Pressan - 29.07.1993, Síða 14
F R E TT I R
14 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
Er bonkastjórastarfiö hlutastarf?
BANKASTJÚRAR
IAUKASTORFUM A
TRYGGVI PÁLSSON Stjórnarfor-
maður Kreditkorta hf., í
stjórn Fjárfestingarfélags fs-
lands, Verðbréfamarkaðar
Fjárfestingarfélagsins og
varastjórn Féfangs. Hefur
einnig unnið talsvert fyrir
Verslunarráð íslands og sit-
ur nú í Landsnefnd alþjóða
Verslunarráðsins.
MEDAN MILLJARU
ÚTLÁN TAPAST
Bankastjórar geta tvöfaldað laun sín með setu í stjórnum og nefndum,
sem þeir sinna í vinnutíma bankans.
SÓLON R. SlGURÐSSON stjórn
arformaöur Kaupþings hf., í
stjórn Lýsingar hf., Þróun-
arfélags fslands hf., Hótels
íslands, Verslunarráðs
lands og Greiðslumiðlunar
hf. (VISA).
Viðskiptabankarnir hafa
tapað stórum upphæðum
undanfarin ár, afskriftir hafa
numið milljörðum króna og
vextir eru háir. Aðeins á síð-
asta ári þurftu stóru bankarnir
þrír að afskrifa yfir þrjá millj-
arða króna vegna tapaðra út-
lána. DV reiknaði út að
Landsbankinn hefði afskrifað
1700 milljónir króna í íyrra,
íslandsbanki 1100 milljónir
og Búnaðarbankinn 250 millj-
ónir. Frjáls verslun segir af-
skrifúð útlán banka og spari-
sjóða nema 18 milljörðum á
síðustu 6 árum.
Á sama tíma virðast banka-
stjórarnir vera störfúm hlaðn-
ir utan bankanna, í alls kyns
dótturfyrirtækjum, hlutdeild-
arfélögum og öðrum félögum
og nefndum. Þá hefur oft ver-
ið nefnd laxveiðiástríða þeirra,
sem ýmist er skýrð sem öflun
viðskiptasambanda eða sem
launauppbót.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR eru laun
bankastjóra með skattskyld-
um hlunnindum nálægt 400
þúsund krónum á mánuði.
Tekjur þeirra eru þó mun
1/flLUR VflLSSON Virðist einbeita
sér að rekstri bankans.
SVERRIR HERMANNSSON Stjómar-
formaður Lýsingar hf. og
Hamla hf. og í stjórn Kredit-
korta hf.
hærri og flestir eru þeir með á
milli 700 og 800 þúsund
krónur á mánuði. Sumir hafa
þó enn hærri tekjur og þannig
hafði Björgvin Vilmundar-
son, bankastjóri Landsbank-
ans, um 1100 þúsund krónur
á mánuði á árinu 1991, ffam-
reiknað til dagsins í dag. Það
er því ljóst að þeir hafa aðrar
tekjulindir en bankastjóra-
launin ein.
HALLDÓR GUÐBJARNARSON stjórn-
arformaður Lindar hf., í stjórn
Landsbréfa hf. og Hamla hf.
Flestir þekkja umræðuna
um laxveiðiferðir bankastjóra
og bankaráðsmanna á kostn-
að bankanna eða dótturfýrir-
tækja þeirra. Þekkt dæmi er að
á sama tíma og verið var að
segja up 70 einstaklingum í
Landsbankanum og boðaðar
voru ffekari uppsagnir vegna
„kostnaðaraðhalds" bárust
fréttir af kostnaðarsömum
veiðiferðum bankastjóra og
BRYNJÓLFURHELGASON (aðstoðar-
bankastjori) í stjórn Lýsingar hf.
og Landsbréfa hf.
RAGNAR ÖNUNDARSON Situr f
banka- og framkvæmdastjórn
íslandsbanka. Er auk þess
stjórnarformaöur í Glitni hf. og
Draupnissjóðnum hf. og í
stjórn Kreditkorta hf., Iðnþró-
unarsjóðs og Fiskveiöisjóðs ís-
lands, auk nefndarstarfa.
STEFÁN PÁLSSON Situr í stjórn
Lýsingar hf., Hótels íslands
hf., Kaupþings hf. og Trygging-
ar hf.
BJÖRN BJÖRNSSON Stjórnarfor-
maður Verðbréfamarkaðar ís-
landsbanka hf. og í stjórn
Glitnis hf. og Greiðslumiðlunar
hf. (VISA)
bankaráðsmanna. Þrátt fýrir
mikinn þrýsting varð engin
breyting á fyrirætlunum
þeirra og Steingrímur Her-
mannsson, bankaráðsmaður
með meiru lýsti því, yfir að
hann liti á þetta sem launa-
uppbót við bankaráðslaunin.
Bankastjórar íslands-
banka störfum hlaðnir
Hluthafar íslandsbanka
JÓHANN ÁGÚSTSSON (aðstoðar-
bankastjóri) Stjórnarformaöur
Greiöslumiðlunar hf. (VISA)
voru hreint ekki ánægðir á
síðasta aðalfundi. Þar kom í
ljós að rekstrartap var 177
milljónir í fýrra og ríflega 1,5
milljarður var lagður inn á af-
skriftareikning. Á síðustu
þremur árum hefur bankinn
lagt þrjá milljarða á afskrifta-
reikning og endanlega afskrif-
uð útlán á sarna tíma nema 2
milljörðum króna.
Yfirmenn íslandsbanka
JÓN AOÓLF GUÐJÓNSSON Situr í
stjórn Lýsingar hf., Kaupþings
hf. og Kreditkorts hf.
gegna margvíslegum störfum
öðrum en að stjóma bankan-
um, fyrir utan Val Valsson
bankastjóra sem virðist ein-
beita sér að rekstri bankans.
Ragnar önundarson situr í
banka- og framkvæmdastjóm
Islandsbanka. Auk þess er
hann stjórnarformaður í
Glitni hf., og Draupnissjóðin-
um hf. og situr í stjóm Kredit-
korta hf., Iðnþróunarsjóðs og
Fiskveiðisjóðs Islands. Ragnar
tók einnig nýlega sæti í nefnd
á vegum Seðlabanka til að
kanna með hvaða hætti vöxt-
um verður náð niður í land-
inu.
Tryggvi Pálsson hefur
einnig næg verkefni á sinni
könnu. Hann er stjórnarfor-
maður Kreditkorts hf. og er
auk þess stjómarmaður í Fjár-
festingarfélagi Islands, Verð-
bréfamarkaði Fjárfestingarfé-
lagsins og er í varastórn Fé-
fangs. Þá hefur hann unnið
talsvert fýrir Verslunarráð ís-
lands, var stjórnarmaður þar
en situr nú í Landsnefnd al-
þjóða Verslunarráðsins.
Bjöm Bjömsson er ekki al-
veg eins önnum kafinn en er
þó stjórnarformaður Verð-
bréfamarkaðar íslandsbanka
hf. og stjórnarmaður í Glitni
hf. og Greiðslumiðlun hf.
(VISA).
Landsbankastjórar
koma viða við
Staða Landsbankans er
langverst af stóm bönkunum
þremur. Talið er að rekstrar-
tap bankans hafi verið rnilli 2
og 3 milljarðar króna í fyrra,
eftir því hversu mikið verður á
afskriftareilcningi útlána. Rík-
ið lagði nú í mars 4,2 milljarða
til bankans en staða hans er
enn afar bágborin.
Af bankastjórunr Lands-
bankans skal fyrstan telja
Björgvin Vilmundarson.
Hann er stjórnarformaður
Landsbréfa hf. og Fiskveiði-
sjóðs íslands. Auk þess situr
hann í stjórn Kreditkorta hf.
og Hamla hf.
Sverrir Hermannsson er
stjómarformaður Lýsingar hf.
og Hamla hf. og situr auk þess
í stjórn Kreditkorta hf. Hall-
dór Guðbjarnason er svo
stjórnarformaður Lindar hf.
og situr auk þess í stjórn
Landsbréfa hf. og Hamla hf.
Aðstoðarbankastjórarnir
Brynjólfur Helgason og Jó-
hann Ágústsson koma einnig
við sögu. Brynjólfur situr í
stjórn Lýsingar hf. og Lands-
bréfa hf. og Jóhann er stjórn-
arformaður Greiðslumiðlunar
hf. (VISA).
Duglegir Búnaðarbanka-
stjórar
Af stóm bönkunum þrem-
ur er staða Búnaðarbankans
vænlegust. Rekstur hans hefúr
verið nokkuð góður hin síðari
ár og afskriftir tapaðra údána
hafa verið mun minni en ann-
arra.
Bankastjórar Búnaðarbank-
ans eru þó miklir dugnaðar-
forkar eins og starfsbræður
þeirra. Sólon R. Sigurðsson er
þannig stjórnarformaður
Kaupþings hf. og situr auk
þess í stjórn Lýsingar hf., Þró-
unarfélags Islands hf„ Hótels
íslands, Verslunarráðs íslands
og Greiðslumiðlunar hf.
(VISA)
Stefán Pálsson situr í stjóm
Lýsingar hf„ Hótels íslands
hf„ Kaupþings hf. og Trygg-
ingar. Jón Adólf Guðjónsson
er svo stjórnarmaður í Lýs-
ingu hf., Kaupþingi hf. og
Kreditkortum hf.
PálmiJónasson