Tíminn Sunnudagsblað - 07.04.1963, Qupperneq 2
Myndsmíð
Á Karlottueyjum í brezku Kolum-
bíu búa Indíánar af svonefndum
Hædaættflokki. Þeir eru þó fámenn-
ir, því að í ættflokki þessum eru
ekki nema tólf til þrettán hundruð
menn, og eiga sumir þeirra heima á
meginlandi Alaska. Þessi ættflokkur
hefur þó nokkuð til síns ágætis. Á
þeim slóðum fyrirhittast ekki færari
myndhöggvarar en meðal Hæda-
Indíána.
Höggmyndir sínar gera Indíánarn-
ir úr grjóttegund, sem tU er í fjöll-
um á Grahamey, og er hún tiltölu-
lega auðunnin, þegar hún er nýbrot-
in, en harðnar við áhrif loftsins. Hef-
ur stjórnarvaldabann verið lagt við
því, að aðrir nýti þetta grjót en
Indíánarnir.
Grjótið er ýmist grátt eða dökkleitt.
Þegar Indíánarnir hafa brotiff upp
steina handa sér, flytja þeir þá heim
til sín og láta þá þorna þar ofurlítið,
áður en þeir hefjast handa. Þegar
þeir hafa meitlað myndir sínar,
fægja þeiý þær vandlega með ullar-
pjötlu, sem í er borið grafít og vætt
steinolíu, og lúrna ekki fyrr en yfir-
borðig er orffiff slétt og mjúkt viff-
komu og gljás^prt á lit.
NOKKRAR MYNDIR Hæda-lndiána: Á
þessari siðu að ofan eru jndíánahjón.
Að neðan er furðudýr til vinstri, sam-
bland af hundi og fugli, en grunn skál,
mjög skrautleg, með ífelldu beini til
hægri. — Á 315. síðu er fuglsmynd af
einni af súlum þeim, sem Indíénar
reistu i þorpum sínum.
314
T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ