Pressan - 08.07.1993, Page 24

Pressan - 08.07.1993, Page 24
VERST KLÆDDU ÞINGMENNIRNIR Flmmtudagurinn 8. júlí 1993 24 PRESSAN Vilhjalmur Egilsson hagfræðingur Fæddur 18. desember 1952. Bogmaður. Ummæli fólks: „Friðarhöfðinginn œtti að ganga betur í sveitavarginn en sléttpressaða Verslunar- ráðstýpan.“ „Laus við jakkafótin og frels- inufeginn. ÞettaerÉG.“ „Dásamlegur í gamla gœru- jakkanum. Auk þess sem hann yngist upp um mörg ár fer múnderingin honum langtum betur en þvœldu jakkafötin.“ Ljósmyndir: Jim Smart Stílisti: Friðrik Weisshappel hjá Frikka og Dýrinu í pólitík: Er hugsjónamaður i eðli sinu. Fáir hans likar láta opinberlega að sér kveða í stjórnmálum. Fatnaðun Næmt auga. Væri liklega sportlegur ef jakkafötin héldu honum 'ekki föngnum. Liklegur frami: í ferðabransanum. Bogmaðurinn er að öllu jöfnu forvit- inn, fróðleiksfús og félagslyndur og nýtur þess i botn að ferðast. Ingibjörg Solrön Gíslodöltlr sagnfræðingur Fædd 31. desember 1954. Steingeit. í pólitik: Óhagganleg loksins þegar hún er búin að gera upp hug sinn. Fatnaðun Líður best í lítt áberandi en vönduðum flíkum. Uklegur frami: I æðstu stjórnunarstöðum. Steingeiturnar una sér best á toppnum. Hrni M. Mathiesen dýralæknir Fæddur 2. október 1958. Vog. í pólitík: Rökræður, helst við sér froðari, koma honum á flug. Fatnaður: Hefur „tötsið". Líklegur frami: Með aðstoð annarra. (Er kominn af stjórnmálamönnum.) Eyðir of miklum tíma í vangaveltur um hvað það er sem knýr aðra áfram. Ummæli fólks: „Mathiesenmafían hefur eign- ast verðugan arftaka. “ „Rosalega svalur í mokkajakk- atium.“ „Töffari af guðs náð. Mœlt er tneð að hann kaupi dressið enda er það eitis og sniðið fyrir hann.“ „Þetta útlit kemur honum í fyrsta sœti í nœsta prófkjöri. “ Endurvinnsla þingheims Ummæli fólks: „Óneitanlegaglœsilegínýju múnderingunni.“ „Blómabam par excellance. “ „Freistandi útlitfyrirhugsanlegan borgarstjóra íReykjavík“ „Við hœfi íforsetaveislunum (efhúnþá mœtir).“ Vilhjálmur Egilsson sem mesta athygli vakti í myndatöku á götu úti, reyndar svo mikla að lá við nokkrum árekstrum á Laugaveginum og umferðaröngþveiti myndaðist. Hann var mjög fagmannlegur í íyrirsætustarfinu og kunni bara nokk- uð vel við sig í gömlu fötunum enda fullra sextán vetra árið 1968. f þingmannakönnun PRESSUNNAR í september í fyrra kom í ljós að það örlar fyrir vinstrisveigju hjá Vil- hjálmi. Því hann var einn fárra sjálfstæðisþingmanna sem hafði meira dálæti á John Lennon en Paul McCartney. Og bara til að koma því að þá reyndist uppáhaldsborg hans vera englaborgin Los Angeles. Árni M. Mathiesen tók sig yfirmáta vel út í „secondhand11 tískunni, rétt eins og hann hefði aldrei klæðst öðru. Hann reyndist þó íhaldssamur Paul McCartney aðdáandi í þessari sömu könnun. Ætíi uppáhaldslag hans, Hotel California með Eagles, segi þó ekki mest um hve ungur hann var á tímum hippatískunnar. Salome varð, ef eitthvað er, unglegri í fatnaði ffá þessum tíma. Hún var orðin fertug og íhaldssöm árið 1968. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir tók sig sérlega vel út í sixties klæðnaðinum, svo ekki sé meira sagt. Og hún stóð undir helstu væntingum í þingmannakönnuninni; aðhylltíst John Lennon og uppáhaldsplata hennar reyndist vera Exile on Main Street með Rolling Stones. Hún var þrettán árið ’68. Finnur Ingólfsson, sem einnig var þrettán ára ’68, er ósvik- inn Lennon aðdáandi og Margrét Frímannsdóttur var að vonum á sömu línu. Þar sem stjörnuspekipælingar voru eitt aðalsmerki ’68 kynslóðarinnar látum við nokkrar upplýsingar fljóta með um stjömumerki hvers og eins, hvaða eiginleikar ættu að nýtast þeim best í pólitík, hvernig hugsanlegt er að þessir þingmenn myndu ldæðast væm þeir ekki á hinum íhald- sama Alþingi og á hvaða starfsvettvangi öðrum þeir eiga mesta möguleika. Er eitthvert þeirra á rangri hillu í lífinu? Að auki fljóta með nokkrar athugasemdir fagmanna um „secondhand“ klæðaburð þeirra. Imyndum okkur að hvítt væri orðið svart, sólin kæmi upp í vestri og klæðnaður þingmanna á Alþingi íslendinga væri kominn út úr rígföstum skorðum hefðbundinnar jakkafata-, buxnadragta- og pilsastefnu. Þingmenn væru sjálfum sér og'eklheitum hugsjónum um umhverfismál samkvæmir og endurnýttu gömul föt í stað þess að fjárfesta sífellt í nýjum. Væru ekki margir tilbúnir til þess að greiða upppoppuðum þingmanni atkvæði sitt? Bara vegna flottu buxnanna sem hann var í þegar hann flutti framboðsræð- una eða vegna bleiku pífuskyrtunnar sem forsætisráðherr- ann íklæddist í beinni útsendingu á Stöð 2? Eða voru það kannski háu hælarnir hans sem heilluðu? Ef þingmennirnir væru upp til hópa tískufíklar mætti búast við að á herðatrjám Alþingis héngju í breiðum notað- ir gæru-, mokka-, galla- eða leðurjakkar, í stað síðra ryk- frakka. Og í stað þess að henda öllum pappír, endurnýttu þeir hann með því að búa til úr honum skutíur til þess að fleygja hver í annan, líkt og tíðkast meðal þingmanna í neðri deild hins íhaldssama breska þings, en það er önnur saga. Til þess að komast í kynni við götutískuna voru fengnir í leik með PRESSUNNI sex alþingismenn; þau Vilhjálmur Egilsson Sjálfstæðisflokki og flokkssystkin hans, Árni M. Mathiesen og Salome Þorkelsdóttir þingforseti, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kvennalista, Finnur Ingólfsson Fram- sóknarflokki og Margrét Frímannsdóttir Alþýðubandalagi. Því miður náðist ekki að höndla neinn Alþýðuflokksþing- mann, enda sennilega allir þingmenn þess flokks yfirmáta uppteknir af háum embættum sínum. Okkur þótti þannig sorglegra en tárum taki að fá i---1-: r_......inn Jón Baldvin Hanni- irmann Guðmund Áma með hippaband um höf- i hálsinn. Því má kannski iflinu. num ólöstuðum var það

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.