Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Page 4

Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Page 4
til Þingvalla og sló upp tjöldum ó túninu hjá séra Símoni Bech. Þar á meðal var eitt, sem enska herstjórnin hafði keypt í Skútarí og fengið her- foringjum sínum til afnota í Krím- striðinu, og í það voru breidd sjúkra- teppi af svipuðum uppruna. Þetta var fararbúnaður, sem fyrr hafði komizt í snertingu við blóð. Það hafði vorað seint þetta áiy því að hafís kom að landi og lá alllengi fram eftir. Fuglar höfðu orpið seint og ungar komizt seint á legg. Hinum vígreifu ferðalöngum, búnum frönsk um og enskum stríðstólum af beztu gerð, gekk þvi dável herferðin gegn fuglunum. Lóurnar á Lögbergi reynd ust viðráðanlegt skotmark, rjúpur og spoar féllu i nrönnum í Þingvaiia- hrauni, straumandirnar á Öxará áttu sér ekki undankomu auðið eg hrossa- gaukar, sem áttu unga í grasinu á milli búðarústanna, urðu hinum fræknu skyttum að bráð. Og eitt kvöldið gat Charles S. Forbes skrifað' þessi orð í dagbók sína: „Síðdegis í dag kom kona franska ræðismannsins með dætur sínar úr bænum, og á morgun förum við von- andi til Reykjavíkur með vænan poka með eitthvað sex hundruð hausa af hrossagaukum, rjúpum, öndum, lóum og fleiri fuglum“. Minna mátti ekki gagn' gera: Sex hundruð hausa. En eftir á að hyggja: Rjúpur og straumendur eiga marga unga, og þeir hafa verið illa fleygir, svo að skotmennirnir hafa kannski ekki ofreynt sig viff fuglaveiðarnar, LOUDRAP Á LÖGBERGI I. ÞAÐ var seint í júlímánuffi árið 1859. Póstskipið Arcturus siglir inn Faxaflóa. Það er að koma frá Leith, og á því eru fáeinir enskir og banda- rískir farþegar, svo sem oft er á sumr- in. Sumir eru hingað komnir gagngert til þess aff sjá Geysi og ætla um hæl með stkipinu til Leith. Aðrir hyggja á lengri dvöl í landinu. í þessum hópi er Englendingur, Charles S. Forbes að nafni. Hann er einn þeirra, sem ætla að vera hér meginhluta sumars. Tvö frönsk herskip liggja í höfn í Reykjavík, Artémise og Agile. Þau hafa fylgt hingáð frönsku skútunum, er stunda veiðar við landið, og þau eiga aff veita fiskimönnunum liðsinni eftir þörfum. En vera má, að þau séu líka látin sinna ýmiss konar mæl- ingum og athugunum, enda er það eitt þeirra leyndarmála, sem eru á allra vitorði, að Frökkum leikur hug- ur á ag ná hér fótfestu og koma hér upp fiskimannanýlendu. Það eru ekki nema örtá ár síðan Napoieon Frakka- prins kom í heimsókn með miklu föru neyti og jós gjöfum á báffa bóga. Charles S. Forbes komst fljótt í kynni við frönsku sjóliðsforingjana, og það voru ekki margir dagar liðnir, er yfirforinginn, Véron, baug honum með fríðu föruneyti til Þingvalla, „hins sögufræga staðar frá þjóffveld- istímunum fornu“, til þess að skjóta þar ' mófugla. Þeir lögðu af stað 5. ágústmánaðar: „Ókunnugur maður hefði getað ætlað, að við ætluðum að setjast að á Þingvöllum fvrir fullt og allt, í stað þess að fara þar með byssu í nokkra daga. Tjöldin voru þrjú, beddar óteljandi og allt, sem heyrði til eldhúsi, ásamt víni og matvælum handa tólf soltnum mönnum í hálfan mánuð“. Samt þótti eina Englendingn um, sem í förinni var, tryggara aff bæta við einum klvfjahesti með svína fleski frá Jórvík og osti frá Chester og fieiri enskum matvælum, ásamt nokkrum áfengisflöskum. Flokkurinn komst heilu og höldnu þrátt fyrir fjölda hausanna. En þaff er af Charles S. Forbes að segja, að afrekaskrá hans varg miklu lengri. í septembermánuði var hann til dæmis á ferð skammt frá Hraun- gerði í Flóa. Þar reið hann tvívegis fram á rjúpur með stóran hóp unga, „og seinna drap ég þá hér um bj] alla“. Fáum árum siðar var annar Eng- lendingur, Sabine Baring-Gould, á leið austur Mosfellsheiði með föru- neyti sitt hinn 19. júní. Hann var ekki heppinn: Fuglarnir enn við hreiður, ungar kannski nýkomnir úr eggjum. Hann hefur sagt svo frá: „Á heiðinni var fullt af spóum c.g lóum. Félagar mínir skutu eins mik- iff og vig gátum boriff, og auk þess hrossagauka og rjúpur í sumarbún- ungi. Kríur með svartar, spjátrungs- legar hettur, snjóhvít brjóst og rauða fætur og nef, flugu og vokuðu í kring um okkur með einkennilegum, skræk- um hljóðum. Við drápum fjórar, en. neyddumst til þess að fleygja þeim 388 T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.