Pressan - 29.07.1993, Side 8
8 PRESSAN
F R ÉTT I R
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
Ættardeilur í Laxdælustíl í Dalasýslu
BÆNDUR FLJUGAST A
Allir fjölskyldumeðlimir eru þátttakendur í átökum sem fela í sér grjótkast, eyðileggingu girðinga, vegtálma og voðaakstur á dráttarvélum.
Lögreglan í Búðardal er nú með í rannsókn
átök sem áttu sér stað á brúnni yfir Kjall-
aksstaðaá á Fellsströnd í Dalasýslu ný-
lega, með þeim afleiðingum að tvö börn og
fullorðinn maður hlutu líkamlega áverka.
Þeir sem hér eiga hlut að máli eru Agnar
Guðjónsson bóndi á Harastöðum og Ólaf-
ur Pétursson, bóndi í Galtartungu. Sá fyrr-
nefndi er um fimmtugt en sá síðari nálægt
sextugu. Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er þetta atvik á brúnni aðeins eitt í
röð margra slíkra milli fjölskyldna þessara
bænda og á málið sér langa forsögu.
Brúin yfir Kjallaksstaðaá
liggur á milli bæja deiluaðila.
Átökin áttu sér stað eftir að
þrítugur sonur Ólafs, sem
hafði unglingspilt með sér,
lagði bíl sínum á brúnni.
Skömmu síðar kemur Agnar
akandi þar að með níu ára
dóttur sína og fjórtán ára son-
ur hans í kjölfarið á dráttarvél.
Agnar taldi að um fyrirsát á
brúnni væri að ræða en Ólaf-
ur segir son sinn hafa verið að
líta eftir laxi. Afltaðeinu hófust
átök í formi grjótkasts og
sparka með ofangreindum af-
leiðingum. Til eru ljósmyndir
af atburðinum sem dóttir
Agnars tók en lögreglan hefur
þær nú sem gögn í málinu og
má vænta niðurstöðu í lok
vikunnar, að sögn Sigurvalda
Guðmundssonar varðstjóra í
Búðardal.
Laxdæla hin síöari
Ljóst er að hér er ekki um
einstakt mál að ræða í sam-
skiptasögu þessara tveggja
fjölskyldna og ber hún nokk-
urn keim af því sem menn
áttu að venjast í Dalasýslu á
tímum þeirra Kjartans og
Bolla úr Laxdælu. Forsaga
málsins er sú að faðir Agnars
var eigandi að Harastöðum og
var þeim feðgum ekki vel til
vina. Því til vitnis er lýsing
heimildamanns PRESSUNN-
AR sem segir að þeir hafi verið
staðnir að átökum og Agnar í
þann mund að kyrkja föður
sinn.
Þegar faðirinn fellur ffá fær
Agnar ekki jörðina heldur var
hún föl og nýtti Fellsstrandar-
hreppur sér forkaupsrétt. í
ffamhaldinu fær Agnar að búa
á jörðinni en ekki er ljóst
hvort einhver leigusamningur
var gerður. Þar sem landið er
illbyggilegt fékk Agnar að hafa
fénað sinn á beit í Ytrafelli
sem var að hluta í eigu Ólafs
og bræðra hans, Jóhanns
oddvita og Þorsteins Pétur-
sona. Þeir bræður voru Agn-
ari einnig hjálplegir með ann-
að sem til þurfti, svo sem hey-
bagga, tæki og tól. Sérstaklega
var þeim Þorsteini og Agnari
vel til vina.
Klippti á giröingar
Þegar Þorsteinn fellur frá
vorið 1989 dregur úr velgjörð-
um við Agnar og upp úr því
fara deilur að magnast. Málið
snýst aðallega um Ytrafellið.
Þar hafði Agnar fengið að nýta
tún fyrir kindur og kálfa en
það eitt mun Agnar ekki hafa
sætt sig við. Ólafúr segist hafa
verið tilneyddur að reka fénað
Agnars margsinnis af sinni
jörð en Agnar mun jafrióðum
hafa klippt á girðingar og
KJALLAKSSTAÐiR Á þessum slóðum áttu síðustu átök stríðandi sveitunga sér stað.
hleypt því inn aftur.
Ólafur og oddvitinn bróðir
hans, Jóhann, eru störýrtir
þegar þeir ræða um lunderni
Agnars og segja honum í engu
treystandi. Þeir bræður kvarta
báðir yfir því að Agnar hafi
engan rétt til að búa á Hara-
stöðum þar sem hann borgi
ekki gjöld af jörðinni og borgi
t raun engum eitt né neitt.
Ennfremur telja þeir jörðina
óbyggilega.
Hirti gleraugun
Svo virðsist sem hreppur-
inn sé engan veginn nógu stór
til að rúma þá báða, Ólaf og
Agnar, enda ákaflega skap-
miklir menn að sögn nábúa
þeirra. Kærur hafa gengið á
víxl þeirra á milli undanfarin
ár, og ekki er óalgengt að þeir
komi fyrir vegartálmum víða
um sveitina til að hefta ferðir
hvor annars. Einnig hefur
PRESSANþ að eftir heimildar-
manni úr Búðardal að oftar en
einu sinni hafi komið til átaka
milli bamanna á Harastöðum
og Galtartungu. Á báðum
bæjum eru drengir á ferming-
araldri og yngri sem ósjaldan
aka ólöglega um þjóðvegina á
dráttarvélum. Þessum tækjum
mun stundum hafa verið beitt
í átökum drengjanna.
Ólafur hefúr staðfest að til
handalögmála hafi komið
milli hans og Agnars og til
vitnis um það er Jóhann odd-
viti. Agnar mun þá hafa ráðist
á Ólaf og hirt af honum gler-
augun, sem Ólafúr segist fyrst
hafa sett upp árið 1972 og
fengið að hafa í friði allt fram
til þessara átaka. Gleraugun
hefur hann ekki séð síðan.
Skítamál
Margir Dalamenn hafa
áhyggjur af þessum deilum og
telja þær sveitinni til vanvirðu.
Sigurður Pétur Guðjónsson,
bóndi í Vogi og bróðir Agn-
ars, segir þessar deilur smá-
smugulegar en að þær hafi
magnast með árunum þannig
að nú verði ekki lengur við
VlRAFELL Jörðin sem kom af stað deilum þeirra Ólafs og Agnars. Núverandi eigendur eru hlutafélagið Ytrafellsbúið hf.
og systkini Þorsteins B. Péturssonar.
neitt ráðið. Hann segir annað
mál hafa komið upp í sveit-
inni nýlega þar sem kalla
þurfti til lögreglu. Því máli
tengdist fyrrum sambýlismað-
ur Kristínar, konu Agnars.
Kristín segir þessi mál svo
skítug að ekki sé hægt að
óhreinka sig á þeim og vísar
þá til árása á eiginmann sinn
og böm.
Einn eigenda Ytrafells býr á
höfuðborgarsvæðinu, en á
sumarbústað á jörðinni. Sá
hefur óhjákvæmilega orðið
var við deilur bændanna og
kom t.d. fýrstur á staðinn eftir
átökin við Kjallaksstaðaá.
Þessi heimildarmaður er
kunnur bæði Ólafi og Agnari
en telur sig samt ekki geta
ályktað um hvor hafi rétt fyrir
sér. Hann segir báða bænd-
urna sérvitra í meira lagi og að
þeir séu meira og minna úr
takti við nútímasamfélag.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er þó ýmislegt
sem bendir til að Ágnar sé lítt
áreiðanlegur í viðskiptum.
Kaupfélagið í Skriðlandi í
Saurbæ samdi við Agnar um
að hann gæti tekið út vömr í
skiptum fyrir fénað sem hann
slcyldi sldla að vori. Þegar að
uppgjöri kom mun Ágnar
ekki hafa séð fram á að fá
neinar peningagreiðslur því
fénaðurinn dugði ekki fyrir
reikningnum. Þá mun hann
hafa selt fé sitt annars staðar.
Kaupfélagið kærði og vitað er
að reynt var að gera fjárnám
hjá Agnari. Því varðist hann
með vegartálmum og lét eitt
sinn ófriðlega með haglabyssu
undir höndum, að sögn heim-
ildarmanns PRESSUNNAR
Glúmur Baldvinsson
-%íifs£tö<fc
TAKIU
Þú hringir í síma 611720 kvöldiö fyrir
brottför og pantar bílinn. Símaþjónusta
BSR sér um aö vekja þig á réttum tíma.
Bíllinn kemur stundvíslega,
hlýr og notalegur.
Og þú ferð í loftið afslappaöri en ella.
Viö bjóöum nú þessa þjónustu á
tilboösveröi, kr. 3SOO,- eða aðeins
975.- ð mann miðað viö fjóra.
O
o
Jow’
«1121201
BS^