Tíminn Sunnudagsblað - 07.04.1963, Qupperneq 4
Kaupamennska i Alöðrudal
endaði með sjóhrakningum
Ásta Ásgeirsdóttir fæddist árið 1893. Foreldrar henn-
ar voru þau Ásgeir Eyþórsson og Jensína Matthías-
dóttir í Reykjavík. Bróðir Ástu er herra Ásgeir Ás-
!; geirsson, forseti íslands. Ásta giftist Hjalta Gunnars-
j syni og eiga þau fjögur börn.
í KÓRANESn var einn elzti verzlun-
arstaður landsins. Það er í þröngum
firði, sem er í góðu vari fyrir vind-
um og sjógangi, — Straumfirði á
Mýrum. Úti fyrir reisa grynningar
sjói og boða. Nú sést ekkert til manna
í Kóranesi. Þar eru aðeins berar
klappirnar. Fiskurinn í Faxaflóa
hafði verzlunina í Kóranesi á sínu
valdi, og þegar hann hvarf úr flóan-
um, voru dagar hennar allir. Hún
byggði tilveru sína á verziun við ver-
tíðarmenn. Þeir hurfu um leið og
fiskuiinn. — Á þessum árum var
Ásta Ásgeirsdóttir líttt stúika, senni-
lega með fléttur niður á bak. Hún
var innan við tíu ára aldur og pabbi
hennar var faktor í verzluninni. —
Sjómennirnir komu inn í verzlunina
meg seltulykt í klæðuum, keyptu sér
eitt og annað, stóðu við og spjölluðu,
kannski um veðrið, kannski um fisk-
inn. Ef til vill urðu þeir stundum
hýrir af víni milli þess sem sjórinn
snoppungaði þá, þegar þeir sóttu of
fast að krækja í þorskinn í djúpinu.
Það komu „spekulantar" og iágu
inni á firðinum, norsk skip, sem settu
taugar í kengi í landi og stóð'u lengi
við með lestarnar fullar af varningi.
Fjörðurinn var svo mjór, ag þegar
skipið snéri sér, var bugspjót þess
við klettana hinum megin. Fólkið
réri út í þessi skip, og augu barn-
anna, sem fengu að fara með for-
eldrum sínum út í „spekulantana",
fylltust af löngun, þegar þau sáu all-
ar krásirnar í lestunum: rúsínur,
sveskjur . . . allt, sem eitt barn girnt-
ist. Þar voru líka klæðastrangar, og
ungu stúlkurnar, sem áttu sér kær-
asta, roðnuðu, þegar þær fitluðu við
þá, því að þær vonuðu í laumi, að
kærastinn gæfi þeim svuntuefni. —
Ásta fékk að fara út í svona skip og
fann, að það var afskaplega fín lykt
í þeim, sém kitlaði í nefið. Það var
útlenzk lykt.
En svo fór fiskurinn. „Spekulant-
arnir“ lettuðu annarra hafna, eltu
sjómennina, sem eltu fiskinn. Þá flutt
ust foreldrar Ástu frá Kóranesi til
Reykjavíkur. Skömmu síðar andað-
ist verzlunin í Kóranesi.
Þegar Ásta var orðin ung stúlka
og ekkert barn lengur, fór hún í
kaupavinnu. Hún fór ekki skammt,
alla leið norður í Möðrudal fór hún.
Fyrst sjóveg með skipi til Vopna-
fjarðar. Síðan ríðandi yfir ár, heiðar
316
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ