Pressan - 29.07.1993, Síða 35
ALHEIMSNAFLINN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
PRESSAN 35
Útsendgrar l"D í heims-
reisu á Islandi
Greinar um ísland
birtast æ oítar á síðum
erlendra blaða og nú
síðast mátti rekast á
eina slíka í ágústhefti t j
breska trendblaðsins i- t |;
D. I hvert sinn má ætla
að smágreinar sem þessar
hafi heilmikið kynningar-
gildi íyrir land og þjóð,
jafnvel þótt þær reynist
alla jafna afar keimlíkar,
en af umfjöllun má glöggt
greina að gestgjafar eru
duglegir við að sýna biaða-
mönnum og ljósmyndur-
um íslenskt skemmtanalíf,
íslenskt hraun, íslenska ”
auðn og íslenskt Blátt lón.
í stuttu máli kemst greinar-
höfundur i-D að þeirri niður-
stöðu að ýmislegt annað sé að
finna á íslandi en heitir hverir
og Björk Guðmundsdóttir og
verður honum tíðrætt um
menningarlega uppsveiflu í
landinu, sérstaklega á sviði
tónlistar og kvikmyndagerðar.
Hann segir margt hafa breyst
síðan útsendarar blaðsins voru
staddir á landinu síðast, árið
1988, en þá hafi íslenskir
drykkjusiðir, frjálsar ástir og
handalögmál borið hæst. Ef til
vill hefur þjóðarsálin ekki
breyst, segir í greininni, en svo
sannarlega hefur margt annað
tekið stakkaskiptum.
Það fer þó ekki framhjá
blaðamanni, frekar en öðrum
sem sækja landið heim, að
amerísk menning er áberandi
og neytendagleði í algleym-
ingi. Orðrétt segir í
greininni: „...íslendingar
keyra um á amerískum bílum,
reykja amerískar sígarettur,
tala ensku með amerískum
hreim, klæðast sportfatnaði frá
Kaliforníu og evrópskum
hönnuðum...“. Hann nefnir
norður-evrópska strauma í
tónlistarvali og dansstíl, en er
þó nógu kænn til að skyggnast
undir yfirborðið þar sem hann
tekur púlsinn á því sem er að
gerast í bænum.
Tímaritið Núllið segir hann
endurspegla ágætlega ólíka
strauma á sviði tísku, tónlistar
og annarra lista. Björk sé þar
að vísu áberandi og þjóni sem
nokkurs konar menningar-
sendiherra fyrir fsland en fleiri
séu til kallaðir og skapi ólíkir
listamenn mikla breidd í ís-
lensku menningarlífi. Auk
þess segir hann skemmtanlíf
Reykvíkinga ekki hafa verið
svipur hjá sjón fýrir fimm ár-
um miðað við það sem nú
er. Þá hafi ekki verið um
annað að ræða en dverg-
staðinn Casablanca en nú
megi hins vegar velja um
hipp-hopp staði á borð við
Tunglið og Rósenberg-
kjallarann.
Þegar kemur að upp-
sveiflu í kvikmyndagerðinni
eru nefndar til sögunnar nýj-
ustu bíómyndirnar; Veggfóð-
ur, Sódóma Reykjavík og Börn
náttúrunnar. Blaðamaður
misstígur sig að vísu lítillega
þegar hann skýrir frá því að
Börn náttúrunnar hafi hlotið
Óskarsverðlaun sem besta er-
lenda kvikmyndin á síðasta ári
og gæti hvort heldur sem er
verið um að kenna slakri
athyglisgáfu hans eða
gloppóttum upplýsingum
gestgjafanna. En sé slíkum 1
smámunum sleppt þá má
almennt lesa milli línanna
að hann hrífist af elju og ár-
angri íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna.
Stutt landslagslýsing í lok
greinarinnar er svo til sönn-
unar þess að skemmtana-
fíkillinn hefur í það
minnsta farið Reykjanes-
rúntinn, sennilega undir
handleiðslu Þorsteins Högna
Gunnarssonar, Jökuls Tóm-
assonar og Kristins Sæ-
mundssonar, og því ályktar
hann, líkt og fjölmargir aðrir á
undan honum, að. aðdráttarafl
landsins felist í andstæðúnum.
n lceland
L o ð n u
Gangandi gólfmott-
ur eru þeir stundum
kallaðir, karlmenn-
irnir sem sést ekki í
fyrir hári. Þeir vekja
óhug hjá sumum og
ógeð hjá öðrum —
aðallega konum.
Fáum stendur ná-
kvæmlega á sama.
Sumir halda því
jafnvel fram að von-
laust sé að umbera
loðinn skrokk. Það
þýði ekki einu sinni
aðreyna...
Þaö er kannski ekki síst þess
vegna sem karlmenn gera allt
sem í þeirra valdi stendur til
aö fela feldinn og leggja sig í
líma við að fjarlægja hann.
Einstakir líkamshlutar eru
grónari en aðrir og þá getur
verið vandkvæöum bundið að
losna við flyksumar. Einfaldur
rakstur dugar til dæmis
skammt, ef til vill aöeins yfir
daginn. Ef rakstur ekki dugar
má reyna vaxmeðferö. En
hún hefur víst líka brugðist
vonum margra og veruleg
hætta er á aö skinnið hrein-
lega hverfi með hárinu. Það
er eiginlega ekki gott heldur.
Þegar allt um þrýtur má reyna
eyðingu hára með rafmagns-
nál. Slíkt brottnám óæski-
legra hára er framkvæmt T
nokkrum þrepum og er mis-
jafnt hversu oft þarf að koma
til meöferðar. Það tekur þjálf-
aða manneskju 10 sekúndur
að fjarlægja hvert hár. Á einni
klukkustund geta því horfið
360 - 420 sprotar. En flestir
gefast víst upp á þessu líka,
feldurinn er skárri en sárs-
aukinn.
En þeir sem ekki þekkja til
vita ekki hvert vandamálið
er.... loðið bak kemur hverri
stúlku til dæmis mikið á
óvart. Hið rétta kemur ekki í
Ijós fyrr en á ögurstundu....
Þótt flestum konum þyki apar
sætir er ekki endilega gefið
að þærvilji sofa hjá þeim.
Loðið bak er einhvern veginn
ekki eðlilegt. Það lítur ekki út
fyrir að hárið hafi vaxið; miklu
heldur að manninum hafi ver-
ið dýft ofan í risastóran lím-
brúsa og svo velt upp úr skít-
ugu gólfi á hárgreiðslustofu.
Samvaxnar augabrúnir vekja
ekki mikinn ugg í brjósti og
geta verið þolanlegar. Meira
að segja karimannlegar.
Sumar konur hrífast jafnvel.
Auðveld leið til að losna við
ofvöxt er notkun á gamla
góða plokkaranum. Áhætta:
engin. Konur stunda þetta.
Þekktir þolendur: Matt Dill-
on, Tom Cruise og Egill
Skallagrímsson.
Hvimleið hár hanga niður úr
nösum. Konur horfa oftar en
ekki framhjá slíkum galla, en
eiga það til að undrast of-
vöxtinn. Snyrta ber með
klippum og aldrei plokka.
Nota frekar rafnál til verks-
ins. Þekktir þolendur: Sadd-
am Hussein og Peter Weller
í Robocop.
Brúskar út úr eyrum. Getur
vakið ógeð kvenna, sérstak-
n al|
lega vegna þess að eyma-
mergurinn festist gjarnan í
þeim. Kostir eru þeir að flug-
ur og aðrar smápöddur eiga
ekki greiða leið inn í eyrað.
Einnig dempar brúskurinn all-
an óæskilegan hávaða.
Brúsk þennan ber að fjar-
lægja með hraði með klipp-
um, vaxi eða rafríál. Slíkt
ætti þó enginn annar en
kunnáttumaður að reyna.
Þekktir þolendur: Gvendur
Jaki og tískuljósmyndarinn
Fransesco Scavullo.
Loðin framvaröasveit. Alveg
fram á tær. Konur taka seint
eftir þessu og eru þá orðnar
svo ástfangnar að þeim
stendur nokk á sama. Loðnir
fætur draga úr þörf fyrir
sokka.... engar kaldar tær.
Fjarlægist með vaxi eða raf-
nái og því fylgir engin
áhætta. Þekktir þolendur:
Robin Williams og Bilbo
Baggins úr Hobbit.
Loöna lófa getur engin þol-
að. Nema aö um peninga sé
að ræða... Engin leið aö
losna viö slíkt, nema ef væri
að höggva höndina af við
úlnlið. Ef það er þess viröi.
Þekktur þolandi: Drakúla
greifi.
POPP
FIMMTU DAGUR I N N
• Bogomil Font og millj-
ónamæringarnir bjóða til
sundlaugarpartýs í Úthlíöar-
laug í Biskupstungum.
Menn eru hvattir til að
mæta í baðfötunum.
• Deep Jimi and the Zep
Creams drengirnir síkátu
verða t hömlulausu verslun-
armannahelgarstuöi á
Hressó.
• Stjórnin með sína frægu
sveiflu á Gauki á Stöng.
• Cuba Libra í suðrænni
sveiflu á Fógetanum.
• ET-Bandið, Einar og Torfi,
í kántrístuði á Dansbarnum.
• Bogomil Font og millj-
ónamæringarnir troða upp
á Ömmu Lú.
• Svartur Pipar á Gauki á
Stöng með Margréti söng-
konu hina bráðskemmtilegu
í broddi fylkingar.
• Hermann Arason trúba-
dor á Ijúfu nótunum á Fóg-
etanum, á meðan þeir allra
höröustu sleppa fram af sér
beislinu úti í sveit.
• ET-Bandið á Dansbarn-
um, þó ekki í kántrístelling-
um aö þessu sinni.
• Rokkband James Olsen
með færeysku ívafi treður
upp á Tveimur vinum. Band-
ið er sérstaklega saman-
soöiö í tilefni verslunar-
mannahelgar.
LAUGARDAG U RI N N
3 1 . JÚLÍ
• Svartur Pipar og Margrét
söngfugl gleðja gesti og
gangandi á Gauki á Stöng.
• Hermann Arason af nýj-
um þjóöflokki trúbadora
kyrjar söngva á Fógetanum.
• ET-Bandiö, Einar og Torfi,
koma mönnum í verslunar-
skap á Dansbarnum.
• Rokkband James Olsen,
aðeins til þessa helgi,
skemmtir á Tveimur vinum.
SUNNUDAGURINN |
1 . ÁGÚST
• Svartur Pipar á Gauki á Stöng. • Einar Jónsson úr trúba- doraflórunni, skemmtir á Dansbarnum. • Hermann Arason trúba- dor á Fógetanum. • Rokkband James Olsen treður upp á Tveimur vinum. Bandið leysist upp að lok- inni verslunarmannahelgi.
MÁNUDAGURINN | 2. ÁGÚST
• Sniglabandið rekur endahnútinn á verslunar- mannahelgina á Gauki á Stöng. • Einar Jónsson trúbador treöur upp á Dansbarnum. SVEITABÖLL
FIMMTUDAGURINN|
29. JÚL(
• Sjallinn, Akureyri. Rokka- billýband Reykjavíkur tekur lagið í Sjallakránni.
FÖSTUDAGURINN |
30. JÚLÍ
• Miðgarður, Skagafirði. Lipstick Lovers, Stjórnin og Pís of keik leggjast á eitt um að koma mönnum í dæmalaust stuö.
• Sjallinn, Akureyri. Dreng- irnir knáu í SSSól eru ný- komnir úr laxveiði og mæta því ef til vill í vöölunum. Stúlkur upp með veiðigler- augun.
LAUGARDAG U RIN N|
3 1 . JÚLÍ
• Valaskjálf, Egilsstöðum. Bogomil Font og milljóna- mæringarnir hrista upp I fólki. • Miðgarður, Skagafirði. Stjórnin, Pís of keik og Lipstick Lovers endurtaka tjúttiö frá því á föstudag.
3Hf
• Sjallinn, Akureyri. Bræð- urnir í Pelican í nostalgíu- vímu. • Krúsin, ísafirði. Rokk- bændur að vestan skemmta heimamönnum.
SUNNUDAGURINN |
1 . ÁGÚST
• Valaskjálf, Egilsstöðum.
Bogomil Font og milljóna-
mæringarnir í mambós-
veiflu.
• Sjallinn, Akureyri. Pelic-
an bræöur skemmta.
• Krúsin, ísafirði. Rokk-
bændur ættaðir aö vestan
sjá um verslunarmannahelg-
ina.