Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 28

Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 28
S K I L A BOÐ 28 PRBSSAN Fimmtudagurinn 10. júní 19S HREINN OG JÓHANN Á BIENNALINN... > Næstkomandi sunnudag, 13. } júní, verður alþjóðlegi tvíær- ingurinn í Feneyjum á Ítalíu opnaður. Þetta er áreiðanlega einhver þekktasta alþjóðlega sýning sem hald- in er í heiminum, þar sem listamenn hvaðanæva koma saman á listrænu ^rflsherjarþingi. Áætlaður fjöldi gesta skiptir hundruðum þúsunda. Fulltrú- ar Islands að þessu sinni verða tveir; Hreinn Friðfinnsson og Jóhann Ey- fells. Báðir hafa sýnt nýlega í Lista- saíhi íslands, Hreinn íýrr í vor og Jó- hann síðastliðið haust. Jóhann er einkum þekktur fyrir mikilúðlega málmskúlptúra, sem hann hefur þró- að um langt árabil suður á Flórída- skaga þar sem hann er búsettur. Hreinn, sem er einn af hinum upp- runalegu íslensku konseptlistamönn- um og býr þar að auki í Hollandi, þykir fínlegri í efnistökum og henda menn á lofti lýsingarorð eins og „sin- fónískur“ og „lýrískur“ þegar verk hans berast í tal. Hann er líka lausari í rásinni en Jóhann og bindur sig aldrei við tiltekin efhi eða aðferðir. Þeir ættu því að mynda skemmti- lega ósamstætt par í ís- lensku pavilljón- unni í Feneyjum. S ý n i n g i n stendur til 10. októ- ber. . ' . Ra{ /HU-S-IK MYNDI.R J'K'O nst \ JíiW, ÖRÐUR f INTERNATIONAL § f ARTFESTIVAL B 1 ICELAKD V ALÞJOPLEC , t LISTAHATIf> I HAFNARFIRÐI 4.-30. JÚNÍ 1993 r Útileiktæki og^ busllaugar verð kr. 10.500, stgr. kr. 9.975. verð kr. 17.600, stgr. kr. 16.720, fleiri gerðir eru einnig fáanlegar. Scndum j piskröfu. Kreditkort og greiðslusamningar. Varahlutir og viðgerðir. Verið vandlát og verslið i Markinu. . og vi Stór busllaug, 122x244 cm. Sterkur dúkur með botnlokum á stálgrind. Sæti og viðgerðarsett. Verð kr. 10.900, stqr. 10.355. Minni buslla 122x188 cm. Verð aðe kr. 4.900. 414R Ármúla 40 Simar 35320 - 688860 B Meira melódískt popp: Pláhnetan sáir og spáir í spilin Pláhnetan, nýja sveitin hans Stebba Hilmars, er byrjuð að sá maísbaununum. Það verður popp- að í sumar. Gamli hringurinn tek- inn með trompi og er bandið þegar að mestu bókað út árið. Sterkur leikur í stöðunni var að gefa út plöt- una „Speis“, sem kom út í vikunni. Platan er þó ekkert speisuð heldur full af gæðapoppi. En hvernig geng- ur svo? Hvorki Pláhnetunni né Pel- ican, sem Guðmundur Jónsson gekk í, virðist hafa tekist að ná við- líka hylli og Sálin hans Jóns míns naut. Var kannski bara algjör vit- leysa að hætta? Stefán og Sigurður Gröndal sátu fyrir svörum um mál- efhi Pláhnetunnar. „Nei, alls ekki,“ fullyrðir Stefán, „og Sálin er heldur ekkert hætt, við höfum aldrei gefið út þá yfirlýsingu. Hitt er annað mál að það er him- neskt að vera í Pláhnetunni og að því leyti sé ég ekki eftir neinu. Það er að mörgu leyti miklu betri karma í kringum þetta band en Sálina.“ Maður heyrir að fýrstu böHin hjá ykkur hafi gengið skrykkjótt, en út- koma plötunnar hlýtur að treysta ykkur í sessi. „Það er rétt, sumir tónleikar hafa gengið illa en það er ekkert til að byggja á. Við erum auðvitað ný hljómsveit þótt við höfum mikla reynslu sem spilarar. Við komum tfl með að standa og falla með plöt- unni okkar. Við reynum að gæta hógværðar, en við teljum hana mjög góða.“ „Við vorum ekkert að hanga yfir þessu,“ segir Sigurður. „Upptakan gekk ótrúlega smurt fyrir sig. Það var eins og við værum Rolling Stones eða eitthvað — mjög gott rennsli.“ „Það kveður við svolítið annan tón,“ útskýrir Stefán. „Við höfum ekki sent mikið efni frá okkur á plötu, og því var þetta allt mjög nýtt og spennandi fyrir okkur, bæði vinnslan og útkoman. Hún kom okkur sjálfum á óvart.“ Það eru tvœr lagahöfundaklíkur á plötunni; Stefán og Friðrik bassaleik- ari setnja níu lög Sigurður og Ingólf- ur hljómborðsleikari þrjú. Er tnerkj- anlegur tnunur á klíkunum? „Eg er svolítill pönkhundur í mér,“ geltir Sigurður, „kannski þess vegna sem ég fæ aldrei að koma mínum lögum á framfæri! Heildin er samt helvíti góð.“ En það eru engar tónlistarlegar breytingar frá fyrri verkum? „Jú, það eru áherslubreytingar. En auðvitað er þetta bara popp. Það er oft erfiðara að gera gott popp en að vera frumlegur. Sérðu mig fyrir þér sem djassgítarleikara?" Nei. „Span er eina lagið sem er í lík- ingu við það sem Sálin gerði,“ segir Stefán. „Þeir sem dæmdu Pláhnet- una út frá því lagi eiga eftir að verða hissa. Menn hljóta að líkja þessu efhi við Sálina þar sem ég syng, en að öðru leyti finnst mér allri viðlík- ingu sleppa varðandi lagasmíðar og sánd. Áherslubreytingarnar liggja í því að nú eru þrír nýir og öðruvísi spilarar komnir í dæmið. Það eru samt engar breytingar í músík- stefnu. Við fórum af stað með það í huga að gera melódískt popp og það er mikil samstaða innan bandsins um að gera það.“ Að lokum: Hvernig líst ykkur á þróunina í útgáfubransanum? „Maður er eiginlega ekki búin: að kveikja á perunni ennþá. Vi fyrstu sýn virkar það Hla á mann a> útgáfan sé að mestu leyti komin eina hendi. Maður vonar bara a> þetta verði ekki svona tfl ffambúðai Samt veit ég að þetta kemur ekki t með að hafa áhrif á það að meni haldi áfram að gera góða tónlisi Tónlistin nær út yfir gröf o dauða.“ „Búúúú,“ segir Sigurður mei draugalegum tilþrifum. Gunnar Hjálmarssoi Fjörug íljóð, gáskafullir gumar Laugardaginn 12. júní BOGOMIL FONT & MILLJÓ- NAMÆRINGARNIR Leika frá.kl. 23-03 GLANNABAR OPINN eftir einn ei aki neinn Aldurstakmark er 20 ár Snyrtilegur klæðnaður áskilinn Inngangseyrir 900 kr. HREÐAVATNSSKÁLI hjarta Borgarfjarðar Smaauglysingan Til sölu Til sölu BMW 316 ’82 í ágætisstandi. Út- varp + segulb. Verð 90.000 með afb. eða 78.000 stgr. Uppl. í síma 12707 og 626775. Til sölu______________________ gullfalleg þrennra dyra Honda Accord ’82, innflutt ’89, skoðuð ’94. Góðar Pioneer-græjur fylgja. Verð 210.000 eða 180.000 stgr. Uppl. í síma 612949 og 626775. Til sölu______________________ hvítur og blár Daihatsu Charade árg. ’87, skoðaður ’94, í mjög góðu standi. Ekinn 100.000 km. Góðar græjur fylgja. Verð 340.000 eða 315.000 stgr. Uppl. í síma 612949. Til sölu______________________ heimasmíðaður tjaldvagn, verð- tilboð. Murata-faxvél, verð 35.000. Tveir blautbúningar, stærð XL, verðtilboð. Gasbyssa og bogi, verð- tilboð. eldhúsborð og barnarúm, selst ódýrt. Óska eftir hjólbörum. Upp- lýsingar í síma 686101. Til sölu_____________________ gamall ísskápur (Kelvinator 117cm x 61cm) á gjafverði. Uppl. í síma 76952. Pétur Óskast_______________________ Óska eftir fjallahjóli til kaups. Uppl. í síma 71244 milli 13 og 16. Þorlákur. Til leigu____________________ 34 ffn einstaklingsíbúð við Lyng- haga. Verð kr 22.000 á mánuði. Uppl. í síma 12707 og 626775. Til sölu_____________________ Dodge Diplomat árg. 79. 2 dyra. Sjálfskiptur með 318 cyl. vél. Þarfnast lagfæringar. Verð 65.000 stgr. Uppl. í síma 625607.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.