Tíminn Sunnudagsblað - 07.04.1963, Síða 12
ÆVINTÝRIÐ
I STOFUNNI
I STÚRHOLTI
Einhver hugþekkasti vorboðinn i
fíeykjavík er söngur þrastarins, þeg-
ar hann er í giftingar- og búskapar-
hug. Skógur er hans óskaland, og því
leitar hann helzt að stað fyrir hreið-
ur sitt í hinum mörgu og fögru trjá-
görðum borgarifinar. Sá, sem kemur
sér upp trjágarði, á því víst að fá
fljótlega þennan gest í garðinn sinn.
Nú hafa vísindamenn sannað, að hægt
er að þekja stóran hluta af hinum
víðáttumiklu auðnum landsins með
töðugrasi og skógargróðri, og ef
næstu kynslóðir bera gæfu til þess
að vinna það nytjaverk, þá er það
víst, að iþrösturinn verður kórónan á
það nývirki.
Það er lítill vafi, að margur borg-
arbúi, sem býr við trjágarð, hefur
verið vakinn fyrr en hann vildi með
söng og búskaparumstangi þrastarins.
En þó hef ég engan heyrt kvarta und-
an ónæðinu, heldur marga fagna því,
ef þrösturinn tekur sér bólfestu í
garðinum þeirra. Og mér er sama,
þótt ég segi frá þvi, að þegar ég varð
þess var, að þröstur hafði valið sér
hreiður í trjám nágrannans, en kom
324
X I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ