Pressan - 10.06.1993, Page 2
FYRST & FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 10. júní 1993
HRAFN GUNNLAUGSSON Hefur ákveöið aö láta gera þátt um „bréfa-
vin“ sinn Knút Hallsson. SVAVAR EGILSSON Atti ekkert en skuldaöi
140 milljónir þegar gjaldþrot hans var gert upp.
Hrofn gerir við-
lolsþált við Knút
{ ágústmánuði verður mjög
svo forvitnilegur viðtalsþáttur
á dagskrá ríkissjónvarpsins í
þáttaröðinni „Fólkið í land-
itiu“. Þá verður viðfangsefni
þáttarins Knútur Hallsson,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu, sá
hinn sami og skrifaði frægt
áskorunarbréf til norræna
kvikmyndasjóðsins vegna
myndar Hrafns Gunnlaugs-
sonar, núverandi fram-
kvæmdastjóra sjónvarpsins,
Himta helgu véa. Það var
Hrafn sjálfúr sem tók ákvörð-
un um gerð þessa þáttar. Sá
sem gerir síðan þáttinn er
heldur ekki alveg óþekktur úr
þessari frægustu sjónvarps-
deilu allra tíma, nefnilega
Ragnar Halldórsson, sem
gerði þáttinn fræga um Há-
skólabíó sem aldrei var sýndur.
Fyrir áhugamenn um ætt-
fræði- og vináttutengsl má
nefna að áðurnefhdur Ragnar
er ágætur vinur Kristjáns
Hrafnssonar Gunnlaugsson-
ar.
Svavor Eglls átti
ekkerl en skuld-
aði 140 milljónir
Þá er búið að gera upp þrota-
bú Svavars Egilssonar, fyrr-
um veitingamanns, hótelrek-
anda og ferðamálaffömuðar.
Svavar var tekinn til skipta í
lok októbers síðastliðins og
komu engar eignir í ljós upp í
140 milljóna króna kröfur.
Svavar hefur á undanförnum
árum margoft orðið frétta-
matur. I byrjun síðasta árs var
ferðaskrifstofan Veröld í hans
eigu tekin til skipta, en fólk
hafði verið hvatt til að greiða
inn á ferðir fram til síðasta
dags. Það þrotabú fékk á sig
250 milljóna króna kröfur.
Skýrsla Brynjólfs Kjartans-
sonar bústjóra sýndi að eignir
höfðu verið oftaldar með
talnaleik og reksturinn ein-
kennst af skipulagsleysi og
bókhaldsóreiðu. Um svipað
leyti var Hótel Höfði selt á
nauðungaruppboði, en áður
hafði Svavar gert leigusamn-
ing til aldamóta við bróður
sinn, Egil Egilsson.
Ión Sig á Saga
'lass en Frikki
með almúganum
í síðustu viku voru á meðal
farþega Flugleiða ffá París Jón
Sigurðsson viðskipta- og iðn-
aðarráðherra, væntanlegur
seðlabankastjóri, og svo
skötuhjúin Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra og Sig-
ríður Dúna Kristmundsdótt-
ir. Það sem vakti athygli og
umtal á meðal annarra far-
þega var að Jón sat í góðu yfir-
læti í Saga Class- hlutanum á
meðan Friðrik og Dúna létu
gott heita að vera í almenn-
ingnum. Af þessu drógu
menn eðlilega þá ályktun að
Friðrik fjármála og frú væru
að spara ríkinu krónur á með-
an Jón væri eyðsluldó. Hitt er
annað mál að það kunna að
vera skýringar á þessu sem
okkur tókst ekki að finna.
Kannski var Jón í embættiser-
indum, en Friðrik og Dúna í
fríi á eigin vegum og á eigin
kostnað. Síðan gæti verið að
Jón hafi verið í „styttri“ ferð
-en þau hin í „lengri“ ferð, sem
þýðir að Jón hefði þurft að
hafa góð tök á því að breyta
áætlun og það er ekki hægt
með góðu móti og án auka-
greiðslna nema vera á Saga
Class. Sem breytir þó ekki
þeim ályktunum sem hinir
farþegamir drógu.
Lengi lifir í göml-
um glæðum___________
Kremlólógarnir virðast hafa
nóg að gera þótt Sovétríkin séu
liðin undir lok. Eldd þarf að
leita langt yfir skammt og
glöggir menn segja átökin um
formannsslaginn í SUS eiga
rætur að rekja langt aftur í
forneskju. Upphafið megi
rekja allt aftur til ársins 1987
þegar Sigurbjöm Magnússon
og Árni Sigfússon börðust
um formannssætið. Þar hafði
Ámi betur. Davíð Stefánsson,
sem studdi Árna, varð sjálf-
kjörinn formaður sambands-
ins ’89 og ’91, en í SUS er kos-
ið til tveggja ára í senn. Þó svo
að Davíð væri sjálfkjörinn ’91
fylgdu miklar deilur og eftir-
mál á því þingi og kosið var
milli manna í stjórn þótt ekld
væri hnikað við formannin-
urn. Þessar væringar í SUS
I kjölfar reglugerðarbreytingar um rýmri afgreiðslutíma veitingahúsa að degi
til þrýsta veitingahúsaeigendur nú á um að fá að teygja úr afgreiðslutíma verts-
húsa á nóttunni. Mál þetta er statt í höndum Þorsteins Pálssonar dómsmála-
ráðherra, sem þyrfti að breyta reglugerð svo hin nýja og aldna ósk SVG, Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeigenda, næði fram að ganga. Beiðni um lengri af-
greiðslutíma hefúr oft verið borin upp áður, en lúngað til verið hafnað af for-
verum núverandi dómsmálaráðherra. Binda menn nú vonir við Þorstein. „Ég
hygg að Þorsteinn Pálsson vilji skoða þetta mál vandlega áður en hann tekur
ákvörðun,“ segir Ari Edwald, aðstoðarmaður ráðherrans. „Við í dómsmála-
ráðuneytinu finnum fyrir auknum þrýstingi, bæði meðal veitingahúsaeigenda
og ekld síst ungs fólks. Égbendi þó á að enda þótt nýjasta reglugerðarbreyting-
in hafi mælst vel fyrir hjá mörgum, þá átti það alls eJdd við um alla. Reyndar
finnist mér sumar gagnrýnisraddimar á breytingamar hafa verið ósanngjamar,
en þess ber að geta að ákvörðunina verður að taka í samráði við lögreglustjór-
ana um land allt.“
Aðspurð um hvort mörg veitingahús hefðu áhuga á lengri afgreiðslutíma
svaraði Ema Hauksdóttir, ffamkvæmdastjóri SVG, því til að hún gerði ráð
fyrir að svo væri um flesta skemmtistaðina og líklega helstu barina.
Valur Magnússon, ffamkvæmdastjóri Café Romance, hefur löngum vonast
til að stjórnvöld bættu ráð sitt í þessum efhum. „Lengri afgreiðslutími á nótt-
unni er bara næsta skref. Ég á von á að breytingar á reglum þar um náist
fljótlega í gegn. Okkur finnst leiðinlegt að þurfa sífellt að vera að loka á
huggulegt fólk sem situr í makindum sínum. Fyrst allt er orðið svona opið og
fólk kann að fara með vín er fáránlegt að fá ekki að hafa opið lengur. Þótt
menn hafi tekið því fyrir nokkrum árum að hætta að skemmta sér á tilsettum
tíma er það orðið dónaskapur við fólk í dag,“ segir Valur Magnússon.
Gestir og starfsfólk Café Romance
Á þeim barnum finnst mönnum það
jaöra viö dónaskap að þurfa að skipa
huggulegu fólki, sem situr í makindum
sínum, út klukkan þrjú.
teygðu anga sína inn í starf
Heimdallar í Reykjavík, en
1988 tapaði Gunnar Jóhann
Birgisson, einn besti vinur
Sigurbjörns, fyrir Ólafi Steph-
ensen í formannskjöri félags-
ins. Sigurbjörns-armurinn
náði sér þó á strik þegar Birgir
Ármannsson varð formaður
Heimdallar eftir harðvítuga
baráttu við Svein Andra
Sveinsson árið ’89. Sigur-
björns-armurinn hefur síðan
„ráðið“ félaginu og Kjartan
Magnússon var sjálfkjörinn
formaður ’91 og ’92. Það er
talið vega þungt í komandi
formannskosningum í SUS,
því sá armur styður Jónas Fr.
Jónsson gegn Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, sitjandi for-
manni. Á þessum fimm árum
sem liðin em ffá formannsslag
Sigurbjöms og Áma hafa ein-
staka menn fært sig milli ar-
manna, en talið er að stuðn-
ingsmenn Sigurbjörns hafi
frekar haldið vöku sinni og
náð að styrkja stöðu sína all-
nokkuð á síðustu missemm.
Jólabókaverlíöin
igang_________________
Nú fer smám saman að skýr-
ast hverjir æda að taka þátt í
jólabókaflóðinu fyrir komandi
vertíð. Meðal þeirra sem æda
að gefa út skáldsögur eru
Guðbergur Bergsson, Einar
Már Guðmundsson, Illugi
Jökulsson og Pétur Gunnars-
son. Útvarpsstjarnan Stefán
Jón Hafstein gefur út bók um
lífsreyndan Islending, Hjörtur
Gíslason skrifar um Zoffanías
Cecilsson, útgerðarkonung í
Grundarftrði, og Þór White-
head lýkur nú loks við þriðja
bindið um styrjöldina. Þá
vinna Arnar Guðmundsson
bókmenntafræðingur og
Unnar Ingvarsson sagnfræð-
ingur að ritun bókar um
bannárin. Hrafn Jökulsson
mun vera með tvær bækur í
smíðum, Kristín Ómarsdótt-
ir gefúr út ljóðabók og Gyrðir
Elíasson smásagnasafn.
SlGFÚSSON Deilurnar innan SUS má rekja allt aftur til kosningabráttu hans viö Sigurbjörn Magnússon. SVEINN flNDRI SVEINSSON Barátta hans viö Birgi Ármannsson
var einn kafíinn í átakasögu SUS. FRIÐRIK SOPHUSSON Flaug á almenna farrýminu meö Sigríði Dúnu á meöan seðlabankastjórinn tilvonandi fíaug á Saga-Class.
STEFAN JÓN HAFSTEIN Einn þeirra sem ætla aö taka þátt í jólabókaflóöinu meö sögu af lífsbaráttu íslendings erlendis. GUÐBERGUR BERGSSON og ILLUGIJÖKULSSON Gefa báöir
út skáldsögu fyrirjólin auk fjölda annarra.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Það getur enginn beðist
afsökunar á ummcelum
mínum annar en égsjálfur“
Þorsteinn Pólsson
Skyldi hann vilja skipta?
„Hænunum líður mjög vel hjá okkur. Þetta er eins
og fimm eða sex stjörnu hótel fyrir þær. Hvert bú er
ætíað sex hænum en við erum með þrjár í hveiju.“
Sigurður Sigurðsson, eggjabóndi og hótelhaldari.
Hvernig gat það orðið annað?
„Það er hræðilegt hvernig Everest-fjallið er orðið að
hæsta ruslahaugi heims.“Sir Edmund Hillary fjall-
göngugarpur.
Ekki miðað við hvemig hann fór með bank
Líka að drukkna
„Sundið hjá okkur íslendingum er Pað þarf kvÓta Ó slyS
gömul alþýðumennt.“ „Maður þarf að vera hálfdauður til að
Þorsteinn Einarsson hinn fomi. verða fluttur í land.“
Eiríkur Ragnarsson stýrimaður.
rSemsaxfá m/ö<} /ontmy/exjif/'
„Þetta var innilegur alvörukoss, ástúðlegur en þó ekki lostafúllur.“
Ónefndur breskur hirðljósmyndari um koss Söru og Andrésar.
ameiin síns tíina! „ Var JeSUS „fínn pappír „? Jónas Gíslason víxlubiskup.
I