Pressan - 25.11.1993, Síða 8
F R É T T I R
8 PRESSAN
Fimmtudagurinn 25. nóvember 1993
Sagan á bak við átökin á Tímanum
þjóð, þegar hann
í grein í Tíman-
um í apríl hvatti
fólk til að gerast
hluthafar með að
kaupa virk hluta-
bréf í heilbrigðu
félagi. Nema
hugmyndin hafi
verið að koma
skvíldum af eldri
útgáfu Tímans
einhvern veginn
inn í bókhald
Tímans hf., en
dæmi þess hefur
PRESSUNNI ekki
tekist að finna og
er slíkum hug-
myndum harðlega neitað af
fyrrum framkvæmdastjóra.
Stjórn Tímans hf. hóf síðan
undirbúning að sölu hluta-
bréfa í Mótvægi hf. að fúllum
krafti skömmu eftir að það
var stofnað og fékk til verksins
Jóhann Kari Sigurðsson, sem
nú starfar á skrifstofú Fram-
sóknarflokksins. Því verki
lauk að mestu í júlí, en stærstu
hluthafar greiddu sín hluta-
bréf, skv. upplýsingum Jó-
hanns, rétt fyrir hluthafafund-
inn sem haldinn var 18. ágúst.
Var skilað inn til Hlutafélaga-
skrár lista með nöfnum 196
einstaklinga, sem höfðu greitt
hlutafé með beinhörðum
peningum eða verðbréfum af
ýmsu tagi og nam heildarupp-
hæð 19.552 þúsundum króna.
Inni í þessu eru ekki hlut-
fjárloforð sem á eftir að
greiða, en skv. upplýsingum
Jóhanns námu hlutafjár-
áskriftir alls um 23 milljónum
króna. 1 dag munu inngreidd
hlutabréf nema alls 20.204
þúsundum króna. Þau hluta-
fjárlöförð sem enn hafa ekki
verið greidd, nema því tæp-
lega þremur milljónum
króna. Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR á einn aðili
þar stærstan hlut, Jón Einar
Jakobsson, faðir Þórs Jóns-
sonar ritstjóra, sem mun hafa
fyrir hönd hóps manna skráð
sig símleiðis fyrir 2,4 milljóna
króna hlutafjárloforði. Hins
vegar eru áhöld um hvort slík
loforð, sem gefin eru símleið-
is, teljist bindandi.
Stjórn Mótvægis í þungum þönkum á stjórnarfundi í gær. F.v. Hrafn Magnússon, Sveinn Finnbogason.Þór Jónsson, ritsjóri, Bjarni Þór
óskarsson, stjórnarformaður, Ágúst Þór flrnason og Jón Sigurðsson.
Með glýju í augum
Það dregur talsvert brodd-
inn úr þeim ásökunum, að
hluthafar hafi verið blekktir til
að kaupa hlutabréf í Mótvægi
hf. með því að þeir hafi verið
leyndir upplýsingum um
slæma fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins, að þann 26. júlí, eða um
þremur vikum áður en flestir
stærstu hluthafar keyptu sín
hlutabréf, var haldinn stjórn-
arfundur í Mótvægi hf. Þar
lagði Hrólfur ölvisson, þá-
verandi framkvæmdstjóri
fram rekstraráætlun sem gerði
ráð fyrir að 11,7 milljón króna
halli yrði á árinu. Þann fund
sátu þeir Steingrímur Her-
mannsson, þáverandi stjórn-
arformaður og fulltrúi Fram-
sóknarflolcksins, sem hafði
lagt frarn 4.7 m.kr. hlut, Vil-
hjálmur Jónsson, f.h. Olíufé-
lagsins sem átti eftir að leggja
fram 3 milljónir króna, Ágúst
Þór Árnason, sem átti eftir
ásamt sínum stuðningsmönn-
um að kaupa hlutabréf fyrir
4,7 m.kr. og Stefán Ásgríms-
son, sem ásamt sínum hóp
lagði ffarn milli 3 og 4 m.kr.
Állir þessir stjórnarmenn og
fulltrúar stærstu hluthafa
samþykktu samhljóða þessa
rekstraráætlun þann 26. júlí.
Á síðustu dögunum fyrir
hluthafafundinn 18. ágúst
keyptu þessir aðilar síðan sín
hlutabréf í Mótvægi h.f. Eða
eins og einn af viðmælendum
PRESSUNNNAR komst að
orði: „Þessir menn voru enn
hugfangnir af því að sigra
heiminn og höfðu ekki
áhyggjur af öðrum eins titt-
lingaskít og 11,7 milljón
króna borðlögðu tapi!“
Á hluthafafundinum 18.
ágúst var Jón Sigurðsson,
lektor á Bifröst kjörinn for-
maður stjórnar. Hann sagði í
samtali við PRESSUNA að
hann hafi þegar farið að leita
eftir svörum við ákveðnum
spurningum um fjárhags-
stöðu Mótvægis hf., því að
hans mati var rekstraráætlun
Hrólfs engan vegin nægilega
tæmandi. Áætlaðar auglýs-
ingatekjur hafi verið byggðar
á útsendum auglýsingareikn-
ingum, en ekki borguðum,
svo dæmi sé tekið. Fram-
kvæmdastjórinn hafi hins
vegar verið ófáanlegur til að
láta upplýsingar af hendi,
jafnvel þótt þriggja daga dvöl
Jóns í Reykjavík við að afla
upplýsinga hafi kostað Mót-
vægi 70 þúsund lcrónur skv.
samningi. Hrólfur hafi sagst
hafa á tilfinningunni að tapið
væri rúmlega átta milljónir.
Jón bætti við þessa tölu 50%
samkvæmt heimatilbúinni
þumalputtareglu og lagði
ffarn á fúndi 7. september það
sem hann kallaði bráða-
birgðaupgjör upp á 12,4 millj-
ón króna tap. Hann hafi ekíd
getað fengið upplýsingar á
hvaða reikningi og á hvaða
kjörum hlutaféð væri geymt
og ekki fengið neinn í stjórn
til að taka undir með sér að
draga þyrfti saman seglin.
Hefur Jón dregið þá ályktun
að allt hlutafé hafi þegar verið
uppnotað í skuldir þegar um
mánaðarmótin ágúst/septem-
ber. Því hafi hann sagt af sér
formennsku.
Aðeins 13,7 milljón-
ir í peningum
Það olli hins vegar talsverð-
um missldlningi hjá ýmsum
aðstandendum Mótvægis
þegar Lárus Finnbogason,
endurskoðandi Tímans, skil-
aði árshlutaskýrslu fýrir tíma-
bilið 1. janúar til 31. ágúst. I
skýrslunni, sem var birt 25.
október, kom fram að inn-
borgað hlutafé næmi aðeins
13,7 milljónum króna. Skýr-
ingin sem Lárus Finnbogason
gefur á því er sú að hér hafi
ekki verið um vanalegan end-
urskoðaðan ársreikning að
ræða, heldur hefi verið gefið
nokkurs konar yfirlit á stöð-
unni. Verldð hafi verið unnið
á fljótlegan og ódýran hátt.
Hann hafi aðeins fært sem
skráð hlutafé það sem hafi
verið komið inn í bókhald
Mótvægis á tímabilinu. Þar
hafi verið um að ræða það
hlutafé sem borgað hafi verið
með beinhörðum peningum,
en hlutafé sem greitt hafi verið
með verðbréfum, víxlum og
greiðslukortum, alls um 5,8
m.kr., hafi ekki verið komið í
bókhaldið á þeim tíma. Héð-
an eru m.a. sprottnar ásakanir
um bókhaldsóreiðu. Ekld vissi
endurskoðandinn Lárus hvort
þær milljónir sem lagðar voru
ffarn í verðbréfúm ýmis konar
hefðu skilað sér í sjóði Mót-
vægis. Hans bíður nú það
hlutverk að finna út hver
raunveruleg fjárhagsstaða
Faöir ritstjórans dregur að efna hlutafjárloforö upp á 2,4 milljónir
á meðan blaðið siglir óðfluga í strand. Nýir menn samþykktu
rekstraráætlun upp á 12 milljóna tap áður en þeir keyptu hlutafé.
Þór Jónsson, ritstjéri Tímans. Er hægt að ásaka hann um að erfiðlega gangi að reka Tím-
ann þegar allir sjóðir eru tómir, jafnvel þótt útlit nýja Tímans sé „eins og að fá múrstein
í andlitið"?
hvenær, eða var kannski eng-
inn svikinn? Er um stórkost-
lega leikfléttu Framsóknar að
ræða þar sem hluthafar voru
plataðir til að borga gömlu
skuldirnar hans Steingríms?
Eða lá þetta allt í augum uppi
ef nýir hluthafar hefðu ekki
verið blindaðir af glýju eigin
ágætis og áforma?
Mótvægi tekur við
gömlu bui
Þegar Þór Jónsson, ritstjóri
Tímans, og Jón Sigurðsson,
síðustu mánuði og vikur virð-
ist mörkuð af samblandi af
óheppni, misskilningi, fá-
dæma bjartsýni og aulaskap.
Enginn vill þó taka svo stórt
upp í sig að um vísvitandi
blekkingar eða svik hafi verið
að ræða, þótt leiðaraskrif Þórs
um Steingrím fari ekki langt
frá markinu.
Hefja má söguna á því þeg-
ar Tímanum hf. er breytt í
Mótvægi hf. í apríl sl. Þá hafði
Ágúst þór Árnason verið á
sveimi í kríngum blaðið í
Pabbi ritstjór-
ans á eftir aö
borga
Rekstur Tímans ár-
ið 1992, hafði skv.
upplýsingum Hrólfs
ölvissonar, fyrrv.
framkvæmdastjóra
gengið „nokkuð vel“
og halli var aðeins um
1,4 milljónir króna. Að vísu
segja heimildarmenn PRESS-
UNNAR að áskrifendum
Tímans hafi fækkað jafnt og
þétt á þessu ári, en vísast mun
hugmyndin um nýtt félags-
hyggjublað sem stæðist sam-
keppni við Morgunblaðið
hafa vakið einhverja ofur-
bjartsýni í brjóstum manna
um að snúa mætti dæminu
við. Alla vega virðist ekki
ástæða til að ætla að Stein-
grímur Hermannsson hafi vi-
svitandi verið að blekkja al-
Undafarna daga hefur
gengið á með skothríð úr her-
búðum Tímans og miklir
hvellir sprungið. Nú þegar
stund er milli stríða rangs
misskilnings og rétts er rétt að
líta yfir átakasviðið og gera sér
grein fyrir hvernig málið er
vaxið. Hver sveik hvern og
fyrrum stjórnarformaður
Mótvægis hf., beina skeytum
sínum að Steingrími Her-
mannssyni og kvarta yfir
skorti á upplýsingum um
rekstur og fyrri stöðu félagsins
tekst þeim að hitta í mark en
skjóta þó um leið fram hjá.
Því makalaus saga Tímans
nokkurn tíma og hafði m.a.
hug á því að kaupa helming
hlutafjár á tímabili og reka
það sjálfúr. Það hefúr sjálfsagt
verið fyrir hans tilverknað að
byrjað var að ræða um að
opna Tímann og gera að blaði
félagshyggjuaflanna. En breyt-
ingin gerðist aðeins við til-
kynningu til Hlutafé-
lagaskrár um nafna-
breytingu. í raun var
um sama félag eða fýr-
irtæki að ræða og eng-
in skil urðu í rekstri
þess. Þeir sem gerðust
hluthafar í Mótvægi
hf. gengust því í raun
inn í rekstur Tímans
hf. með öllum þeim
skuldbindingum sem
það félag hafði stofnað
til. Þetta mátti vera öll-
um væntanlegum
hluthöfum ljóst.
Aldrei kom til tals að
„núllstilla“ Mótvægi
hf. þ.e. að hefja rekstur
þess á núlli, aðskilið
frá fyrri rekstri Tímans
hf. á Tímanum. í
reynd hófst undirbún-
ingur að hlutafjársöfn-
un fyrir nýja „félags-
hyggjublaðið“ Tímann
áður en nafiii rekstrar-
aðilans var breytt
14. apríl.
Tóku brosandi við skuldum gamla
Tímans
RYMÍNGARSALA
VEGNA BREYTINGA
Oll teppi á frábæru verði
Sxétk liíor mfeoiir j servwót
Altar nofTKmtiemr i s&rstúkM tiBg&S
7 *pi
iL mStmr
I.'M'. í 1£5.
FAÁtfsíil ð- • Si'Aíi' íSSSi'sí?
Sérstakt tilboð á stigahúsateppum.
Verð áður 2.600.- kr. m2
Verð nú 1.950.- kr. m2
Frábær teppi með 10 ára reynsiu
MMmmmmmmmmm
Vönduð ullarteppi. Eigum 12 liti á lager á
frábæru tilboði.
Verð áður 3.900.- kr. m2
Verð nú 2.925.- kr. m2