Tíminn Sunnudagsblað - 20.01.1963, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 20.01.1963, Blaðsíða 19
fangabúðunum á þessum tíma, gaml- ir fangar dáið, nýir komið í staðinn. Böðullinn Hesper hafði misst höfuð sitt í fallöxinni, sem hann var meist- ari í að stjórna. Allir fangamir höt- uðu hann. f hvert sinn sem fallöxin skildi höfuð frá bol, felldi hann sam- úðartár, en enginn vissi, hvað hon- um leið innst inni. Einn daginn drap hann mann. Það var ekki embættis- verk og því talið morð. Dómurinn var, að hann skyldi hálshöggvast. — Þessi kaldrifjaði maður brá ekki svip: „Ekkjan (það kölluðu fangamir öx- ina) er hættuleg dama. Hún rændi- fyrirrennara minn lífinu. Nú er röð- in komin að mér, og þú geiur verið viss um, að einhvern daginn kemui röðin að þér“, — sagði hann við eft- irmann sinn. Hann kenndi eftir- rnanninum vandlega meðferð verk- færisins. Við prestinn, sem vildi fá hann til að iðrast synda sinna, sagð- ist hann ekkert hafa að tala. Hann kveikti sér í sígarettu, horfði róleg ur á öxina. Lagði höfuðið í stokkinr um leið og hann sagði við eftirmann sinn: „Þú sérð vonandi um, að liggi rétt“. Og svo fauk höfuðið sígarettan í munninum. Einn daginn kom barón frá Lux emburg. Hann var landkönnuður. hafði ríkulegan útbúnað og jós pen ingum á báða bóga. Yfirstéttin í St Laurent festi ást á baróninum. Hann varð uppiskroppa með penínga, en það gerði ekkert til, sagði hann, þeir væru á leiðinni, og þá fékk hann lán. Það var heiður að lána svona tign um manni. Hann hafði séð tvo krafta lega fanga í fangabúðunum og fékk þá leigða í landkönnunarferð sína sem átti að taka tvö ár. Fangelsis stjórinn upplýsti. baróninn um, a þessir fangar væru frægir myntfals arar, en baróninum var alveg sama um það. Hann þyrfti hrausta menn í ferðina. Honum var haldin dýrð- leg skilnaðarveizla, og daginn eftir hélt hann ásamt föngunum tveim í leiðangurinn. — Nokkrum mánuðum seinna kom bréf frá Þýzkalandi tii fangelsisstjórnarinnar, þar sem „bar- óninn“ þakkaði yfirvöldunum o borgurum St. Laurent fyrir hina ómet anlegu aðstoð, sem þeir höfðu veitt honum við að ná samverkamönnum sínum út úr fangelsinu! — Allt va- þetta svindl, fært upp til þess að ná fölsurunum úr klóm yfirvaldanna. Eftir sat fangelsisstjórnin með sárt ennið. Árið 1921 var stofnað flugfélag 1 Frönsku-Guyana, sem hét „Trafic Aerigave Guyana Francaise“, og var hlutverk þess einkum að halda uppi samgöngum við gullnámurnar mni i landinu. — Fangavörður einn í fang- elsinu, Vliet að nafni, fékk skipun um að velja fimmtán fanga, sem skyldu vinna á flugvellinum, halda Járnharðir hlekkir om bera ökklana. við flugskýlunum og þrífa flugvél amar. Vliet hafði alla tíð reynzt föngunum mikill vinur og ekki sízt fanga 44792. Hann sá svo um, að fangi 44792 varð einn af þessum fimmtán mönn- um, en tók jafnframt af fanganum loforð um að segja engum frá því, að hann hefði haft kynni af flugvétum áður. Fanginn hélt loforð sitt dyggi- lega, en gerði sig þó ekki heimskari en það, að hægt var að nota hann við að fylla benzíngeyma vélanna, og hann notaði hvert tækifæri, sem bauðst, til þess að stela benzínlögg og safna í brúsa. Með þeim hætti tókst honum að safna 30 lítrum. Hann var hlekkjaður við þá vél, sem hann vann við, og stundum varð hann að vinna fram eftir á kvöldin um hafði verið falið. Þetta kom ser vel, því að það vakti ekki grunsemd- ir, þegar hann eina nóttina var að paufast í kringum flugvél, sem flug- maður hafði beðið hann að gera reiðubúna til flugs næsta morgun. — En flugvélin flaug ekki um morg- uninn, hún flaug um nóttina, og það var fangi 44792, sem stjórnaði henni. En hann komst ekki langt, flugvélin var mesti benzíngámur, og þegar hann átti eftir ófarna ca. tólf kíló- metra til Paramaribo, var benzinið á þrotum og hann neyddist til þess að lenda á fljótinu skammt frá hol- lenzkri sykurverksmiðju. Hollending- arnir tóku vel á móti honum og hjálpuðu honum að ná af sér hlekkj- unum, en benzín var ekki hægt að fá. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 67

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.