Pressan - 29.07.1993, Qupperneq 6
M E N N
6 PRBSSAN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
ck 4
Meiríhluti bæjarráös Kópavogs
hefur lýst sig fylgjandi því að
byggja golfvöll í Fossvogsdal.
Minnihluti ráösins vildi þess í
staö útbúa útivistarsvæöi í
dalnum. Það vekur athygli aö
hér er um þverpólitískt mál aö
ræöa og sýnist sitt hverjum,
óháö því hvar í flokki þeir
standa.
aðskildu frá annarri urnferð.
Þannig að ég held að þetta sé
hið besta mál.“
Gísli Halldórsson, arkitekt:
„Mér finnst það ágæt ráðstöf-
un að byggja golfvöll. Golf-
völlur er víðast hvar hluti af
útivistarsvæði þannig að ef vel
er að honurn búið á hann að
geta glatt alla sem um dalinn
fara. Það er allur almenningur
farinn að spila golf. Allt frá
ungum börnum, 10 ára með
foreldrum sínum, upp í minn
aldur og allt þar á milli. Golfið
er að verða fjölskyldusport
þannig að það er mikil fram-
tíð í því íyrir allan fjöldann að
nota það til hreyfingar og úti-
vistar.“
Nýrnastei nsbr jótu ri n n sem Landspítalinn keypíi
Keyptu lúxustæki
og eru stoltir af því
Á að byggja golfvöll í Fossvogsdal?
Birgir Dýríjörð, rafvirki: „Ég
óttast banvæna kúlnahríð.
Málið er það að við erum ekki
að eyða milljörðum í að grafa
niður hraðbraut til þess að lít-
ill einkaklúbbur geti fengið
landið til að leika sér á. Það
tilheyrir lénstímanum að ör-
lítill hópur útvalinna helgi sér
þá unaðsreiti sem til eru og
reki almenning í burtu. Slíkir
starfshættir eru ekki stundaðir
í dag. Þetta er eitt af fáum úti-
vistarsvæðum sem eftir eru á
höfuðborgarsvæðinu og það
gengur ekki að hann sé látinn
til einkaafnota fyrir lokaðan
klúbb.“
Sr. Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur: „1 mínum
huga er Fossvogsdalur fyrst og
fremst útivistarsvæði fyrir al-
menning og ég held að öll sér-
afmörkun á dalnum þrengi
svolítið að almenningi. Ég ótt-
ast að einhverjar sérbrautir og
annað sem fylgir golfvelli yrði
ekki mjög vinsælt af öllum því
þeir sem eru að spila golf eru
ákveðnir með sitt og vilja
halda sínu, eins og eðlilegt er.
Ég held að slíkt fari ekki mjög
vel saman við óskir almenn-
ings. Hins vegar get ég séð fyr-
ir mér einhvers konar pútt-
völl, styttri brautir sem væru
meira til almenningsnota og
heilu fjölskyldurnar gætu tek-
ið þátt í að nota. Mér litist vel
á það. Ég set hins vegar stórt
spurningarmerki við keppnis-
golfvöll eða stærra svæði.“
Þráinn Hauksson, landslags-
arldtekt: „Nei, ég get ekki fall-
ist á það. Ég held að það
myndi rýra tækifæri almenn-
ings til útivistar og mér finnst
þetta svæði of þröngt. Foss-
vogsdalurinn er eitt af þeim
svæðum á höfuðborgarsvæð-
inu sem gefur möguleika á að
mynda samhangandi útivist-
arsvæði eða græna leið í borg-
inni. Hjá Reykjavíkurborg er
verið að vinna að verkefni
sem kallast; frá fjöru til heiða,
þar sem gért er ráð fýrir sam-
hangandi gönguleið eftir Æg-
issíðu, fyrir flugbraut, út í
Fossvog, upp Fossvogsdal út í
Elliðaárdal og upp í Heið-
mörk. Þetta mundi í sjálfu sér
ekki slátra þeirri hugmynd en
nú þegar er búið að þrengja
að öllum möguleikum í Foss-
vogsdal, til dæmis með Vík-
ingssvæðinu.“
Júlíus Sólnes, verkfræðingun
„Já, ég er eindreginn stuðn-
ingsmaður þess, það fer ekki á
milli mála. Það eru einfaldlega
það margir sem hafa gaman af
golfíþróttinni og þetta gæti
orðið til þess að ennþá fleiri
gætu notið þess að læra svolít-
ið golf og hafa gáman af því.
Ég tel þar fyrir utan að þetta
geti vel farið saman við úti-
vistarsvæði. Ég hef séð það
víða erlendis að það þarf ekki
endilega að halda þessu alveg
1
£
Kristinn Haraldsson rótari
Hintt ómissandi
Kristinn Haraldsson er ekki
kallaður Kiddi rót að ástæðu-
lausu.
Kiddi er nefnilega ekki að-
eins gamall rótari popphljóm-
sveita, heldur hefur hann
kornið ótrúlegu róti á þjóðlíf-
ið. Hann er ekki einungis
helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinn-
ar og hraðmethafi á Reykja-
nesbrautinni, heldur einn
rnesti vímuefnasérfræðingur
þjóðarinnar.
Sem hefur fleytt honum á
toppinn í Alþýðuflokknum.
Kiddi rót var enginn venju-
legur einkabílstjóri utanríkis-
ráðherra. Hann hefur hafið
bílstjóradjobbið í áður
óþekktar hæðir embættis-
mannakerfisins. I dag hugsa
gráðugustu karríeristarnir í
stjórnkerfinu sig tvisar um
þegar þeim stendur til boða
bílstjóraembætti utanríkisráð-
herra eða ráðuneytisstjóra-
staða. Menn hafa nefnilega
uppgötvað að Kiddi rót hefur
náð meiri frægð og völdum en
venjulegir ráðherrar. Enda
hefur sjálfur utanríkisráðherra
að mestu fallið í skugga síns
þjóðþekkta sjófförs.
Þegar Kiddi rót er ekki ná-
lægur fer allt fjandans til. Sem
sannaðist best í Leifsstöð um
daginn þegar utanríkisráð-
herrafrúin var handsömuð
með hráar svínalundir sem
hún af sinni alkunnu greið-
vikni hafði slengt á kerru
utanríkisráðherra fyrir vin-
konu sína. Nú er það svo, að
utanríkisráðherrahjónin eru
með rauða passa sem þýðir að
tollgæslumenn horfa alltaf til
hliðar þegar þau strunsa í
gegn.
Kiddi rót þarf engan rauðan
passa. Honum standa öll
líindamæri opin. Hvar sem
Kiddi mætir, beygja sig ent-
bættismenn, almúgi og þjóð-
höfðingjar í þögulli lotningu.
Leifsstöð er engin undantelut-
ing. Um leið og Kiddi sýnir sig
með töskur, pakka og pinkla
ráðherrahjónanna, taka toll-
þjónar ofan húfurnar, lúta
höfði og benda rótaranum að
skeiða óhindrað í gegn.
Eins og önnur stórmenni
þarf Kiddi rót leyfi frá önnum
til að geta teygt úr sér milli
stórra verka. Það er alkunna
að þjóðarvandinn eykst þegar
leiðtogar ríkja hverfa í sumar-
leyfi. Kiddi er engin undan-
tekning: Ekki fyrr hafði hann
brugðið sér frá en utanríkis-
ráðherrahjónin, og reyndar
þjóðin öll, voru komin í hið
mesta klandur.
Eitthvert nóboddí var látið
keyra suður á Leifsstöð og ná í
töskur ráðherrahjónanna með
þeim afleiðingum að mann-
væskillinn var tekinn í tollin-
um og svínalundir vinkon-
unnar einnig. Tollararnir
þekktu vitanlega hvorki nó-
boddíið eða ráðherrahjónin.
Til að bæta gráu ofan á svart
horfði athugull ferðamaður
með tengsl í landbúnaðar-
ráðuneytið á uppákomuna.
Og þá var ekki að sökum að
spyrja: Pressan og Stöð 2 voru
komin í málið.
Allt vegna þess að Kiddi rót
var ekki á staðnum.
Framhaldið þekkja allir.
Landbúnaðarráðherra fram-
kvæmdi sitt fýrsta embættis-
verk á ferlinum, hringdi í yfir-
dýralækni og skipaði honum
að passa betur upp á umferð á
hráu kjöti um Leifsstöð.
Yfirdýralæknir, sem sam-
kvæmt hefð og skilgreiningu
er lögreglustjóri Framsóknar-
bænda, kom fram í sjónvarpi
og sagði yfirvegað að hann
sem dýralæknir gerði engan
greinarmun á ráðherrum og
venjulegu fólki. Sem þjóðinni
þótti ansi snjöll ummæli. Hins
vegar ætlaði hann að beita sér
fýrir mikilli fræðslu- og kynn-
ingarherferð gegn hráu kjöti.
Sennilega verður næsta skref
embættisins að banna farfugl-
Kaup Landspítalans á nýj-
um nýrnasteinsbrjót hafa vak-
ið eftirtekt enda dýrt og mjkið
tæki. Verð tækisins er nálægt
60 milljónum króna og verð-
ur það sett upp á Landspítal-
anum 7. september næstkom-
andi. Um er að ræða tæki af
Stortz gerð frá framleiðanda í
Sviss.
Tæki sem þetta hefur ekki
áður verið til hér á landi en
það brýtur nýrnasteina með
hljóðbylgjum. Hing-
að til hafa sjúklingar
með nýrnasteina
þurft að fara úr landi
til að fá bót meina
sinna en nú verður
breyting á.
Gagnrýnisraddir
hafa heyrst vegna
þessarar ákvörðunar
Landspítalans — því
hefur verið haldið
fram að spítalinn
hefði getað keypt 20
milljónum króna
ódýrara tæki sem
læknisfræðilega gerði
það sama. Einnig
hefur verið haldið
fram að ekkert hinna
Norðurlandanna hafi
leyft sér þann munað
að kaupa slíkt tæki.
Þessu neitar Krist-
ján Antonsson inn-
kaupastjóri Ríkisspít-
alanna harðlega.
Kristján, sem sat í
nefriclinni sem ákvað
að kaupa tækið, segir
að það sé fært um að
leysa öll nýmasteina-
vandamál sem mörg
hinna tíu tækja sem
boðin voru hefðu ekki getað
gert. Það hefði verið niður-
staða innkaupanefndarinnar
að þurft hefði að kaupa leiser-
tæki með, til að vinna á tilvik-
um sem ódýrari tækin hefðu
ekki unnið á. Að teknu tilliti
til þess hefði verðið orðið það
sama eða jafnvel hærra. Sagði
Kristján að það hefði verið
metið svo að rétt væri að
kaupa tæki sem gæti afgreitt
öll tilvik fljótt og vel. Einnig
sagði hann að svona tæki
hefði verið keypt á spítala í
Danmörku en um væri að
ræða nýja framleiðslu sem
seldist mikið, víða um heinr.
Nýting á tækinu verður
ekki mjög mikil en forráða-
menn spítalans gera ráð fyrir
að það sé í notkun tvo til þijá
daga í viku. Aðrir segja að nóg
sé að kveikja á því hálfan dag í
viku, tilvik sem þessi séu sem
betur fer ekki fleiri.
- En þýða þessi tækjakaup að
við erum enn á jýrsta farrými í
læknisfrœðinni?
„Það sem við gerum gerum
við eins vel og við getum.
Ákvörðunin var tekin að vel
ígrunduðu máli miðað við
þau viðmið sem eru tiltæk í
dag. En auðvitað er hægt að
vefengja allar ákvarðanir ef
menn vilja það“, sagði Krist-
ján.________________________
Siguröur Már Jónsson
ana..
Og allt er þetta Kidda rót að
kenna. Sumir menn eru ein-
faldlega ómissandi. Eða eins
og vinkona Bryndísar orðaði
það þar sem hún stóð og
horfði með eftirsjá á eftir
svínalundunum: „Bara ef
Kiddi hefði verið hér, þá hefði
þetta allt farið í steik!“
ÁLIT
BIRGIR
DÝRFJÖRÐ
JULIUS
SÓLNES
GÍSLI
HALLDÓRSSON
mæri opin.
Hvar sem Kiddi
mœtir, beygja sig
embœttismenn,
almúgi ogþjóð-
höfðingjar í þög-
ulli lotningu. “
Sr. PÁLMI
MATTHÍASSON
„Kiddí rót þarf
engan rauðan
passa. Honum
standa öll landa