Pressan - 25.11.1993, Qupperneq 7
Fimmtudagurinn 25. nóvember 1993
F R E TT I R
PRESSAN 7
Ríkissaksóknari gefur út ókæru ó hendur Jóni Magnússyni, Guðmundi Alberti Birgissyni og Kristni Eggertssyni
RÍKISSAKSÓKNARIÁKÆRIR
99
FJANDVIN
íá
Ríkissaksóknari hefur höfðað opinbert mál á hendur Kristni Eggertssyni
verslunarmanni, Guðmundi Albert Birgissyni bónda og Jóni Magnússyni
hæstaréttarlögmanni vegna umboðssvika og misnotkunar á skjali og til-
rauna til fjársvika. Jón er ákærður fyrir að hafa vísvitandi haft milligöngu
um þessi ólögmætu viðskipti og veitt liðsinni sitt til að meðákærðu gætu
auðgast á refsiverðan hátt. Sjálfur segir Jón þetta lið í ofsóknum embættis-
ins á hendur sér og hann verði dæmdur saklaus fyrir jól.
Forsaga málsins er sú að fyrirtækið Málning
hf. heimilaði Kristni Eggertssyni verslunar-
manni að nýta lánsrétt Málningar hjá Verslun-
arlánasjóði, enda var Kristinn tengdur fyrirtæk-
inu persónulega. Gefið var út 5 milljóna króna
skuldabréf þann 12. desember 1986 af Máln-
ingu hf. og Kristni, með veði í fasteign Kristins.
Frumskuldari er Málning, veðin eru í fasteign
Kristins og undir það rita tveir stjórnarmenn
Málningar og Kristinn. Kristinn stóð í hús-
byggingum og tók út vörur í reikning hjá
Málningu hf., enda var lánið hjá Verslunar-
lánasjóði í raun trygging fyrir þeim úttektum.
Greiðir bréfið upp og selur það
Kristinn Eggertsson greiðir síðan skuldina
við Verslunarlánasjóðinn, samtals ríflega 11
milljónir, en þar af eru ríflega 10 milljónir gerð-
ar upp þann 14. febrúar 1990. Hann borgar þá
eftirstöðvar af bréfinu upp þótt ekki sé það allt
gjaldfallið. Þegar Kristinn hefur greitt skuldina
upp leysir hann bréfið til sín. Það er síðan 4.
september 1992 sem Kristinn selur bréfið og af-
salar sér því til Guðmundar Alberts Birgissonar,
bónda í Ölfushreppi, sem reynir að innheimta
bréfið hjá Málningu hf.
Einkamál höfðað
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður höfðar
síðan einkamál fyrir hönd Guðmundar til að fá
skuldabréfið greitt hjá Málningu hf., rúmlega
tveimur árum eftir að Kristinn hafði greitt bréf-
ið að fullu. Skuldabréfið keypti Guðmundur á
2 milljónir en gerir kröfu um að fá það greitt að
fullu, upp á vel á þriðja tug milljóna. Málning
hf. lítur hins vegar svo á að það hafi verið Krist-
inn sem stofnaði til skuldarinnar og því geti
enginn átt kröfu á hendur þeim. Hann geti ekki
rukkað Málningu um greiðslu á láni sem hann
fékk sjálfur. Lögmaður þeirra er Jón Steinar
Gunnlaugsson. Hann vildi ekki tjá sig um mál-
ið en vitað er að hann, fyrir hönd Málningar,
kærði Kristin til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Allir málsaðilar voru yfirheyrðir og þar af var
Jón Magnússon yfirheyrður tvisvar og gaf hann
sína slcýrslu eins og aðrir málsaðilar.
Ríkissaksóknari ákærir þre-
menningana
Rannsókn RLR hefur síðan leitt til þess að
embætti ríkissaksóknara hefur nú höfðað opin-
bert mál og birt ákæru á hendur Kristni Egg-
ertssyni, Guðmundi AJberti Birgissyni og Jóni
Magnússyni. Hallvarður Einvarðsson er sak-
sóknari en það er vararíkissaksóknari, Bragi
Steinarsson, sem undirritar ákæruna. Hafa
verður í huga að þessi tvö mál eru aðsldlin.
JÓN MAGNÚSSON. Segir málatilbúnaðinn vera ofsóknir
á hendur sér.
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON. Lögmaður Málningar
kærði málið til RLR, sem leiddi síðar til ákæru saksókn-
ara.
Annars vegar er um að ræða einkamál þar sem
Guðmundur krefst þess að fá skuldabréfið
greitt. Hins vegar er um opinbert mál að ræða
þar sem krafist er refsingar yfir þremenningun-
um.
í ákærunni er Kristinn Eggertsson verslunar-
maður ákærður fyrir að hafa „misnotað að-
stöðu sína sem handhafi hins greidda skulda-
bréfs sjálfum sér til ávinnings og Málningu hf.
til tjóns, gagnstætt því sem til var ætlast við út-
gáfu bréfsins“ með því að afsala sér bréfinu fyr-
ir milligöngu Jóns og jafnframt að leysa fasteign
sína úr veðböndum á skuldabréfinu.
Guðmundur Albert Birgisson, skiáður bóndi
í Núpum III, Ölfushreppi í Árnessýslu, er
ákærður fyrir að veita Kristni „liðsinni sitt til
þess að valda Málningu hf. samsvarandi fjár-
tjóni, en jafnframt gerst sekur um tilraun til
fjársvika með því að krefja og síðan höfða
dómsmál á hendur Málningu hf. til inn-
heimtu“ á skuldabréfinu. I ákærunni er sagt að
hann hafi vitað eða átt að vita að Kristinn átti
ekki neina kröfu á Málningu samkvæmt
skuldabréfinu.
Jón Magnússon ákærður
Jón Magnússon er ákærður fyrir að hafa haft
milligöngu um viðskiptin þrátt fyrir að hafa vit-
að eða mátt vita að engin kiafa væri fyrir hendi.
Einnig að hafa síðan reynt að innheimta þessa
kröfu hjá Málningu og síðan höfðað málsókn
„eftir að hafa fengið upplýsingar um að með-
ákærði Kristinn en ekki Málning væri sjálfur
hinn raunverulegi skuldari frá upphafi“. Þannig
hafi hann veitt Guðmundi og Kristni liðsinni til
að auðgast á kostnað Málningar.
„Ofisóknir" ríkissaksóknara
Kristinn og Guðmundur undirrituðu skjal
hjá Jóni þar sem kemur fram hver eigandi
bréfsins er og byggist því málið að miklu leyti á
því þeir hafi allir vitað að krafan var ekki fyrir
hendi. Enda keypti Guðmundur bréfið fyrir 2
milljónir en gerir kröfu upp á þriðja tug millj-
óna og telja þeir að bréfið hafi verið selt þar
sem Guðmundur hafi átt auðveldara með að
ná í kröfuna en Kristinn. Jón Magnússon held-
ur því hins vegar fram að viðskipti Kristins og
Guðmundar hafi verið sér óviðkomandi þar
sem sala á bréfinu hafi farið ffarn áður. Fulltrúi
hans hafi upphaflega tekið við málinu og þegar
hann hafi sjálfur komið að því hafi hann ein-
ungis viljað fá yfirlýsingu frá þeim um hver ætti
kröfuna og ekkert hafi komið fram sem sann-
aði að Málning hafi greitt bréfið sem það í raun
stofnaði til. Hér sé því eingöngu um einkamál
að ræða, þar verði dæmt um hvort krafan sé
réttmæt, en ákæra ríkissaksóknara sé út í hött
og liður í ofsóknum á hendur sér. Jón Magnús-
son annars vegar og Hallvarður Einvarðsson og
Bragi Steinarsson hins vegar hafa oft deilt opin-
berlega, ekki síst í tengslum við Hafskipsmálið
á sínum tíma. Einnig gagmýndi Jón Magnús-
son Hallvarð harkalega þegar PRESSAN sagði
frá miklum fjárhagsvandræðum Hallvarðs í
sumar. Rikissaksóknari krefst þess að þremenn-
ingarnir verði allir dæmdir til refsingar. Verj-
andi Jóns Magnússonar verður Jónatan Sveins-
son og reiknar Jón með að málið verði útkljáð
fyrir jól.
PálmiJónasson
SINN
HALLVARÐUR EINVARÐSSON. Ríkissaksóknari ákærír Jón Magnússon fyrír að veita meðákærðu lið-
sinni til að auðgast á refsiverðan hátt.
FAGOR
IWIPIPIÞIV (0 ’iT J/A IVIÉIL /A Ifí
12 manna
7 þvottakerfi
Hljóölát 40dB
Þvottatími 7-95 mín
Sjálfv.hitastillir 55-65qC
Stillanlegt vatnsmagn
Sparnaöarrofi
Hitaþurrkun
HxBxD: 85x58x60cm
Án topp-plötu:
82x58x58cm