Pressan - 10.06.1993, Síða 12

Pressan - 10.06.1993, Síða 12
SKOÐANIR 12 PRESSAN Rmmtudagurinn 10. júní 1993 PRESSAN STJÓRNMÁL Utgefandi Blað hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson Flokkur í pólitískri pólitík Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 -16. sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 3190, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjórn 64 30 85, Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO en 750 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu Stj órnmálaflokk- ur laxerar Undanfarna daga hafa kjósendur í landinu fylgst álengdar með einhverri stórkostlegustu hrókeringu í pólitík á „ffiðartímum“ hér á íslandi. Nær væri að líkja ráðherraútskiptingu alþýðuflokksmanna við þjóðflutn- inga en stjórnmálavafstur; svo augljósir og mikilfeng- legir eru þeir eftirmálar sem verða vegna þess að tveir menn kjósa að flytja sig úr ráðherrastólum í hæginda- stóla. í senn er sjónarspilið mikilfenglegt og hlægilegt. — Og í hverra þágu er þetta allt saman? Jú, yngri menn taka við af eldri mönnum, vinstrimenn af hægri- mönnum. Breytir það einhverju fyrir kjósendur? Auð- vitað er það kraftmikil staðfesting á mætti formannsins að geta knúið þetta allt saman í gegn undir krefjandi tímapressu nú þegar ríkisstjórnin þarf augljóslega á andlitslyftingu að halda. Kratar eru hins vegar varkárir þegar kemur að því að útskýra stefnubreytingar í kjölfarið; svo virðist sem eng- inn hafi almennilega leitt hugann að því í kjötkatlabar- áttu undanfarinna daga. f fljótu bragði virðist þetta fyrst og fremst vera vísbending um endurnýjunarmátt Alþýðuflokksins og dirfsku formannsins. Kjósendur sjá að Jón Baldvin hefur enn gaman af refskákinni í pólitík þótt honum sé fyrirmunað að gera sig trúverðugan í málefhum og stefnumótun. Hann sýnir að enn er hann góður á sprettinum þótt úthaldið vanti. En um leið er þetta áskorun til hins ríkisstjórnar- flokksins. Ætla sjálfstæðismenn að sitja með hendur í skauti á meðan kratar stela senunni? Fæst enn ein sönnunin fyrir því að flokkurinn hangi saman á óttan- um við hið óþekkta? Hin ósýnilega barátta Davíðs og Þorsteins er hin dauða hönd sem lamar stærsta flokk þjóðarinnar og gerir hann ófæran um að sinna sjálfum sér og kjósendum. Auðvitað er það óviðunandi staða að sá flokkur, sem eðli málsins samkvæmt ætti að gegna forystuhlutverki í landsmálum, skuli ekki einu sinni vera fær um að stjórna sjálfum sér skikkanlega. Það var jú hugmyndin að það yrðu ekki bara kratar sem skiptu út á miðju kjörtímabili. Það væri barnaskapur að gera of mikið úr þessum breytingum á ríkisstjórninni enda augljóst að margt annað en landshagir knýja á um þær. En hvað um það; þetta sýnir að enn býr líf í skepnunni, þótt enginn átti sig almennilega á því í þágu hverra það líf er. BLAÐAMENN Bergljót Friöriksdóttir, Friörik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Gunnar Haraldsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuöur, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijós- myndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur, Pálmi Jónasson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari,Snorri Ægisson útlitshönnuöur, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Karl Haraldsson, Guömundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hrafn Jökulsson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Guömundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, mynd- list, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bók- menntir, Martin Regal Ieiklist. Telkningar: Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján ÞórÁrnason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerö og prentun: 0DDI Frakkar hafa einsog allir viia verið feikilega uppteknir af pólitík síðan þeir muna íýrst eftir sér, og hefur grönn- um þeirra raunar þótt nóg um fyrr og síðar. Einusinni átti yðar einlægur þess kost að fylgjast með ffönskum stjóm- málum og stjómmálaumræðu í návígi, það er að segja í dag- blöðunum ffönsku yfir einum dumí á næsta kaffihúsi. Þetta kom eiginlega í staðinn fyrir fótboltann á þessum tíma í lífshlaupinu, enda svipar á ýmsan hátt saman franskri pólitík og átökum bestu liða í spennandi deildakeppni. íslenskur áhorfandi var nokkra stund að átta sig á ýmsum leikreglum og form- deildum í þessari veröld, og eitt af því sem augun rákust fijótt í var fjöldi hugtaka sem ekki átti almennilega sam- svörun í hinum ffónska bak- grunni. Þarna voru til dæmis til margar gerðir af pólitík, og þeirra einkennilegust sú sem gekk undir nafninu politique politiáenne, sem orðrétt verð- ur að þýða sem pólitíska pólit- ík. Þetta mætti líka umorða úr öðrum heimi sem Pólitíkin fyrir pólitíkusana, eða Pólitík- in Pólitíkurinnar Vegna. En effir talsverða umhugsun var niðurstaðan samt sú að hin raunverulega íslenska þýðing á franska hugtakinu la po- litique politiáenne sé einfald- lega pólitík. Að íslensk pólitík sé sumsé fyrst og fremst po- litique politicienne, pólitísk pólitík, og undantekning að hún hafi sér eitthvert annað hlutverk en frama hinna ein- stöku stjórnmálamanna og gæslu hinna þröngu hags- muna. Á okkar tungu er orðið pólitík nefhilega andheiti \úð hugtök á borð við stefhufestu, trúnað, heiðarleika, svo mað- ur sé ekki með dónaskap og nefni prinsipp eða hugsjónir. Þetta er bara pólitík, segjum við oftast, yppum öxlum og höldum áffam hver við sitt. Af öllum hinum pólitísku flokkum á Islandi er Alþýðu- flokkurinn örugglega pólitísk- astur. Hann fór ffammúr öll- um hinum í kalda stríðinu og á viðreisnarárunum og er enn langfremstur hvernig sem einkavinimir láta. Þetta sést til dæmis ef mað- ur lítur snöggt yfir glæsilega ffammistöðu flokksins í pólit- ískri pólitík síðustu misseri. Nýr formaður setti í kosning- unum 1987 kúrsinn á sam- starf til hægri, við Sjáffstæðis- flokkinn — og verður ekki sérstaklega láð miðað við kringumstæður á þeim tíma. Alþýðuflokkurinn fékk þokkalegt umboð til þess arna, — en rúmu ári síðar hafði leiðarhnoða hinnar pól- itísku pólitíkur borið flokkinn í aðra stjórn með fyrrverandi yfirlýstum höfuðandstæðing- um sínum. Næst ákvað Alþýðuflokkur- inn að bjóða ekki fram í Reykjavík heldur leggja lið breiðu sjálfsprottnu ffamboði sem keyrði beinustu leið gegn þáverandi borgarstjóra, Davíð „Nú er ekki að efa að Össurgetur orðið einhver besti umhverfisráðherra sem völ er á, og kominn tími til að Guðmundur Árni prófi sig í landsmálum. En erindi þeirrafélaga í ríkisstjórnina erfullkom- lega óljóst. Enda erþetta „barapólitík“ “ Oddssyni. Sumir sögðu rmmflor Koaor orS VvAt- xroot-i ó ILíllUtU LdCl ÞL&UI UV UVl VlVll V* ferðinni pólitísk pólitík af hálfu Alþýðuflokksins, vegna þess einkum að fylgi hans væri á hraðri leið út og suður. En kosningabandalag Alþýðu- flokksins, nývinstrimanna og uppreisnarmanna frá miðju hélt því fram vorið 1990 að hinn hrokafulli yfirstéttar- flokkur undir forystu Davíðs Oddssonar væri andskoti reykvískra hagsmuna, hyglaði sínum mönnum á annarra kostnað og eyddi fjármunum almennings í vitleysu. Og tókst betur upp en gömlu flokkunum. í næstu þingkosningar lagði Alþýðuflokkurinn svo með þau stefnumið og liðskipan að væntanlegum kjósendum gæti skilist að nú ætlaði flokkurinn að halda áfram að treysta tengslin „til vinstri við miðju“. En þá kom í ljós hin stöðuga tryggð Alþýðuflokksmanna við pólitíkina fyrir pólitíkus- ana, og að lokum nýtti flokk- urinn umboð sitt úr kjörköss- unum til að lúta einmitt þeim sem barist var harkalegast gegn í kosningabandalaginu árið áður. Og jafnvel lífs- reyndustu franskir stjórn- málaskýrendur hefðu klappað fyrir þessu meistarabragði á la politique politiáenne. Síðustu afrek eru líka til vitnis um hið algera frum- kvæði Alþýðuflokksins á ís- landi í pólitískri pólitík. Þegar ríkisstjórnin á við slíka innri og ytri erfiðleika að etja að til- boð úr stjórnarandstöðunni um þjóðstjórn hljómar trú- verðuglega í eyrum þjóðar- innar — þá er enn á ný komið að því sem flokkurinn kann best. Tveir helstu tortryggj- endur stjórnarsamstarfsins innan flokksins eru hífðir inní sjálfa ríkisstjórnina með fjöl- miðladramatík og innan- flokksgríni. Nú er ekki að efa að Össur Skarphéðinsson get- ur orðið einhver besti um- hverfisráðherra sem völ er á, og kannski kominn tími til að Guðmundur Árni prófi sig í landsmálum. En erindi þeirra félaga í ríkisstjórnina er full- komlega óljóst og stefnulegur tilgangur Alþýðuflokksins með mannaskiptunum sömu- leiðis alveg óskýrður. Enda er þetta „bara pólitík“. Einsog á leikunum fyrir fólkið í Róm er auðvitað skemmtilegast fyrir okkur á pöllunum að sjá látbragð þess sem tapar. Þessvegna hefur þjóðin varla heyrt betur sam- inn brandara en þegar Lér konungur á Suðurnesjum heldur því fram að hann hafi ítrekað óskað eftir því að fá að glata ríki sínu. Og enn er allt hulið þoku. Það er hinsvegar mjög heið- skírt yfir forsendum manna- skiptanna, og mjög í samræmi við íslenska afbrigðið af pólit- ískri pólitík. Úr ráðuneytum sínum — landvinningunum frá 1991 — ræður Alþýðu- flokkurinn þremur mikilvæg- um póstum, sem nú er út- hlutað einsog herfangi til að stilla til friðar í liðinu: sendi- herrastarfið fyrir Eið, Trygg- ingastofnunin fýrir Karl Stein- ar og Seðlabankastjórinn fýrir Jón Sigurðsson. (Að því til- skildu náttúrlega að ekki sæki um aðrir hæfari. Mundi hinn faglegi formaður bankaráðs- ins bæta við.) Þessar ráðstaf- anir koma ekki við fagfólki eða fjölmiðlum eða kjósend- um. Við ráðum. Og allt er við það sama í hinum besta mögulega heimi allra heima. Nema hvað stendur ekki í nýútkominni átta alda gamalli hómilíubók að meðal höfúðlasta sé matvísi að fylli kviðarins, og torveldi hugar, og ágirni, og hégómleg dýrð. Sem allt saman eru hættulegir fýlgikvillar hinnar pólitísku pólitíkur. En dramblœti er þó allra verstur höfuðlöstur. „Sú er drottning allra illra hluta. Fyr hennar sakar féll af himni dá- samlegskepna englanna.“ Amen._______________________ Höfundur er íslenskufræðingur. ÁLIT EGGERT HAUKDAL BJARNI GUDNASON OGMUNDUR JÓNASSON STEFAN VALGEIRSSON PALL PÉTURSSON Á að setja áfótþjóðstjórn? Bjami Guðnason prófessor: „Eg held að það þjóni nú litlu. Þetta er leikaraskapur sem kominn er upp. Ólafur Ragnar Grímsson er að venju að reyna að ná frumkvæði í pólitískum leik og mér sýnist engar forsendur vera fýrir þjóðstjórn. Það vita allir menn, þótt verið sé að tala um það. Ég held að þetta sé tómt hjal.“ Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB: „Almennt finnst mér það vera ákveðin tilhneiging í seinni tíð að reyna að afnema pólitík. Þjóðstjórnarhugmyndin finnst mér bera keim af slíkri hugsun. Að leysa vandann með því að fulltrúar allra flokka komi saman og leggi ágreiningsmál sín til hliðar og sitji sáttir við eina ríkisstjórn. Mín skoðun er sú að það sé allt annað sem við þurfum á að halda, en það er einmitt skýrari línur í stjórnmálum varðandi alla grundvallar- stefnumótun og þá kosti sem boðið er upp á. Stjórnmála- flokkar eiga að bjóða upp á skýra pólitíska valkosti. Eftir kosningar þarf síðan að mynda ríkisstjóm samkvæmt slíkum línum. Fólk á að geta gengið að því vísu um hvers konar ríkisstjóm er kosið. Ég held að kjósendur séu orðnir hundleiðir á að láta ráðskast með sig eftir kosningar hvort sem það er í þjóðstjórnum eða öðrum stjórnum. Al- mennt er ég hlynntur því að menn reyni að ná sátt um flesta hluti og að sjálfsögðu um stjóm landsins og auðvit- að á að sitja við stjórn ríkis- stjórn sem hefur þjóðina að baki sér. Ef hún hefur það ekki, og er ekki fær um að sætta ólík sjónarmið þannig að um stefnuna skapist breið samstaða, þá á hún einfald- lega að fara ffá og gefa þjóð- inni kost á kosningum.“ Stefán Valgeirsson, fyrrver- andi alþingismaður: „Ég held að það sé enginn gmnd- völlur fýrir því að setja á þjóðstjóm. Hins vegar skil ég nú ekki hvernig þeir ætla að halda áfram þessu stjórnar- samstarfi, Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Þeir virð- ast báðir vera að tvístra liði sínu og verð ég mjög var við það. Það er náttúrulega mjög slæmur kostur að fara út í kosningar þegar svona er, en það væri best fýrir þjóðina.“ Páll Pétursson alþingismað- ur: „Nei, það tel ég að eigi ekki að gera. Okkur í stjórn- arandstöðunni er mjög ljós sá mikli vandi sem við er að glíma í þjóðfélaginu. Við er- um tilbúnir að eiga samstarf við ríkisstjórnina. Við tókum vel tilboði forsætisráðherra um að ganga til þeirrar vinnu en vildum láta vinna þetta á plani forystumanna flokk- anna, ekki vera að þvæla mál- ið áffam í einhverjum emb- ættismannahópum. Embætt- ismennirnir eiga að vera stjórnmálamönnunum til að- stoðar en ekki marka stefn- una. Það vantar pólitíska stefhumörkun. Við vildum koma að því. Ég held hins vegar, og við framsóknar- menn, að hugmyndin um þjóðstjórn sé ákaflega fjarlæg. Þjóðstjórn mundi verða mjög veik stjórn. Hún yrði sundur- þykk og ég hef ekki trú á þvi að hún mundi leysa neinn vanda. Ég held að reynslan sé sú að þjóðstjórnir geri ekki kraftaverk. Það sem við þurf- um er ný stjórn sem getur tekið á vandanum. Þessi stjórn hefúr sannað að hún er ekki vandanum vaxin. Hún hefúr dæmt sig sjálf óhæfa til að stjórna landinu. Þessi stjórn á að fara ffá og við eig- Ólafur Ragnar Gríms- son hefur varpaö fram þeirri hugmynd að mynduö veröi form- lega þjóöstjórn allra flokka tll aö eiga viö þann vanda sem nú steöjar aö þjóöinni í kjölfar aflasamdráttar. um að efúa til nýrra kosninga og fá ríkisstjórn sem ræður við vandamálin.“ Eggert Haukdal alþingis- maður: „Ég veit það ekki. Hitt er það að þessi stjórn hefði mátt standa sig betur. Það eru hreinar línur. Það hefur svo sjaldan verið þjóð- stjórn hér á íslandi. Núver- andi ríkisstjórn mætti taka sig betur á. Að vísu eru náttúru- öflin henni óhagstæð og hún tók ekki við góðu búi. Hitt er svo annað mál að bæði í tíð þessarar stjórnar og annarra stjórna hefur verið meira samráð í þinginu. En það er ekkert að koma til í dag að menn deili skarpt milli stjómar og stjórnarandstöðu. Það er gamall og gróinn siður á íslandi.“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.