Pressan - 08.07.1993, Síða 39

Pressan - 08.07.1993, Síða 39
arg. «01^^ G G fmt n A l~™r ZrmMA m mK~ mm Hf mb mmmts WSmW' Jm mk mK hHÍ án HAFA SKAL Þ A Ð SEM BETUR HLJOMAR Magnús Skarphéðinsson úr allri útrýmingarhœttu ■ ■ A Reykjovik, 8. júli. „Skarphéðinsstoíhinn hefur verið í vissri útrýmingarhættu að undan- förnu og í ljósi stöðu minnar varð ég að grípa í taumana,“ segir össur Skarphéðinsson nýkrýndur um- hverfisráðherra Islands. Össur hefúr nú ákveðið að ffiða litla bróður sinn sem sumir segja að sé hinn síðasti sinnar tegundar og óvíst hvort hann nái að fjölga sér úr þessu. „Þegar menn eru í alvöru farnir að tala um að selja hann sem hrefnukjöt hjá Þorvaldi í Sælandi þá er nú fokið í flest skjól, þetta er nú eini sinni litli bróður minn. Ég tók hann ekki alvarlega fyrst þegar hann sagði að síminn hans væri hleraður, njósnarar á hælum hans og erlendir agentar sætu um líf hans. Nú eru samlandar hans hins vegar famir að lemja hann, elta hann upp á gang- stétt til þess að keyra hann og vilja nú síðast bita hann niður í pylsur,“ sagði Össur. Litli bróðir var að vonum hæst- ánægður með tíðindin þegar GP náði sambandi við hann. „Ég vissi að það kæmi sér vel að hafa fjöl- skylduna ráðandi í ráðuneytinu. Nú þarf ég bara að koma stefnumálum mínum í framkvæmd varðandi ffiðun músa, vínbeija og mygluosta sem eru náttúrlega helgir eins og annað líf á jörðinni,“ sagði Magnús litli bróðir. Kvartað yfir starfsháttum þýskrar gæslukonu Bossarnir hans Friðriks blána undan vandarhöggum Volroskógi, 7. júlí. „Sessir jungu sstrákar thekkja engin díssíplín“, segir hin þýskætt- aða fföken Hildegard Sturmwasser, nýráðin gæslukona í Vatnaskógi. Hún er sannfærð um að eina leiðin til að koma íslenskum ungmennum til manns sé að berja úr þeim lin- kindina. Hún segir séra Friðrik Friðriksson hafa farið alltof blíðum höndum um drengina, nú þýði ekkert annað en vöndurinn á bera bossana. „Við fáum bara sáerkrát og bratv- úrst að éta og hún rekur okkur á fætur klukkan sex á morgnanna. Þá erum við skrúbbaðir bak við eyrun og megum síðan hlaupa naktir hring eftir hring til hádegis en þá lesum við Mein Kampf og predik- anir Lúters með gotnesku letri,“ segir Álfur Engilbert eitt fórnar- lamba fföken Hildegard. Forráðamenn sumarbúðanna segja ráðningu Sturmwassers ein- ungis tímabundna tilraun í því skyni að koma á aga meðal drengj- anna. „Við sáum hvernig fór í Þjórsárdalnum og lítum á þetta sem fyrirbyggjandi aðgerðir. Eitthvað verður að gera,“ segir Kristleifur Krossmann formaður KFUM. Arfavillausir Selfyssingar ganga hart að starfsmanni bæjarins „Eg ætlaði ekki að drepa hana“ Selfossi 7. júli Sorphirðir Selfoss Steingrímur Jósafatsson jr var hætt kominn um helgina er morðóðir nágrannar hans réðust að honum með kylfum og heygöfflum. Lagskona sorphirðisins Magdal- ena Schiöth sem hafði fyrirhugað að eyða helginni í faðmi ástmanns síns, varð frá að hverfa er nábúarnir gerðu hróp að henni og hótuðu að kála henni ef hún kæmi sér ekki aft- ur til Reykjavíkur. „Þetta var allt út af skjaldböku sem hafði lagst út og sofnað við ruslatunnumar hjá Sveini smið. Ég gerði mér bara alls ekki grein fýrir því að dýr af þeirri tegund legðust í dá og vöknuðu svo nokkrum mán- uðum seinna. Mér fannst hún vera steindauð og hirti hana með rusl- inu. Það var svo ekki fyrr en á laug- ardagskvöldið að við urðum vör við háreysti hér í garðinum. Þá sá ég að Sveinn hafði safnað saman félögum sínum úr Trésmíðafélagi Suður- lands og vom þeir all-vígalegir. Ég slapp með skrekkinn og mun reyna að haga mér betur í framtíðinni“ sagði Steingrímur að vonum hvekktur eftir aðförina, en hyggst mæta bæjarbúum vopnaður ef þeir láta sjá sig aftur. STEINGRÍMUR JÓSAFATSSON JR Fyrir framan heimili sitt. Hann hefur nú kosið að vígbúast eftir atburði helg- arinnar. GETUM EKKI LATIfl ÞETTA SPYRJAST segir Magnús Jónsson drykkjumadur um minnkandi áfengisneyslu ísl Hann lofar maraþondrykkju Arnaíhóli, 8. júlí. „Mér líst ekkert á það að drykkja íslendinga skuli fara minnkandi. Þetta var allt á góðu róli árið sem bjórinn var leyfður. Mikið drukkið og gaman að vera til. Síðan hefúr þetta allt dalað aftur. Við get- um ekki látið þetta spyrjast um okkur,“ segir Magnús Jónsson, en hann hefur ákveðið að hefja maraþon- drykkju til að hækka meðaltal áfengisneyslunnar og hvetur áhugamenn um vínmenningu á Islandi til að fylgja fordæmi sínu. „Ég hef nú aldrei verið lé- legur við sopann, en nú hef ég ákveðið að drekka stanslaust til að bjarga heiðri okkar manna. Þeir sem vilja hvetja mig eða taka þátt í þessum að- gerðum geta komið heim til mín á Smáraflötina, en þar hef ég komið mér upp fínni að- stöðu. Skál krakkar.“ irmun ua netur Komio ser upp aöstoðu heima hja ser a smaratlotinni þarsem maraþonið fer fram. Sveinn Andri Sveinsson býður sig fram sem borgarstjóraefni Sveinn Andri næsti borg- arstjóri? Höfðo, 7. júli._ sem hann á skilið. Ég mun í hvergi hvika frá settu „Éghefákveðiðaðbjóða marki og legg óhræddur mig fram enda finn ég fyrri störf mín fram til mikinn stuðning við per- sönnunar á ágæti mínu.“ sónu mína,“ segir Sveinn Andri Sveinsson borgar- fulltrúi sem hefur stýrt SVR undan- farin misseri undir kjörorðinu: Færri en dýrari ferðir í einkavæddu um- hverfi til sparnað- ar. „Ég tel það skyldu mína sem upprennandi leið- toga innan Sjálf- stæðisflokksins að leita eftir stuðningi til þess erfiða verk- efnis að leiða flokk- inn í næstu kosn- ingum. Það þarf ungan og myndug- an strák til þess að vega flokkinn til þeirrar virðingar SVEINN ANDRISVEINSSON „Fjölmargir hafa rætt við mig og telja mig einu færu leiðina út ur þeim úgöngum sem flokkurinn hefur komist í undir stjóm Krúsa."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.