Pressan - 29.07.1993, Qupperneq 19
SKOÐANIR
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
PRESSAN 19
DAS KAPITAL
STJÓRNMÁL
Að fjárfesta í myndlist
Útskúfað úr sœluríkinu
t Segjum sem svo að einhver
vel eínaður gyðingur á dögum
Krists hafi verið myndlistar-
ahugamaður. Hann keypti
gott málverk eítir frægan sam-
tímalistamann á eina krónu.
Ávöxtunarkrafa ættmenna
Gyðingsins er sú sama og er á
húsbréfúm um þessar mund-
ir, þ.e. 7% ávöxtun á ári.
Hvers virði er myndin í
dag?
Við því eru tvö svör. Svar
Gyðingafjölskyldunnar er kr.
3,6 x 10 í 58. veldi en til að
auðvelda lesturinn þýðir þetta
kr. 3,6 með 58 núllum fyrir
aftan. Myndin er því ómetan-
leg.
En markaðurinn segir: Fyrir
þessa mynd er hægt að greiða
50 milljónir dollara en það eru
kr. 3,6 með 9 núllum fyrir aít-
án. Á íslensku telst það vera
kr. 3,6 milljarðar.
Ekki eru allir listamenn svo
heppnir, að þeim takist að
selja verk eftir sig. Vincent van
Gogh seldi aðeins eina mynd
eftir sig á ferli sínum. Hann
var þó listaverkasali í upphaíi
starfsferils síns. Verk Van
Gogh seljast á því verði sem
neíht var hér að framan. Mið-
að við 7% ávöxtunarkröfu
hefði Van Gogh fengið um 2
milljónir fyrir verk sitt þegar
hann seldi það. En hann seldi
„Sólblómið“ á mun lægra
verði. Kaupandinn gerði því
góð kaup.
Þetta einfalda dæmi segir
bss það að fjárfesting í mynd-
list er mjög vandasöm. Ánn-
ars vegar er um að ræða harða
arðsemiskröfú á eign sem ekki
skapar arð og hins vegar hug-
lægt mat markaðarins, sem
eru allir hugsanlegir kaupend-
ur. Og þessir erfiðleikar koma
ekki í veg fyrir mikil viðskipti
með listmuni. Verðið, sem
greitt er fyrir listaverk, er ótrú-
lega hátt að mati venjulegs
fólks en þeir sem kaupa slík
verk gera það eftir að hafa
keypt nauðþurftir og telja það
ekki eftir sér.
En hvað ber að hafa í huga
þegar keypt eru listaverk?
Sjónarmiðin eru mörg. Fyrsta
skilyrðið er að eigendur hafi
ánægju af verkinu. Annað
skilyrði er að verðið sem greitt
er fyrir það sé í einhverju sam-
ræmi við það sem aðrir
myndu greiða fyrir það. Til
þess eru uppboð, því á upp-
boðum geta listunnendur
miðað boð sín við aðra. En
mörg listaverk koma ekki til
sölu á uppboðum og þá verð-
ur að finna samanburð við
önnur verk. Þá er og nauðsyn-
legt að ný verk í safni séu í
einhveiju samræmi við önnur
verk í safninu því slíkt eykur
heildarverðgildi listaverka-
safna.
Sjónmennt á íslandi er ekki
gömul. Að vísu reyndu forfeð-
ur vorir að skreyta kirkjur sín-
ar eins og efni leyfðu. Elstu ís-
lensku listmálararnir eru frá
lokum síðustu aldar. Aðrar
þjóðir eiga sér hins vegar
margra alda hefð í myndlist.
Frumherjarnir í íslenskri
myndlist teljast frá þessari öld.
Verk Ásgríms Jónssonar, Jóns
Stefánssonar, Þórarins B. Þor-
lákssonar og Jóhannesar Kjar-
val eru eftirsótt af söfnurum
og seljast góð verk á háu verði.
En vandinn er sá, að bestu
verk þessara manna eru kom-
in í opinber söfn og koma
ekki á markað framar. Fáir ís-
lenskir málarar hafa orðið eft-
irsóttir á alþjóðlegum mark-
aði. Þar ber helst að telja Svav-
ar Guðnason, Þorvald Skúla-
son og Erro.
Stöku sinnum koma þó
fram góð verk úr einkaeigu
eða erlendis frá og eru boðin
til sölu. Þannig var tímamóta-
verk eftir Jón Stefánsson lengi
til sölu í Gallerí Borg án þess
að nokkur sýndi því áhuga.
Listasafú íslands keypti það að
lokum. Erlendis eru kaup
listasafna studd af mjög fjár-
sterkum sjóðum. Carlsberg
sjóðurinn í Danmörku styður
við listaverkakaup danskra
safna. Með því að drekka
danskan bjór styðja menn
dönsk listasöfn.
Blankheit og áunnin fátækt
hefur neytt marga til að selja
ættargripi og hafa slík verk
fengist á góðu verði í kxepp-
unni. Og margir nýríkir telja
að staða þeirra í lífinu verði
best undirstrikuð með stórri
Kjarvalsmynd yfir stofusófa
og konumynd eftir Gunnlaug
Blöndal í svefnherbergi.
Þeir sem hafa áhuga á að
fjárfesta í myndlist verða því
að einbeita sér að samtímalist.
Þá má ekki láta skreytilist
rugla sig í ríminu og hjálpsemi
við myndlistarmenn á ekkert
skylt við fjárfestingu. Mörg
einkasöfn líða fyrir slíka hjálp-
semi og hafa því hvorki list-
rænt né fjárhagslegt gildi. Því
verða fjárfestar að afla sér
þekkingar á samtímamyndlist.
Hér á landi hafa margir ein-
staklingar verið iðnir við lista-
verkakaup. Af söfnurum, sem
nú eru látnir, ber að nefna
Markús ívarsson, vélsmíða-
meistara, stofnanda HÉÐINS
HF. Hann gaf hluta af safni
sínu til Listasafns íslands og er
gjöf hans til sýnis núna.
Þeir safnarar sem helst ber á
í dag eru kaupsýslumennirnir
Sverrir Sigurðsson og Þor-
valdur Guðmundsson. Hvor
um sig eiga þeir og konur
þeirra, sem báðar heita Ingi-
björg, ómetanleg söfn, sem þó
eru gjörólík. Sverrir hefur
safnað verkum eftir samtíma-
listamenn en Þorvaldur eftir
fumherjana. Smekkur þeirra
er nánast óbrigðull.
En ávallt standa menn and-
spænis eftirfarandi þversögn:
Öll góð list er þjóðleg. Öll
þjóðleg list er vond.
ísland er fagurt land og hér
er gott að búa. Heilsugæsla er
með því besta sem þelddst, bil
milli fátækra og auðugra með
minnsta móti og hér líður
enginn skort. Réttindi manna
eru vel tryggð og félagsmálayf-
irvöld vaka yfir velferð full-
orðinna og barna. Vinnulög-
gjöftn tryggir öllum sann-
gjarnt framlag fyrir vinnu sína
og réttindi kvenna og barna
eru tryggð. Svona hljómar
frasinn.
Víst er um það. Bærilega er
séð um að hag kvenna og
barna sé borgið. En bara ef
einhver kvartar. Og ef enginn
kvartar, þá er allt í lagi.
Á síðustu árum hafa verið
fluttar hingað til lands á fjórða
hundrað konur, án nokkurrar
þekkingar á íslensku samfélagi
og tungu, langflestar frá þeim
löndum þriðja heimsins þar
sem undirgefai við karlmenn
er ráðandi þáttur í menningu
og þar sem tíðkast að selja
gjafvaxta stúlkur mansali.
Ekki er að efa að hér á landi
hafa sumar þessara kvenna
notið ástúðar maka síns og
hafa höndlað hamingjuna.
Hitt er því miður jafnvíst að
stórum hluta þessara kvenna
hefur verið haldið sem þræl-
um og þær mátt þola harð-
ræði og einangrun.
Flestum kvennanna hefur
væntanlega verið tjáð að hér
biði sæluríkið þar sem smjör
drypi af hverju strái og efnaleg
framtíð væri björt. Sumar
hafa kannski ekki fengið neitt
að vita, bara verið sagt að
koma sér burt þegar íslenski
kaupandinn var búinn að
reiða verðið af hendi. Hingað
koma þær, án nokkurrar vitn-
eskju um rétt sinn og mögu-
leika sína á að lifa lífi með
reisn. Tungumálið er óskiljan-
legt og allur gangur er á því
hvort þær kunna eitthvert
hrafl í ensku. Námsflokkarnir
hafa unnið merkt starf í ís-
lenskukennslu fyrir þessar
konur en þangað sækja vænt-
anlega helst þær sem við best-
ar aðstæður búa; hinar sem
eru fórnarlömb ofbeldis og
innilokunar koma hvergi. Ef
að líkum lætur eignast þessar
konur börn með íslenskum
eiginmönnum, væntanlega vel
yfir þúsund börn. Mörg þeirra
bama eiga fýrir höndum lang-
dregna og þjáningarfulla
göngu um skólakerfi, sem
byggir á tungumáli sem þau
hafa aldrei náð tökum á. Þau
verða údendingar í eigin landi
og líklega jafn miklir útlend-
ingar í landi móðurinnar sem
hefur alið þau upp, einangruð
og niðurlægð.
Einhverra hluta vegna er
málum svo háttað hér á landi
að til þess að geta selt gestum
og gangandi kók og prinspóló
þarf verslunarleyfi. Ef sölu-
maðurinn hefúr ekki slíkt leyfi
þá er bara lok lok og læs. Hins
vegar hefur ekki verið amast
Meðferð okkar á þessum
konum og börnum þeirra er
skýlaust brot á mannréttinda-
sáttmálum sem við emm aðil-
ar að. Við neitum mörgum
kvennanna um möguleika til
að lifa hamingjusömu lífi með
því að leyfa að þær séu
hnepptar í þrældóm. Við
smántnn réít þeirra og barna
þeirra til að aðlagast okkar
samfélagi og til að halda
tengslum við menningu upp-
mnalands kvennanna.
I flestum tilvikum dugar að
bjóða nýbúum upp á fræðslu.
Ef um er að ræða fólk sem
hefúr verið selt í þrældóm, þá
duga engin vettlingatök.
Dræm þátttaka á þeim nám-
skeiðum sem boðið hefúr ver-
ið upp á fýrir þessar konur og
börn þeirra sýnir, svo ekki
verður um villst, nauðsyn þess
Þau verða útlendingar í eigin landi og
líklegajafn miklir útlendingar í landi
móðurinnar sem hefur aliðþau upp, ein-
angruð og niðurlœgð.
við því að hér starfi menn við
milligöngu um kaup á fólki.
Þessir menn hafa auglýst
þjónustu sína á áberandi hátt,
án nokkurrar íhlutunar yfir-
valda. Og allt er á sömu bók-
ina lært í þessum efnum: Þeg-
ar eigandinn hefur fengið
vöru sína 'afhenta er enginnn
sem fylgist með líðan kon-
unnar. Hundaeigendur þurfa
hins vegar að uppfylla ýmis
skilyrði til að fá endurnýjað
leyfið fýrir hundinum.
að unnt sé að skylda fólk til að
fá fræðslu svo von sé til að það
nái rétti sínum gagnvart
þrælahaldaranum. Sómölsk
kona sem hér býr benti á þetta
nýverið í blaðagrein og upp-
skar að launum hótanir og of-
sóknir. Island er nefnilega svo
gott land. Hér er hugsað vel
um hvítt mannfólk, hunda,
ketti og ísbirni. Ertu ekki hvít?
Það er þinn hausverkur, væna
mín.
Höfundur er lögfræðingur.
FJÖLMIÐLAR
Þjófnaður í beinni útsendingu
„Á Stöð 2 og Bylgjunni gerist ítrekað að
frétt er stolið eins og hún leggur sig og
hún endurflutt óbreytt án nokkurra skýr-
inga. “
Fátt fer meira í taugarnar á
mér en að sjá blaðamenn
skrifa góða frétt og horfa svo
upp á annan fjölmiðil taka
hana upp óbreytta án þess að
geta þess hvaðan hún er kom-
in. Fréttaneytendur taka ef til
viO ekki eftir þessu, en sumir
fjölmiðlar — og ekki síður
sumir fréttamenn — virðast
beinlínis gera út á fréttaöflun
af þessu tagi. Hún er ekki að-
eins ódýr, heldur líka ómerki-
leg og óheiðarleg.
Það eru t0 undantekningar.
Það hefur gerzt nokkrum
sinnum að Stöð 2 skúbbar
fréttastofu Sjónvarps, en sú
síðarnefnda greinir frá málinu
hálftíma seinna í sínum frétt-
um. Þá er — undantekninga-
laust, að því er mér sýnist —
vísað í fféttir keppinautarins.
Það er sjálfsagt mál og frétta-
stofa Sjónvarps verður stærri
af. Þetta gerist reyndar einnig í
seinni kvöldfréttum útvarps-
ins. Annað tilfelli eru „stutt-
fféttir“ DV, þar sem oftast, en
þó ekki alltaf, er getið heim-
Oda fýrir fréttunum.
Verstu brotin í þessa veru
fúOyrði ég að séu á Stöð 2 og
Bylgjunni. Þar gerist ítrekað að
frétt er stoOð eins og hún legg-
ur sig og hún endurflutt
óbreytt án nokkurra skýringa.
Þeir, sem fá DV í hendur fýrir
klukkan tólf, ættu að renna
augunum yfir fréttasíður
blaðsins og hlusta svo á út-
varpsfréttir Bylgjutinar á há-
degi. Ég hef ekki gert vísinda-
lega úttekt á þessu, en það ger-
ist reglulega að ég get fylgt
texta fféttamannsins á síðunni
í DVþegar fréttin er lesin í út-
varpi. Engu bætt við og ekkert
frekar unnið í málinu — ffétt-
in bara endursögð án þess að
DV sé nefnt á nafn.
Við á PRESSUNNI þekkj-
um þetta líka ágætlega og í
þeim tilfellum eru það oftast
Bylgjan og Stöð 2 sem eiga í
hlut. Dæmin eru nokkur: Ný-
leg frétt okkar um bótamál í
Hæstarétti, þar sem fatlaður
drengur átti í hlut, var komin
samdægurs í hádegisfréttir
Bylgjutmar þar sem lesið var
upp úr skýrslu sem frétta-
menn höfðu hvergi séð nema
í PRESSUNNI. Forsíðufrétt
um fórnarlamb Jóhanns J.
Ingólfssonar og réttleysi fóm-
arlamba nauðgara var sömu-
leiðis samdægurs í hádegis-
fféttum Bylgjunnar í höndum
Vilborgar Davíðsdóttur sem
las orðrétt upp úr blaðinu.
Grófasta tilfellið er líklega
þegar HaUur Hallsson endur-
flutti samdægurs sem fyrstu
frétt á Stöð 2 forsíðumál
PRESSUNNAR í byrjun
febrúar um unga konu sem
missti eiginmann sinn vegna
læknamistaka. Hallur bætti
engu við nema myndefni og
las orðrétt upp úr frétt blaðs-
ins án þess að nefna það.
Hver er skýringin á þessum
vinnubrögðum? Svona utan
frá séð gizka ég á að fóOdð hafi
einfaldlega ekki haft neitt ann-
að. Það var að nálgast „dead-
line“ og eitthvað varð að
bjóða hlustendum. Þetta er
líklegri skýring hjá Bylgjunni,
þar sem fáir og oft fremur
óvanir fréttamenn þurfa að
fylla fréttatíma á klukku-
stundar ffesti.
Á Stöð 2 er fólkið reyndara
og tíminn til fréttaöflunar
mun meiri. Þar sem þessi
þjófúaður virðist þó bundinn
við einstaka fféttamenn ffem-
ur en fréttastofuna sem heOd
verður ekki komizt hjá því að
álykta sem svo, að jafnvel
reyndir fréttamenn séu svo
slappir og litlir í sér að þeir
geti ekki viðurkennt fýrir sjálf-
um sér og öðrum að þeir eru
hættir að geta framleitt al-
mennilegar fféttir af sjálfsdáð-
um,_____________________________
Karl Th. Birgisson
A UPPLEIÐ
t
■i
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
Það er ffábær hugmynd
að reyna að tala vextina nið-
ur í kaffiboði með banka-
stjórum landsins. Miklu
skemmtilegri aðferð en
handaflsleiðin sem ekki má
nefna.
Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri
Að einhver skyldi muna
effir honum þegar kom að
því að útdeila hótunarbréf-
um vegna ísbjamardrápsins
er sérlega hugulsamt.
Ólafur Wernersson
framkvæmdastióri
Það hlýtur að þurfa að
taka ofan fýrir þeim mönn-
um sem þora að skrifa
blaðagrein eft ir blaðagrein
(tneð myndum) þar sem
þeir skora á þjóðina að
byrja aftur að lána til fisk-
eldisins eftir að við erum
búin að tapa 10 mOljörðum
áþví.
Á NIÐURLEIÐ
i
Hörður Einarsson
útgefandi
Dapurlegt hlutskipti að
birtast 15 árum eftir Vídeó-
són og þykjast enn ætla að
gera eitthvað sniðugt í ljós-
vakamálum.
Sverrir Hermannsson
bankastjóri
iOa er komið fýrir þessum
helsta kjaftaski landsins að
koma andlaus út af fýndn-
asta fundi ársins þar sem
vextirnir voru talaðir niður
og hafa ekkert eftirminni-
legt tilsvar á takteinunum.
Þórður Friðjónsson
þjóðhagstofustjóri
I hvert skipti sem hann
opnar munninn er hann á
niðurleið. Yfirlýsing hans
um að verðhækkanirnar séu
hættumerki er ekki beinlínis
ffumleg.