Pressan - 29.07.1993, Side 2
FYRST OG FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
STEINGRÍMUR HERMANNSSON Nýja félagshyggjublaðið er að komast á kopp-
inn og Framsóknarflokkurinn býður 5 milljónir. ÓLflFUR RAGNAR GRÍMSSON
Alþýðubandalagið er mjög áhugasamt en heldur að sér höndum á meðan
meira hlutafé er safnað
Nýit félags-
hyggjublað___________
Hlutafjársöfnun vegna fyr-
irhugaðra breytinga á Tíman-
um er nú í fullum gangi og
hafa þegar safhast rúmlega 17
milljónir af þeim 25 sem
stefht er að. Halda átti opinn
hluthafafund í Mótvægi hf.
um málið í dag en honum var
frestað um óákveðinn tíma,
vegna „formgalla", að sögn.
Raunveruleg ástæða var sú að
meiri hlutafjárloforð vantaði
og stóðu yfir viðræður við
ESSÓ, VÍS og fleiri fyrirtæki.
Það eru einkum starfsmenn
Tímans sem standa á bak við
söfhunina og hafa Ágúst Þór
Ámason, fyrrum starfsmaður
útvarpsins, og Stefán Ás-
grímsson, fféttastjóri Tímans,
verið þar framarlega í flokki.
Lögð hefur verið áhersla á að
einstaklingar ættu sem stærst-
an hlut í blaðinu og hafa fjöl-
margir keypt hluti upp á 10
þúsund krónur eða 100 þús-
und krónur. Þannig hefur
Steingrímur Hermannsson
skráð sig fyrir 100 þúsund
króna hlut en hann hefur
einnig unnið talsvert að mál-
inu. Reyndar hefur hann verið
svo áhugasamur að menn eru
famir að óttast áhrif hans inn-
an blaðsins.
Flokkarnir slásl í
Mótvægi
f hinu nýja félagshyggju-
blaði á hlutur stjórnmálaafla
ekki að vera stærri en 20 pró-
sent, fimm milljónir, og hefur
Framsóknarflokkurinn og
tengdir aðilar þegar lofað því
fé. Hins vegar er mikil áhersla
lögð á að fá fleiri stjómmálaöfl
í spilið og ef það tekst mun
hlutur Framsóknarflokksins
minnka sem því nemur. Eink-
um hafa alþýðubandalags-
menn sýnt málinu áhuga og
hafa hugleitt að hætta útgáfu
Vikublaðsins. Þá vilja þeir
tryggja áhrif sín á stefnu
blaðsins og hefur nokkurs titr-
ings gætt vegna þess. Hafa
Tímamenn reynt að fá al-
þýðuflokksmenn en einkum
þó kvennalistakonur til liðs
við sig og vonast til þess að
konurnar yrðu mótvægi við
alþýðbandalagsfólk. Alþýðu-
flokkurinn mun ekki ætla sér
að tengjast blaðinu og
Kvennalistinn vill ekki setja
peninga í það. Nokkuð margir
einstaklingar sem tengjast Al-
þýðubandalaginu ætla að
leggja inn hlutafé og einnig
nokkrar kvennalistakonur.
Ritstjóraefni hins nýja blaðs
eru sem fyrr Þór Jónsson,
blaðamaður í Svíþjóð og Jón
Ásgeir Sigurðsson. Það er
einkum Steingrímur Her-
mannsson sem hefur augastað
á honum.
Frægðin fesl á
filmu_______________
Af einhverjum ástæðum
finnst sumum Islendingum
það vera mikil upphefð að
þekkja heimsfrægt fólk. Einn
þeirra er Lilja Skaftadóttir.
Hún hefúr haft kynni af kvik-
myndaleikaranum Anthony
Quinn í gegnum vinnu sína,
en Lilja rekur bronssteypu-
verkstæði ásamt „unnusta“
sínum Leonardo Benatov í
nágrenni Parísar. Quinn ku
vera afkastamikill mynd-
höggvari og leitar á verkstæði
Lilju og Leonardos til að láta
gera afsteypur af höggmynd-
unum sínum. Lilja lætur sér
greinilega ekki nægja að hitta
kappann annað slagið. Hún
hleypur með það í blöðin á Is-
landi að þau séu vinir. En ekki
nóg með það heldur grípur
hún gjaman myndbandsupp-
tökuvélina þegar Tony kíkir í
kaffi og festir atburðinn á
filmu. Traustar heimildir
PRESSUNNAR herma að hún
eigi þegar allstórt safn af spól-
um með kappanum. Lilja ger-
ir minna úr kynnum sínum af
öðrum ffægum viðskiptavin-
um sínum, eins og Ásmundi
Sveinssyni og Auguste Rod-
in. Það er ekki undarlegt því
báðir voru farnir yfir móðuna
miklu síðast þegar PRESSAN
vissi.
Heimildarmynd
um Bubba____________
Það hefiir ekld farið hátt en
þessa dagana er verið að vinna
að 40 mínútna heimildar-
mynd um söngvarann þjóð-
kunna Bubba Morthens. Það
er Guðmundur Þórarinsson
(Mummi) og kvikmyndafýr-
BYKO SELUR LÖDUR
Rússneskt timburflutningaskip
liggur við landfestar í Hafnarfirði
en á bakkanum standa Lada bif-
reiðar sem BYKO hefur keypt
og hyggst flytja út til Rússlands.
Sigurður E. Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá BYKO, vildi
sem minnst gera úr þessum við-
skiptum fyrirtækisins í samtali
við PRESSUNA, eða eins og hann
orðaði það: „Við viljum halda
low-profile á þessu.“ Þó sagði
hann Ijóst að einhverjir bílar
færu út á þeirra vegum en neit-
aði því alfarið að hér væri um
vöruskipti að ræða en eins og
margir vita flytur BYKO inn mik-
ið af timbri frá Rússlandi og þar í
landi er mikil eftirspurn eftir
varahlutum í þessum bfla.
Talsverður markaður hefur
myndast hér á landi með illa
farna rússneska bíla og sumir
Lödu-eigendur hafa hreinlega
kvartað undan aðgangshörðum
rússneskum togarasjómönnum
sem vilja óðir og uppvægir kom-
ast yfir bflana þeirra. Rússarnir
eiga ekki mikinn gjaldeyri og
hafa því oft á tíðum boðist til að
borga fyrir bílana með rúss-
nesku vodka. Þeir sem glöggt til
þekkja á þessum markaði segja
þá BYKO-menn hafa keypt fjöld-
ann allan af bflum upp á síðkast-
ið. Þeir bjóða þó ekki vodka sem
greiðslu heldur staðgreiða þá alla
í beinhörðum peningum.
Lödurnar á hafnarbakkanum bíða þess að komast aftur heim.
irtækið Út í hött, inn í mynd
sem sér um gerð myndarinn-
ar. Þetta er í íyrsta sinn sem
gerð hefur verið heimildar-
mynd um íslenskan poppara
og verður affaksturinn sýndur
í Rikissjónvarpinu í vetur.
Það er annars af Bubba að
segja að hann hefúr nú snúið
sér til Skífunnar með útgáfu
tónlistar sinnar eftir að hafa
átt í mikilli rimmu við Steinar
Berg og er ný afúrð væntanleg
um jólin. Á nýju plötunni sem
nefnd hefur verið: Lífið er ljúft
bregður fyrir mexíkóskum
takti og er platan að sögn
kunnugra í mildari kantinum,
mikið um tilfinningar og eng-
inn áróður. Meira að segja
Steinar sleppur alveg.
Launsonur Pava-
rottis til landsins
Hið ótrúlega er satt. Vænt-
anlegur er til landsins í lok ág-
úst Mario nokkur Adamaja.
Á hann væri litið eins og
hvem annan Guðjón ef hann
væri ekki sonur pabba síns,
hins heimsffæga tenórsöngv-
ara Luciano Pavarotti. Piltur-
inn Mario sem er 25 ára og
ber aldurinn nokkuð vel að
sögn kunnugra, hefúr reyndar
ekki mikið haff af föðurmynd
sinni að segja enda ólst hann
upp hjá móður sinni í Barce-
lona á Spáni og ber nafn
hennar. Aftur á móti er
drengurinn liðtækur tenór,
eins og pabbi, og hyggst sýna
landsmönnum getu sína á
söngsviðinu hvort sem er í
einkasamkvæmum eða á veit-
ingahúsum. Annars er Mario
þekktastur fyrir að vera
glaumgosi og ástæða þess að
hann er væntanlegur hingað
er sú að hann kynntist íslensk-
um gleðimönnum í heima-
borg sinni og vill rækta tengsl-
in við þá. Við bíðum spennt
eftir að launsonurinn hefji
upp raust sína.
Rigningardans
gegn veöurguö-
um__________________
Mótshaldarar útihátíða hafa
undanfarið keppst við að laða
til sín tilvonandi gesti á uppá-
komur sínar. Auk þess að
auglýsa dagskrá sína grimmt
hafa þeir verið staðnir að því
að beita brögðum til að ná
markmiði sínu. Aðstandend-
ur hátíðarinnar að Eiðum
hafa til dæmis verið afar séðir
og fengu til liðs við sig Somp
Noh Noh, indíána af herská-
um ættbálki, til að stíga rign-
ingardans með það fyrir aug-
um að veðurbliðan, sem gætt
hefur hér sunnanlands, tæki
stefnuna austur. Ekki lét ár-
angurinn á sér standa og strax
næsta dag fór að rigna á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, jafnvel
þótt spáin hefði verið önnur.
Einnig hafa þeir farið þess á
leit við Axel Rose, söngvara
Guns N’ Roses, að hann komi
hingað til lands og opni hátíð-
ina á Eiðum. Mun hann vera
hrifinn af hugmyndinni en
hefur ekki gefið endanlegt
svar ennþá. Hljómsveitin Jet
Black Joe spilar einnig á há-
tfðinni en hún er nýkomin
heim ffá Danmörku þar sem
þeir spiluðu á Midfýn Festival
fyrir 45.000 gesti, en þar var
Lenny Kravitz meðal annars
eitt aðalnúmerið. Islenska
hljómsveitin fékk víst glimr-
andi dóma í dönsku press-
unni en fleiri vöktu athygli því
að rótari hennar, Þorsteinn
Kragh, fékk atvinnutilboð ffá
hinum fræga söngvara, Ro-
bert Plant, sem hann þó þáði
ekki.
Ólafur Arnarsson
á Sföö 2______________
Við sögðum frá því um
daginn að Ólafúr Amarsson,
fyrrum aðstoðarmaður
menntamálaráðherra, væri
sterklega orðaður við starf á
Stöð 2 þegar hann léti af störf-
um í ráðuneytinu. Þetta er nú
komið á daginn og mun Ólaf-
ur á allra næstu dögum taka
til starfa á Stöðinni. Hann
verður þó að líkindum ekki
fastur starfsmaður, heldur
tekur að sér einstök verkefni
sem tengjast öllum deildum,
en þó einkum það sem lýtur
að fjármálunum.
LlUA SKAFTADÓTTIR Anthony Quinn er filmaður í bak og fyrir þegar hann birtist. GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON Gerir heimildarmynd um Bubba. BUBBIMORTHENS Steinar Bere sleppur á nýrri tiHinn-
ingaþrunginni plötu. MARIO ADAMAJA Launsonur stórsöngvarans Pavarottis syngur á íslandi. PÁLL RÓSINKRANZ Regndansinn dunar og rótarínn fær tilboð frá Robert Plant. OLAFUR ARNARSSON Víst
fékk hann vinnu á Stöð 2.
UMNIÆLI VIKUNNAR
„Nú,jœja, sunnudagssteikin farin þar.
Bryndís Schram, kjötœta.
Ellipopparar koma á óvart
„Auðvitað er Mick Jagger bara manneskja eins og við hin.'
Þorgeir
Ofurmenni í EFTA
„Ráðherrar og fastafúlltrúar EFTA eru samvalin
sveit og ég gæti trúað að svipaður andi ríkti hjá
fallhlífarstökkvurum eða sérsveitum hjá lögregl-
unni.“
Jón Baldvin Hannibalsson, siöapostuli.
Stiórnmálaspilling
„Að vera í réttum flokH á réttum tíma hef-
ur úrslitaáhrif á hverjir hljóta embætti og
hverjir verða utanveltu í stöðuveitingum.“
Oddur Ólafsson, aöstoöarritstjóri Tímans.
Sérmerktu morgunslopparnir
hennar Jane Fonda
„Þeir geta þá nýst í gufubaðið."
Páll Magnússon, fúllyndur laxveiölmaöur
Fjoldamorðmginn Svauar Gestsson
„Málflutningur Svavars er ein grófasta tilraun ti
mannorðsmorðs að yfirlögðu ráði sem íslensk
þingsaga þekkir.“
Hrafn Gunnlaugsson, bitlingur
Jóker í hópi stjórnmálamanna
„Það er gott að vera jóker í kanasta.“
Davíö Oddsson, jóker
Þorgeir Astvaldsson, heimspekingur.