Pressan - 10.06.1993, Page 8
NÆRMYND
8 PRESSAN
Fimmtudagurinn 10. júní 1993
Fasteign Sólar við Þverholt
Brunabótamatið er liðlega milljarður, en uppreiknaður höfuð-
stóll veðsetninga 740 milljónir. Hið opinbera er með nýleg
fjárnám þarna og á einbýlishúsi Davíðs.
Veðsetningar ó fasteign Sólar við Þverholt
620 milljónir vegna
banka og sjóða
Sól (Smjörlíki) og íslenskt bergvatn hafa verksmiöjur sínar í Þver-
holti 17 til 21. Veðbækur sýna veðsetningar á 25 veöréttum, þar
sem uppreiknaður höfuðstóll veöa hljóöar í dag upp á rúmar 740
m.kr. Brunabótamat fasteignanna er hins vegar liölega 1 milljarður
og því nokkurt pláss eftir. Annað mál er hvert markaðsviröi fasteign-
anna gæti talist í dag.
Af þessum 740 m.kr. má rekja 218 m.kr. til lönlánasjóðs, 194
m.kr. til lönaöarbankans, þ.e. íslandsbanka, 147 m.kr. til lönþróun-
arsjóös, 108 m.kr. til Davíðs persónulega, Sólar og Ásgarös, 50
m.kr. til Verslunarlánasjóös, 13 m.kr. til SPRON og loks er á 25. og
síöasta veörétti 12,3 m.kr. fjámám Gjaldheimtunnar í Reykjavík.
Verulega stóran hluta veösetninganna má rekja til 365 m.kr. fyrir-
greiöslu lönlána- og lönþróunarsjóöa í mars á síöasta ári. Þá hefur
stór hluti vélasamstæöanna verið settur upp meö eignarleigusamn-
ingi viö Glitni, dótturfélag íslandsbanka.
Á einbýlishúsi Davíðs á Arnarnesi hvílir á sjötta og síöasta veö-
rétti prnám Garöabæjarkaupstaöar frá því í febrúar sl., vegna tæp-
lega 5 m.kr. skuldar. Á fimmta veörétti er fimm ára gamalt lán, þar
sem Smjörlíki hf. (Sól) er kröfuhafi; höfuöstóll lánsins er 17,6 m.kr.
aö núviröi. Aö ööru leyti má nefna þinglýstar yfirlýsingar íslands-
banka — væntanlega baktryggingar vegna fyrirtækjanna — vegna
lána, þar sem eftirstöðvar voru fyrir rúmu ári 26,2 m.kr.
smiðjustjóri hjá Smára/-
Ljóma/Ásgarði, síðan fram-
kvæmdastjóri til 1964. Þá
voru fyrirtækin sameinuð í
Smjörlíki. Sól var stofnað
1972, en nú hafa þessi félög
verið sameinuð. IBV var
stofnað 1989. Við það tæki-
færi gerðist það meðal annars
að Sól seldi ÍBV eignir fyrir
600 milljónir króna að nú-
virði. Sama ár varð um 200
milljóna króna tap á reglulegri
starfsemi fyrirtækjanna. I dag
á Davíð persónulega 10 pró-
sent í Sól, en stærsti einstaki
eigandinn er Björg Ellingsen
og fjölskylda, en hún er ekkja
Ragnars Jónssonar f Smára.
fupphafi snerist framleiðsl-
an fyrst og ffemst um smjör-
líki, sem nú hverfur í skugga
allra hinna vörutegundanna;
þær eru um 400 talsins. List-
inn inniheldur til dæmis
Jurtasmjörlíki, Sólblóma, Bláa
borðann, Aldingrauta, Soda
Stream, Sólargrænmeti,
Grape, Súkkó, Svala, Trópí,
„ Við Davíð höfum
þekkst sæmilega í
ein tíu eða tólf ár.
Samskiptin hafa þó
aðeins verið í
gegnum viðskiptin,
ég þekki hann ekk-
ert úr einkaiífínu.
Davíð er að mínu
mati mjög iðinn og
ákaflega duglegur,
— hefur verið mjög
afkastamikill í við-
skiptum. En það má líka segja að hver veðji á
sinn hest og kannski hefur Davíð ekki alltaf veðj-
að á réttan hest. “
Lýður Friðjónsson, (ramkvæmdastjóri Coca Cob i Noregi.
„Davíð hef ég
þekkt frá því
hann var um
tvítugt og á
milli okkar
hefur mynd-
ast góður
kunnings-
skapur. Davíð
er ákaflega
hress og at-
| hafnasamur
maður og býr yfir miklum krafti. Hann er
skemmtilegur seiskapsmaður og ævinlega
hrókur alls fagnaðar. Fyrir utan að hafa starf-
að saman um árabil höfum viö átt töluverð
samskipti í einkaiífi. Við höfum oft farið í
veiði saman í gegnum árin, en Davíð er góð-
ur veiðimaður. Þá vorum við hjónin saman í
danstímum hér fyrr á árum, en Davíð er
býsna góður dansari. í vinnu er hann óhemju-
afkastamikill og hlífir sér hvergi. Það sem
einkennir starfsferil Davíðs hvað mest er hve
hann hefur lagt sig mikið eftir nýjungum.“
GunnarJ. Friðríksson, í stjórn Smjörlíkis/Sóbr.
„Eghef þekkt
Davíð í tæpa
tvo áratugi og
við höfum átt
II mikil sam-
/ skipti, bæði í
A viðskiptum og
einkalífi. Davíð
er afar kröft-
ugur og hug-
myndaríkur
einstaklingur,
eins og hann hefur sýnt í gegnum langa
starfsævi. Hann er mikill baráttumaður og
hefur haft mikinn metnað fyrir íslenskan iðn-
að, aimennt'og fyrir fyrirtæki sitt. Davíð hef-
ur náð góðum árangri þegar horft er yfir
langa starfsævi, þótt hann hafi nú lent í
vandræðum með útflutning á vatni, sem vald-
ið hefur honum miklum erfíðleikum og von-
brigðum. Davíð er ákaflega skemmtilegur
maður sem gaman er að umgangast og mjög
þægilegt að eiga að vini.“
Víglundur Þorsteinsson, forstjóri BM Vollór.
Ís-Cola, Sól-Cola, Seltzer og
Nektar. Sumt hefur gengið
vel, annað hefur „floppað".
Frægasta „floppið“ er Sól-
Cola. 600 þúsund dósir fóru á
markað, sem aftur fúlsaði við
vörunni. Hún var einfaldlega
vond á bragðið. 80 þúsund
dósum til viðbótar var hent.
Davíð kann skýringarnar;
annars vegar keypti hann gall-
aða kolsýru ffá Sjóefhavinnsl-
unni. Hins vegar lét hann að-
eins eigið starfsfólk bragða á
vörunni og það beint af krana.
En smekkur fólks utan vinnu-
staðarains var annar, að ekki
sé talað um hvernig varan
varð eftir nokkra veru í dós-
unum. „Þetta voru einhver
mestu markaðs- og hönnun-
armistök íslandssögunnar,"
segir Davíð og klúðrið reið
fyrirtækinu nær að fullu.
Annað hefur gengið betur.
Soda Stream fór inn á nánast
hvert einasta heimili landsins
undir slagorðinu „Glasaburð-
ur er gamaldags", en er nú að
mestu horfið af markaði, eftir
dósa- og plastflöskubylting-
una. Og Is-Cola hefúr að und-
anförnu selst vel, tölur sýna
tvöföldun á sölu á við sömu
mánuði í fyrra; nú er salan um
einn lítri á hvern Islending á
mánuði. Þá má nefna að
Nektar hefúr hlotið góðar við-
tökur.
Plastdósirnar hans Davíðs
eru reyndar sérstakur kapítuli.
Hann réðst á glerflöskurnar
með offorsi, íyrst með Soda
Stream. „Áróðurinn í kring-
um þetta ýtti við samkeppnis-
aðilunum. Kók brást hart við
þessu og sagði Lýður Frið-
jónsson á góðri stund við mig
að hann hefði aldrei grætt eins
mikið á nokkrum manni og
mér.“
I dag er spurningin hvort
útflutningur á bergvatni með
ávaxtabragði, Seltzer, Svala og
Náttúru, verði stórt klúður og
banabiti fýrirtækja Davíðs,
eða hvort peningar náist inn
og lánardrottnar sitji á honum
stóra sínum nægilega lengi.
Eftir mikið stapp fóru fyrstu
tveir 40 feta gámarnir með
Seltzer til Bretlands í maí
1989.1 fyrra fóru 70 gámar og
Davíð gerir ráð fyrir yfir 100
gámum á þessu ári.
Hins vegar hefur markaðs-
setningin og salan í Bandaríkj-
unum brugðist algjörlega, eins
og fram kemur í viðtali við
Davíð hér í opnunni.
Kann ekki skýringu á
vinsældum fyrirtækis-
ins
Útflutningurinn til Banda-
ríkjanna hófst í samvinnu við
Great Icelandic Water Cor-
poration, sem var þá alfarið í
eigu þeirra Gúnnars J. Helga-
sonar V-Islendings og Maur-
ice Rollins, en þeir eru Kan-
adamenn. Gunnar og Maur-
ice seldu í fyrra 36 prósenta
hlut í Great Icelandic á al-
mennum markaði og fór hlut-
urinn á 6 milljónir dollara eða
á um 380 milljónir króna^
Sem þýðir að á þeim tíma-
punkti hafi verðmæti fýrir-
tækisins alls yérið liðíega
milljarður króna. Þetta fýrir-
tæki á helmingshlut í ÍBV og
75 prósent í Icelandic Water
Corporation á móti 25 pró-
senta hlut Sólar. Allt kann
þetta hins vegar að breytast
með dramatískum hætti á
næstunni.
Davíð er án efa með vinsæl-
ustu persónum þjóðarinnar
og Sól hefur fengið sama
stimpil á sig; I könnunum
Frjálsrar verslunar á vinsæld-
um fýrirtækja 1989 til 1993
hefur Sól tvisvar af fimm
skiptum lent í efsta sæti, 1989
og 1993, og tvisvar í brons-
sæti. Kann Davíð skýringu á
þessu? „Ég hef aldrei fengið
eða fundið hana. Ég tel mig
persónulega ekld vera sérstak-
lega vinsælan. Fyrirtækið aug-
lýsir nánast ekki neitt, að
minnsta kosti elckert á við
samkeppnisaðilana. Hins veg-
ar liggur fyrir að við erum
með gæðavörur á góðu verði
og afskaplega gott starfsfólk.
Það skilar sér.“
Einbýlishús á Arnar-
nesi — sumarhús við
Þingvallavatn
En hver er Davíð og livað á
hann? „Ég hef búið á Arnar-
nesinu í 25 ár, og það sem ger-
ir mig að afskaplega ríkum
manni er kona mín og sex
mannvænleg börn. þar af á ég
sjö ára.dóttur, þótfég sé orð-
inn þetta gamall. Ég hef búið
við góða heilsu (Davíð bankar
þrisvar í skrifborðið). Við eig-
um eldgamalt sumarhús við
Þingvallavatn, sem við keypt-
um fýrir átta árum, en Jón
Loftsson byggði á stríðsárun-
um. Við förum ekld mikið á
veitingahús, skíðaferðalög eða
þannig háttar. Ég hef hins veg-
ar ferðast mjög mikið vegna
fyrirtækjanna, en það er erfitt
og veldur fjölskyldunni
nokkxu álagi. Minn munaður
er eiginlega að kaupa plötur,
frekar en t.d. að kaupa
brennivín. Og fýrst minnst var
á bjórinn rná ég til með að
geta þess að ffá hinurn frægu
bjórkaupum um áramótin
1979/1980 hef ég aðeins tvisv-
ar keypt bjór, sitt hvort glasið
á þrettán til fjórtán árum.
Ekki það að ég sé bindindis-
maður, mér finnst gott að fá
mér maltvisld, koníak stund-
um og verulega gott rauðvin."
Friðrik Þór Guðmundsson
ásamt Bergljótu Friðriksdóttur
„ Við kynntumst fyr-
ir rúmum tuttugu
árum þegar við átt-
um báðir sæti í
framkvæmdastjórn
VSÍ. Þótt við hefð-
um ólíkra hags-
muna að gæta
myndaðist mikið
traust á milli okk-
ar, sem hefur haid-
ist æ síðan. Við er-
um góðir kunningj-
ar og höfum átt mikil oggóð samskipti í gegnum
árin. Davíð hefur ákaflega skemmtilega og elsku-
lega framkomu og er þeim eiginleika gæddur að
eiga auðvelt með að ná til fólks. í atvinnurekstri
er Davíð óljúft aö sitja í sama farinu og því réðst
hann af miklu hugarflugi og bjartsýni í útflutning á
vatni. Væntingar hans virðast þó hafa verið of
miklar og hugurinn bar hann því miður of langt. “
Kristjón Ragnarsson, framkvæmdastjóri LIU.
„Davíö er einn al-
skemmtiiegasti
maður sem ég hef
kynnst, síkátur og
mikill húmoristi.
En hann getur líka
verið mjög harð-
snúinn samninga-
maöur og
skemmtilegheitin
breyta aidrei neinu
I um meiningar
I hans. Davíð nýtur
mikils trausts í viðskiptum og er almennt ákaf-
lega vel liðinn. Hann hefur mjög mikið hugmynda-
flug og er mikill frumkvöðull í viðskiptum. Ég veit
þó aö það hefur hallað mjög undan fæti hjá honum
og harma það mjög að hann skuli nú eiga í erfíö-
leikum. “
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar.
Davíð Scheving
„Lánardrottnar eru
að byrsta sig“
DAVfÐ „Við erum með þetta lík í lestinni.'
- Það ganga sögur um að
vatnsútflutningurinn ogflár-
festingin að baki sé að ríðafyr-
irtœkjunum aðfullu. Að lánar-
drottnarœtli aðgrípa til að-
gerða?
„Þeir hafa ekki gripið til
neinna aðgerða. En þeir byrsta
sig. Það þarf þolinmæði til að
byggja upp útflutning. Allir
sem eru að gera eitthvað eru í
vandræðum. Hér gengur sal-
an á Ís-Cola mjög vel, hefur
aukist um 100% sl. 6 mánuði
og útflutningurinn til Bret-
lands jókst um 40% á sl. ári og
við reiknum með að auka söl-
una þar aftur um sama hlut-
fall. Én markaðssetningin í
Bandaríkjunum hefur brugð-
ist algjörlega. Sannasf sagna
gengur okkur afskaplega illa
þar.“
- Hvers vegna mjög vel á
Bretlandi en afskaplega illa í
Bandaríkjunum?
„Það eru mjög hæfir aðilar
að selja í Bretlandi, Seltzer
Drinks Company. Þeir taka
einn markað í einu og einbeita
sér að honum. Við eigum
markaðinn á Bretlandi hvað
varðar vatn með ávaxtabragði
í dósum. En ég get ekki al-
mennilega svarað til um hvers
vegna Bandaríkin hafa brugð-
ist. Great Icelandic Water
Corporation, sem á íslenskt
bergvatn til helminga á móti
okkur, hefúr einkasöluleyfi í
Bandaríkjunum og átti að sjá
um markaðssetninguna, en
sala þeirra hefur eldd gengið
sem skyldi.“
- Hverjir eru þetta og hvers
vegna klúðruðu þeirþessu?
„Þeir Gunnar J. Helgason
og Maurice Rollins í Great
Icelandic Water höfðu enga
reynslu í sölu á hágæða-
merkjavöru og reyndu að gera
allt í einu. Vegna þessa er Is-
lenskt bergvatn í afskaplega
miklum erfiðleikum. Vissu-
lega hefur verið og er enn ver-
ið að selja mikið. En kanad-
ísku eigendurnir píndu okkur
í miklar fjárfestingar í sam-
ræmi við söluáætlanir sínar.
Svo seldu þeir aðeins 2% af
þvi sem þeir ætluðu að selja í
fýrra! Sem vitaskuld er óra-
langt frá því sem lá til grund-
vallar fjárfestingunni. Og við
erum því með ónýtta afkasta-
getu í plastflösku- og dósavél-
um.“
-Áttu þá ekki einhverja
kröfu á þá og möguleika áaðfá
aðra aðila til samstarfs?
„Þeir skulda okkur afar
mikla peninga. Sem stendur
eru ekki málaferli í gangi, en
ef Gunnar ekki borgar þá end-
ar með því að sú leið verður
farin. Hann er núna að ham-
ast í því að útvega peninga til
að laga þessa hluti. Hann er
enn með einkasöluleyfið, en
það er svo sem hægt að segja
því upp vegna árangursleysis.
Það er hlutur sem ræðst á
næstu dögum. Suðan er að
koma upp allra næstu daga.“
- Við heyrum ítrekað að lán-
ardrottnarþínir séu að grípa til
aðgerða. Hvemigstanda þau
mál í raun ogsann?
„Hér hjá Islensku bergvatni
er allt í fullum gangi og salan
er mikO hérlendis og á Bret-
landi, en eins og nafni minn
Stefánsson sagði: „Það njóta
fáir eldanna sem kveikja þá“.
Ég held að aðalatriðið fýrir Is-
land sé að þessi verksmiðja sé
staðsett hér á íslandi, hver svo
sem eignaraðildin verður.“
- Erþá breyting á eignarað-
ilditini að íslensku bergvatni
framundan?
„Ég er að segja það berum
orðum. Ég get ekki sagt
hvernig eignaraðildinni verð-
ur háttað, en það er áreiðan-
legt að það verður einhver
breyting þar á.“
- Hver er staðan gagnvart
helstu lánardrottnum?
„Ég get nefnt að Sól er lang-
stærsti lánardrottinn Islensks
bergvatns. Sól hefúr fjármagn-
að Islenskt bergvatn og það
getur ekki haldið áfram, alveg
útilokað. Svo koma íslenskir
bankar og sjóðir langt á eftir.
Málin eru í skoðun, auk þess
sem margir erlendir aðilar
hafa komið hingað vegna
þessa máls.“
- Við höfum rœtt utn alvar-
lega stöðu íslensks bergvatns.
En hver erþá staða Sólar; hvað
segir bókhaldið?
„Þetta er einkafýrirtæki og
því má ég ekki nefna tölur.
Árið í fyrra var erfitt, einkum
vegna íslensks bergvatns og
gengisfellingarinnar. En tölur
það sem af er þessa árs eru
mjög hagstæðar og reyndar er
þetta besta ár fýrirtækisins frá
1985; gróðinn ekki jafnmikill
frá þeim tíma. En — við erum
með þetta lík í lestinni, sem er
íslenskt bergvatn, eða öllu
heldur Great Icelandic Water
Corporation.“