Tíminn Sunnudagsblað - 20.01.1963, Page 21

Tíminn Sunnudagsblað - 20.01.1963, Page 21
Nýir fangar koma til nýlendunnar. fangi 44792 árið 1927, en Barbieux nokkru síðar. Og John Grant sýndi það vinarbragð að gefa fanga 44792 lítið verkstæði með öllu tilheyrandi í St. Laurent, og Barbieux gaf hann allmikla fjárhæð og skrifleg ummæli á þá lund, að svo lengi sem hann ynni á Portal, ætti hann að fá góð laun og góða vinnu. Þetta var þeim ómetanlegt. Fangi 44792 græddi vel á verkstæði sínu og lagði peninga til hliðar í hverri viku. En ekki löngu eftir að hann hafði fengið verkstæðið, teygði fanga búðasljórnin arm sinn lengra en hún hafði áður gert. Héðan í frá skyldu allir „leysingjar" skyldaðir til að vinna tvo daga í viku f þágu fangabúðanna, kauplaust. Þessi tilskipun vakti mikla reiði meðal „leysingjanna“ og kom fanga 44792 sérlega illa, þar sem hann átti mjög erfitt með vinnu vegna sár- anna á fótleggjunum, sem urðu æ verri, þrátt fyrir það að hann fengi daglega læknismeðhöndlun á sjúkra- húsinu í St. Laurent. Mikið af því fé, sem hann vann sér inn, fór í lækn iskostnað, og ef hann ætti nú að fara að vinna kauplaust tvo daga í viku, væri útséð um, að hann gæti safnað nógu miklu til þess að komast úr landinu. Og einn góðan veðurdag sagði læknirinn honum, að ef hann ekki legðist inn á sjúkrahús til með- höndlunar strax, væri viðbúið að taka þyrfti fæturna af honum. Læknirinn, sem stundaði hann á sjúkrahúsinu, var einn af þeim fáu, sem hafði til að bera mannúð, enda fór svo, að fangelsisstjórnin hrakli hann frá störfum. Hann hafði sagt henni of hreinskilnislega til syndanna. Eftir- maður hans útskrifaði fangann hið fyrsta, enda hafði hann verið búinn að borga sjúkralegu og uppskurðinn, og því ekkert á honum að græða. Fanginn hafði orðið að selja verk- stæð'ið til þess að geta staðið undir sjúkrahúsvistinni og stóð nú uppi alls- laus og ekki enn gróinn sára sinna. Það horfði því óvænlega fyrir honum. — En þá skyndilega rættust hinir áragömlu draumar hans um frelsi: Danska utanríkisþjónustan hafði unn ið að þvf í mörg ár, að fá hann náð- aðan, og nú loks — 15. júlí 1927 — hafði það tekizt. En frelsið eitt var ekki nóg; hann gat ekki notfært sér það vegna fjárskorts. Hann varð líka fyrir því hörmulega slysi, að brennast í andliti, er hann var að vinna við gufuketil. Um skeið var ekki útlit fyrir annað en hann missti sjónina, en hollenzkum lækni í Albina tókst að bjarga henni á öðru auga, en hann var nær blindur á hinu. Enn einu sinni barði ógæfan að dyrum hjá þessum leiksoppi örlag- anna. — Hann hafði gert við skamrn- byssu gullgrafara nokkurs, sem aldr ei hafði sótt hana, og einn daginn hvarf hún sporlaust. Nokkrum vikum síðar var gerð ránárás á kínverskan kaupmann. Þorparinn náðist. Hann hét Marcel og hafði unnið á eynni Portal, þegar þeir Barbieux og fangi 44792 voru þar. Þetta var forhertur óþverri, sem öllu spillti, hvar sem hann fór. Hann bar það fyrir rétti, að þvf er fangi 44792 frétti, að fangi 44792 hefði lánað sér byssuna, væri upphafsmaður ránstilraunarinnar og hefði átt að fá sinn hlut af ránsfengn- um. Fanginn vildi ekki eiga yfir höfði sér afleiðingarnar af þessum ósanna áburði, og þeir Barbieux höfðu sam- band við fyrrverandi fanga, sem átti lítinn vélbát, og hann féllst á að flytja þá til Venezúela. Svo einkennilega vildi til, að í þess ari síðustu flóttaför sinni björguðu þeir félagar strokufanga frá Royale, sem rak stjórnlaust á fleka úti á rúm- sjó. Hann var illa haldinn af hungri og þorsta, og við hlið hans á flekan- um lá félagi hans, látinn. Þeir tóku strokufangann frá Royale um borð og héldu áfram ferðinni. En brátt komust þeir að raun um sér til skelf- ingar, að þeir voru orðnir vatnslaus- ir: Önnur vatnstunnan, sem þeir höfðu haft með sér, hafði verið lek. En loks höfðu örlögin ákveðið að snúa við blaðinu: Skip birtist við sjón- deildarhring, og það var amerískt, en ekki franskt — guði sé lof. Þetta var skemmtisnekkja og um borð á henni fengu fangarnir fyrrverandi aðhlynningu og hjúkrun. — Eftir T í M I N N — SUNNUDAGSBL 4Ð 69

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.