Pressan - 25.11.1993, Page 30
30
PRESSAN
SJONVARP O G BIO
Hafnfirsk sjónvarpsgerð — hvað er nú það?
Ekki mjög hörð frétta-
mennska
Það vita það kannski ekki allir, en sjónvarpsstöðin Sýn
hf. sendir enn út. Aðaláherslan er á útsendingar frá Al-
þingi en á laugardögum og sunnudögum er dagskrá milli
5 og 7 á daginn. Og sjá; þar er að finna innlent efni og
gott betur, hafnfirska sjónvarpsgerð!
v jw. Á sunnudögum hafa verið á
dagskrá Sýnar sjónvarpsþættir
sem eru hafnfirskir í einu og
öllu. Óneitanlega ...athyglis-
vert. Maðurinn sem stendur
að baki þessum útsendingum
er Halldór Árni Sveinsson,
gamall í hettunni í ljósvaka-
miðlun. Hann er eigandi Út-
varps Hafnarfjarðar sem hóf
útsendingar 1987. Þá hefur
Halldór verið viðloðandi kvik-
myndagerð undanfarin fimm-
tán ár með áherslu á heimilda-
söfnun.
Hvað kom til?
„Ja, þetta er samvinnuverk-
efni milli Útvarps Hafnar-
fjarðar og Hafnaríjarðarbæjar
og Sýn hefur verið svo vin-
samleg að hafa afurðina á dag-
skrá. Við byrjuðum í fyrra-
haust og upphaflega var þessi
dagskrárgerð hugsuð sem sjö
þátta tilraun, en hefur fengið
góðar undirtektir svo við höf-
um frestað því að hætta. Dag-
skráin er tvískipt. Annars veg-
ar er um að ræða umfjöllun
um það sem er að gerast í
menningar- og félagsmálum
Hafhfirðinga. Hér er ekki um
harða fréttamennsku að ræða,
en umfjöllun um fyrirhugaða
niðurlagningu sýslumanns-
embættisins hefur reyndar
vakið miWa athygli. Hins veg-
ar er um seríur að ræða eins
og t.d. þætti um hafnfirska
listamenn. Framhaldið er óvíst
en ég vonast til að fá áfram-
haldandi stuðning bæjaryfir-
valda til að halda þessu áffam í
vetur.“
Hvernig erþetta unnið?
„Það er reynt eftir fremsta
megni að vinna þetta eins
ódýrt og hægt er án þess að
það bitni á gæðum. Takmörk-
uð fjárráð hafa í för með sér
að ég vinn þetta að langmestu
leyti einn; skrifa handrit, tek,
klippi, hljóðset og fleira. Þessi
dagskrárgerð hefur fyrst og
fremst heimildagildi, einkum
og sér í lagi fyrir Hafnarfjörð.
Þetta er í raun rökrétt fram-
hald af því starfi sem Útvarp
Hafnarfjörður hefur sinnt í
þvi sambandi.“
En af hverju í ósköpunum
þessi ofuráhersla á Hafnar-
fjörð?
„Það er mikið að gerast í
eins stóru sveitarfélagi og
Hafnarfjörður er og sjálfsagt
að greina ffá því. Ég átti von á
því, þegar útvarp var gefið
frjálst, að fjölmiðlar myndu
HALLDÓR ÁRNISVEINSSON. „Menn eiga að líta sér nær og rækta garðinn
sinn.“
skilgreina sig þrengra, líta sér
nær. Ég er hissa á því að ekki
skuli hafa komið fram fleiri
litlar útvarpsstöðvar sem
gegna því hlutverki. En á það
ber að líta að tækjakaup eru
dýr og allur rekstur erfiður. Þá
má nefna að leyfisgjöld eru
þau sömu fyrir minnstu og
stærstu stöðvarnar og sífellt
bætast við nýir gjaldstofftar.“
Sigurveig Jónsdóttir hefur
umsjón með útsendingum
Sýnar. Hún segir að verið sé
að bíða þess að ffumvarp um
ný útvarpslög verði afgreitt
áður en tekin verði afstaða til
dagskrárstefnu áskriftarsjón-
varps. Eins og er sé rásin opin
ölium og því tekjulaus. Is-
lenska útvarpsfélagið keypti
stöðina á sínum tíma en seldi
hlutabréfin í henni. Stjórn
Sýnar skipa þeir Óskar Magn-
ússon, formaður, Sveinn
Jónsson og Gestur Jónsson,
en þeir eru allir eigendur.
„Við lítum á þetta sem
þjónustu sem á fullan rétt á
sér,“ segir Sigurveig. „Eigend-
ur vilja hafa fast land undir
fótum þegar þeir fara af stað
með fullan rekstur. Kostnaður
er nánast enginn við að halda
þessu gangandi, ekkert er
greitt fyrir það efhi sem við fá-
um.“
• Ung í annað sinn ★★★★ Used People
Leikur er vitaskuld ffábær með öllum þessum afbragðsleik-
urum. Samleikur Marcellos Mastroianni og Shirley MacLaine
er afar nákvæmur og fínlegur. Það er sérstakt ánægjuefni að
þessum gömlu brýnum skuli gefast tækifæri til að gleðja kvik-
myndahúsagesti enn einu sinni.
Sögubíói
• Hin helgu vé ★★★1/2 Höfuðkostur þessarar myndar er
falleg og raunsönn lýsing á því hvernig drengur breytist í pilt,
hvernig móðirin þokar fyrir holdlegri írnynd heimasætunnar,
hvernig það er að vakna upp við verk í líkamshluta, sem hing-
að til hefitr verið til friðs.
Regnboganum
• Svefnlaus í Seattle ★★★
Sleeplessin Seatrlc Breyttir tím
ar eiga sjálfsagt einhvern þátt í
þvi að nú þvkir manni þessi
mynd góð. Gáfaðir asnar
mundu sjálfsagt tengja það
hræðslunni við AIDS, að nú
séu kvikmyndir um hið eih'fa par vinsælar. Miklu líklegra er að
hrun hinnar þröngsýnu skynsemishyggju eigi hér hlut að máli.
Stjörnubiói
Svona la la
• Rísandi sól ★★1/2 Rising
Sun Reynt er að láta Connery
vera fulltrúa taóískrar speki í
anda Sun Tzu, sem kennír að
best sé að sigra án bardaga.
Þessi speki hverfur út í veður
og vind þegar hann fer að slást
og skjóta.
Bíóhöllinni
• Fyrirtældð ★★ The Firm Niðurstaðan er eitthvað á þá
leið að eigin hagsmunir lögmannsins komi fyrst, þá hagsmun-
ir skjólstæðinganna, sent eru mafmfantar í þessu tilviki. Síðan
megi dauðinn, djöfullinn og FBI eiga hina spilltu lögffæðinga
á stofunni. Þetta er vond siðfræði og trúlega vond lögfræði
líka. I raun er ekki hægt að segja að myndin sé illa leikin, í
henni eru engar persónur sem gefa tilefni til leiks.
Bíóhöllinni
KVIKMYNDIR
Vesöld og nauðhyggja
FANTURINN
— THEGOOD SON
BIOBORGINNI
★
Hver er uppspretta hins
illa? Þetta gæti verið vinnu-
heiti á kvikmyndinni Fantur-
inn (?!) eða The Good Son.
Umræður í Bandaríkjunum
hafa löngum verið líflegar um
þetta efni, enda snertir það
meginhugmynd þarlendra
um eðli samfélagsins. Þar
virðist meginhugmyndin að
hið illa eigi upptök sín í ein-
staklingnum, ef dæma má af
bandarískum kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum og fréttum.
Úppsprettur hins illa eru í
vondum mönnum, sem eru
illir í sér, að því er virðist ffá
fæðingu. Fjöldamorðingi fór
upp í kirkjuturn í Texas og
drap tugi manna. Eftir að
honum hafði verið sálgað var
hann krufinn og auðvitað
kom í ljós að hann var með
heilaæxli. Þar með þótti sýnt
að hið fáránlega byssuæði
sem Bandaríkjamenn eru
haldnir átti hér ekki hlut að
máli. Orsök morðanna var
eJcki sjúkt félagskerfi heldur
æxli í hausnum á morðingj-
anum. Orsökin var innan í íll-
virkjanum. I Bandaríkjunum
er mikil áhersla lögð á að
drykkjusýki leggist í ættir, að
orsök drykkjusýkinnar sé arf-
gengur galli en ekki að menn
drekki of mikið. Orsökin
verður að vera innan í
drykkjumanninum svo ekki
falli blettur á vínið. Ef menn
gerast sekir um hinn alvarlega
höfuðglæp að vera fátækir, þá
þarf ekki lengi vitnanna við,
þeir vilja sjálfir vera fátækir
GUÐMUNDUR
ÓLAFSSON i
því hver er sinnar gæfu smið-
ur í guðs eigin landi.
I kvikmyndinni missir ung-
ur drengur, Mark; móður
sína. Faðir hans þarf að fara
frá í hálfan mánuð vegna
vinnu sinnar og er drengnum
komið fyrir hjá frændfólki
sínu á meðan. Þar býr dreng-
ur á svipuðu reki, Henry.
Smátt og smátt kemur í ljós
að Henry er voða, voða vond-
ur drengur og versnar þegar á
líður myndina. Hann vill ekki
aðeins drepa hunda og ketti
heldur einnig menn, jafnvel
sína nánustu. Engin leið er að
átta sig á því hvers vegna
Henry er svona vondur, enda
er því haldið ffam í myndinni
að hann sé einfaldlega illur í
sér. Þó er látið í það skína, að
hann hafi orðið öfundsjúkur
út í yngri bróður sinn, að sá
yngri hafi fengið gúmmíönd
sem Henry taldi sig eiga. Svo
fer að lokum að Henry fær
makleg málagjöld.
Ekki vantar að þessi mynd
er vel úr garði gerð hvað
snertir handverk. Sömuleiðis
er leikur drengjanna þokka-
legur, leikur hinna fullorðnu
er mun síðri. Ákaflega fallegt
landslag kemur ffam í mynd-
inni og tónlist er fremur
smekkleg. Á hinn bóginn
virðast handrit og leikstjórn
að öðru leyti fyrir neðan allar
hellur. Leikstjórinn óg hand-
ritshöfundur hans eru raunar
kunnir aulabárðar, sem hafa
ekkert gert annað en auvirði-
legt rusl. Ekkert frumlegt
kemur fram í þessari mynd,
enda hefur fjöldi mynda og
myndaflokka verið gerður
um svipað efni, um börn sem
innblásin eru af djöfullegri
illsku. Flestar hafa þær verið
meira spennandi og
skemmtilegri en þessi, en yfir-
leitt álíka vitlausar að inntaki.
Niðurstaða myndarinnar er
eitthvað á þá leið, að illskan
kvikni af sjálfri sér í tólf ára
dreng, orsökin sé innan í
honum en ekki að neinu leyti
í því umhverfi sem hann býr
við.
Ekki verður annað sagt en
að leikstjóranum mistakist
fullkomlega að rökstyðja
þessa niðurstöðu. Hann hefur
ekki lært þá lexíu að allt orkar
tvímælis þá gert er, að mynd-
in hefði orðið ögn skárri ef
vafi hefði leikið á orsökum
hins illa. Hann leiðir að vísu
til vitnis sálffæðing, sem held-
ur því ffam að enginn sé sek-
ur um illsku, aðstæðurnar
beri alla ábyrgð. Þessi skoðun
sálfræðingsins er auðvitað
hinar öfgarnar, sem sviptir
einstaklinginn öllum mynd-
ugleik gagnvart örlögum sín-
um. Hin félagslega nauð-
hyggja er engu betri en ein-
staklingsnauðhyggjan. Hér er
hún sett ffam til að hæðast að
þeim sem ekki eru tilbúnir að
fallast á heimskulegar einfald-
anir leikstjórans.
Börn eru fær um ódæði
eins og dæmin sanna. Um
það þarf að fjalla af innsæi og
skilningi á aðstæðum og per-
sónum sem í því lenda.
Frammi fyrir því mikilvæga
verkefni er þessi mynd nánast
Fimmtudagurinn 25. nóvember 1993
Sjónvarp
Sjáið:
9 Pál Magnússon ★★★★ siðbótarmann
á Stöð 2 halda þvi ffam að hann sé að gera
þjóðinni stórkostlegan greiða með því að elt-
ast við einhvern Jón og kannski Pétur sem
laumast hjá áskriftinni.
• Roy Orbison og vini á RÚV á föstu-
dagskvöld. Líf hans var enginn dans á rósum en hann hélt
lagi. Góðir gestir á borð við Waits og Costello.
• 5.000 fingra konsertinn ★★★★ 5.000 Fingers of Dr. Tá
Stöð 2 á laugardag. Klassísk mynd sem hefur ekki fengið verð-
skuldaða athygli.
• Lömbin þagna ★★★★ Silence of the Lambs á Stöð 2 á
laugardagskvöld. Svívirðileg spenna.
Varist:
• Mafíuna og mafíósana Mobs and Mobsters á Stöð 2 á
fimmtudagskvöld. Heimildamynd um mafíuna. Virkar
spennandi við fýrstu sýn en ef maður hugsar málið þá gengur
þetta ekki upp. Mafían byggist á hinu sikileyska þagnarlög-
máli. Annaðhvort er mafian búin að vera eða þetta er þunnur
þrettándi.
• Aðgát skal höfð ©® Á RÚV á fimmtu-
dagskvöld. Mynd um vinnuvernd og öryggis-
mál á vinnustöðum. Það er ekki þetta sem um
er rætt þegar talað er um gildi innlendrar dag-
skrárgerðar. Og rétt eins og til að vera örugg-
lega með hrútleiðinlegt prógramm þá gerðu
myndina nemar Sigrúnar Stefánsdóttur í hagnýtri fjölmiðlun.
Öhöööaa.
• Ástarpungiim © Loverboy á Stöð 2 á sunnudagskvöld.
PizzusendiUinn Randy er með skófar á afturendanum og ör á
sálinni effir að kærastan sagði honum upp. (Þetta er eldd til-
raun til fyndni heldur beint úr dagskrárkynningu!)
„Ekkert frumlegt kemurfram íþessari
mynd, enda hefurfjöldi mynda verið
gerður um svipað efni. Flestar hafa þœr
verið meira spennandi og skemmtilegri
en þessi, en yfirleitt álíka vitlausar að
inntaki. “
svívirðileg. I samanburði við
þessa mynd eru venjulegar of-
beldismyndir hótinu skárri
því þær eru oftast bara rugl. I
þessari mynd eru andlaus ves-
almenni að ata bernskuna
auri sér til ábata. Það er illa
farið.