika hverju sinni, en það kom okkur algerlega á óvart að þetta færi svona. Maður- inn er gersamlega fastur í rull- unni,“ sagði Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri Hafnar- fjarðar, en þeir Hafnfirðingar þurfa nú að kljást við heldur óvenjulegt vandamál. Gamanleik- arinn Laddi, sem leikið hefur Gaflarann svokallaða, hefur ekki náðst úr hlutverkinu aftur. . „Við erum búnir að reyna að ná honum úr hlutverldnu í fimm daga en ekkert dugar. í sjálfu sér höíúm við ekld mildar áhyggjur af honum. Hann gæti jafnvel orðið lyftistöng fýrir ferðamannaiðnað- inn svona á sig kominn, en þetta er auðvitað dálítið leiðinlegt gagnvart íjölskyldu hans. Þá er óvist að við höfúm eíni á að borga honum fyrir lífstíð,“ sagði Guðmundur Árni. „Ég óttaðist alltaf að eitthvað svona myndi gerast. Einu sinni tók það oldcur tvo daga að ná honuin úr hlutverki Skúla rafvirkja, en Fyrrverandi Laddi, núverandi Gafl- ari. Ætlunin er að sækja um kenní- töiu fyrir Gaflarann. þetta er annað og alvarlegra,“ sagði Haraldur Sigurðsson, bróðir Ladda. Samtök örlítilla sveitarfé- laga á landsbyggðinni setja fram nýjar kröfur Viljum fá okkar Árna Ný og óvænt eftir- spurn komin fram eftir leikurum Hrísey, 2. júní.________ „Það blasir við að enginn vissi hvar þessi Hrísey var þangað til Árni Tryggvason flutti þangað. Síðan eru allir að tala um þetta krummaskuð," sagði Ófeigur Sig- urðsson hjá nýstofnuðum samtök- um sem kallast Pínulítil sveitarfé- lög á landsbyggðinni — PÍSL. Samtökin hafa þegar komið sér saman um kröfur. I samtökunum eru um 26 staðir. „Jú, það er rétt að við viljum að ríkið Uutist til um að við fáum eins og einn leikara til okkar. Það blasir við að koma Áma til Hríseyjar hef- ur gjörbreytt öllu þarna. Nú dveljast stöðugt einhverjir íjölmiðlamenn þar við að mynda Árna og þessa trifluskel hans í bak og fýrir. Af því hafa skapast miklar tekjur. Þá hefúr fasteignaverð í Hrísey hækkað upp úr öllu valdi, því alltaf eru einhverjir sem vilja elta svona fræga menn á enda veraldar, eins gáfúlegt og það nú er,“ sagði Ófeigur. „Auðvitað geta ekki allir fengið þekkta menn eins og Árna. Hér í Búðardal myndum við til dæmis al- veg sætta okkur við Plosa Ólafsson, Þráin Karlsson eða aðra B-leikara,“ sagði Ófeigur.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.