Pressan - 25.11.1993, Qupperneq 28
260 krónur
í lausasölu
(Vikuritid
PRESSRN fylgir
án endurgjalds)
— þarf þó að skírast til kaþólsku
Páfggofðí, 24. nóyember.
„Eg fyrirgef ykkur öllum
þessum fjölmiðlamönnum
sem hafið verið að rægja
mig og bíla mína undanfar-
ið,“ sagði Jón Sigurðsson
hinn hæfi á sérstökum
blaðamannafundi í gær þar
sem ný og óvænt upphefð
Jóns var tilkynnt. Gert er
ráð fyrir að Jón taki við hinu
nýja starfi um leið og hann
hefur skírst til kaþólsku.
Jón sagðist hverfa til þess-
ara starfa sáttur við alla
menn — jafnvel blaðamenn.
„Ég sé mest eftir að hafa ekki
náð að gera neitt fyrir Sam-
bandið á meðan það var lif-
andi. Nú get ég bara beðið
fyrir því.“
„Svona hæfir menn finn-
ast ekki nema á um það bil
2.000 ára fresti á jörðinni,“
sagði talsmaður páfagarðs.
Jón Sigurðsson, væntanlegur páfi, blessar vonda
blaöamenn.
Jón Sigurðsson talinn sérlega hæfur í
enn eitt starfið
Rólegasta starf í heimi
Umsjón með eignum
Sambandsins
Jóhann Þór Eyþórsson, umsjónarmaður eigna Sambandsins, á skrifstofu sinni í
Sambandshúsinu: „Þetta hefur alitaf verið skemmtilegt starf, en er orðið mjög
rólegt í seinni tíð.“
Fylgishrun krata hefur alvar-
legar afleiðingar
Farnir að
ræna kjós-
endum
I ‘ »4mundi Ámundason hefur hér rænt ungri konu sem
hann skráði í Alþýðuflokkinn skömmu síðar.
Reykjqvík, 24. nóvember.__________
„Þetta var óhugnanlegt. Eg
var þrifin aftanfrá og dregin
inn í skuggalegt hús á horni
Ingólfsstrætis og Hverfisgötu
þar sem ég var látin skrifa
nafh mitt og sverja þess eið að
kjósa krata," sagði Þuríður
Hildur Pálsdóttir, sem varð
fyrir barðinu á heldur harð-
skeyttri smölun krata um síð-
ustu helgi.
„Ég skil ekki hvað óvandað-
ir fjölmiðlar eru að skipta sér
af málefnum Alþýðuflokks-
ins,“ sagði Sigurður Tómas
Björgvinsson, framkvæmda-
stjóri flokksins, aðspurður um
málið.
„Innra starf Alþýðuflokks-
ins er ekki til umræðu,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður.
Óvænt í Geröabakkahreppi Ske|f jng meða, fyr\rtækia
Vlldu samem- á Hverfisgötunni
ast Hawaii
Svona voru þeir Jón Hafsteinsson og Þrymur Guð-
leifsson klæddir þegar þeir mættu á kjörstað á
laugardaginn í Gerðabakkahreppi. Þar var sam-
þykkt með 97,5% atkvæða að sameinast Hawaii.
„Vitum ekki hvernig brugðist verður við þessu,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir.
Ottast að
taprekstur
Tímans
breiðist út
Reykjavlk, 24. nóvember.
„Þetta líkist meira vírus en
fyrirtækjarekstri og auðvitað
erum við skíthræddir við að
þetta rekstrarform breiðist út
rneðal fyrirtækja hér á Hverf-
isgötunni og síðan í aðrar
áttir,“ sagði Guðvarður Haf-
steinsson, kaupmaður á
Hverfisgötu, en kaupmenn
þar vilja setja Tímann í sótt-
kví meðan reksturinn er
kannaður. „Með sama marg-
földunarhraða í tapi má bú-
ast við að allur miðbærinn
verði gjaldþrota eftir nokkra
mánuði.“
Maöur sem sett-
ist viö hliöina á
Sigurði Markús-
syni hjá tann-
lækninum:
„Ég fann strax sting
þar sem veskið mitt
var og hélt í fyrstu að
það væri tannlækninum
að kenna. Nú er ég
hins vegar sannfærður
um að þetta voru Sam-
bandsálögin," sagði
Geirharður Vésteins-
son, sem nú er gjaid-
þrota eftir að hafa sest
við hlið Sigurðar Mark-
ússonar, stjórnarfor-
manns Sambandsins.
Alþingismenn ætla að senda reikning fyrir yfirvinnu
Drögum af þeim
suefhtÉnann í staðinn
— segir talsmaður fjármálaráðuneytisins
Alþingi, 24. nóvember.__________
„Það er sjálfsagt að taka við
reikningum frá alþingismönn-
um fyrir yfirvinnu, en á móti
viljum við fá að koma upp
stimpilklukku niðri á þingi,"
sagði Magnús Pétursson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu.
Sem kunnugt er telja alþingis-
menn að þeir eigi rétt á að
senda inn reikning fyrir yfir-
vinnu.
„Ef þingmenn vilja fara út í
svoleiðis leik hljótum við að
fara að gera þá kröfú að þeir séu
á staðnum og sinni vinnu sinni.
Þar að auki sofa þeir megnið af
tímanum sem þeir eru þar í
yfirvinnu eða þá að þeir tefla
eða lesa blöðin. Það segir sig
sjálft að ekki er þetta allt saman
arðbær vinna,“ sagði Magnús.
„Auðvitað er nokkuð til í
þessu hjá Magnúsi og ég er nú
hrædd um að hann Arni minn
Johnsen fengi nú ekki mikið í
umslagið sitt ef stimpilklukka
yrði tekin upp. — Ja, ekki nema
Matti Bjarna stimplaði hann
inn,“ sagði Salóme Þorkelsdótt-
ir, forseti sameinaðs þings.