Pressan - 10.06.1993, Side 5
Fimmtudagurinn 10. júní 1993
S K I L A BOÐ
PRESSAN 5
TANNLÆKNARNIR
SEM K£RÐU
BRYNDISI
Sagt hefur verið ffá
baráttu Bryndísar
Kristinsdóttur
tannsmíðameistara á síðum
blaðsins, en tannlæknar hafa
um árabil reynt að flæma
hana úr starfi vegna vilja
hennar til að starfa þeim
óháð. Meðal annars hafa
þrjár kærur verið lagðar
ffarn á hendur henni vegna
sjálfstæðrar atvinnustarf-
semi hennar, en jafnoft hef-
ur ríkissaksóknari vísað
þeim frá og ekki þótt grund-
völlur til að rannsaka málin
frekar, enda engar umkvart-
anir borist ffá sjúklingum.
Rannsóknarlögreglu ríkisins
barst fyrsta kæran árið 1973
og var það Haukur Clausen
tannlæknir sem stóð að baki
henni. Fjórum árum síðar
kærði Tannlæknafélag Is-
lands Bryndísi, en síðustu
kæruna lagði fram Öm
Bjartmarz Pétursson, tann-
læknir og prófessor við Há-
skóla íslands, árið 1990.
Mun Örn hafa gert það í
n a f n i
nokkurra
sjúklinga,
sem við
n á n a r i
athugun
reyndust
s u m i r
hverjir
lítið eða
alls ekki
þekkja til
hans. í síðastnefnda tilvik-
inu lagði Ólafur Ólafsson
landlæknir fram álit þess
efnis að ekki þætti ástæða til
að amast við starfsemi Bryn-
dísar. Það var svo í kjölfar
samnings sem hún gerði við
Tryggingastofnun rikisins á
haustdögum á síðasta ári að
Tannlæknafélagið reis upp á
afturlappimar á ný og kærði
samkomulagið, sem síðar
var dómtekið. Féll dómur
Bryndísi í óhag þrátt fyrir að
aðeins viku fyrr hefði dóm-
arinn, Valtýr Sigurðsson,
lýst því yfir í dómsal að
hann hefði komist að þeirri
niðurstöðu að sýkna ætti
ákærðu. Enginn veit hvers
vegna honum snerist hugur,
en aðilar innan heilbrigðis-
ráðuneytisins skoða nú
hvort breyta megi löggjöf-
inni á þá leið að tannsmíða-
meistarar fái að starfa án
milligöngu tannlækna.
ENGINN MINNTIST
A HALLGRIM
THORST...
Við vinnu á vin-
sældakönnun út-
varpsmanna, sem
birt er á síðum blaðsins í
dag, kom á óvart að nafn
Hallgríms Thorsteinssonar
Bylgjumanns bar aldrei á
góma. Skýring er óljós, en ef
til vill er hana að finna í því
að minna fer fýrir honum í
útsendingum nú en oft áð-
ur, þar sem hann situr ein-
ungis við
hljóðnem-
ann á sunnu-
d ö g u m .
Hallgrímur
hefur allt frá
u p p h a f i
reynst eftirminnilegur út-
varpsmaður og vissulega
verið rós í hnappagat Bylgj-
unnar. Má búast við að
meira heyrist til Hallgríms
með haustinu, en að öllum
líkindum kemur hann þá
aftur til starfa af fullum
krafti.
„The Mailman" Karl Malone Utah Jazz
í GÓÐUM LA.QEa«
||K SKÓSTOFAN ÖSSUR HVERFISGÖTU 105 105 REYKJAVIK SI'MI 91 626353. FAX 91 27966 »hummel^ SPORTBÚÐIN SKÓVERSLUN
Laugavegi 62 Slml 13508 1 Gíslti Fcrilintindssonar fi
LÆKJARGÖTU 6A ■ 101 REYKJAVÍK
J0T SAUOARKROKl • HOFSOSI - VARMAHUO • FLJOTUM Skóverslun Kópavogs VP. Skór og sportvörur Hamraborg 3 sími 41734 Sporthúyd
Glæsibæ. simi 812922. Toppstórinn X VELTUSUNDI • S1M1:21212
® KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA Borgarnesi. Verslunin Óðinn Akranesi r P0RTBÚÐ AsKARS J Hafnargötu 23 Sími: 14922
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
EINNIG: Skóverslun Reykjavíkur • Sportmaöurinn - Hólagaröi • Axel Ó - Vestmannaeyjar • Drangur - Vík • Orkuver- Höfn • B. H. Búöin- Djúpavogi
Krummafótur- Egilsstööum • Verslun Hákonar Sófussonar Eskifiröi • Viö lækinn Neskaupstaö • Toppmenn & Sport - Akureyri • Sporthlaðan ísafiröi