Pressan - 03.06.1993, Síða 32
Skólabrú 1
-þar sem hjartað slær
Borðapantanir
ísíma624455
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
VERO AO FÁ ÞAO
HLUSTUM ALLAN SOLARHRINGINN SIMI 643090
TVÖFALDUR1. vinningur
•ÁRNIFÆR HUGMYND...
Þegar Guðmundur Ami Stefánsson tekur þingsæti sitt að
Jóni Sigurðssyni frágengnum losnar eðlilega staða bæjar-
stjórans í Hafnarfirði. Tveir bæjarfulltrúar bítast nú um
að verða eftirmenn Guðmundar, þeir Ingvar Viktorsson
og Tryggvi Harðarson. Al-
mennt er T-rjrggvi talinn hafa
undirtökin í þeirri glímu, en
óvænt hugmynd hefur þó
skotið upp kollinum innan Al-
þýðuflokksins. Hún er reyndar
ættuð frá Ámunda Ámunda-
syni og er á þá leið að Jakob
Frímann Magnússon helli sér
í prófkjörsslag fyrir bæjar-
stjórnarkosningar og freisti
^pjjpss að verða eftirmaður Guð-
mundar Árna. Heimili Jakobs
á íslandi er í Hafnarfirði og
sjálfur hefur hann sagst vilja
fara út í pólitík þegar hann lýk-
ur störfum sem menningar-
fulltrúi í Lundúnum. Líklegt er
þó að Jakob ætti erfitt upp-
dráttar sem utanaðkomandi í
kratavíginu í Hafnarfirði, enda
er þetta hugmynd Ámunda
eins og áður sagði, og Jakob
hefúr ekki verið spurður álits,
svo okkur sé kunnugt.
^TVEIR KEPPA UM FORMENNSKU í SUS...
Nú virðist ljóst að harðar kosningar verða um for-
mennskuna í Sambandi ungra sjálfstæðismanna á þingi
þeirra í ágúst næstkomandi. Tveir frambjóðendur eru
taldir öruggir, þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, sem nýlega tók við
formennskunni af Davíð Stefánssyni, og Jónas Fr. Jónsson, lög-
fræðingur hjá Verslunarráði. Reyndar er búist við yfklýsingu
þessa efhis frá Jónasi allra næstu daga. Það vakti athygli á fúndi
sem SUS stóð fyrir í síðustu viku
að Davíð Oddsson þakkaði
Guðlaugi, sem þar var fundar-
stjóri, sérstaklega fyrir fundinn
og óskaði honum heilla í starfi
næstu árin. Vildu sumir lesa úr
þessu stuðning Davíðs við Guð-
laug, enda munu sumir stuðn-
ingsmanna Jónasar hafa hvítnað
undir orðum hans. Aðrir benda
á að sonur Davíðs, Þorsteinn, sé
meðal hörðustu stuðnings-
manna Jónasar og sé fárra at-
kvæða að vænta úr þeirri átt til
stuðnings Guðlaugi. Hins vegar
má gera ráð fýrir að Þorsteinn
Pálsson og þar með Sunnlend-
ingar styðji Jónas, enda er hann
systursonur Ingibjargar Rafnar,
eiginkonu Þorsteins.
HRAFN FÆR BÍLASTÆÐI...
>,Á nýlegum fúndi framkvæmdastjórnar Ríkisútvarpsins
| var samþykkt beiðni ffá Hrafni Gunnlaugssyni þess efnis
að hann fengi sérmerkt bílastæði fýrir ffaman Sjónvarps-
húsið á Iaugavegi og í kjallara útvarpshússins við Efstaleiti. Þetta
er í fýrsta sinn sem yfirmaður hjá stofnuninni fær sérstakt bíla-
stæði til afhota, en hvorki Heimir Steinsson, Hörður Vilhjálms-
son né aðrir njóta slíkrar aðstöðu né heldur hafði forveri Hrafhs,
Pétur Guðfinnsson, farið fram á þvíumlíkt. í kjallara útvarps-
hússins eru hins vegar sérmerkt stæði fýrir tæknibíl og frátekin
stæði fyrir fatlaðr
lögum samkvæm
Við heyrum að
fundinum ha:
Hrafh meðal annai
borið því við a
slegið hefði að sé
eftir göngu af bíla
stæðum inn í hú:
Fulltrúi starfsmann
á fundinum mu
hafa hreyft athuga
semdum við þess
tillögu og gefið
skyn að aðrir starfs
menn reyndu ein
faldlega að klæða si
eftir veðri svo þei
veiktust ekki.
SKRIFSTOFA FRAMTIÐARFERÐA LOKUÐ UM SKEIÐ...
Engin sölustarfsemi hefur
farið fram á vegum Framtíð-
arferða, sem seldu dvalar-
réttarsamninga suðrí Portúgal, í
nokkurn tíma. Sem kunnugt er var
þeim Eric Jensen og Atla Bergmann
gert að loka þar sem skrifstofan gat
ekki lagt fram sex milljóna króna
tryggingu eins og samgönguráðu-
neytið krafðist. Um leið svipti Dom-
ino do Sol þá umboði til að selja fýrir
sig dvalarréttarsamninga. Nú fer
fram athugun á vegum Neytenda-
samtakanna á því hver sé staða
þeirra sem keyptu sér dvalarrétt þar
syðra.
"Áttoþúsundtvöhundrudogsextíu lítrar af bensíni!”
Þú getur valið margar leiðir þegar kemur að því
að kaupa nýjan bíl. Ef þú fjárfestir I nýjum Skoda
Favorit fyrir aðeins 598.000, í stað þess að
kaupa evrópskan eða japanskan bíl í sam-
bærilegum stærðarflokki, sparar þú þér upp-
hæð sem dugar fyrir bensíni fram á næstu öld!
Ef þú hefur ekki þegar reiknað dæmið til enda
kíktu þá við hjá okkur og reynsluaktu Favorit
hlaðbak eða Forman langbak en þeir eru nú
framleiddir samkvæmt kröfum og stöðlum
þýskuVolkswagen samsteypunnar.sem tryggir
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi 5 dyra og 5
gíra kostar aðeins kr 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi ogfrískum litum.
Söludeild Jöfurs er opin
virka daga 9-18 og
laugardaga I2-I6.
SKÓLABÓKARDÆMI UM HVAÐA
BÍL BORGAR SIG AÐ KAUPA!
ÁFUIUUFERÐ!
NÝBÝLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI: 42600