Pressan - 06.01.1994, Page 19

Pressan - 06.01.1994, Page 19
MYIUDUST • Ásgrímssafn: Sýning stendur yfir á vatnslita- myndum eftir Ásgrím Jónsson. Opið á laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. • Café List: Lofgjörð tíu landskunnra listamanna til Brynju X. Vífilsdóttur í tilefni af útkomu jólatölu- blaðs tímaritsins Eintaks. Meðal listamanna eru Helgi Þorgils Friðjónsson, Guðbergur Bergsson, Þorvaldur Þorsteinsson og Páll Guðmundsson. • Gallerí Borg: Sigurbjörn Jónsson sýnir nýjar ol- íumyndir. • Gallerí Listinn: Samsýning tíu listamanna sem allir eru búsettir í Kópavogi. Sýningin, sem er í Hamraborg 20a, er opin daglega frá kl. 13-18 og lýkur 8. janúar. • Gallerí Sævars Karls: Ljósmyndasýning ívars Brynjólfssonar verður opnuð föstudaginn 7. janúar og stendur til 2. febrúar. • Gallerí Úmbra: Fyrsta einkasýning Ingibjargar Jóhannsdóttur verður opnuð 6. janúar. Hún sýnir ellefu myndir unnar með blandaðri tækni á pappír. • Götugrillið: Jón Garðar Henrýsson sýnir mál- verk unnin með blandaðri tækni \ Borgarkringlunni. • Hafnarborg: Á kaffistofunni sýnir Guðmundur Rúnar Lúðvíksson þrettán myndir unnar með nýrri aðferð sem hann nefnir „Ijósgrafík". Sýningunni lýkur 9. janúar. • Kaffi Sautján: Infernó 5 og Bandormsmennirnir Ómar Stefánsson og Örn Ingólfsson sýna málverk og leðurverk. Sýningin stendur fram yfir áramót. • Kjarvalsstaðir: Þrjár nýjar sýningar verða opnað- ar 8. janúar: Magnús Kjartansson sýnir ný málverk, Finnbogi Pétursson opnar sýningu á hljóðskúlptúr- um og Geoffrey Hendricks FLUXUS-maður sýnir. • Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sýningin Hug- mynd-Höggmynd, úr vinnustofu Sigurjóns Ólafsson- ar, stendur yfir. • Listhúsið: Jóhann G. Jóhannsson sýnir vatns- litaverk á fyrstu einkasýningu sinni í sjö ár. Sýningin '' - var framlengd til 9. janúar. • Mokka: „Kaffi með Kristi“. Harla óvenjuleg sýning á krossum af ýmsu tagi fyrir þá sem hafa gleymt raunverulegu inntaki jólanna. Heilagasta kaffihúsa- stemmning ársins er hér. Sýningunni lýkur á þrett- ándanum. • Norræna húsið: Þór Stiefel sýnir andlitsmyndir unnar með vatnslitum í anddyri hússins. Sýningin hefst 8. janúar og stendur yfir í þrjár vikur. • Veitingahúsið Tilveran: Næsta mánuð sýnir Ása —1' Björk á Linnetstíg 1 í Hafnarfirði. • Önnur hæð: Tíu vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason frá sjöunda áratugnum í sýningarsalnum á Laugavegi 37. Opið á miðvikudögum frá 14-18. • Nýlistasafnið: Sýning á verkum Magnúsar Páls- sonar verður opnuð laugardaginn 8. janúar kl. 16 með flutningi nokkurra leikara Þjóðleikhússins á hljóðaljóðum eftir Magnús. Sýningin, sem heitir „Varla...“, samanstendur af þremur rjóðrum, smá- hlutum og raddskúlptúrum. Hún stendur til 23. janú- ar. HANN HEFUR HÖND- TBUÐ Bandaríski myndlistarmaður- inn Geoffrey Hendricks verður í sviðsljósinu laugar- daginn 8. janúar á Kjarvals- stöðum þegar farandsýningin „Day Into Night“ verður opn- uð. Sýningin kemur héðan frá Óðinsvéum en heldur svo áffam til Finnlands, Póllands og Noregs. Geoffrey Hendricks hefur einu sinni áður haldið sýn- ingu hérlendis en það var í Nýlistasafninu 1984. Hann hefur alls haldið um þrjátíu einkasýningar á ferlinum og tekið þátt í fjölmörgum sam- sýningum, gerningum og umhverfislistaverkum og gef- ið út rit, bækur og mynd- bönd. Hann er þekktastur fýr- ir þátttöku sína í FLUXUS- hreyfingunni í Bandaríkjun- um og Evrópu frá miðjum sjötta áratugnum og hefur .síðan verið virkur í þeim fé- lagsskap. „Day Into Night“ er yfirlits- sýning á verkum Hendricks frá þeim tíma til dagsins í dag og nær yfir málverk, muni, innsetningar og gerninga. Það er ekki auðvelt að setja verk hans á ákveðna bása, sérstak- lega vegna þess að sjaldan er um skýra einingu að ræða milli listamannsins sem ein- staklings og þegar hann ffarn- kvæmir gjörninga og innsetn- ingar eða málar myndir. Hann hefur sjálfur sagt að listamenn megi skilgreina jafnt eftir lífi þeirra og þeim listaverkum sem þeir skilja eftir sig. Meginviðfangsefhi Hendricks er himinninn, sem hefur heillað hann í hartnær þrjá áratugi. Hann hefur málað skýjamyndir og himinverk á ýmsa hluti svo sem skó og stóla en síðar á hefðbundnari fleti. Háleit og kannski him- nesk sýning sem verðskuldar eftirmiðdagsrölt um sýning- arsal Kjarvalsstaða. Sýningin er opin daglega frá kl. 10-18 og stendur til 13. febrúar. MAMBÓ- KÓNGAR:Tex Borgfjörð og Bogomil Font. Heimsborgaradúett Sigtryggur Baldursson, örðu nafni Bogomil Font, er á fullu þessa dagana að reyna að viðhalda fornri frægð á meðan jólafríið stendur yfir, en eins og flestir vita starfar hann sem húsmóðir í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hann ætlar um helgina að taka lagið með gömlu félögunum úr Milljónamæringun- um en þegar líða tekur á kvöldið má vænta þess að Tex Borgfjörð stígi á svið- ið og syngi með Bogomil dúett í mambóstíl. Tex Borgfjörð er betur þekkt/ur sem Lundúnabúinn Ragnhildur Gísladóttir, sem er öll að færast í aukana um þessar mundir. 1 gervi Tex Borgfjörð lítur Ragnhildur út sem karlmaður og er það gervi ekki með öllu ókunnugt, því í áramótaskaupinu birtist hún einmitt í hlutverki þessa mambókóngs, sem hæglega gæti ógnað veldi Bogomils. BÖLL • Amma Lú: Bogomil Font, Ragnhildur Gísladóttir og Milijónamæringamir verða öll saman að skernmta á föstudagskvöld. Á laugar- dagskvöldið verður Bogomil hins vegar einn síns liðs. • Bóhem: Eitthvað stórt mun vera í bígerð á laugar- dagskvöldið. Skólaball á föstudagskvöld. • Blúsbarinn: Ingólfsbandið, skipað fjölda hljóðfæraleik- ara, færir sig frá Ingólfskaffi yfir á Blúsbarinn föstudags- og laugardagskvöld. • Cancun: Örkín hans Nóa á laugardagskvöld. • Café Romance: Birgir Tryggvason og hinn ódauð- legi Richard Scobie skemmta á hverju kvöidi fram tii 15. janúar. • Feiti dvergurinn: Hljóm- sveitin Sjarmör, sem ku vera helmingur Snigla- bandsins, ætlar að skemmta á föstudags- og laugardagskvöld. • Fjörðurinn: Bara diskó alla helgina, enda pása víð- ast hvar. • Fógetinn: Jón Ingólfsson á föstudagskvöld. Guð- mundur Rúnar trúbador á föstudags- og Iaugardags- kvöld. Rúnar Þór —■ einn — á sunnudagskvöld. • Gaukur á Stöng: Bogomil Font sjálfur ásamt Milljóna- mæringunum á fimmtu- dagskvöld. Sú Ellen á föstu- dags- og laugardagskvöld. • Hótel ísland: Bylgjuball með Pláhnetunni og Stefáni Hilmarssyni á föstudags- kvöld. Þolfimikeppni hefst kl. ntu á laugardagskvöld og diskótek á eftir. • Hótel Saga: Þorvaldur Halldórsson og Gunnar Tryggvason skemmta á Mímisbar á föstudags- og laugardagskvöld. Dansleik- ur í Súlnasal á laugardags- kvöld þar sem ætlunin er að njóta dreggja nýársfagnað- arins. Þar verður Pops ef að líkum lætur. • Hressó: Hljómsveitin Black out með tónleika á þréttándandum. Ólifandi tónlist að öðru leyti alla helgina. • Rauða Ijónið: Hljómsveitin SÍN verður þar um helgina eftir því sem næst verður komið. • Tveir vinin Örkin hans Nóa á fimmtudags- og föstudagskvöld. Vinir Dóra á laugardagskvöld. • Þjóðleikhúskjallarinn: Leikhúsbandið á föstudags- og laugardagskvöld. Lista- klúbburinn á mánudag. Flutt verða frumort Ijóð. SVEITABÖLL • Gjáin, Selfossi: Rask leik- ur bæði á föstudags- og laugardagskvöld. • Sjallinn, Akureyri: Sjalla- kráin og Marmelaði á föstu- dagskvöld. Hljómsveitin Namm á laugardagskvöld. Fimmtudagurinn 6. janúar 1994 LIFIÐ EFTIR VINNU PRESSAN 19

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.