Pressan - 06.01.1994, Síða 19
MYIUDUST
• Ásgrímssafn: Sýning stendur yfir á vatnslita-
myndum eftir Ásgrím Jónsson. Opið á laugardögum
og sunnudögum kl. 13.30-16.
• Café List: Lofgjörð tíu landskunnra listamanna til
Brynju X. Vífilsdóttur í tilefni af útkomu jólatölu-
blaðs tímaritsins Eintaks. Meðal listamanna eru
Helgi Þorgils Friðjónsson, Guðbergur Bergsson,
Þorvaldur Þorsteinsson og Páll Guðmundsson.
• Gallerí Borg: Sigurbjörn Jónsson sýnir nýjar ol-
íumyndir.
• Gallerí Listinn: Samsýning tíu listamanna sem
allir eru búsettir í Kópavogi. Sýningin, sem er í
Hamraborg 20a, er opin daglega frá kl. 13-18 og
lýkur 8. janúar.
• Gallerí Sævars Karls: Ljósmyndasýning ívars
Brynjólfssonar verður opnuð föstudaginn 7. janúar
og stendur til 2. febrúar.
• Gallerí Úmbra: Fyrsta einkasýning Ingibjargar
Jóhannsdóttur verður opnuð 6. janúar. Hún sýnir
ellefu myndir unnar með blandaðri tækni á pappír.
• Götugrillið: Jón Garðar Henrýsson sýnir mál-
verk unnin með blandaðri tækni \ Borgarkringlunni.
• Hafnarborg: Á kaffistofunni sýnir Guðmundur
Rúnar Lúðvíksson þrettán myndir unnar með nýrri
aðferð sem hann nefnir „Ijósgrafík". Sýningunni lýkur
9. janúar.
• Kaffi Sautján: Infernó 5 og Bandormsmennirnir
Ómar Stefánsson og Örn Ingólfsson sýna málverk
og leðurverk. Sýningin stendur fram yfir áramót.
• Kjarvalsstaðir: Þrjár nýjar sýningar verða opnað-
ar 8. janúar: Magnús Kjartansson sýnir ný málverk,
Finnbogi Pétursson opnar sýningu á hljóðskúlptúr-
um og Geoffrey Hendricks FLUXUS-maður sýnir.
• Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sýningin Hug-
mynd-Höggmynd, úr vinnustofu Sigurjóns Ólafsson-
ar, stendur yfir.
• Listhúsið: Jóhann G. Jóhannsson sýnir vatns-
litaverk á fyrstu einkasýningu sinni í sjö ár. Sýningin '' -
var framlengd til 9. janúar.
• Mokka: „Kaffi með Kristi“. Harla óvenjuleg sýning
á krossum af ýmsu tagi fyrir þá sem hafa gleymt
raunverulegu inntaki jólanna. Heilagasta kaffihúsa-
stemmning ársins er hér. Sýningunni lýkur á þrett-
ándanum.
• Norræna húsið: Þór Stiefel sýnir andlitsmyndir
unnar með vatnslitum í anddyri hússins. Sýningin
hefst 8. janúar og stendur yfir í þrjár vikur.
• Veitingahúsið Tilveran: Næsta mánuð sýnir Ása —1'
Björk á Linnetstíg 1 í Hafnarfirði.
• Önnur hæð: Tíu vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason frá sjöunda áratugnum í sýningarsalnum
á Laugavegi 37. Opið á miðvikudögum frá 14-18.
• Nýlistasafnið: Sýning á verkum Magnúsar Páls-
sonar verður opnuð laugardaginn 8. janúar kl. 16
með flutningi nokkurra leikara Þjóðleikhússins á
hljóðaljóðum eftir Magnús. Sýningin, sem heitir
„Varla...“, samanstendur af þremur rjóðrum, smá-
hlutum og raddskúlptúrum. Hún stendur til 23. janú-
ar.
HANN
HEFUR
HÖND-
TBUÐ
Bandaríski myndlistarmaður-
inn Geoffrey Hendricks
verður í sviðsljósinu laugar-
daginn 8. janúar á Kjarvals-
stöðum þegar farandsýningin
„Day Into Night“ verður opn-
uð. Sýningin kemur héðan frá
Óðinsvéum en heldur svo
áffam til Finnlands, Póllands
og Noregs.
Geoffrey Hendricks hefur
einu sinni áður haldið sýn-
ingu hérlendis en það var í
Nýlistasafninu 1984. Hann
hefur alls haldið um þrjátíu
einkasýningar á ferlinum og
tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum, gerningum og
umhverfislistaverkum og gef-
ið út rit, bækur og mynd-
bönd. Hann er þekktastur fýr-
ir þátttöku sína í FLUXUS-
hreyfingunni í Bandaríkjun-
um og Evrópu frá miðjum
sjötta áratugnum og hefur
.síðan verið virkur í þeim fé-
lagsskap.
„Day Into Night“ er yfirlits-
sýning á verkum Hendricks
frá þeim tíma til dagsins í dag
og nær yfir málverk, muni,
innsetningar og gerninga. Það
er ekki auðvelt að setja verk
hans á ákveðna bása, sérstak-
lega vegna þess að sjaldan er
um skýra einingu að ræða
milli listamannsins sem ein-
staklings og þegar hann ffarn-
kvæmir gjörninga og innsetn-
ingar eða málar myndir.
Hann hefur sjálfur sagt að
listamenn megi skilgreina
jafnt eftir lífi þeirra og þeim
listaverkum sem þeir skilja
eftir sig.
Meginviðfangsefhi Hendricks
er himinninn, sem hefur
heillað hann í hartnær þrjá
áratugi. Hann hefur málað
skýjamyndir og himinverk á
ýmsa hluti svo sem skó og
stóla en síðar á hefðbundnari
fleti. Háleit og kannski him-
nesk sýning sem verðskuldar
eftirmiðdagsrölt um sýning-
arsal Kjarvalsstaða.
Sýningin er opin daglega
frá kl. 10-18 og stendur til
13. febrúar.
MAMBÓ-
KÓNGAR:Tex
Borgfjörð og
Bogomil Font.
Heimsborgaradúett
Sigtryggur Baldursson, örðu nafni Bogomil Font, er á fullu þessa dagana að
reyna að viðhalda fornri frægð á meðan jólafríið stendur yfir, en eins og flestir
vita starfar hann sem húsmóðir í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hann
ætlar um helgina að taka lagið með gömlu félögunum úr Milljónamæringun-
um en þegar líða tekur á kvöldið má vænta þess að Tex Borgfjörð stígi á svið-
ið og syngi með Bogomil dúett í mambóstíl. Tex Borgfjörð er betur þekkt/ur
sem Lundúnabúinn Ragnhildur Gísladóttir, sem er öll að færast í aukana um
þessar mundir. 1 gervi Tex Borgfjörð lítur Ragnhildur út sem karlmaður og er
það gervi ekki með öllu ókunnugt, því í áramótaskaupinu birtist hún einmitt
í hlutverki þessa mambókóngs, sem hæglega gæti ógnað veldi Bogomils.
BÖLL
• Amma Lú: Bogomil Font,
Ragnhildur Gísladóttir og
Milijónamæringamir verða
öll saman að skernmta á
föstudagskvöld. Á laugar-
dagskvöldið verður Bogomil
hins vegar einn síns liðs.
• Bóhem: Eitthvað stórt
mun vera í bígerð á laugar-
dagskvöldið. Skólaball á
föstudagskvöld.
• Blúsbarinn: Ingólfsbandið,
skipað fjölda hljóðfæraleik-
ara, færir sig frá Ingólfskaffi
yfir á Blúsbarinn föstudags-
og laugardagskvöld.
• Cancun: Örkín hans Nóa
á laugardagskvöld.
• Café Romance: Birgir
Tryggvason og hinn ódauð-
legi Richard Scobie
skemmta á hverju kvöidi
fram tii 15. janúar.
• Feiti dvergurinn: Hljóm-
sveitin Sjarmör, sem ku
vera helmingur Snigla-
bandsins, ætlar að
skemmta á föstudags- og
laugardagskvöld.
• Fjörðurinn: Bara diskó
alla helgina, enda pása víð-
ast hvar.
• Fógetinn: Jón Ingólfsson
á föstudagskvöld. Guð-
mundur Rúnar trúbador á
föstudags- og Iaugardags-
kvöld. Rúnar Þór —■ einn —
á sunnudagskvöld.
• Gaukur á Stöng: Bogomil
Font sjálfur ásamt Milljóna-
mæringunum á fimmtu-
dagskvöld. Sú Ellen á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
• Hótel ísland: Bylgjuball
með Pláhnetunni og Stefáni
Hilmarssyni á föstudags-
kvöld. Þolfimikeppni hefst kl.
ntu á laugardagskvöld og
diskótek á eftir.
• Hótel Saga: Þorvaldur
Halldórsson og Gunnar
Tryggvason skemmta á
Mímisbar á föstudags- og
laugardagskvöld. Dansleik-
ur í Súlnasal á laugardags-
kvöld þar sem ætlunin er að
njóta dreggja nýársfagnað-
arins. Þar verður Pops ef að
líkum lætur.
• Hressó: Hljómsveitin
Black out með tónleika á
þréttándandum. Ólifandi
tónlist að öðru leyti alla
helgina.
• Rauða Ijónið: Hljómsveitin
SÍN verður þar um helgina
eftir því sem næst verður
komið.
• Tveir vinin Örkin hans
Nóa á fimmtudags- og
föstudagskvöld. Vinir Dóra á
laugardagskvöld.
• Þjóðleikhúskjallarinn:
Leikhúsbandið á föstudags-
og laugardagskvöld. Lista-
klúbburinn á mánudag. Flutt
verða frumort Ijóð.
SVEITABÖLL
• Gjáin, Selfossi: Rask leik-
ur bæði á föstudags- og
laugardagskvöld.
• Sjallinn, Akureyri: Sjalla-
kráin og Marmelaði á föstu-
dagskvöld. Hljómsveitin
Namm á laugardagskvöld.
Fimmtudagurinn 6. janúar 1994
LIFIÐ EFTIR VINNU
PRESSAN
19