Tíminn Sunnudagsblað - 05.05.1963, Qupperneq 4
til Þingvalla og sló upp tjöldum ó
túninu hjá séra Símoni Bech. Þar á
meðal var eitt, sem enska herstjórnin
hafði keypt í Skútarí og fengið her-
foringjum sínum til afnota í Krím-
striðinu, og í það voru breidd sjúkra-
teppi af svipuðum uppruna. Þetta var
fararbúnaður, sem fyrr hafði komizt
í snertingu við blóð.
Það hafði vorað seint þetta áiy því
að hafís kom að landi og lá alllengi
fram eftir. Fuglar höfðu orpið seint
og ungar komizt seint á legg. Hinum
vígreifu ferðalöngum, búnum frönsk
um og enskum stríðstólum af beztu
gerð, gekk þvi dável herferðin gegn
fuglunum. Lóurnar á Lögbergi reynd
ust viðráðanlegt skotmark, rjúpur og
spoar féllu i nrönnum í Þingvaiia-
hrauni, straumandirnar á Öxará áttu
sér ekki undankomu auðið eg hrossa-
gaukar, sem áttu unga í grasinu á
milli búðarústanna, urðu hinum
fræknu skyttum að bráð. Og eitt
kvöldið gat Charles S. Forbes skrifað'
þessi orð í dagbók sína:
„Síðdegis í dag kom kona franska
ræðismannsins með dætur sínar úr
bænum, og á morgun förum við von-
andi til Reykjavíkur með vænan poka
með eitthvað sex hundruð hausa af
hrossagaukum, rjúpum, öndum, lóum
og fleiri fuglum“.
Minna mátti ekki gagn' gera: Sex
hundruð hausa. En eftir á að hyggja:
Rjúpur og straumendur eiga marga
unga, og þeir hafa verið illa fleygir,
svo að skotmennirnir hafa kannski
ekki ofreynt sig viff fuglaveiðarnar,
LOUDRAP Á LÖGBERGI
I.
ÞAÐ var seint í júlímánuffi árið
1859. Póstskipið Arcturus siglir inn
Faxaflóa. Það er að koma frá Leith,
og á því eru fáeinir enskir og banda-
rískir farþegar, svo sem oft er á sumr-
in. Sumir eru hingað komnir gagngert
til þess aff sjá Geysi og ætla um hæl
með stkipinu til Leith. Aðrir hyggja
á lengri dvöl í landinu.
í þessum hópi er Englendingur,
Charles S. Forbes að nafni. Hann er
einn þeirra, sem ætla að vera hér
meginhluta sumars.
Tvö frönsk herskip liggja í höfn í
Reykjavík, Artémise og Agile. Þau
hafa fylgt hingáð frönsku skútunum,
er stunda veiðar við landið, og þau
eiga aff veita fiskimönnunum liðsinni
eftir þörfum. En vera má, að þau
séu líka látin sinna ýmiss konar mæl-
ingum og athugunum, enda er það
eitt þeirra leyndarmála, sem eru á
allra vitorði, að Frökkum leikur hug-
ur á ag ná hér fótfestu og koma hér
upp fiskimannanýlendu. Það eru ekki
nema örtá ár síðan Napoieon Frakka-
prins kom í heimsókn með miklu föru
neyti og jós gjöfum á báffa bóga.
Charles S. Forbes komst fljótt í
kynni við frönsku sjóliðsforingjana,
og það voru ekki margir dagar liðnir,
er yfirforinginn, Véron, baug honum
með fríðu föruneyti til Þingvalla,
„hins sögufræga staðar frá þjóffveld-
istímunum fornu“, til þess að skjóta
þar ' mófugla. Þeir lögðu af stað 5.
ágústmánaðar: „Ókunnugur maður
hefði getað ætlað, að við ætluðum að
setjast að á Þingvöllum fvrir fullt og
allt, í stað þess að fara þar með byssu
í nokkra daga. Tjöldin voru þrjú,
beddar óteljandi og allt, sem heyrði
til eldhúsi, ásamt víni og matvælum
handa tólf soltnum mönnum í hálfan
mánuð“. Samt þótti eina Englendingn
um, sem í förinni var, tryggara aff
bæta við einum klvfjahesti með svína
fleski frá Jórvík og osti frá Chester
og fieiri enskum matvælum, ásamt
nokkrum áfengisflöskum.
Flokkurinn komst heilu og höldnu
þrátt fyrir fjölda hausanna.
En þaff er af Charles S. Forbes að
segja, að afrekaskrá hans varg miklu
lengri. í septembermánuði var hann
til dæmis á ferð skammt frá Hraun-
gerði í Flóa. Þar reið hann tvívegis
fram á rjúpur með stóran hóp unga,
„og seinna drap ég þá hér um bj]
alla“.
Fáum árum siðar var annar Eng-
lendingur, Sabine Baring-Gould, á
leið austur Mosfellsheiði með föru-
neyti sitt hinn 19. júní. Hann var ekki
heppinn: Fuglarnir enn við hreiður,
ungar kannski nýkomnir úr eggjum.
Hann hefur sagt svo frá:
„Á heiðinni var fullt af spóum c.g
lóum. Félagar mínir skutu eins mik-
iff og vig gátum boriff, og auk þess
hrossagauka og rjúpur í sumarbún-
ungi. Kríur með svartar, spjátrungs-
legar hettur, snjóhvít brjóst og rauða
fætur og nef, flugu og vokuðu í kring
um okkur með einkennilegum, skræk-
um hljóðum. Við drápum fjórar, en.
neyddumst til þess að fleygja þeim
388
T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ