Pressan - 29.07.1993, Qupperneq 42
UTVARP SJONVARP OG BIO
42 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. júlí 1993
SJÓNVARPIÐ
Sjáið:
• Sky News Kynningarútsending að hefðbundinni dagskrá
lokinni á Stöð 2. Til að fá smjörþefinn af því sem koma skal.
• Ógnarblinda ★★★ See No Evil á Stöð
2 á föstudagskvöld. Myndin nær því að vera
spennandi þó hún sé óneitanlega barn síns
tíma. Eingöngu ætluð þeim sem umbera
Miu Farrow.
• Hlé ★★★★ klukkan 10:40 á laugar-
dagsmorgun á RÚV. Enginn hefur gott af
því að húka of lengi fyrir framan sjónvarpið.
Allra síst börn.
• Héðan til eilífðar ★★★★ From Here
to Etemity á Stöð 2 á laugardagskvöld. Klassíker sem sópaði til
sín átta Óskarsverðlaunum á sínum tíma. Burt Lancaster fékk
meðal annars bónus fyrir góðan leik.
• Af fingrum ffam ★★★ Impromptu á Stöð 2 á sunnudags-
kvöld. Gleðistundir Chopin, Liszt, Delacroix, George Sand auk
annarra af sama sauðahúsi.
• Fólkið í landinu Líf mitt er línudans mánudagskvöld á
RÚV. Hans Kristján Árnason ræðir við veitingamanninn
^Tomma Tomm. Gæti reynst áhugavert.
Varist:
• Morðóða vélmennið H Assassin á Stöð 2 á fimmtudags-
kvöld. TitiUinn segir meira en mörg orð.
• Forboðni dansinn H The Forbidden Dance á Stöð 2 á
föstudagskvöld. Afleit ffammistaða fyrrum fegurðardrottningar
á hvíta tjaldinu. Lambada dansar hún þó skammlaust.
• Sendiráðið H Embassy II á Stöð 2 á laugardagskvöld. Ný
þáttaröð um ástralska sendiráðið í Raagan. Rusl.
• Líkamshlutar ★ Body Parts á Stöð 2 á laugardagskvöld.
Enn ein myndin um vesaling sem fær græddan á sig óviðráðan-
legan líkamspart. Klént.
• Leiðin til Avonlea ★ Road to Avonlea á RÚV á sunnu-
dagskvöld. Ósköp hugljúft, en fráleitt fyrir hvern sem er.
KVIKMYNDIR
Algjört möst:
• Þríhymingurinn ★★★★ Ætla má að þar fari hálfklám-
mynd um vændismenn og búksorgir þeirra sem maður sér kl.
11, einn. Fljótlega kemur í ljós að varlegt er að treysta auglýsing-
um (og umsögnum kvikmyndagagnrýnenda), þvi hér getur að
líta sérstaklega skemmtilega og hjartahlýja mynd um ástina og
vald tilfinninganna yfir okkur. Regnboganum.
• Á ystu nöf ★★★ Cliffhanger Frábærar tæknibrellur og
bráðskemmtileg mynd. Það er bara galli að efnið sjálft er botn-
laus þvæla. Stjörnubíói og Háskólabíói.
• Dagurinn langi ★★★ Groundhog Day Brilljant handrit og
Bill Murray hárréttur maður í réttri mynd. Sætur boðskapur
sleppur undan að verða væminn. Stjömubíói.
• Mýs og menn ★★★ O/ Mice and Men Nú fer hver að
verða síðastur að sjá þessa útgáfu af sögu Steinbecks. Mest-
megnis laus við væmni og John Malcovich fer á kostum. Há-
skólabíói.
• Siðleysi ★★★★ Damage Jeremy Ir-
ons leikur af feiknarkrafti þingmann sem
ríður sig út af þingi. Helst til langar Jtyn-
lífssenur nema fyrir þá sem hafa byggt
upp mikið þol. Regnboganum
• Dagsverk ★★★ Nýstárleg heimild-
armynd. Áhorfandinn verður þó að hafa
gaman af skáldinu til að njóta.
'7 leiðindum:
• Við árbakkann ★★ A River Runs through it Líf þeirra er
slétt og fellt og höfundurinn skrifar þessa sögu sjálfum sér og
fortíð sinni til dýrðar. Kvikmyndin ber botnlausri sjálfsánægju
Roberts Redford fagurt vitni. Háskólabíói.
• Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent Proposal Svo hæg að það er
varla að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjarg-
að verður. Bíóhöllinni og Háskólabíói.
• Tveir ýktir ★ National Lampoon’s Loaded Weapon. Alveg
á mörkunum að fá stjörnu. Sundboladrottningunni Kathy Ire-
land er svo fýrir að þakka að myndin er eldd algjör bömmer.
Regnboganum.
• Lifandi ★★ Alive Átakanleg saga en persónusköpun er
engin og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói.
Bömmer:
• Hvarfið ® The Vanishing Átakalítil fyrir hlé en mjög góður
leikur Jeff Bridges bjargar tilþrifalitlum söguþræði. Sögubíói
• Elskan ég stækkaði bamið ★ Honey I Blew up the Kid.
Lærðu af mistökum þeirra sem sáu fyrri myndina og haltu þig
heima. Sögubíói.
• Skjaldbökumar 3 ® Three Ninjas Blessuð látið ekki krakk-
ana plata ykkur á þessa dellu því hún er ekki 350 kr. virði. Þið
finnið ykkur örugglega eitthvað skemmtilegra að gera. Bíóhöll-
inni.
• Meistaramir ★ Hún hékk ekki lengi í stórum sal á besta
sýningartíma þessi. Og það þrátt fyrir að stúlknagullið Emilio
Estevez sé í aðalhlutverki. Bíóhöllinni.
KVIKMYNDIR
Ekki einn einasti Ijós punktur
Vil endilega
rífast sem mest
Helst reyni ég þó að vera
svartsýnn að meira magni og
endilega vil ég rífast sem
mest.“
Fyrsti þátturinn fór í loftið
síðastliðinn sunnudag en við-
brögð hlustenda reyndust lítil
og fáir létu í ljós skoðanir sín-
ar. Guðjón telur ástæðuna
einkanlega vera þá að íslend-
ingar séu hræddir við að tjá
sig opinberlega en hann legg-
ur áherslu á að auka skoðana-
skipti meðal hlustenda og
hvetur þá til að hringja inn og
segja álit sitt. Markmiðið með
því segir hann fyrst og fremst
vera það að fá fólk til að hugsa
um það sem er að gerast í
þjóðfélaginu hveiju sinni.
Útvarpsþáttur Guðjóns er
hálfgerð aukabúgrein en að
deginum starfar hann að
markaðsmálum hjá Sldfúnni.
Þar er hann svokallaður
„plugger“ sem sér um að
koma tónlistarefni á útvarps-
stöðvarnar. Með þessu starfs-
fyrirkomulagi er ljóst að Guð-
jón Bergmann er á launaskrá
hjá keppinautum, hjá Jóni Ól-
afssyni, eiganda Skifunnar og
einum af eigendum Bylgjunn-
ar, annars vegar og Baldvini
Jónssyni, aðaleiganda Aðal-
stöðvarinnar, hins vegar. „Ég
læt það ekJd hafa nein áhrif á
mig og kem til með að láta
uppi skoðanir mínar á báðum
þessum mönnum ef svo ber
undir“, segir Guðjón að end-
ingu og ullar framan í at-
vinnuleysið.
GENGIÐ
BLOOD IN BLOOD OUT
SAGABÍÓ
*«
Á sólríkum sumardegi
verður gagnrýnandinn að
fara í bíó, hvort sem honum
líkar betur eða verr, lesendur
PRESSUNNAR verða að fá
línuna í helstu kvikmynda-
viðburðum höfúðborgarinn-
ar viðstöðulaust. Honum er
þetta alla jafna ljúft og skylt,
en þó kemur fyrir að hann
verður að beita sig hörðu til
þess að uppfylla skyldur sínar
við lesendur, eldd síst á sumr-
um þegar úrvalið er heldur
lakara en endranær. En
vopnaður poppkorni og kóki
hlammar hann sér niður á
áhorfendabekJdnn og verður
ekki um sel, því engir aðrir
eru í salnum en hann.
Kvilcmyndin Gengið er afar
sérstætt verk fyrir margra
hluta saJdr. Aðalsögupersón-
urnar eru hálfbræður tveir og
frændi þeirra. Þeir hálfbræð-
ur eru synir konu sem ættuð
er frá latnesku Ameríku, faðir
annars er hvítur en faðir hins
er af sama kynstofni og móð-
irin. Frændi þeirra bræðra er
alfarið af spönskumælandi
ættum. Sagan gerist í austur-
hluta Los Angeles, þar sem
spönskumælandi menn búa
gjarnan og allt veður í gengj-
um og Jdíkum. Annar bróðir-
inn, sem er listfengur mjög,
verður fyrir því óláni að
„í heildina tekið er
kvikmyndin Geng-
ið einhver versta
mynd sem gagn-
rýnandinn hefur
séð og íþeim skiln-
ingi er hún gagn-
legt dœmi um kvik-
mynd þar sem ekki
finnst einn einasti
Ijós punktur.“
tali tekur. Inn í hann er
blandað endalausu ofbeldi og
morðum, öfúguggatali og al-
mennu ógeði sem tengist
fangelsum. Myndin er upfull
af dulspekilegum táknum,
jafnt úr trúarbrögðum ind-
jána sem kaþólskum, í
óskipulegum hrærigraut.
Miklum tíma er eytt í að út-
mála göfugt hlutverk frímúr-
arareglu tukthúslima, La
Onda, og sldlst manni einna
helst að þar sé á ferðinni upp-
hafið að frelsishreyfingu
spænskumælandi Banda-
ríkjamanna, sem stefna að því
að láta hina svörtu og hvítu
murka lífið hvorir úr öðrum,
þar til hinir brúnu taki end-
anlega völdin í henni Amer-
íku. Boðskapur myndarinnar
er með öðrum orðum enn
vidausari en söguþráðurinn.
Leikur í myndinni er með
afbrigðum slæmur. Ber þar
mest á taumlausum ofleik.
Liggur við að engin samtöl í
myndinni fari fram nema í
hástefndum öskrum. Þeir
sem ekki eru að öskra í það
og það skiptið eru eins og illa
gerðir hlutir og vita ekki í
hvaða átt þeir eiga að horfa á
meðan. Stundum er leikur-
inn svo hallærislegur að unun
er á að horfa. Persónusköpun
er engin, líkt og myndin sé
ein persóna. Leikmyndir,
fatnaður, kvikmyndataka og
önnur gerð myndarinnar er
allt á sömu bókina lært, sljótt,
heimskulegt og illa gert. I
fýrstu heyrist manni tónlistin
í myndinni vera áheyrileg
suður-amerísk tónlist en svo
kemur í ljós að hún er afar lé-
leg stæling á tónlist við kvik-
myndina um La Vida og
Sanzes fjölskylduna eftir sög-
um Oskar Lewis, sem gerð
var fýrir nokkrum árum.
í heildina tekið er kvik-
myndin Gengið einhver
versta mynd sem gangrýn-
andinn hefur séð og í þeim
skilningi er hún gagnlegt
dæmi um kvikmynd þar sem
ekki finnst einn einasti ljós
punktur. Verst af öllu er þó
að myndin er um þrír tímar
að lengd. Sjálfsagt er að vara
fólk við þessari rnynd, hvort
sem veðrið er gott eða vont,
nema þá sem haldnir eru
sjálfskvalalosta.
GUÐMUNDUR
ÓLAFSSON
óvinaklíka kastar honum á
brunahana og er hann slæm-
ur í baki það sem eftir lifir
myndar og notar mikið
kvalastillandi lyf. I þessum
átökum er einn úr óvinalið-
inu drepinn og lendir hinn
bróðirinn í fangelsinu San
Quintin til langdvalar.
Frændi þeirra bræðra fer hins
vegar í herinn og gerist lög-
reglumaður upp úr því. Sá
bróðirinn sem í fangelsinu
dúsir kynnist samtökunum
La Onda, sem er einskonar
ffímúrararegla tukthúslima af
spænskumælandi ættum.
Bróðirinn í fangelsinu losnar
þaðan um sinn og lendir óð-
ara í vopnuðu ráni. Frænd-
inn, lögreglumaðurinn, er á
vakt og skýtur fótinn undan
æskuvini sínum, sem fer aftur
í fangelsið og gerist um síðir
formaður La Onda samtak-
anna. Myndin endar síðan á
því að frændinn, lögregl-
umaðurinn, og bróðirinn,
sem var listfengur og slæmur
í baki, horfa á listaverk sem sá
bakveiki hefur málað á vegg,
en þá er hann orðinn skárri í
bakinu.
Eins og að framan greinir
er söguþráðurinn í þessari
kvikmynd svo vitlaus að engu
Maður með viðhorfer heitið á
nýjum útvarpsþætti sem
hljóma mun á Aðalstöðinni á
sunnudagskvöldum í ffamtíð-
inni. Umsjón með þættinum
hefur Guðjón nokkur Berg-
mann, en hann kannast dygg-
ir hlustendur Sólarinnar vel
við. Nafn þáttarins mun svo
sannarlega vera réttnefni því
að eigin sögn er Guðjón mað-
ur með ákveðnar skoðanir;
sannkallaður veisluhrellir. „Ég
kýs helst að vera á móti öllum
Guðjón Bergmann er maður með skoðanir. Nýr útvarpsþáttur á flðalstöðinni.
skoðunum í þeim tilgangi að
sjá allar hliðar málsins og
komast að niðurstöðu. Ef ekki
er litið tiJ aJlra átta er hætta á
því að menn einblíni aðeins á
eina hlið og þá kemur það
rétta ef til vill aldrei í ljós“,
segir Guðjón,
sem hefur ein-
faldlega unun af
því að skiptast á
skoðunum.
Innihald þátt-
anna snýst um
málefni líðandi
stundar. Með það
í huga fer Guðjón
yfir þau atriði
sem hæst ber í
f j ö 1 m i ð 1 u m
hverju sinni en
einnig varpar
hann fram
spurningum um
eitt og annað, til
dæmis mun
hann halda því
fram að komm-
únismi hafi aldrei
verið til og að
maðurinn hafi
ekkert eðli. „Ég
tala um það sem
mér dettur í hug
hverju sinni þeg-
ar ég renni yfir
fyrirsagnir dag-
blaðanna. Ef mér
líst illa á eitthvað
læt ég það flakka
og ef mér líst vel
á eitthvað læt ég
það líka flakka.
IV Aslaug
Bio allan
solar-
hringinn
Áslaug Snorradóttir er
útlitshönnuður.
08:00 Einkaspæjarinn
Chesty Morgan.
10:00 Vacas. Spænsk kvik-
mynd.
12:00 Stúlkan í eldspýtna-
verksmiöjunni eftir
leikstjórann Aki Kur-
usmaki.
14:00 No end eftir Kies-
lowski.
16:00 Tattóveraða konan.
Japönsk kvikmynd.
18:00 Átveislan mikla, Swe-
et Movie.
20:00 Tetso the Body
Hammer. Japönsk
kvikmynd.
22:00 Time of the Gypsies.
Ungversk kvikmynd.
24:00 Dr. No, James Bond.
02:00 Anita Barber. Þýsk
kvikmynd eftir Rosa
von Prunheim.
04:00 Gimli Hospital.
06:00 Hvíti víkingurinn. Is-
lensk kvikmynd eftir
Hrafn Gunnlaugsson.